Morgunblaðið - 03.06.2001, Síða 48

Morgunblaðið - 03.06.2001, Síða 48
48 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ                       BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Miðasala á Rammstein UM LEIÐ og ég fagna því að hljóm- sveitin Rammstein skuli ætla að bæta við tónleikum í Laugardagshöll 16. júní nk., get ég ekki glaðst eins mikið yfir því hvernig staðið var að miðasölu á fyrri tónleika sveitarinnar á dögun- um. Mikil eftirvænting ríkti hjá mér og augljóslega fleirum því miðarnir seldust eins og heitar lummur. Hundruð manna höfðu safnast í lang- ar biðraðir við sölustaði og áhuginn greinilega með mesta móti, enda úr- valstónleikaband á ferðinni og ég (eins og allir sem voru í röðinni) ætl- aði ekki að missa af miða. Reyndar var ég einn hinna heppu sem náði að troðast að borðinu og ná í miða áður en það var um seinan. Ég keypti þrjá miða og því kom það mér á óvart þeg- ar maðurinn fyrir aftan mig bað um 30 miða. Og ekki var það versta til- fellið. Dæmi eru um að menn hafi keypt allt að 150 miða í einu og því kannski ekki skrítið að selst hafi upp á rúmum klukkutíma. Þegar viðburð- ir af þessu tagi eru á döfunni virðist vera að menn séu sendir til að kaupa miða fyrir heilu fyrirtækin og vina- hópinn að auki. Má ég benda þessu fólki á að það getur bara beðið í röð- um eins og aðrir. Ekki voru þó allir að hamstra miða í þessum tilgangi, því jafnskjótt og miðarnir kláruðust var farið að selja þá á uppsprengdu verði. Og það (í þessu tilfelli) beint fyrir framan sölustaðinn. Að þetta fólk skuli hafa komist upp með þetta er nógu slæmt, en enn verra að ekkert hafi verið gert í því. Réttast hefði ver- ið að siga löggunni á lýðinn, enda veit ég ekki betur en að hvers kyns svartamarkaðsbrask sé bannað með lögum á Íslandi. Ég er ekki að ásaka neinn sem tengist miðasölu á tónleikana um neitt. Menn á þeim bænum hafa væntanlega reynt að gera sitt besta og e.t.v. ekki búist við hinni gríðar- legu eftirspurn. Ég er eingöngu að benda á að ekki gengur að selja einum einasta einstaklingi tugi miða með þeim rökum að hann sé að kaupa fyrir kunningjana eða vinnufélagana, eða með engum rökum yfirhöfuð. Það er sennilega þessi söluaðferð sem valdið hefur því að svarti markaðurinn í kringum tónleikana hefur blómstrað með eindæmum. Réttara væri (að sjálfsögðu einungis að mínu mati) að setja kvóta á það hvað hver einstak- lingur má kaupa marga miða í senn, t.d. 5 stk. Þessi aðferð hefur gefist vel erlendis, þótt það sé hálfpínlegt að þurfa alltaf að benda á hvernig mál- um sé háttað erlendis. Það undirstrik- ar einungis að hér á landi eigi menn talsvert í land í skipulagningu tón- leika af þessari stærð (í það minnsta þegar kemur að skipulagningu miða- sölu) og reyndar stöndum við langt að baki á miklu fleiri sviðum en skal það látið liggja á milli hluta hér. EIRÍKUR STURLA ÓLAFSSON, Goðheimum 16, Reykjavík. Frá Eiríki Sturlu Ólafssyni: Ellilífeyrir og kröfur Félags eldri borgara VEGNA breytinga á lögum um al- mannatryggingar er samþykktar voru á síðustu dögum Alþingis skal eftirfarandi tekið fram. Í stórum dráttum eru kröfur FEB þessar: 1. að ríkisstjórnin fari að landslög- um og láti ellilaun fylgja launaþróun. 2. að grunnlífeyrir verði hækkaður 3. að frítekjumark hækki a.m.k. til samræmis Lítið hefur áunnist sem sjá má af dæmum sem tekin eru um einhleypan ellilífeyrisþega með lífeyristekjur frá 0/21.000/50.000 að um leið og lífeyris- tekjur hafa náð kr. 21.000 þá fellur niður tekjutryggingaraukinn. Það sama má segja um hjón. Tekjutrygg- ingaraukinn fellur niður við 32.000 kr. tekjur hjóna úr lífeyrissjóði. Ellilífeyrisþegi fær aðeins 4.249 kr. meira þrátt fyrir 21.000 kr. lífeyris- tekjur. Þessi skerðingarákvæði eru óviðunandi. Jaðarskattar eru einnig óeðlilega miklir en þar eigum við Norðurlandametið og vel það. Sem dæmi má nefna að einhleypur ellilíf- eyrisþegi missir 80% af 21.000 kr. líf- eyrissjóðsgreiðslu í skatta og skerð- ingar en hjón með 32.000 kr. í lífeyrissjóðsgreiðslur missa 68%. Þess vegna telur FEB að hækka beri grunnlífeyri. Nýju lögin veita litlar úrbætur nema nokkra hækkun frí- tekjumarka og öryrkjum er gefinn kostur á lengri vinnutíma. Sam- kvæmt útreikningum okkar fær t.d. einhleypur lífeyrisþegi minni hækkun samkvæmt nýju lögunum en hann hefði fengið ef ríkisstjórnin hefði farið að landslögum um hækkun bóta sam- kvæmt launavísitölu. Það samræmist heldur ekki dómi Hæstaréttar frá desember 2000 að telja helming tekna útivinnandi maka til tekna lífeyris- þegans. Því má heldur ekki gleyma að bættar lífeyrissjóðstekjur eftir 10–15 ár gagnast ekki þeim sem nú eru elli- lífeyrisþegar og því síður öryrkjum. ÓLAFUR ÓLAFSSON, formaður Félags eldri borgara. Frá Ólafi Ólafssyni:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.