Morgunblaðið - 28.01.2001, Qupperneq 52
DAGBÓK
52 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Lag-
arfoss kemur í dag og
fer á morgun, Svanur
kemur í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Lagarfoss kemur á
morgun.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. 8.45 leikfimi, kl. 10
boccia, kl. 14 félagsvist,
kl. 12.30 baðþjónusta.
Bankaþjónusta Bún-
aðarbanka Íslands
þriðjudaginn 30. janúar
kl. 10.15–11.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 pennasaumur og
harðangur, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia, kl.
13.30 félagsvist, kl. 13
opin smíðastofan, kl. 16
myndlist, kl. 9 hár- og
fótsnyrtistofur opnar.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 búta-
saumur, kl. 10 sam-
verustund, kl. 13
bútasaumur.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós! Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðjudögum og fimmtu-
dögum, kl. 13–16.30, spil
og föndur. Leikfimi er í
íþróttasal á Hlaðhömr-
um á þriðjudögum kl.
16. Sundtímar á Reykja-
lundi kl. 16 á mið-
vikudögum á vegum
Rauða krossdeildar
Mos. Pútttímar eru í
Íþróttahúsinu að Varmá
kl. 10–11 á laug-
ardögum. Kóræfingar
hjá Vorboðum, kór eldri
borgara í Mos., eru á
Hlaðhömrum á fimmtu-
dögum kl. 17–19. Uppl.
hjá Svanhildi í s. 586-
8014 kl. 13–16. Tíma-
pöntun í fót-, hand- og
andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, er
í s. 566-8060 kl. 8–16.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára 9
er opin á morgun kl.
16.30–18 s. 554-1226
Félagsstarf aldraðra
Lönguhlíð 3. Á morgun
kl. 8 böðun, kl. 9 fótaað-
gerð og myndlist, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10–
13 verslunin opin, kl.
11.10 leikfimi, kl. 13
handavinna og föndur,
kl. 13.30 enska, fram-
hald.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Á
morgun kl. 9 böðun, kl.
9.45 leikfimi, kl. 10 fóta-
aðgerðastofan opin, kl.
13 spilað (brids).
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Púttæfing í Bæj-
arútgerðinni í fyrra-
málið kl. 10–12. Tréút-
skurður í Flensborg kl.
13. Félagsvist í Hraun-
seli kl. 13.30. Skráning á
Örkina, 5 nætur 4.–9.
mars, stendur yfir.
Félag eldri borgara
Garðabæ. Söngraddir
óskast í Samkór eldri
borgara Garðabæ. Æf-
ingar fara fram í Kirkju-
hvoli á mánudögun kl.
17.30. Söngstjóri Kristín
Pjétursdóttir. Nánari
upplýsingar í síma 565-
6424 hjá Hólmfríði.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Félagsvist í
dag kl. 13.30. Dansleikur
í kvöld kl. 20, Caprí-tríó
leikur fyrir dansi. Mánu-
dagur: Brids kl. 13.
Framsögn kl. 16.15.
Danskennsla fyrir fram-
hald kl 19 og byrjendur
kl. 20.30. Baldvin
Tryggvason verður til
viðtals um fjármál og
leiðbeiningar um þau
mál á skrifstofu FEB
fimmtudaginn 1. febrúar
kl. 11–12. Panta þarf
tíma. Leikhópurinn
Snúður og Snælda munu
frumsýna 4. febrúar
„Gamlar perlur“ sem
eru þættir valdir úr
fimm gömlum þekktum
verkum. Tillaga kjör-
nefndar um formann og
aðra stjórnarmenn
félagsins liggur frammi
á skrifstofu FEB. Til-
lögur félagsmanna um
einstaka menn til stjórn-
arkjörs skulu berast
skrifstofu FEB eða
kjörnefnd fyrir 9. febrú-
ar nk. Upplýsingar á
skrifstofu FEB í síma
588-2111 frá kl. 10 til 16.
Gerðuberg, félagsstarf.
Á morgun kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, frá
hádegi spilasalur opinn.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ koma í heimsókn
eftir hádegi, umsjón
Svanhildur Þorkels-
dóttir, kl. 15.30 dans hjá
Sigvalda. Veitingar í
kaffihúsi Gerðubergs.
Allar upplýsingar á
staðnum og í síma 575-
7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun er handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum frá
kl. 9–17, kl. 9.30 gler og
postulínsmálun, kl. 13.30
lomber og skák, kl. 14.30
enska, kl. 17 myndlist.
Hraunbær 105. Á morg-
un kl. 9 postulínsmálun,
perlusaumur og korta-
gerð, kl. 10.30 bæna-
stund, kl.13 hárgreiðsla,
kl. 14 sögustund og
spjall.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun,
fótaaðgerðir, keramik,
tau- og silkimálun og
klippimyndir, kl. 10
boccia, kl. 13 spilað.
Þorrablót verður haldið
föstudaginn 2. febrúar
kl. 19, húsið opnað kl.
18.30. Þorrahlaðborð,
kaffi og konfekt,
skemmtiatriði. Ræðu-
maður kvöldsins Kol-
brún Halldórsdóttir al-
þingismaður, taílenskur
dans, Borgardætur
syngja við undirleik Ey-
þórs Gunnarssonar.
Ólafur B. Ólafsson leik-
ur á harmónikku og pí-
anó og leiðir söng. Sig-
valdi stjórnar dansi.
Upplýsingar og skrán-
ing í síma 588-9335.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Á morgun
kl. 9–16.30 opin vinnu-
stofa, handavinna og
föndur, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 14 félagsvist.
Norðurbrún 1. Á morg-
un er fótaaðgerð-
arstofan opin frá kl. 9–
14, bókasafnið opið frá
kl. 12–15, kl. 10 ganga.
Vesturgata 7. Á morgun
kl. 9 fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 9.15
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 12.15 dans-
kennsla, framhald, kl.
13.30 danskennsla, byrj-
endur, kl. 13 kóræfing.
Fimmtudaginn 1. febrú-
ar verður þjónustu-
miðstöðin lokuð frá kl.
13 vegna undirbúnings
þorrablóts sem hefst kl.
17.30. Fimmtudaginn 1.
febrúar kl. 10.30 er
helgistund í umsjón sr.
Jakobs Ágústs Hjálm-
arssonar, dóm-
kirkjuprests, kór félags-
starfs aldraðra syngur
undir stjórn Sig-
urbjargar Petru Hólm-
grímsdóttur.
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smiðjan og hár-
greiðsla, kl. 9.30 bók-
band, bútasaumur og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir, kl. 13
handmennt, kl. 13 leik-
fimi, kl. 13 spilað.
Gullsmárabrids. Brids-
deild FEBK í Gullsmára
býður alla eldri borgara
velkomna að brids-
borðum í félagsheim-
ilinu í Gullsmára 13 á
mánudögum og fimmtu-
dögum. Mæting og
skráning kl. 12.45. Spil
hefst kl. 13.
Úrvalsfólk. Vorfagn-
aður Úrvalsfólks verður
haldinn á Hótel Sögu,
Súlnasal, föstudaginn
16. febrúar kl. 19. Miða-
og borðapantanir hjá
Rebekku og Valdísi í
síma 585-4000.
Kvenfélag Lágafells-
sóknar Aðalfundurinn
verður haldinn mánu-
daginn 5. febrúar í Hlé-
garði, næting kl. 19.30.
Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Hana-nú Kópavogi.
Spjallkvöld verður í Gjá-
bakka mánudagskvöldið
29. janúar kl. 20. Rætt
verður um upphaf og
sögu Hana-nú og mögu-
leika á að skrásetja
hana. Allir velkomnir.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12. Á
morgun kl. 19 brids.
Framkonur. Aðalfundur
Framkvenna verður
haldinn í Íþróttahúsi
Fram við Safamýri
mánudaginn 5. febrúar
kl. 20. Venjuleg aðal-
fundarstörf. Félags-
fundur verður haldinn á
eftir þar sem gestafyri-
lesari ræðir um bein-
þynningu. Kaffveit-
ingar.
Kirkjustarf aldraðra
Digraneskirkju. Opið
hús þriðjudag frá kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fræðsla. Verið
velkomin.
Í dag er sunnudagur 28. janúar, 28.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Dæm mig eftir réttlæti þínu, Drott-
inn, Guð minn, og lát þá eigi hlakka
yfir mér.
(Sálmarnir 35, 24.)
ÞESSI orð stóðu á kassa,
sem ég fékk í fermingar-
gjöf fyrir margt löngu.
Enda sá kassi smíðaður af
einu mesta prúðmenni sem
ég hefi kynnst. Mér detta
þessi orð stundum í hug,
þegar ég hlusta á öll stór-
yrðin og írafárið út af ör-
yrkjamálinu. Og satt að
segja finnst mér oft nóg
um. Það skal tekið fram að
ég er bæði öryrki og ellilíf-
eyrisþegi, sem virðist
reyndar eitt og hið sama,
örorkubætur falla niður,
þegar ellilífeyrir tekur við,
hvort sem rétt er eða dálít-
ið rangt. Það skal einnig
tekið fram að ég tilheyri
heldur ekki neinum stjórn-
málaflokki, enda sjálfsagt
hvor sem annar þegar kom-
ið er í stólana, þó fallega sé
talað fyrir kosningar. En
mér hefur oft blöskrað sú
mikla heimtufrekja og stór-
yrði sem fallið hafa á báða
bóga út af þessu máli. T.d.
fannst mér óþarfa ágengni
af öryrkjum og þeirra fólki
að ráðast inn á Trygginga-
stofnun strax 2. janúar sl.
og heimta peningana sína
samdægurs, annars...
Dugnaður og framtak
Garðars Sverrissonar skal
þó ekki vanmetið og víst er
að taka þurfti virkilega á
þessum málum öllum. En
skyldi nú ekki vera vænleg-
ast í þessari stöðu og nota
þetta einstæða tækifæri til
að hrista ærlega upp í þess-
um málum öllum og þrýsta
vel á um leiðréttingu mála
allra bótaþega, sem minnst
hafa, en samt sýna hóg-
værð og stillingu? Við erum
jú öll um þennan sameig-
inlega sjóð okkar, ríkissjóð.
Kannski yrði það til meiri
árangurs fyrir komandi tíð,
en allur þessi hávaði og úlf-
úð.
Anna Árnadóttir.
Íslandspóstur
ÉG fór með lítinn pakka á
pósthúsið við Grensásveg,
sem átti að fara til Bíldu-
dals. Ég vildi senda pakk-
ann með flugi, en stúlkan í
afgreiðslunni sagði að það
væri ekki hægt. Ég var bú-
in að afla mér upplýsinga
um að það væri hægt, en
hún stóð á því fastar en fót-
unum að það gengi ekki. Ég
fékk að tala við yfirmann
hennar, sem baðst afsökun-
ar og sagði að sjálfsögðu
vera hægt að koma pakk-
anum í flug. Ég fékk nótu
fyrir pakkanum og á henni
stóð, að þetta væri rúm-
frekur póstur 500 g að
þyngd, en í pakkanum voru
tvær segulbandsspólur!
Áróra.
Læknasetrið á
Þönglabakka
GUÐRÚN hafði samband
við Velvakanda og vildi
koma á framfæri kvörtun
vegna þess, að mjög erfitt
er að ná sambandi við
Læknasetrið á Þöngla-
bakka. Maður hlustar
endalaust á tónlist og inn á
milli kemur rödd sem segir
að allar línur séu uppteknar
og símtölum verði svarað
eftir röð. Það er gjörsam-
lega vonlaust að ná sam-
bandi við einhvern þarna.
Er ekki hægt að bæta úr
þessu?
Ljótt er ef satt er
BÖRN með klumbufót fá
tvenna skó á ári frá Trygg-
ingastofnun, en ef vel ætti
að vera, þyrftu þau fimm
pör af skóm. Börn vaxa
hratt og mér finnst ekkert
mikið þó Tryggingastofnun
léti þau hafa fleiri en tvö
pör á ári.
Guðrún.
Tapað/fundið
Kassi glataðist
í flutningum
KASSI með snyrtidóti,
skartgripum, handklæðum
og alls konar baðdóti tap-
aðist í flutningum í júni
1999 á milli Grensásvegar
56 og að Eimskip. Þaðan
átti hann að fara til Ísa-
fjarðar. Kassinn gæti hafa
verið merktur Anna Lára.
Ef einhver veit um afdrif
kassans, vinsamlegast haf-
ið samband í síma 456-3123
eða 456-4669.
Hvar er leigu-
bílstjórinn?
KVENMANNSGLER-
AUGU töpuðust í leigubíl
aðfaranótt sunnudagsins
21. janúar sl. Bíllinn var
pantaður að Players í Bæj-
arlind í Kópavogi á nafni
Neergaard. Bíllinn keyrði
þaðan í Hagasmára 1 og
svo í Tungusel í Breiðholti.
Leigubílstjórinn er vinsam-
legast beðinn að hafa samb-
and í síma 868-6880.
Dýrahald
Hann Tígri er týndur
TÍGRI hvarf frá Víðihlíð 25
og er sárt saknað. Hann er
bröndóttur högni með
hvítar loppur og blett á
nefi, rauða ól og nafnspjald.
Ef einhver hefur orðið hans
var eða veit hvar hann er
niðurkominn, vinsamlegast
hafið samband við Soffiu í
síma 553-2533.
Hundur í óskilum
SVARTUR labradorblend-
ingur (tík) um 1 árs er í
óskilum í Hundahótelinu
Leirum. Eigandi vinsam-
lega vitjið hennar strax.
Upplýsingar í síma 566-
8366 og 698-4967.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hógværð
hefur mikið
vald
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI undirbjó ferð til Ak-ureyrar á dögunum og hugðist
kanna á Netinu hvað bærinn hefði
upp á að bjóða. Á annars góðum vef
bæjarins, Akureyri.is, var hins vegar
engar upplýsingar að finna um Leik-
félag Akureyrar og fleira í menning-
arlífinu sem Víkverji hugðist skoða.
Og þegar hann tengdist upplýsinga-
vef á ensku, eyjafordur.is, var ekk-
ert um að vera á menningarsviðinu í
bænum þennan mánuðinn. Er ekki
ráð að kippa þessu í liðinn?
x x x
ATHYGLISVERÐUR pistill semvakti ómælda ánægju Víkverja
birtist á dögunum á heimasíðu
KKDÍ, Körfuknattleiksdómara-
félags Íslands. Víkverja finnst pist-
illinn eiga erindi til sem flestra og
leyfir sér því að birta hann hér í
heild. Fyrirsögnin var Jákvæðu at-
vikin vilja gleymast, og pistilinn var
svohljóðandi:
„Störf dómara eru með þeim hætti
að þeir skera úr um hvort leikmaður
hafi brotið reglurnar og ef svo er ber
að refsa honum samkvæmt því.
Dómarar fá því miður ekki tækifæri
á að umbuna fyrir góða eða rétta
frammistöðu. Í mannlegum sam-
skiptum er hrós eða jákvæði fyrir
frammistöðu svo miklu sterkari en
refsing fyrir ranga hegðun. Þess
vegna langar KKDÍ.is að segja frá
tveimur nýlegum atvikum þar sem
leikmenn gerðu meira en til er ætl-
ast. Fyrir atvik sem þessi eru veitt
prúðmennskuverðlaun úti í heimi, en
þetta er okkar háttur.
Í leik í vetur á Sauðárkróki áttu
dómararnir erfiðan dag og leikmenn
og áhorfendur margoft búnir að
missa stjórn á skapi sínu. Þá gerðist
atvik þar sem leikmenn Tindastóls
fóru aftur fyrir miðju með knöttinn.
Dómarinn dæmdi réttilega leikbrot,
en áhorfendur mátu stöðuna öðru-
vísi (enda þessi regla ekki sú auð-
veldasta) og hreinlega slepptu sér.
Þá gekk fram fyrir skjöldu Ómar
Sigmarsson, bakvörður Tindastóls,
og bað áhorfendur um að sýna still-
ingu því dómarinn hefði haft rétt
fyrir sér. Við það róaðist leikurinn
mjög.
Í úrslitakeppninni í KR-heimilinu
í vor gerðist það að boltinn er sendur
fast fram völlinn meðfram hliðarlín-
unni þar sem KR-áhorfendur sátu.
Boltinn fór útaf og dæmdi dómarinn
andstæðingum KR boltann enda
hans mat að Magni Hafsteinsson,
KR-ingur, hafi snert boltann örlítið á
leiðinni útaf. KR-áhorfendur risu úr
sætu og bauluðu á dómarann en
Magni rétti upp hendi til dómarans
til merkis um að dómurinn væri rétt-
ur og benti áhorfendum á að fá sér
sæti.
Framkoma Ómars og Magna er
gott dæmi um frábæran íþrótta-
anda.“
Rétt er það að framkoma þeirra
tvímenninga er til fyrirmyndar og
Víkverji er líka ánægður með dóm-
arana að koma þessu á framfæri.
x x x
ÁHEIMASÍÐU KKDÍ, sem áðurer nefnd, er lítill dálkur sem
heitir Orð dagsins. Þar birtist ný
speki daglega, eins og nafnið gefur
til kynna. Víkverji má til með að
birta það sem var í dálki þessum síð-
astliðinn þriðjudag: „Í upphaflegu
sögunni um Öskubusku voru skórnir
úr feldi. Þeir breyttust í glerskó
vegna þýðingarvillu.“
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 talar fátt, 4 sjaldgæf, 7
dáin, 8 trylltar, 9 skepna,
11 sjá eftir, 13 vaxa, 14
sárið, 15 sorg, 17 sund, 20
bókstafur, 22 meðalið, 23
baunin, 24 áma, 25
skjóða.
LÓÐRÉTT:
1 valur, 2 vinnur, 3 geð, 4
í fjósi, 5 hremmir, 6 kaka,
10 rotnunarlyktin, 12 ve-
sæl, 13 sendimær Friggj-
ar, 15 trútt, 16 glufan, 18
sett, 19 rás, 20 skriðdýr,
21 klæðleysi.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 litarhátt, 8 fljót, 9 kofan, 10 rok, 11 sunna, 13
agnar, 15 hregg, 18 strók, 21 rík, 22 lygna, 23 akkur, 24
landskunn.
Lóðrétt: 2 iðjan, 3 aftra, 4 hakka, 5 tófan, 6 ofns, 7 knár,
12 nóg, 14 get, 15 hæla, 16 eigra, 17 grand, 18 skark, 19
rokan, 20 kort.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16