Morgunblaðið - 03.06.2001, Page 51

Morgunblaðið - 03.06.2001, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 51 DAGBÓK LJÓÐABROT Íslands minni Eldgamla Ísafold, ástkæra fósturmold, fjallkonan fríð! mögum þín muntu kær, meðan lönd gyrðir sær og gumar girnast mær, gljár sól á hlíð. – – – Eldgamla Ísafold, ástkæra fósturmold, fjallkonan fríð! ágætust auðnan þér upp lyfti, biðjum vér, meðan að uppi er öll heimsins tíð. Bjarni Thorarensen Í ÚTVARPSÞÆTTI ekki alls fyrir löngu um sænska forsætisráðherrann Olof Palme var m. a. rætt um það að hann hafi ekki verið hrifinn af því að þurfa að hafa öryggisverði í fylgd sinni. Var þá komizt svo að orði: „Hann var alræmdur fyrir það að vilja stinga ör- yggisverði sína af.“ Í öðr- um útvarpsþætti var svo talað um flugmann, sem þótti frábær í starfi sínu, og þá tekið fram að hann hafi verið alræmdur flug- maður. Að sjálfsögðu var átt við það að þessir menn hefðu verið alþekktir eða víðkunnir að þessu leyti. Ég hrökk við þegar ég heyrði lo. alræmdur notað í þessari merkingu. Í mín- um huga er lo. alræmdur alltaf haft um mann í niðr- andi merkingu eða um þann „sem illt orð fer af, alræmdur fyrir e-ð“, eins og segir í OM (1983). Talað er um að einhver maður hafi verið alræmdur svika- hrappur eða alræmdur glæpamaður, svo að dæmi séu nefnd. Ég býst við að flestir kannist einmitt við þá merkingu þessa lýsing- arorðs. Í þessu sambandi höfum við enn fremur lo. eins og illræmdur og orð- lagður en alræmdur mun þeirra áhrifaríkast. Í ofan- greindum lýsingum um Palme og flugmanninn hefði að sjálfsögðu átt að nota lo. eins og alþekktur eða alkunnur eða jafnvel víðþekktur. Að mínum dómi er með öllu ástæðu- laust að láta lo. alræmdur fá hér jákvæða merkingu, enda af nógu öðru að taka, eins og tekið hefur verið fram. – J. A. J. O R Ð A B Ó K I N Alræmdur STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake TVÍBURAR Afmælisbarn dagsins: Þú ert skemmtikrafturinn sem alls staðar léttir lund manna með glensi og gamni. Þess vegna yfirsést mörgum hversu tilfinninganæmur þú ert innst inni. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hleyptu þér ekki í deilur við samstarfsmenn þína eða vini, allra síst ef tilefni er lítilfjör- legt. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ættir að velja þá sem þú umgengst af meiri kostgæfni. Einhverjir sem þú telur vini þína hafa í raun engan áhuga á að teljast í þeim hópi. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Ef þú ert óánægður með þá stefnu sem mál eru að taka þá ættir þú að bretta upp erm- arnar og grípa til þinna ráða áður en allt fer úr böndunum. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Það eru ótal möguleikar í stöðunni ef þú ert bara fús til þess að eiga samstarf við aðra því margar hendur vinna létt verk en einn færð þú litlu áorkað. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Hugsaðu þig vel um áður en þú hleypur eftir hugdettum sem virðast leiða til lítilfjör- legra hluta. Láttu ekki verk- efni safnast fyrir á skrifborði þínu óleyst. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Sýndu hugrekki og láttu það ekki ógna þér þótt krefjandi aðstæður komi upp. Þú hefur alla burði til þess að sigrast á þeim með afgerandi hætti. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú verður að taka þig á í fjár- málunum og hafa í huga að betra er að spara fyrir hlut- unum heldur en að slá lán til að eignast þá. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú ættir að eiga auðvelt með að vinna aðra á þitt band ef þú bara gætir þess að koma fram af festu og sanngirni og umfram allt að reyna ekki að slá ryki í augu fólks. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þótt sjálfsgagnrýni sé góður kostur má hún ekki ganga svo langt að drepa allt frumkvæði í dróma. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Mundu að vera vinur vina þinna ef þú á annað borð vilt geta sótt til þeirra þegar þér liggur á. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú verður að vinna öllum ár- um gegn því að láta stöðn- unina ná tökum á þér. Á sama hvaða sviði sem er verður þú að brjóta af þér hlekkina og sækja fram. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú kemst ekkert áfram á frekjunni heldur spillir hún bara fyrir þér. Sýndu þolin- mæði gagnvart mönnum og málefnum og sæktu það sem þú vilt með lipurð og festu. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. SUÐUR opnar á grandi og norður stekkur beint í þrjú grönd. Fáðu þér sæti í suð- ur: Norður ♠ ÁG5 ♥ ÁD ♦ 5432 ♣ 6542 Suður ♠ K102 ♥ G62 ♦ ÁD ♣ÁDG103 Vestur spilar út smáu hjarta. Fyrsta spurning: Hyggstu svína? Samningurinn er firna sterkur, en þó ekki alveg öruggur. Það felst viss hætta í því að svína hjartadrottn- ingu, því ef svíningin mis- heppnast gæti austur tekið upp á því að skipta yfir í tíg- ul. Í versta falli á vestur kóngana í láglitunum og þá er spilið sennilega tapað. Þú svínar því ekki heldur tekur á hjartaás og spilar laufi á drottningu. Hún held- ur, en vestur hendir hjarta. Hvert er nú framhaldið? Norður ♠ ÁG5 ♥ ÁD ♦ 5432 ♣ 6542 Vestur Austur ♠ 7643 ♠ D98 ♥ 108753 ♥ K93 ♦ K976 ♦ G108 ♣-- ♣K987 Suður ♠ K102 ♥ G62 ♦ ÁD ♣ÁDG103 Ekki er óhætt að gefa austri slag á lauf því ef aust- ur spilar tígliverður sagnhafi síðar að þefa uppi spaða- drottninguna til að koma spilinu í hús. Það er ástæðu- laust þegar til er 100% leið. Þú spilar nú spaðatíu og læt- ur hana fara yfir. Ef tían heldur slag er óhætt að gefa austri á laufkónginn, en ef austur drepur eru nú tvær innkomur á spaða til að svína tvívegis í viðbót í laufi. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Árnað heilla 80 ÁRA afmæli. ElíasGuðbjartsson, verkamaður og sjómaður frá Kroppstöðum, Skálavík síðar búsettur í Bolungar- vík, verður áttræður 6. júní. Hann dvelur nú á Hrafnistu í Reykjavík. Elías heldur upp á daginn annan í hvíta- sunnu og tekur á móti fjöl- skyldu og vinum frá kl. 16 til 18 á heimili sonar síns Hilm- ars í Þórufelli 16, Reykjavík. 60 ÁRA afmæl. GuðrúnSnæbjörnsdóttir, Arnartanga 36, Mosfellsbæ, verður sextug 4. júlí nk., annan í hvítasunnu. Guðrún og eiginmaður hennar, Guðni Steinar Gústafsson, bjóða vinum og vandamönn- um að fagna tímamótunum með þeim á afmælisdaginn frá kl. 17 til 20 í Hlégarði, Mosfellsbæ. 90ÁRA afmæli. Á morg-un, mánudaginn 4. júní, verður Ingigerður Fr. Benediktsdóttir frá Eski- firði, nú Hrafnistu, Hafnar- firði, níræð. Hún og fjöl- skylda hennar taka á móti ættingjum og vinum á af- mælisdaginn 4. júní frá kl. 15–18, í sal I.O.G.T, Stang- arhyl 4, Reykjavík. STAÐAN kom upp á geysisterku lokuðu móti í Merida í Mexíkó er lauk fyrir skömmu. FIDE- heimsmeistarinn, Visw- anathan Anand (2794), hafði hvítt gegn Nigel Short (2676). 36.Bxe5! dxe5 37.Rxe5 Með manns- fórninni tókst hvítum að brjóta skarð í varnir svarts. Þrátt fyrir harðvít- ugar tilraunir svarts til að halda stöðunni saman tókst það ekki: 37...Rd6 38.Hbxf3 Dxe4 39.Rxf7 Rxf7 40.Rd3 Rg6 41.Rxc5 Dxc4 42.Re6 Ke8 43.Dd1 Hd7 44.Hd3 Bb6 45.Hg4 Da2 46.He4 Rfe5 47.Hd2 Dxa3 48.f4 Rf7 49.Hd3 Da2 50.Hb3 Hd6 51.Rc5 Re7 52.De1 Bd8 53.He2 og svartur gafst upp enda drottningin að falla í val- inn. Lokastaða mótsins varð þessi: 1. Viswanathan Anand (2794) 4½ vinninga af 6 mögulegum. 2. Nigel Short (2676) 3½ v. 3. Alex- ander Khalifman 3 v. 4. Gilberto Hernandez 1 v. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Dreifing: S. Gunnbjörnsson ehf. Sími 565 6317 Vatnsþynnanlegt vax- og hitatæki til háreyðingar. Vaxið má einnig hita í örbylgjuofni. Einnig háreyðingarkrem, „roll-on“ eða borið á með spaða frá Útsölustaðir: Snyrtivöruverslunin Nana, Rvík, Líbía, Mjódd, Hringbrautar Apótek, Rima Apótek, Grafarvogs Apótek, Lyf & heilsa, Álfabakka, Lyf & heilsa, Háteigsvegi 1, Borgarapótek, Álftamýri, Fína Mosfellsbæ, Gallerí Förðun, Keflavík, Sauðárkróks Apótek, Stykkishólms Apótek, Árnesapótek, Selfossi. Hafnarapótek, Höfn, Hornafirði, Lyfsalan Hólmavík. Háreyðingarvörur Frábærar vörur á frábæru verði Gerið verðsamanburð Meðvirkni Námskeið um meðvirkni, samskipti, tjá- skipti og tilfinningar verður haldið föstu- dagskvöldið 8. júní og laugardaginn 9. júní í kórkjallara Hallgrímskirkju. Nánari upplýsingar og skráning í síma 553 8800. Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið Stefán Jóhannsson, MA, fjölskylduráðgjafi Námskeið í dönsku ætlað 9 og 10 ára börnum Allar nánari upplýsingar veitir kennsluráðgjafi Norræna hússins, Kristín Jóhannesdóttir, í síma 551 70 30. netfang: kristinj@nordice.is Markmið: Að vekja og viðhalda áhuga þátttakenda á dönsku. Þátttakendum er gefið færi á að kynnast dönsku máli og menningu með hjálp spila, leikja, tónlistar og margs konar æfinga sem þjálfa hlustun, tal og lestur. Fjöldi: Hámark 14 nemendur á námskeiði. Lengd: 15 tímar (3 tímar x 5 dagar) Tími: Fyrir hádegi frá kl. 9-12 11.-15. júní og 18.-22. júní.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.