Morgunblaðið - 03.06.2001, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 03.06.2001, Qupperneq 58
FÓLK Í FRÉTTUM 58 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ MARGIR hafa ef til vill spurtsig hvers vegna allt þettafjaðrafok er út af Svölu Björgvinsdóttur. Reglulega hafa bor- ist fréttir af því, síðastliðin tvö ár eða svo, að stúlkan „standi á þröskuldi heimsfrægðarinnar“ en síðan hefur ekkert gerst. Enginn Íslendingur í Bandaríkjunum hefur nokkurn tím- ann heyrt minnst á Svölu í fjölmiðlum þar og engin skilur neitt í neinu. En herrar mínir og frúr, nú verður breyting á. Boltinn sem Skífan henti af stað fyrir fjórum árum er nú orðinn stór og viðamikill. Fyrsta smáskífu- lag Svölu Björgvinsdóttur í Banda- ríkjunum kemur út 11. júlí næstkom- andi, en lagið „The Real Me“ verður formlega sett í útvarpsspilun um gjörvöll Bandaríkin á morgun. Ástæðan fyrir því að engin hefur enn fengið að heyra neitt er sú að plötu- vinnslan og undirbúningurinn hefur víst tekið allan þennan tíma. „Trallað“ inn á snældu „Það byrjaði svona fyrir alvöru á þessum tveimur árum áður en ég fór á samninginn hjá Priorety Records,“ útskýrir Svala. „Platan hefur breyst mjög mikið frá því ég byrjaði á henni fyrst. Það eru a.m.k. 6 ný lög sem ég vann að eftir að ég skrifaði undir samninginn.“ – Þú vinnur mikið með lagahöfund- um en hvað átt þú mikið í tónlistinni sjálfri? „Mjög mikið. Það eru 5 lög á plöt- unni sem ég samdi með öðrum laga- höfundum. Í þeim lögum sem ég samdi ekki hafði ég mikið að segja með útsetningu þeirra. Ég tek ekki að mér lag eftir annan lagahöfund nema að ég finni einhverskonar tengingu. Ég vil ekki syngja eitthvað lag sem ég „fíla“ ekki eða ef ég næ ekki sam- bandi við textann. Mér finnst það bara vera plat og ég myndi aldrei gera það.“ - Hefur þú einhvern tímann spilað á hljóðfæri? „Ég lærði á píanó í 4 ár. Ég sem samt ekkert á það. Ég er bara með lít- ið snælduupptökutæki með mér sem ég „tralla“ inn á. Svo vinn ég með lagahöfundum sem spila á píanó eða gítar eða eitthvað og klára með þeim lögin. Þeir heyra bara einhverjar lag- línur sem ég kem upp með og svo vinnum við saman út frá henni.“ Tónlistarmarkaðurinn – Þetta verkefni er búið að lúta miklum markaðslögmálum frá upp- hafi og útgáfunni m.a. frestað vegna þeirra. Skiptir tímasetning svona miklu máli? „Já, rosalega miklu. Fólk kannski gerir sér ekkert grein fyrir því að þetta kallar á rosalega mikla sam- vinnu. Það eru margir að vinna sam- an í þessu, allir að gera sitt. Ef sú vinna tekst vel þá gengur þetta upp.“ – Er þessi mikla bið ekki búin að taka á taugarnar? „Jú, auðvitað, þú getur rétt ímynd- að þér. Ég er nú samt mjög ánægð að við séum fyrst að fara af stað núna. Við vorum ekki tilbúin til þess að gera þetta strax vegna þess að það þurfti að samræma alla samvinnu og svo- leiðis. Núna er þetta komið í gang, ég er tilbúin og allir eru í raun og veru tilbúnir. Ég hefði aldrei verið tilbúin í þetta fyrir tveimur árum. Platan var ekki orðin eins góð þá og hún er núna.“ – Finnst þér markaðslögmálin hafa haldið tónlistarsköpun þinni niðri? „Já, mig dauðlangar að fara í hljóð- verið aftur. Ég er náttúrlega búin að vera ansi mikið núna í öllum þessum markaðsmálum. Ég þarf að markaðs- setja sjálfa mig. Ég er bara að kynna mig, er með ímynd í gangi og allt það. Ég er tónlistarmaður og þrái að fara að vinna tónlist aftur en kynningin er bara svo mikilvægur þáttur. Ameríka er svo rosalega stór og ég er gjör- samlega óþekkt. Ég þarf einhvern veginn að skapa mín eigin fótspor þannig að fólk þekki þau. Þetta er bara mjög mikilvægur hluti og ég hef rosalega gaman af þessu.“ Sérstaða Svölu – Er búið að leggja mikla vinnu í það að finna sérstöðu fyrir þig á markaðinum? „Já, já. Það er alveg heil mark- aðsdeild hjá Priorety Records sem er í því að koma með hugmyndir og skapa allskonar vörur, auglýsingar sem allar viðkoma mér.“ – Ertu einhvern tímann beðin um eitthvað sem þér finnst óþægilegt? „Mér finnst ekkert óþægilegt. Þetta er fólk sem þekkir mig og ég fæ alveg að hafa hönd í bagga. Ef það er eitthvað sem mér finnst ekki sniðugt þá geri ég það ekki. Þetta er allt borið undir mig, umboðsmann minn og Skífuna þannig að við erum með yf- irsýn yfir þetta allt. Mér finnst mjög gott að hafa stjórn á mínum eigin ferli. Ég vil ekki að einhver gæi úti í bæ sjái bara um þetta, það er ekki þannig hjá mér.“ – Hver er svo þín sérstaða? „Af því að ég er frá Íslandi þá sker ég mig strax frá Britney, Christinu og öllum hinum. Það er ekki aðalat- riðið en verður samt notað til þess að skilja mig frá öðrum. Ég er Íslend- ingur og ætla ekkert að fara ljúga öðru. Mér finnst gaman að tala um landið mitt, og hvernig við Íslending- ar erum allt öðruvísi en Bandaríkja- menn. Þjóðerniskenndin kemur ofsa- lega sterkt inn hér, maður verður ofsalega mikill Íslendingur.“ – Ertu að keppa við Britney og Christinu? Þær eru nú aðeins yngri en þú er það ekki? „Jú, þær eru það. Ég er 24 ára og er að stíla inn á markhópinn frá 10 ára upp í 28 ára, ég held að þær séu meira að stíla inn á yngri markhóp. Ég er meira að stíla inn á sama hóp og Jennifer Lopez. Það er breiðara svið. Tónlistin mín er aðeins þroskaðri.“ – Maður hefur oft heyrt um það að útgáfufyrirtæki biðji tónlistarmenn um að ljúga til um aldur. „Já, það er alveg satt. Þeir eru stundum að grínast með það, af því að það var gert hjá sumum. En ég er svo rosalega erfið að það væri aldrei hægt að segja mér að gera eitthvað svoleið- is. Ekki fræðilegur möguleiki.“ Klám og popp – Það er mikið spilað út á útlitið í þessum poppbransa er það ekki? „Jú alveg rosalega mikið. Það er nóg að skoða forsíðurnar á öllum þessum blöðum til að sjá að þær eru allar hálfberar þessar söngkonur og leikkonur.“ – Þú hefur greinilega ekkert á móti því sjálf, er t.d. eiginlega ber framan á forsíðu Mannlífs. „Nei, ég hef ekkert á móti því. Ég er alls ekki spéhrædd manneskja. Þetta hefur aldrei verið neitt mál fyr- ir mér. Ef manneskja vill vera kapp- klædd þá er það fínt líka, þetta er bara spurning um persónulegt frelsi. Svo lengi sem þetta verður ekki ómerkilegt. Ég myndi aldrei fara og vera í einhverju klámblaði eða eitt- hvað þannig. Ég hef mjög gaman af fallegum, kynæsandi myndum sem eru kvenlegar. Mér finnst það ógeðs- lega flottar myndir og er algjör stelpa. Ég les þessi blöð eins og Vogue, Cosmo og finnst því bara mjög gaman að fara í svona mynda- töku. „Playing dressup“, það er ógeðslega gaman.“ – Það hefur kviknað umræða um það að nú sé orðin fremur þunn lína á milli klám- og poppiðnaðarins, hvað finnst þér um það? „Það er mjög mikið spilað upp á kynlíf, það er bara svoleiðis. Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja. Ég get ekki farið að koma með einhverja heimspekilegar athugasemdir um það og hef ekkert hugsað mikið út í þetta. Tíminn er bara svona í dag. Hefur þetta ekki alltaf verið svona? Núna er þetta bara í öðruvísi formi. Á hippatímabilinu var slagorðið „Free love“ og allir áttu að sofa hjá öllum. Núna er voðalega mikið í tísku að vera í stuttum pilsum og þröngum fötum. Ég hef ekkert á móti þessu, svo lengi sem ekki er farið yfir strikið í þessum málum og ekki sé verið að niðurlægja neinn á einhvern hátt. Þetta eru bara mjög flott myndbönd, flottar stelpur í flottum fötum sem dansa vel. Ég sé eiginlega ekkert að því. Þetta er bara augnakonfekt, aukabónus sem gaman er að horfa á. Ég held samt að þegar fólk fer að kaupa geislaplötur þá pælir það meira í tónlistinni. Það er a.m.k. það sem ég geri, ég kaupi ekki plötur út af því að myndbandið er svo flott. Bara ef mér finnst tónlistarmaðurinn hæfi- leikaríkur og ef tónlistin er góð. Ég held að þetta sé meira gert fyrir yngri og óþroskaðri krakka. Þannig var maður allavega sjálfur – ef manni fannst eitthvað meiriháttar flott, þá var það „kúl“.“ – Þið gerðuð sex plötu samning, voru þið ekkert smeyk við skuldbind- inguna? „Nei, alls ekki. Þeir eru að leggja sig svo mikið fram. Ég er eini hvíti popptónlistarmaðurinn á Priorety Records. Þetta er í fyrsta skipti sem þeir eru að fara inn á poppmarkaðinn þannig að þetta er sameiginleg áhætta. Báðir aðilar eru því að fara út í þetta í fyrsta skiptið sem er svolítið skemmtilegt. Það eru allir æðislega spenntir. Plötufyrirtækið er þekkt fyrir að gefa út Snoop Doggy Dogg, IceCube og N.W.A. – allt rapp. Þeir eru hæfileikaríkir í því að gefa út hipp hopp-listamenn. Ég er eiginlega eins og litla barnið í fjölskyldunni, algjört dekurbarn.“ – Hvenær kemur breiðskífan út? „Smáskífan fer í útvarpsspilun núna 4. júní og svo í búðir 11. júlí. Breiðskífan kemur svo 14. ágúst.“ Landsmenn óska vonlega velgengni. Nú beinast allra augu að Svölu. „Flottar stelpur í flottum fötum sem dansa vel“ Verður Svala næsta stórstjarna okkar Íslendinga? Birgir Örn Steinarsson spurði hana allra spurninganna sem hafa brunnið á vörum manna. Svala undirbýr sig fyrir rússibanareiðina. biggi@mbl.is Svala Björgvins gefur út sína fyrstu smáskífu í Bandaríkjunum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.