Morgunblaðið - 28.01.2001, Blaðsíða 58
FÓLK Í FRÉTTUM
58 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MYNDASERÍA Spessa, Bensín, var
opnuð á Kjarvalsstöðum í mars 1999,
samhliða útgáfu Bensín-bókarinnar
sem inniheldur seríuna. Nú hefur
Spessi fest kaup á gömlu fiskvinnslu-
húsi á Kársnesinu og gert það að
vinnustofu sinni.
Úr eldhúsi í frystihús
„Mig langaði í eigin vinnustofu þar
sem ég gæti unnið að mínu í friði. Ég
hafði lengi leitað að hentugu hús-
næði þegar mér var bent á þetta
frystihús á Kársnesinu. Fyrst leist
mér ekkert á þá hugmynd að flytja í
Kópavoginn en þegar ég var kominn
á staðinn upplifði ég stemmningu
sem ég kunni mjög vel við, stemmn-
ingu eins og er í miðbæ Grindavíkur.
Eins konar Grindavík á Kársnesi.
Ég er uppalinn á Ísafirði og þess
vegna komst ég ekki hjá því að vinna
í fiski. Mér fannst frábært að hús-
næðið á Kársnesinu væri gamalt
fiskvinnsluhús en annars er orðið
frystihús líka svolítið skemmtilegt.
Áður kallaði ég fyrirtækið mitt Eld-
hússtúdíó. Nú hef ég gefið því nýtt
nafn, „Frystihúsið“.“
Bensínævintýrið
„Ég byrjaði að vinna að Bensíninu
árið 1996. Meðan á vinnsluferlinu
stóð hitti ég Eirík Þorláksson sem
sýndi verkefninu áhuga og bauð mér
þess vegna að sýna það á Kjarvals-
stöðum vorið 1999. Í beinu framhaldi
kom út bókin Bensín í samvinnu við
olíufyrirtækin á Íslandi og Kjarvals-
staði. Í upphafi síðasta árs fór ég svo
til New York að kynna verkið. Í New
York þræddi ég galleríin í algeru
vonleysi, vegna þess að það eru svo
margir um hituna. Eftir viku, tíu
daga, þegar ég var að því kominn að
gefa þetta upp á bátinn, rölti ég fyrir
rælni inn í Roebling Hall-galleríið í
Williamsburg, Brooklyn. Ég hitti
þar fyrir annan eiganda gallerísins
og hann var til í að skoða bókina
mína. Þá kom í ljós að hann hafði ein-
mitt verið að skoða Bensín-bókina
fyrir nokkrum dögum og ásamt sam-
starfsmanni sínum hafði hann verið
að spá í hvernig þeir gætu náð í mig!
Þeir voru að setja saman samsýn-
ingu undir nafninu World-trade og
buðu mér að taka þátt. Hálfu ári síð-
ar opnaði ég einkasýningu á Bensín-
inu í þessu sama galleríi. Sú sýning
fékk mjög góðar viðtökur. Til dæmis
fékk hún umfjöllun í New York Tim-
es.
Bensín er viðamesta verk sem ég
hef gert. Því er ekki að neita að það
hefur haft áhrif á frama minn sem
ljósmyndara og ekki sér enn fyrir
endann á því ferli. T.d. verður sýn-
ingin sett upp á Lydmar Hotel í
Stokkhólmi. Hótelið hefur staðið fyr-
ir sýningum á ljósmyndum eftir
ýmsa þekkta ljósmyndara, t.d. Nan
Goldin. Svo er ég náttúrulega kom-
inn inn í þetta gallerí í New York og
kem til með að sýna þar aftur eftir
eitt ár. Líklega munu svo forsvars-
menn þess koma mér á sýningar
annars staðar.“
Framlengingarsnúra,
pottablóm og Jón Múli
„Ef ég lít yfir farinn veg þá hef ég
verið að fást mikið við portrett og
gert ýmsar tilraunir með það. Ég hef
bæði gert klassísk portrett og
„objektíf“. Með „objektíft portrett“ á
ég við að portrettið sé algjörlega
snautt allri stemmningu. Ég nálgast
svo t.d. bensínstöðvar mjög svipað
því þegar maður myndar mann-
eskju. Það sem ég kem til með að
sýna í New York á næsta ári eru
myndir sem ég kalla Nature Morte.
Þetta eru kyrralífsmyndir af ýmsum
hlutum eins og framlengingarsnúru,
pottaplöntu og páskaliljum. Þetta
eru allt myndir sem ég tók fyrir
Blómaval í dagblaðaauglýsingar.
Sumar myndirnar hef ég valið úr og
ætla að nota á sýningu. Þetta eru
fullkomlega objektívar myndir með
hvítum bakgrunni, gjörsneyddar
allri stemmningu en um leið og þær
eru komnar inn í gallerí, metra sinn-
um metra á stærð, eru þær orðnar að
list. Hún er alltaf skemmtileg, þessi
barátta um hvort eitthvað sé list eða
ekki. Um þetta snýst þetta verk svo-
lítið, rétt eins og með bensínstöðv-
arnar. Það verða tíu myndir sem
verða á sýningunni. Ég hef valið þær
á tveimur árum úr mörg hundruð
myndum af mörg hundruð hlutum.
Af því sem ég er að fást við í
augnablikinu þykir mér mest spenn-
andi plötuumslag eitt sem ég er að
vinna. Það er fyrir plötu með Óskari
Guðjónssyni saxafónleikara hvar
hann spilar tónlist eftir Jón Múla
Árnason. Ég er búinn að vinna eitt
sem kom út fyrir jólin þar sem Óskar
spilar með hljómsveit sinni Delerað.
En nú er ég að vinna að öðru um-
slagi, þar sem Óskar og Eyþór
Gunnarson spila lög eftir Jón Múla.
Þetta eru mjög spennandi verkefni
enda frábærir listamenn sem eiga í
hlut.“
Frystihús á
Kársnesinu
Sigurþór Hallbjörnsson ljósmyndari,
eða Spessi eins og hann er oftast kallaður,
er mörgum kunnur hér á landi fyrir verk
sín. Spessi ræddi við Ólöfu Helgu
Einarsdóttur um nýleg og komandi verk-
efni, „Frystihúsið“ og áframhald bensín-
ævintýrisins sem teygir anga sína til
New York og Stokkhólms.
Ljósmynd/Ólöf/SpessiSpessi í móttökunni með mál-
verk af Dolly Parton, sem Jón
Magnússon vinur hans málaði.
Ljósmynd/Spessi
Nature morte:
Páskaliljur í vasa
Rætt við ljósmyndarann Spessa