Morgunblaðið - 03.06.2001, Page 42
FRÉTTIR
42 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Höfum trausta
kaupendur
að einbýlishúsi
með aukaíbúð í
Árbæjar- og
Seláshverfi
Upplýsingar gefur Páll Höskuldsson
á skrifstofu Eignavals
í símum 585 9999 og 864 0500
pall@eignaval.is
SELJABRAUT 72 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ
FRÁBÆRT VERÐ - LAUS STRAX
OPIÐ HÚS Í DAG SUNNUDAG MILLI KL. 14 OG 17.
Um er að ræða fallega 4ra herbergja 100 fm íbúð á 3ju hæð efstu ásamt
stæði í bílgeymslu. Íbúðin er með ágætum innréttingum og parketi. Þvottahús
og búr er í íbúðinni. Svalir í suðvestur. Stutt í skóla og þjónustu. Laus strax.
Áhv. 5,3 millj. húsbréf með 5,1% vöxtum. Frábært verð, aðeins 10,7 millj.
Sigurður og Gerður taka vel á móti ykkur.
Skeifan fasteignamiðlun, Suðurlandsbraut 46 sími 568 5556
BORGIR
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
F A S T E I G N A S A L A
LANGHOLTSVEGUR 186
NÝ STANDSETT OG FALLEG
Mjög rúmgóð og óvenju falleg 68,7 fm 2ja herbergja íbúð á góð-
um stað innarlega á Langholtsveginum. Íbúðin var öll standsett
fyrir um tveimur árum og er óvenju falleg, m.a. nýtt eldhús, bað-
herbergi, gólfefni og fleira. Stutt í skóla og alla þjónustu.
Sjón er sögu ríkari. V. 9,2 millj. 4303
Vegna gríðarmikillar sölu vantar okkur allar
gerðir fasteigna á skrá ! Hinir fimm fræknu
sölumenn Eignavals selja eignina þína.
HÁSKÓLINN í Reykjavík kynnti á
miðvikudag nýja námsleið innan við-
skiptadeildar sinnar sem gefur vinn-
andi fólki kost á að stunda fullgilt há-
skólanám og ljúka BS-prófi eða
diploma prófi á tveimur til þremur
árum. Um er að ræða fjórar náms-
brautir sem allar byggjast á þeim
grunni sem lagður hefur verið í hefð-
bundnu námi í viðskiptadeildinni.
Hægt verður að taka 90 eininga BS-
nám í viðskiptafræði og útskrifast
sem viðskiptafræðingur og diploma-
leiðirnar eru þrjár og hver þeirra
með 45 eininga nám. Þær eru með
áherslu á fjármál og rekstur, stjórn-
un og starfsmannamál og loks mark-
aðsfræði og alþjóðaviðskipti.
Námið, sem á að hefjast næsta
haust, er sérsniðið með þarfir fólks
úr atvinnulífinu í huga þannig að ein-
staklingar geti stundað vinnu sam-
hliða náminu. Fyrirkomulag kennsl-
unnar verður með þeim hætti að
kennt verður þriðjudaga, miðviku-
daga og fimmtudaga frá kl. 16 til 19
og munu nemendur taka þrjú þriggja
eininga námskeið á hverri önn, alls 9
einingar í stað 15 í hefðbundnum
dagskóla. Þá verða einnig kennd þrjú
námskeið yfir sumarið, þ.e. í maí,
júní og ágúst en frí tekið í júlí. Nem-
endur ljúka því 27 einingum á þrem-
ur önnum á ári, í stað 30 eininga í
hefðbundnu háskólanámi, og 45 ein-
ingum á 21 mánuði. Einstaklingur
sem hefur nám í ágúst 2001 lýkur
þannig diploma-gráðu í júní 2003.
Námið veitir fullgildar einingar á
háskólastigi og mun nemendum
standa til boða að halda áfram úr
diploma-námi inn í BS-námið. Eins
er ætlunin að þeir sem skrá sig í BS-
nám með vinnu taki þriðja og síðasta
árið í dagskólanum til að geta nýtt að
fullu öll þau valnámskeið sem þar eru
í boði.
Lögð verður áhersla á notkun
Netsins í samskiptum milli nemenda
og kennara, t.d. verður hluti fyrir-
Háskólinn í Reykjavík kynnir nýjar námsleiðir
Boðið upp á háskóla-
nám með vinnu
Morgunblaðið/Arnaldur
Guðfinna S. Bjarnadóttir rektor og Agnar Hansson deildarforseti
kynntu nám með vinnu í nýbyggingu Háskólans í Reykjavík, sem taka á í
notkun í haust. Um er að ræða annan áfanga af þremur í húsbyggingum
skólans, 4 þúsund fermetra húsnæði líkt og bygging fyrsta áfangans.
Fyrirlestur
um búdd-
isma
FYRIRLESTRAR um búdd-
isma á vegum Karuna hefjast
aftur þriðjudaginn 5. júní nk., í
stofu 101 Odda, Háskóla Ís-
lands. Kennt verður á ensku
næstu fjóra þriðjudaga og hefst
kennslan kl. 20. Yfirskrift fyr-
irlestranna er „Að skilja hug-
ann“.
Í þessum fyrirlestrum mun
búddamunkurinn Venerable
Drubchen sýna hvernig skýrari
skilningur á huganum og virkni
hans getur dregið úr og jafnvel
eytt neikvæðum hugsunum og
tilfinningum sem eru rót allra
daglegra vandamála og þján-
inga. Hver fyrirlestur er sjálf-
stæður og öllum opinn. Gjald
fyrir hvert skipti er kr. 1.000 en
500 fyrir námsmenn og öryrkja.