Morgunblaðið - 03.06.2001, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 03.06.2001, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 21 en þeir fylgdust með því sem gert var í flughernum. Við uppnefndum þá Fasanana. Við ræddum lítið stjórnmál og þá eingöngu undir fjögur augu. En það var togstreita á milli flokksins og heraflans, við fundum það vel þótt það væri ekki rætt en það kom fram í svo mörgu.“ Barist við Kúrsk Rall var skotinn niður átta sinn- um og særðist þrisvar. „Þetta gerðist með ýmsum hætti, ég nauðlenti, brotlenti, varpaði mér í fallhlíf, særðist illa þrisvar sinn- um. En flugsveitarforingi getur ekki yfirgefið sveit sína, hann get- ur ekki einfaldlega farið þótt hann særist nema hann sé algerlega ófær til að berjast. Þannig eru reglur okkar um heiður, þetta var ófrávíkjanlegt. Flugsveitin var fjöl- skyldan og þegar ég var útskrif- aður af sjúkrahúsi varð ég að fara aftur til strákanna minna, ég bar ábyrgð á þeim. Ég var aðeins 23 ára gamall þeg- ar ég varð flugsveitarforingi. Skortur var á foringjum eftir orr- ustuna um Bretland. Næstu þrjú árin gegndi ég því hlutverki. Við vorum ekki fullþroska karlmenn, við vorum drengir. Við börðumst á flestum vígstöðvum, yfir Ermar- sundi, Krít, Rúmeníu, í Rússlandi. Ég barðist við Kúrsk 1943 og varð þá yfirforingi flugdeildarinnar sem við vorum hluti af. Við vorum lengi á vígstöðvunum í Kákasus, flugum okkur daglegu árásarferðir, bjuggum í tjöldum eða neðanjarðarbirgjum, urðum að bjarga okkur við erfiðar aðstæður, ná í mat. Birgðaflutningar voru mjög erfiðir og stundum var skort- ur á eldsneyti, varahlutum, öllu. Við vorum stöðugt á þeytingi þessi ár, milli tuga stöðva og urðum allt- af að nota hugmyndaflugið til að koma okkur fyrir, berjast við erfitt veðurfar og langar vegalengdir. Haustið 1941 kólnaði skyndilega, bókstaflega á einum sólarhring, hitinn fór úr nokkurra stiga hita í mínus 20 gráður og síðar alveg nið- ur í 40 stiga frost. Þá er varla hægt að ræsa hreyflana, olían þykknar svo í kuldanum og við vorum alls ekki búnir undir þessar aðstæður. Fyrst leystum við þetta með því að kveikja elda undir hreyflunum sem var mjög hættulegt en hélt þeim þó heitum. Margt ógleymanlegt gerðist við Kúrsk, þar tókst flugmanni að granda fimm rússneskum skrið- drekum. Ég lenti í árekstri í lofti í fyrsta og síðasta sinn, vél andstæð- ingsins var af gerðinni LaG-5. Ég var einn í flugvélinni, allar orrustu- vélar voru gerðar fyrir einn mann. Ég flaug beint á hann í um 4.000 metra hæð og var heppinn því að ég skar annan vænginn af vélinni hans með spaðanum en bolurinn á vélinni minni skemmdist. Rúss- neska vélin hrapaði stjórnlaus og til jarðar og flugmaðurinn fórst en mér tókst að nauðlenda bak við þýsku víglínuna þótt vélin skylfi öll og hristist ógurlega. Ég gleymi aldrei hvellinum ægilega þegar vél- arnar skullu saman. Sumt af því sem gerðist brenndist inn í vitund- ina en ég get ekki alltaf munað hvaða orrustu var um að ræða, ég man atburðarásina í loftina en ekki alltaf aðdragandann eða eftirleik- inn.“ Hann segir að ekki gefist neinn tími til að velta fyrir sér örlögum andstæðingsins við slíkar aðstæð- ur, allt gerist svo hratt. „Menn hugsa ekki, menn sjá fyrst og fremst flugvél en ekki mann. Markmiðið hjá flestum flugmönn- um er ekki að drepa mann heldur skjóta niður vél. Ef flugmaðurinn bjargar sér í fallhlíf er það gott, frábært. Einbeitingin skiptir öllu, við notfærum okkur það sem við höfum tamið okkur í þjálfuninni og hraðinn er fyrir öllu. Við komum okkur í skotstöðu, miðum og skjót- um eða erum skotnir niður. Brot úr sekúndu getur ráðið úrslitum, eng- in íhugun er möguleg. Lærdómsrík kúlnagöt Fyrsta sigurinn vann ég yfir Frakklandi 1940, þá skaut ég niður Curtiss P-36 flugvél, smíðaða í Bandaríkjunum en henni flaug tékkneskur flugmaður. Það kvikn- aði í vélinni hans en ég komst naumlega undan öðrum sem réðst á mig og elti mig. En löngu síðar komst ég að því að andstæðingur minn bjargaðist í fallhlíf og komst lífs af. Þetta sagði mér tékkneskur sagnfræðingur sem kannaði skjala- söfn. Þegar ég var lentur sá ég að það voru mörg kúlnagöt á vélinni minni. Þetta var mikilvæg kennslu- stund; í fyrsta lagi fékk ég sjálfs- traust af því að ég vann, ég gat þetta en um leið viðvörun þegar ég sá hve litlu hafði munað. Næst gat ég orðið sá sem tapaði, ég mátti ekki vera of sjálfsöruggur.“ Löngu síðar hitti Rall Hub Zemke, yfirmann flugsveitarinnar sem skaut hann niður 1944 og olli því að hann missti þumalþingurinn. Þeir urðu ágætir vinir og sama er að segja um samskipti hans við Johnny Johnson, frægasta flug- kappa Breta sem er nýlátinn. Hann hefur einnig hitt rússneskar flug- hetjur og átt góð samskipti við suma, ritað formála að endurminn- ingum nokkurra þeirra. En einn Rússinn hefur enn ekki fyrirgefið neitt, hann „hvæsir enn á mig og æpir fasisti og eitthvað þess háttar“. Fundir með Foringjanum Rall fékk nokkrum sinnum heið- ursmerki fyrir vasklega framgöngu og hitti þá tvisvar bæði Hermann Göring marskálk, yfirmann þýska flughersins, og Adolf Hitler, For- ingjann sem svo nefndi sig. Í fyrra skiptið var Hitler staddur í svo- nefndu Úlfsbæli, Wolfsschanze, leiðtogans í neðanjarðarbækistöð í Austur-Prússlandi, á svæði sem nú er hluti af Póllandi. Reynt var að myrða Hitler í sprengjutilræði í byrginu sumarið 1944 sem frægt er orðið. „Þetta voru ekki eins og nein heimboð heldur skipanir, ég var kominn á staðinn ásamt öðrum til að skýra yfirmönnum frá því sem ég hafði gert og stöðu mála. Göring naut ekki mikils álits í flughernum, allir vissu að hann var ekki mað- urinn sem í reynd stjórnaði þótt hann væri það að nafninu til. Her- ráð hans sá um það. Það er rétt að hann var gömul stríðshetja en hann var ómerkilegur og hégómlegur maður, stöðugt að skipta um ein- kennisbúninga og mikið fyrir tild- ur. En ég held að hann hafi orðið fyrir einhvers konar áföllum eftir fyrri heimsstyrjöldina, þau hafi breytt honum. Reyndar get ég sagt þér nokkuð sem ekki er á margra vitorði. Gör- ing tók þátt í misheppnaðri upp- reisn nasista í München 1923 og fékk þá riffilkúlu í gegnum eistun sem var mjög sársaukafullt. Hann fékk morfín til að deyfa kvalirnar og sumir segja að hann hafi verið háður þessu efni til dauðadags. En hann fékk ekki morfín þegar hann var í varðhaldi bandamanna í Nürnberg og virtist samt haga sér eðlilega svo að ég veit ekki hvað er satt í þessu. Ég spurði hann ekki hvort hann notaði morfín! Og Hitler var æðsti yfirmaður alls þýska heraflans og því varð ég einnig að gefa honum skýrslu eftir settum reglum. Menn standa rétt og gera það sem þeir er sagt, þá skiptir engu hvort þeir hafa orðið fyrir vonbrigðum með yfirmennina. Við sátum hjá honum í nóvember árið 1942 í um 40 mínútur, hann notaði okkur til að láta orð sín ber- ast milli manna. Hann hafði alltaf góða tilfinningu fyrir tækifærum til að reka áróður og vissi að þegar við kæmum aftur á vígstöðvarnar myndu félagar okkar spyrja áfjáð- ir: „Hvað sagði hann?“ Hitler spurði hvern og einn fyrst hefð- bundinna spurninga, hvaðan þeir væru og þess háttar en gaf ekki færi á umræðum eftir það, hann flutti einræður. Þegar ég hitti Hitl- er í fyrra skiptið ásamt öðrum liðs- foringjum var hann yfirvegaður og skipulagður í hugsun, skýrði frá áætlunum sínum og hugmyndum um framtíðina. Eitt af því sem hann nefndi voru hugmyndir um miklu öflugri járnbrautir og hvern- ig fá ætti þýska bændur til að setj- ast að á hernumdum svæðum í Rússlandi og hvernig rækta bæri landið. En hann fjallaði líka um smáatriði í tæknilegum efnum her- búnaðar, hlaupvídd á byssum og fleira. En þetta var fyrir ósigurinn fyrir Rússum við Stalíngrad um áramót- in 1942– 1943. Í seinna skiptið hitti ég hann sumarið 1943, sjötti herinn í Rússlandi var úr sögunni og í Afr- íku voru Þjóðverjar á undanhaldi. Hann talaði ekki lengur um stað- reyndir mála heldur rausaði hann um eitthvað dularfullt, sagðist sjá fyrir sér ferðalag um langan og dimman dal, menn yrðu að þrauka, við sjóndeildarhringinn væri von- arbjarmi. Þetta var meira eða minna óskiljanlegt og samhengis- laust. En eftir sem áður einræður, við fengum ekki að segja mikið. Og við flugmennirnir vorum bún- ir að fá okkur fullsadda af blekk- ingum og veltum því einu fyrir okk- ur hvenig við myndum lifa þetta af. Loforðin skiptu okkur engu,“ segir Günther Rall. Þýsk orrustuflugvél af gerðinni Me-109, en Günther Rall flaug mest vélum af þeirri gerð í heimsstyrjöldinni síðari. Messerschmitt 262, fyrsta herþotan sem var fjöldaframleidd. Smíðaðar voru nokkur hundruð vélar af þessari gerð. Menn hugsa ekki, menn sjá fyrst og fremst flugvél en ekki mann. Markmiðið hjá flestum flugmönnum er ekki að drepa mann heldur skjóta niður vél.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.