Morgunblaðið - 03.06.2001, Side 18
LISTIR
18 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Rannsóknarráð Íslands og Samtök
iðnaðarins boða til fundar í Versölum,
Húsi iðnaðarins, Hallveigarstíg 1,
miðvikudaginn 6. júní kl. 8:30-10
Fundarstjóri: Vilhjálmur Lúðvíksson,
framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs.
Dagskrá:
Eiga íslensk fyrirtæki erindi í CRAFT og hvernig eiga þau að
bera sig að?
Robert Jan Smits, framkvæmdastjóri CRAFT
hjá Evrópusambandinu.
Aðstoð við fyrirtæki sem vilja taka þátt í CRAFT.
Ragnheiður Héðinsdóttir, matvælafræðingur,
Samtökum iðnaðarins.
Hvernig er að taka þátt í CRAFT?
Edgar Guðmundsson, Geka, segir frá verkefni
sem skilað hefur árangri.
Boðið upp á léttan morgunverð.
Vöruþróun -
nýsköpun - CRAFT
Rannsóknarráð Íslands, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, sími 515 5800,
bréfsími 552 9814, netfang rannis@rannis.is,
heimasíða http//www.rannis.is
Jóga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni
hefst 12. júní – Þri. og fim. kl. 19.30
Jóga – breyttur lífsstíll með Arnhildi S. Magnúsdóttur
hefst 13. júní – Mán. og mið. kl. 19.30
4ra vikna uppbyggjandi námskeið, m.a. byggt á eigin reynslu Ásmundar fyrir þá sem eiga
við streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu.
Kenndar verða leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Engin reynsla eða
þekking á jóga nauðsynleg. Ásmundur tekur fyrir þætti eins og jógaleikfimi (asana), öndun,
slökun og andleg lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu.
4ra vikna grunnnámskeið fyrir fólk á öllum aldri sem er að taka sín fyrstu spor í
jóga. Arnhildur mun kenna jógastöður, öndun og slökun.
Ásmundur
Arnhildur
www.yogastudio.is
Auðbrekku 14, Kópavogi,
sími 544 5560
Yoga Studio – Halur og sprund ehf.,
Í verslun okkar er að finna:
Vandaða nuddbekki frá
Custom Craftworks
og Oshadhi. 100% hágæða
ilmkjarnaolíur.
Opnir jógatímar í allt sumar
LEIRLIST er ekki til sýnis á
hverjum degi, en nú er í Straumi,
Hafnarfirði samsýning tveggja leir-
listarmanna, þeirra Ingibjargar
Klemenzdóttur og Helgu Unnars-
dóttur. Það er ekki langt síðan þær
luku námi, því Ingibjörg útskrifaðist í
fyrra frá Listaháskólanum, en Helga
árinu fyrr úr sömu deild. Báðar eiga
það sameiginlegt að fást við náttúru-
minni í verkum sínum, en einnig ein-
kennir list þeirra áherslan á yfirborð
verkanna, og það hvernig brennslan
leikur leirinn.
Þannig verður til náttúrulýsing í
tvennum skilningi; verkin standa fyr-
ir ákveðið ferli og eru sprottin af ferl-
inu um leið. Áhrif hugmyndalistarinn-
ar má því skynja býsna vel í
hugmyndum og nálgun beggja
kvenna. Verk þeirra ganga prýðisvel
upp í hinu ágæta sýningarrými
Straums og virka þau sannfærandi í
heild sinni.
Nálgun Ingibjargar tengist mjög
jörðinni og innri kröftum hennar.
Hún hefur lengi verið heilluð af krafti
funans og því hvernig brennsla mun-
anna skilar sér í verkunum sem vott-
ur um umbrotakraft náttúrunnar. Að
því leytinu er hún oft á svipuðu róli og
Jóhann Eyfells, sem notar jörðina
sem mót fyrir höggmyndir sínar.
Fegurðin í veggverkum Ingibjargar
er því engan veginn laus við ógnir
þær sem minna okkur á eldsumbrot
og ólguna í iðrum jarðar. Litbrigðin í
syrpum hennar eru litbrigði jarðar-
innar, bergsins og jarðvegsins sem er
stöðugt undirorpinn breytingum
vegna árása jarðmótunaraflanna.
Verk Helgu vísa hins vegar til
hringrásarinnar, árstíðanna, hinna
fornu mánaða og litbrigðanna sem
tengjast þessu ferli. Verk hennar eru
því lausbeislaðri og laustengdari við
jörðina. Reynar lýsa verk hennar
fremur hreyfingu og hraða en kyrr-
stæðum fyrirbærum. Eins nýtir hún
sér efnivið úr heimi textíllistarinnar,
hrosshár eða hör, sem gefa verkum
hennar lífrænan svip og svífandi létt-
leik, líkt og flugeldar skjótist á loft
eða kólfar taki á rás. Líkt og Ingi-
björg sýnir Helga margvíslega tækni
þegar kemur að áferð og brennslu.
Verk hennar njóta sín eins vel á gólfi,
á vegg, eða jafnvel hangandi úr loft-
inu.
Það er vert að ítreka hve stutt er til
loka þessarar ágætu sýningar þeirra
Helgu og Ingibjargar, en henni lýkur
á annan í hvítasunnu. Sýningarsalur-
inn í Straumi er þó opinn alla hátíðina.
NÁTTÚRUSÝNIR
MYNDLIST
S t r a u m u r ,
H a f n a r f i r ð i
Til 4. júní. Opið daglega
frá kl. 14–18.
LEIRLIST
HELGA UNNARSDÓTTIR
&
INGIBJÖRG
KLEMENZDÓTTIR
Morgunblaðið/Jim Smart
Frá sýningu leirlistarmannanna Helgu Unnarsdóttur og Ingibjargar
Klemenzdóttur í Listamiðstöðinni, Straumi í Hafnarfirði.
Halldór Björn Runólfsson
EINAR Guð-
mundsson
barítonsöngvari
mun halda
tvenna útskrift-
artónleika ásamt
Ólafi Vigni Al-
bertssyni píanó-
leikara. Fyrri
tónleikarnir fara
fram á Heima-
landi undir V-
Eyjafjöllum 5. júní kl. 21 en þeir
seinni í Smára, sal Söngskólans í
Reykjavík við Veghúsastíg, 7. júní
og hefjast þeir kl. 20. Á efnisskránni
eru íslensk og ítölsk sönglög, ljóð
eftir Beethoven, Schubert, Brahms,
Strauss og þekktar óperuaríur eftir
Mozart og Wagner.
Einar hefur verið nemandi hjá
Eyrúnu Jónasdóttur söngkennara
undanfarin tvö ár og útskrifaðist
nýverið með 8. stig frá Tónlistar-
skóla Rangæinga. Á námstímanum
hefur hann sótt „master class“-
námskeið bæði hérlendis og erlend-
is, m.a. hjá hinum virta hljómsveit-
arstjóra og undirleikara Martin Is-
epp. Í framhaldi af 8. stigs prófi sínu
var Einari boðið að sækja um styrk
til náms við Associated Board of the
Royal Schools of Music. Aðgangur
að tónleikunum í Heimalandi er
ókeypis en aðgangseyrir að tónleik-
unum í Smára er 1.000 krónur.
Útskriftartónleikar söngvara
Einar
Guðmundsson