Morgunblaðið - 03.06.2001, Síða 17
Morgunblaðið/Hulda Stefánsdóttir
Lampar steyptir í hálfgegnsætt
plastefni eru nýjasta afurð Ólafs
Þórðarsonar hönnuðar.
SÝNING á verkum íslenska hönn-
uðarins og arkitektsins Ólafs Þórð-
arsonar var nýverið opnuð í versl-
un Norræna hússins í New York.
Þar ber mest á þremur gerðum
nýrra lampa Ólafs og eru form
þeirra bæði sótt til náttúru heima-
landsins og skýjakljúfalandslags
stórborgarinnar.
Á meðan einn lampinn minnir á
skýjaklúf er annar sem gjósandi
hver. Sá þriðji er sem hattur
svepps, eða knúpur blóms, í örum
vexti. Lamparnir eru gott dæmi um
það hvernig Ólafur sækir sér inn-
blástur til ólíkra átta, frá nátt-
úrunni til umhverfisins í New York-
borg þar sem hann hefur verið bú-
settur síðasta áratuginn. Allir eru
lamparnir steyptir í fljótandi res-
ínplastefni, sem ýmist er litað eða
glært. Kastar ljósið frá sér mjúkri
birtu um hálfgegnsætt efnið.
Fóturinn er úr hrárri steinsteypu
sem kallast á við léttleika glóandi
plastefnisins.
Töluverð vinna bjó að baki þess-
um verkum sem Ólafur segist hafa
haft á teikniborðinu sl. tvö ár og
smám saman þróað út frá sömu
grunnbyggingunni. Lamparnir
standa í hillu, sem einnig er eftir
Ólaf, í glugga verslunarinnar til
loka þessa mánaðar en innandyra
er jafnframt að finna eldri verk
Ólafs, s.s. snigillaga klukkur og
vínrekka. Ólafur leitar gjarnan út
fyrir hefðbundnar skilgreiningar
iðnhönnunar og tvinnar saman
hönnun og myndlist í verkum sín-
um. Þannig eru engir tveir gripir
eins og hver formgerð er seld í
fáum eintökum.
Ólafur lauk námi í arkitektúr við
Columbia-háskóla í New York.
Hann kennir nú iðnhönnun við
Rhode Islands School of Design auk
þess að starfrækja eigin hönn-
unarstúdíó, Dingaling Studio, og
vefritið Das Boot, sem helgað er
kynningum á verkum ungra hönn-
uða og myndlistarmanna.
Verslun Norræna hússins í New
York hefur til sölu gjafavörur og
minni gripi og hönnun frá Norður-
löndunum. Er þetta í fyrsta sinn
sem efnt er til sýningar á verkum
einstaks hönnuðar í versluninni.
Íslenskur
hönnuður sýn-
ir í New York
New York. Morgunblaðið.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 17
UNNUR Fadila Vilhelmsdóttir píanóleikari leik-
ur á tónleikum í tónleikaröð kennara Tónlistar-
skóla Kópavogs í Salnum á þriðjudagskvöld kl.
20.00. Hún leikur þrjú verk; Píanósónötu op. 31 í
Es-dúr eftir Beethoven, Ballöðu nr. 4 op. 52 í f-
moll eftir Chopin og Píanósónötu nr. 8 op. 84 í B-
dúr eftir Sergei Prokofieff.
Unnur Fadila stundaði píanónám frá sjö ára
aldri, fyrst í Barnamúsíkskólanum og Tónlistar-
skólanum í Reykjavík, en sótti framhaldsnám til
Cincinnati í Bandaríkjunum, og lauk þaðan dokt-
orsprófi í píanóleik haustið 1997. Hún hefur verið
virk í íslensku tónlistarlífi síðan, og leikið á tón-
leikum af ýmsu tagi.Verkin á efnisskránni eru öll
mjög ólík en skapa fallega heild, að sögn Unnar
Fadilu. Píanósónatan op. 31 í Es-dúr eftir L.v.
Beethoven er eitt af bjartari verkum höfundar,
þar sem hamingja og leikur lýsa af hverjum kafla.
Ballaðan nr. 4 eftir F. Chopin er af mörgum talin
fegurst ballaða Chopins. Hún er í tilbrigðaformi
og birtist hið fagra stef í ýmsum myndum. Píanó-
sónatan nr. 8 eftir S. Prokofieff er samin á árunum
1939–1944 og er ásamt sónötum nr. 6 og 7 kölluð
stríðssónata. Sviatoslav Richter hefur sagt að són-
atan sé eitt af hans uppáhaldsverkum og að hún
innihaldi allan fjölbreytileika mannlegs lífs.
Píanótónleikar Unnar Fadilu Vilhelmsdóttur haldnir í Salnum
Hamingja, fegurð og fjöl-
breytileiki mannlegs lífs
Morgunblaðið/Golli
Unnur Fadila Vilhelmsdóttir við æfingar.