Morgunblaðið - 28.01.2001, Side 33

Morgunblaðið - 28.01.2001, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 33 greint sig með þeim hætti, þar sem þau töldu gáfur sínar, menntun og fágun tryggja sér ákveðna virðingu. „Rétt eins og aðrir fulltrúar hans kynslóðar gat forsetinn, er var við völd á ný- liðnum áratug græðginnar, horft á sjálfan sig í speglinum og verið ánægður með sig.“ Auðvitað orka þessi sjónarmið Francis Fuku- yama tvímælis, rétt eins og flest annað. Þau eru hins vegar forvitnilegt innlegg í þær umræður og það uppgjör, sem nú er að hefjast vegna Clinton- tímabilsins. Útrás íslenskra fyrirtækja Íslensk fyrirtæki hafa í stórauknum mæli verið að hasla sér völl erlendis með starfsemi sína á undanförnum árum og telst það vart lengur til stórtíðinda þegar fréttir berast af slíku. Í nýlegri bók sem heitir Landnám, útrás ís- lenskra fyrirtækja, rekur Þór Sigfússon, hag- fræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Nor- ræna fjárfestingarbankans í Helsinki, þessa þróun. Hann segir þar að þegar litið sé til baka hafi orðið ýmsar breytingar á útrásinni. Í fyrstu hafi hún falist í því að fisksölufyrirtækin ráku verksmiðjur og sölustarfsemi á erlendri grundu en síðan hafi ýmis fyrirtæki byrjað að stofna útibú í öðrum löndum. „Það sem byrjaði sem útflutn- ingur og takmörkuð starfsemi söluskrifstofa er- lendis er í auknum mæli að verða gagnkvæm sam- skipti fyrirtækja yfir landamæri, fyrirtækjanet og flutningur þekkingar á milli svæða. Nú við alda- mót er mun algengara að íslensk fyrirtæki kaupi fyrirtæki í öðrum löndum, sem verði síðan dóttur- fyrirtæki þeirra eða komi á samstarfi við erlend fyrirtæki,“ segir Þór í bók sinni. Árið 1995 nam íslensk fjárfesting erlendis sem samsvarar 11,7 milljörðum króna og þar af voru 7,5 milljarðar fjárfestingar í Bretlandi og Banda- ríkjunum. 85% af þessari fjárfestingu tengdist sjávarútvegi. Árið 1998 var íslensk fjárfesting í öðrum ríkjum komin í 23,5 milljarða og hlutur Bandaríkjanna og Bretlands orðinn 42%. Það eru fyrst og fremst stóru fisksölufyrirtæk- in, ásamt Eimskip og Marel, sem eiga hlut að máli þegar þarna er komið sögu en Þór bendir á að í lok ársins 1998 hafi alls 72 íslenskir aðilar fjárfest beint í 141 erlendu fyrirtæki. Lengi vel var yfir- leitt um smáar fjárfestingar að ræða en stöðugt fjölgar dæmum um stórar og miklar fjárfestingar, s.s. kaup Össurar á Flexfoot í Bandaríkjunum og Pharmaco á Balkanpharma í Búlgaríu. Önnur vísbending um alþjóðavæðingu íslenskra fyrirtækja er fjöldi starfsmanna dótturfélaga ís- lenskra fyrirtækja erlendis. Þeir voru um 3.400 fyrir fimm árum en eru nú orðnir tíu til ellefu þús- und. Lítil fjölgun hefur orðið hjá fisksölufyrir- tækjunum og jafnvel fækkun vegna hagræðingar. Hins vegar vega kaup Pharmaco á lyfjaverksmiðj- um, þar sem starfa um 4.200 manns, þungt. Þór bendir á að tæpur helmingur 20 öflugustu útrásarfyrirtækjanna er nú með meirihluta starf- semi sinnar erlendis og ætla megi að sjö til átta til viðbótar muni brátt bætast í þann hóp. „Flest þessara fyrirtækja eru því að verða mun minna háð íslensku efnahagslífi en áður. Um leið eykst aðhald á stjórnvöld þar sem þessi fyrirtæki minnka enn frekar starfsemi sína hérlendis ef starfsumhverfi þeirra er ekki samkeppnishæft við önnur lönd. Helsta hættan hér er þó sú að fyrir- tækin dragi smám saman úr starfsemi sinni hér- lendis vegna óviðunandi rekstrarskilyrða og smæðar íslenska gjaldmiðilssvæðisins en það fari svo hljótt að stjórnvöld grípi ekki í taumana fyrr en starfsemin er meira eða minna á brott af land- inu.“ Gull og grænir skógar Í bókinni er einnig fjallað um ýmsar goð- sagnir tengdar erlend- um fjárfestingum og má nefna sem dæmi þá viðteknu skoðun að mikil tækifæri sé að finna á vanþróuðum mörkuðum. Höfundur bendir hins vegar á að bestu útrásar- fyrirtækin á alþjóðavísu séu enn að leita tækifæra í nágrannalöndum sínum. „Þegar litið er á stað- reyndir þá kemur í ljós að alþjóðavæðingin kemur aðallega fram í stóru iðnríkjunum og langstærstur hluti fjárfestinga yfir landamæri er ennþá bund- inn við iðnríkin.“ Hann segir íslensk fyrirtæki er hafi starfrækt fyrirtæki í þróunarríkjunum lenda í gamalkunn- ugum vandamálum. Grunngerð atvinnustarfsem- innar sé bágborin og það sem við lítum á sem sjálf- sagða hluti, s.s. rafmagn, sími og vegakerfi, sé víða munaður. Tollar og ýmis gjöld á innflutning séu yfirleitt mjög há í þessum ríkjum og ofan á það bætist að mútuþægni er viðtekin venja og getur kostnaður við mútur til embættismanna hæglega numið sömu upphæð og heildarlaunagjöld lítilla fyrirtækja. Þá geti verið varasamt að mikla fyrir sér þau tækifæri sem er að finna erlendis. „Útrásarfyrir- tæki í sjávarútvegi hafa margoft bent á að miklir möguleikar séu til aukinna veiða við ýmis lönd. Þá skorti víða þekkingu og tækni sem Íslendingar geti bætt úr. Stundum eru lýsingarnar orðnar í anda Einars Benediktssonar skálds sem hafði lýst nokkrum veiðiám á Íslandi fyrir útlendum fjár- festum á þann veg að hægt væri að ganga þurrfóta á laxatorfum milli bakka sumra þeirra. Það er allt morandi í fiski við strendur Afríku, í Mexíkóflóa, við Kamsjatka og við strendur Suður-Ameríku svo eitthvað sé nefnt. ... Reynslan af útrás ís- lenskra sjávarútvegsfyrirtækja er sú að sá sem á bát og frystihús hér heima hefur engan sérstakan bakgrunn til þess að fást við þau margvíslegu vandamál, sem steðja að þegar komið er á fót eða keypt starfsemi í öðrum löndum. Þessi fyrirtæki eru þrátt fyrir allt tiltölulega lítil, enda þótt þau þyki jafnvel stór í sjávarútvegi víða í heiminum, og hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til að taka umtals- verða áhættu eða leggja verulegt fé í áhættustarf- semi eða að halda úti taprekstri í nokkurn tíma.“ Nágrennið vænlegast til árangurs Þór rekur hins vegar einnig fjölmörg dæmi um velheppnaða útrás fyrirtækja. Hann spáir því að tíu til tuttugu fyrirtæki muni áfram verða burðarásar fjárfestinga erlendis, þó svo að heildarfjöldi fyrirtækja er ræðst í slíkar fjárfest- ingar aukist. Sú sé til dæmis raunin á hinum Norðurlöndunum. Hann kemst einnig að þeirri niðurstöðu að lík- legt sé að útrásin verði nær okkur en fjær í fram- tíðinni. „Í nágrannalandinu eru útrásarfyrirtækin í svipuðu umhverfi og í heimalandinu, það ríkir traust á milli einstaklinga og leikreglurnar eru þær sömu ... Um helmingur þeirra fyrirtækja sem eru á listanum yfir 20 öflugustu útrásarfyrirtæki landsins hafa beint sjónum sínum að Norðurlönd- unum að meira eða minna leyti, en hinn helming- urinn hefur annars vegar horft til annarra Evrópulanda eða Bandaríkjanna. Árangur margra samstarfsverkefna við nágranna okkar á Norðurlöndunum virðist góður.“ Landvinningar íslenskra fyrirtækja skipta miklu máli fyrir íslenskt efnahagslíf og því er fagnaðarefni hversu markviss og árangursrík út- rásin er orðin. Nokkur af helstu íslensku útrásar- fyrirtækjunum eru orðin leiðandi á sínu sviði í heiminum og má nefna Össur og Marel í því sam- bandi. Allt eykur þetta breidd íslensks efnahags- og atvinnulífs og það þekkingarstreymi er leikur um viðskiptalífið. Að sama skapi veitir þetta stjórnvöldum ákveð- ið aðhald við að tryggja að rekstrarumhverfi og aðstæður séu sambærileg við það sem gerist í ná- grannalöndunum. Hraðinn í þróuninni í viðskipta- lífinu eykst stöðugt sem gerir alveg nýjar kröfur til stjórnvalda og þeirra, sem sjá um opinbera stefnumótun. Til að halda rekstri fyrirtækja í landinu verður að fylgjast grannt með því hver þróunin er í helstu samkeppnislöndum okkar og aðlaga aðstæður og starfsumhverfi fyrirtækja þeirri þróun. Við erum nú ekki einungis í sam- keppni við önnur lönd um sölu á afurðum okkar heldur ekki síður hvar fyrirtæki okkar og sérhæft starfsfólk ákveður að starfa og greiða skatta sína. Í mörgum atvinnugreinum er fjarlægðin á milli landa ekki lengur nein hindrun. Morgunblaðið/Rax Til að halda rekstri fyrirtækja í landinu verður að fylgjast grannt með því hver þróunin er í helstu samkeppnislöndum okkar og aðlaga að- stæður og starfsum- hverfi fyrirtækja þeirri þróun. Við er- um nú ekki einungis í samkeppni við önn- ur lönd um sölu á af- urðum okkar heldur ekki síður hvar fyr- irtæki okkar og sér- hæft starfsfólk ákveður að starfa og greiða skatta sína. Laugardagur 27. janúar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.