Morgunblaðið - 28.01.2001, Side 64

Morgunblaðið - 28.01.2001, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. MIKIÐ tjón varð á húsinu Granda- vegi 8, þar sem Bæjarútgerð Reykjavíkur var áður til húsa, þeg- ar eldur varð laus í húsinu árla laugardagsmorguns. Talið er að tjónið nemi tugum milljóna króna. Eldurinn kom upp á annarri hæð hússins þar sem staðið hafa yfir endurbætur síðustu mánuði og stóð til að tölvufyrirtækið Stefja ehf. flytti starfsemi sína þangað eftir helgi. Allt tiltækt slökkvilið höf- uðborgarsvæðisins var kvatt út og réð það niðurlögum eldsins að mestu á rúmri klukkustund. Mik- inn reyk lagði yfir vesturbæinn frá eldinum og fékk slökkviliðið nokkr- ar tilkynningar um að reykur hefði komist inn í híbýli manna. Að sögn Þorsteins Ingimundar- sonar, varðstjóra hjá slökkviliðinu, var mikill eldur í húsinu þegar slökkvilið kom á staðinn. Eldurinn var bundinn við syðsta hluta húss- ins og logaði þar út úr gluggum. Jafnframt náði eldurinn að læsa sig í áfast, bárujárnsklætt útskot. Talsverðar skemmdir urðu einnig vegna reyks og hita á þriðju hæð hússins, þar sem Ásatrúarfélagið hefur bækistöðvar. Í áfastri bygg- ingu til norðurs, þar sem áður voru fiskvinnslusalir Granda hf., er tölvufyrirtækið Gagarín með sína starfsemi. Maður í fastasvefni á jarðhæð Ekki urðu miklar skemmdir í þeim hluta hússins enda eldvarn- arveggur á milli húsanna. Maður, sem hafðist við á jarð- hæð hússins, var vakinn af fasta- svefni af slökkviliðinu. Hann sakaði ekki. Eins var í fyrstu talið að ann- ar tveggja iðnaðarmanna, sem höfðu verið við störf í húsinu að- faranótt laugardagsins, væri þar enn þegar eldurinn kom upp. Svo reyndist þó ekki vera. Iðnaðar- mennirnir höfðu verið við störf fram til kl. 3 en bíll annars þeirra var ennþá við húsið þegar slökkvi- lið kom á staðinn. Maðurinn reynd- ist hins vegar vera heima hjá sér við bestu heilsu. Unnið hafði verið að endurbótum á annarri hæð hússins í nokkra mánuði og stóð til að fagna verklok- um í gær og afhenda forsvarsmönn- um Stefju lykil að húsnæðinu. Fyr- irtækið átti að vera á 1.000 fermetra gólffleti á annarri hæð hússins. Allar innréttingar voru fullbúnar en tölvubúnaði og tækjum fyrirtækisins hafði þó ekki verið komið fyrir. Að sögn Heimis Björg- vinssonar, fjármálastjóra Stefju, mun bruninn ekki raska starfsemi fyrirtækisins. Slökkvistarfi var að mestu lokið um kl. 9 en eldur gaus upp að nýju um hádegisbilið. Slökkvilið náði þó fljótt að slökkva í glæðunum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Það skíðlogaði í húsinu, þegar slökkvilið kom á staðinn, laust eftir klukkan 7 í gærmorgun. Upptök eldsins eru óljós. Tugmilljóna tjón í bruna í gamla BÚR-húsinu Tölvufyrirtæki átti að flytj- ast í húsnæðið eftir helgi  Til stóð/43 LIÐUR í því að efla Ísfélag Vest- mannaeyja til dáða í þágu eigenda og íbúa Vestmannaeyja kann að vera sameining við annað fyrirtæki til að styrkja stöðu þess, að mati Gunn- laugs Sævars Gunnlaugssonar, eins stjórnarmanns fyrirtækisins. Gunn- laugur Sævar segir engar slíkar við- ræður þó í gangi og harmar að eig- endur Vinnslustöðvarinnar skuli tvisvar hafa horfið frá samþykktum um sameiningu. „Í dag á fyrirtækið ekki í neinum viðræðum við önnur félög um samein- ingu. Sé hins vegar horft til framtíðar hygg ég nú að þessar einingar muni stækka,“ segir Gunnlaugur í viðtali við Morgunblaðið og kveðst taka und- ir með þeim sem hafi lýst þeirri skoð- un. Hann segir að sjávarútvegsfyrir- tækin verði í framtíðinni fá og öflug þar sem ýtrustu hagkvæmni verði gætt við veiðar, vinnslu og markaðs- setningu og vonar að Ísfélagið verði í framtíðinni hluti af slíku fyrirtæki. „Ég sé ekki að Ísfélagið muni endi- lega standa eitt og sér, þegar horft er til framtíðar með þeim hætti sem er í dag. Ég held að hag eigenda og starfsfólks sé betur borgið með því að styrkja þessar einingar.“ Gunnlaugur Sævar segir það alltaf hafa verið markmið Ísfélagsins að treysta búsetu í Eyjum. Það sé hins vegar glapræði að ætla að byggja nýtt frystihús fyrir bolfiskvinnslu þar sem kvóti félagsins sé of lítill. Önnur fyr- irtæki í bænum séu hins vegar fengin til að vinna úr hluta bolfiskaflans og sjálft sinnir félagið saltfiskvinnslu. Stjórnarmaður Ísfélags Vestmannaeyja Sameining hugsanlega liður í að efla fyrirtækið  Glapræði/42 STURLA Böðvarsson samgöngu- ráðherra mun í ræðu á fjarskipta- þingi nk. fimmtudag gera grein fyrir þeirri tillögu sem hann hyggst gera varðandi leyfisveiting- ar á þriðju kynslóð farsíma. Sturla sagði í samtali við Morgunblaðið að hann myndi leggja fram frum- varp um þetta mál á Alþingi í vet- ur. Talverðar umræður hafa verið um hvaða leið ætti að fara við að veita þessi nýju farsímaleyfi. Sturla sagði að hann hefði látið skoða ítarlega útboðsleið og svo- kallaða samanburðarleið. Á fjar- skiptaþinginu myndi hann gera grein fyrir þessari vinnu og hvaða aðferð hann myndi gera tillögu um. Leyfi vegna þriðju kynslóðar farsíma Ákvörðun kynnt á fjar- skiptaþingi VEGAGERÐIN hyggst færa síma- þjónustu stofnunarinnar til Ísafjarð- ar á næstunni. Jón Rögnvaldsson, aðstoðarvegamálastjóri, segir að ráðið verði í fjögur störf á Ísafirði vegna þessa. Einnig komi til greina að flytja a.m.k. hluta af upplýsingaþjónustu Vegagerðarinnar til Ísafjarðar. Þau mál séu í sérstakri athugun hjá stofnuninni Jón segir þessar breytingar í sam- ræmi við stefnu þá sem ríkisstjórnin hefur markað um fjölgun starfa á landsbyggðinni. Hann segir að ekki þurfi að koma til uppsagna starfs- fólks í Reykjavík heldur muni Vega- gerðin ekki ráða í þau störf sem losna. Þegar fram í sækir muni starfs- fólki þó væntanlega fækka til jafns við fjölgun starfsmanna á Ísafirði. Nýtt símkerfi verður tekið í notkun Forsenda fyrir flutningi símaþjón- ustunnar er endurnýjun á símakerfi Vegagerðarinnar. Jón segir að end- urnýjun kerfisins hafi víða verið mjög brýn. Unnið er að útboði á nýju símakerfi og verður verkið boðið út þegar þeirri vinnu er lokið. Símaþjón- usta verð- ur flutt til Ísafjarðar Vegagerðin ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.