Morgunblaðið - 28.01.2001, Blaðsíða 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 43
MIKILL viðbúnaður var þegar eld-
ur kom upp í húsinu á Grandagarði 8,
þar sem Bæjarútgerð Reykjavíkur
var til húsa, snemma í gærmorgun.
Eldurinn kom upp á annarri hæð í
syðsta hluta hússins en breiddist lít-
ið út. Hins vegar urðu miklar
skemmdir á húsinu vegna reyks og
vatns. Til stóð að fagna verklokum
við endurbæturnar í dag en fram-
kvæmdir hafa staðið yfir síðustu
mánuði. Ráðgert var að flytja starf-
semi tölvufyrirtækisins Stefju ehf. á
hæðina þar sem eldurinn kom upp
strax eftir helgi.
Mikinn reyk lagði yfir vesturbæ-
inn frá eldinum. Í nokkrum tilfellum
hringdi fólk er býr í nágrenni við
Grandagarð til slökkviliðs þar sem
reykur hafði komist inn í íbúðir þess.
Maður í fastasvefni á jarðhæð
Unnið var að endurbótum á hús-
inu og þar stóð til að opna nýjar höf-
uðstöðvar tölvufyrirtækisins Stefju
með formlegum hætti í gær, laug-
ardag. Fyrirtækið átti að vera á
1.000 fermetra gólffleti í húsinu og
voru allar innréttingar fullbúnar en
tölvubúnaði og tækjum fyrirtækisins
hafði þó ekki verið komið fyrir.
Tveir iðnaðarmenn voru við vinnu
í húsinu allt fram til kl. 3 aðfaranótt
laugardagsins en tilkynnt var um
eldinn klukkan 6.55 að morgni.
Fyrsta verk slökkviliðs var að bjarga
manni sem hafði verið í fastasvefni á
jarðhæð hússins út úr því. Manninn
sakaði ekki. Hann hafði haft þarna
svefnaðstöðu þótt ekki sé þar um
íbúð að ræða. Um tíma var talið að
annar iðnaðarmannanna væri ennþá
inni í húsinu en reykkafarar leituðu
strax af sér allan grun. Maðurinn
reyndist heill á húfi á heimili sínu.
Milljónatjón á húsinu
Þorsteinn Ingimundarsson, varð-
stjóri hjá Slökkviliði höfuðborgar-
svæðisins, segir að mikill eldur hafi
verið í húsinu þegar slökkvilið kom á
staðinn. Eldurinn var staðbundinn
við syðsta hluta hússins. Þetta er þrí-
lyft steinhús og sambyggt við það
eru gamlir fiskvinnslusalir Granda
hf. Jafnframt náði eldurinn að læsa
sig í lítið bárujárnsklætt útskot sem
er áfast suðurgafli hússins og þar
logaði mikill eldur þegar að var kom-
ið. Slökkvistarfi var lokið um kl. 9.
Ekki er ljóst hver upptök eldsins
eru.
Eigandi þeirrar hæðar þar sem
eldurinn kom upp er Guðjón Bjarna-
son arkitekt. Hann sagði ljóst að
þarna væri um milljónatuga tjón að
ræða. Þriðja hæð hússins er í eigu
Ásatrúarfélagsins og urðu þar tals-
verðar skemmdir vegna reyks og
hita. Í sambyggðri norðurálmu, þar
sem áður voru fiskvinnslusalir
Granda, hefur tölvufyrirtækið Gag-
arín starfsemi sína á jarðhæð og
annarri hæð. Þar kom eldtraustur
veggur í veg fyrir skemmdir. Þessi
hluti hússins er í eigu eignarhalds-
félags sem tengist sjávarútvegsfyr-
irtækinu IceMac.
Heimir Björgvinsson, fjármála-
stjóri Stefju, sagði að formlega hefði
staðið til að taka við lykli að húsnæð-
inu í gær. Hann sagði að eldsvoðinn
raskaði ekki mikið starfsemi fyrir-
tækisins og eldsvoðinn hefði óveru-
legt tjón í för með sér fyrir Stefju.
Lán í óláni hefði verið að ekki hefði
verið búið að flytja búnað fyrirtæk-
isins í húsið. Hann segir að ekki sé
búið að taka ákvörðun um hvort hús-
ið verði endurbyggt.
Eldur gaus upp aftur kl. 12
Eldur gaus aftur upp á sama stað í
húsinu um kl. 12, eða einni klukku-
stund eftir að svokölluð eftirvakt
slökkviliðsins taldi sig hafa lokið
störfum að fullu. Svo virðist sem
glæður hafi leynst í húsinu og taldi
varðstjóri líklegt að fljótlegt yrði að
slökkva eldinn að þessu sinni þar
sem húsið væri allt opið.
Eldur kom upp í gamla BÚR-húsinu á Grandavegi snemma í gærmorgun
Til stóð að
opna tölvu-
fyrirtæki í
húsinu í dag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Allt tiltækt slökkvilið barðist við eldinn og réði niðurlögum hans á rúmri klukkustund. Eldur gaus upp aftur síðar um morguninn en hann var slökktur fljótlega.
Eins og sjá má eru miklar skemmdir á húsinu Grandavegi 8 eftir eldsvoðann.
Maðurinn sem vakinn var af svefni á jarðhæð
hússins fékk teppi sér til skjóls hjá lögreglu.
Guðjón Bjarnason, arkitekt og eigandi hæðarinnar, á tali
við rannsóknarmann í gær.