Morgunblaðið - 03.06.2001, Page 35
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 35
Dalvegur - Kóp
280 fm í þessum vinsælu rauðu múrsteinshúsum
Innk.dyr, sýningarsalur, góð skrifst.
Fjárfestar - Laugavegur
Glæsilegt endurnýjað húsnæði. 10 ára leigus. Árstekjur
5,4. Verð 49,8 millj áhv 36 millj.
Engjateigur Listhúsið Laugardal
Tvö sjálfstæð glæsileg bil. Í öðru er gallerý en í hinu
verslun með listmuni. Laus strax eða fljótt.
Salahverfi - Kópavogi
Til sölu eða leigu 860 fm 380/480 fm gott þjónustu-
húsn., gott verð.
Vantar - vantar fljótt
Flestar gerðir atvinnuhúsnæði til sölu eða leigu enda
góð sala núna og fjöldi góðra kaupenda á skrá. Hvar er
þín eign?
ATVINNUHÚSNÆÐI
FYRIRTÆKJASALA ÍSLANDS
SÍÐUMÚLA 15 - SÍMI 588 5160
Sölustjóri: Gunnar Jón Yngvason Kt. 460401-2750
SUMARÁÆTLUN Vestmanna-
eyjaferjunnar Herjólfs hefur tekið
gildi. Í kjölfar fjölgunar á farþegum
verður ferðum fjölgað frá því sem
tíðkast hefur í sumaráætlun fyrri
ára. Herjólfur fer frá Vestmannaeyj-
um kl. 8.15 og frá Þorlákshöfn kl.
12.00 alla daga. Fimmtudaga, föstu-
daga og sunnudaga eru aukaferðir
kl. 15.30 frá Vestmannaeyjum og kl.
19.00 frá Þorlákshöfn. Frá 11. júní til
3. september bætast við aukaferðir á
mánudögum á sama tíma. Breyting
verður á áætlun vegna þjóðhátíðar
Vestmannaeyinga um verslunar-
mannahelgina.
Nýjar reglugerðir um farþega-
flutninga með ferjum gera ráð fyrir
að skrá verði alla farþega með nafni.
Farþegar eru hvattir til að staðfesta
pantanir í síðasta lagi daginn fyrir
brottför til að komast hjá biðröðum
en margar helgar í sumar eru þétt
bókaðar ekki hvað síst fyrir bíla.
Einnig er ráðlegt að kaupa miða
fram og til baka og fá brottfarar-
spjöld afhent þá. Farþegum er bent
á að upplýsingar er að finna á herj-
olfur.is. Ferð með Herjólfi tekur
tæpar þrjár klst. Ýmislegt ber fyrir
augu á leiðinni og ekki er óalgengt að
farþegar fái óvænta hvalaskoðunar-
ferð í kaupbæti. Um borð í Herjólfi
er veitingaaðstaða auk þess sem
mögulegt er að leigja svefnrými.
Ferðum
Herjólfs
fjölgað
mbl.isFRÉTTIR
Eru
Florena
bestu snyrtivörurnar?