Morgunblaðið - 03.06.2001, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 25
HRINGSNÚRUR
Hringsnúrurnar vinsælu
eru komnar aftur.
Mikið úrval
MRSTÚDENTAFAGNAÐUR
Nemendasambands Menntaskólans í Reykjavík
verður haldinn föstudaginn 8. júní 2001 á Broadway og hefst kl. 19.00.
Nýstúdentar og afmælisárgangar eru hvattir til að fjölmenna.
Miðasala verður í anddyri Broadway miðvikudaginn 6. júní,
fimmtudaginn 7. júní og föstudaginn 8. júní kl. 16-19 alla dagana.
Samkvæmisklæðnaður.
Stjórnin.
skrifa um plötuna og hann vildi
endilega senda hana til Naxos og
ég samþykkti það. Það leið ekki
langur tími þar til útgáfufyrirtæk-
ið hafði samband við mig og vildi
fá upplýsingar um hvaða fyrirtæki
ætti þessa plötu. Ég sagði þeim að
plötuna ætti ekkert fyrirtæki,
þetta væri allt á mínu eigin nafni.
Þá vildu þeir gefa hana út og það
tókust samningar um útgáfurétt-
inn og platan kom út um heim all-
an um áramótin 1999–2000. Ég
veit ekki annað en að salan á plöt-
unni gangi ágætlega. Hún fékk
mjög góða dreifingu. Það er auð-
vitað ánægjulegast að geta kynnt
íslenska djasstónlist erlendis.“
Klif, nýja platan. Hvænær
fórstu að huga að gerð hennar ?
,,Við tókum plötuna upp síðast-
liðið sumar. Ég samdi megnið af
músíkinni veturinn á undan. Ég
fékk þriggja mánaða starfslaun úr
Starfslaunasjóði listamanna og
hefðu þau ekki komið til hefði ég
varla getað tekið frí frá kennslunni
og einbeitt mér að tónsmíðum og
ég er þakklátur fyrir það.“
Hver er helsti munurinn á nýju
plötunni og fyrri plötu?
,,Ég er svona aðeins að víkka út
sjóndeildarhringinn hjá mér og
kanna ný svæði. Fyrri platan er
meira í akústískum eða klassískum
djassstíl. Á nýju plötunni eru
áberandi meiri áhrif frá raftónlist.
Ég skrifaði tónlistina með þessa
tónlistarmenn í huga sem eru með
mér á plötunni. Ég lagði áherslu á
heildstæð áhrif á plötunni. Ég
hugsaði hana frá upphafi til enda,
þetta er ekki bara einhver hrúga
af lögum sem við spilum. Þegar við
fórum að spila lögin og skoða þau
betur, þá runnu sum lögin saman í
eitt lag, annars staðar slitnaði lag-
ið í sundur og varð að tveim lög-
um, þannig að skilin eru öll miklu
óljósari, hvar eitt lagið byrjar og
hvar hitt endar. Það var í gangi
viss tilraunastarfsemi með formið,
í staðinn fyrir þetta hefðbundna
djassform. Við vorum fyrst og
fremst að hugsað um áferð og
heildaryfirbragðið á verkinu sem
slíku. Ég er mjög ánægður með
„sándið“, eða hljóminn á plötunni
og lagði ríka áherslu á að það yrði
vandað til verka þar.“
Er aukinn áhugi fyrir djassi
meðal yngri kynslóðarinnar?
,,Já, og það má kannski merkja
það af því að djassplötur fara inn á
sölulista hér á Íslandi og það er
nýtt. Það er greinilega vaxandi
áhugi á djassmúsík og stílarnir eru
aðeins að bráðna meira saman.
Það eru „eliment“ í rokkgeiranum
sem eru að blandast inn í djass-
músíkina og öfugt. Það er kannski
það skemmtilegasta við þetta að
það er mikið af fólki sem er ekkert
að spá í djassmúsík sem er að
kveikja á þessu sem við erum að
gera, það eru að koma nýir hlust-
endur.“
Ertu ekki stöðugt að viða að þér
nýju efni?
,,Eins og sagði áðan þá sem ég í
skorpum. Ég hugsa meira um
„konsept“ og oft er ég að hugsa
um nokkra hluti í einu. Ég verð
síðan á endanum að velja eitthvað
og þróa það lengra og setjast nið-
ur og skrifa músíkina. Ég gef mér
góðan tíma til að viða að mér
áhrifum og hlusta mikið í skorp-
um. Ég er t. d. núna að byrja að
hlusta á meira og meira og síðan
nær það einhverjum hápúnkti. Ég
kynni mér margt og ýmsar stefnur
t.d tilraunamúsík. Ég fer á mál-
verkasýningar eða leikhússýningar
og sýningar íslenska dansflokksins
sem dæmi og les ýmislegt. Það er
alltaf einhver törn í gangi af ein-
hverju tagi, ég er þannig týpa.“
Komið þið til með að fylgja plöt-
unni Klif eftir og spila eitthvað á
næstunni?
,,Já. Við gerum ráð fyrir að
koma saman í sumar. Hilmar hef-
ur verið erlendis í meira en mánuð
á tónleikaferðalagi, en kemur heim
núna síðar í maímánuði. Það er
mjög erfitt að fá Skúla til landsins,
hann hefur það mikið að gera og
býr í New York og er gríðarlega
eftirsóttur. Valdimar Kolbeinn
bassaleikari verður eitthvað með
okkur. Við ætlum reyna að spila í
sumar og vonandi getum við verið
með fullt band á djasshátíðinni í
haust.“