Morgunblaðið - 14.07.2001, Side 22
Læknirinn
Vélindabakflæði
hrjáir mjög marga
Íslendinga.
Geðklofi
Er djassinn af-
sprengi sjúkdómsins
geðklofa?
Salerni
Salernisskál sem mun
efnagreina það sem í
hana fer.
Húðflúr
Af hverju losar lík-
aminn sig ekki við
húðflúr?
HEILSA
Spurning: Af hverju stafar bak-
flæði? Ef ég tek inn t.d. lýs-
istöflur er bragðið í hálsinum á
mér allan daginn og það sama
gildir um allan sterkan mat. Er
þarna bakflæði á ferðinni? Hvað
veldur þessu og hvað er til úr-
bóta?
Svar: Nýlega var mikil umfjöllun
í fjölmiðlum um sjúkdóminn vél-
indabakflæði vegna þess að komið
hefur í ljós að hann er mun al-
gengari en áður var talið. Talið er
að allt að 60 þúsund manns séu
með vélindabakflæði hér á landi
en margir þeirra eru með sjúk-
dóminn á vægu stigi. Að fá bragð
í hálsinn af lýsi og sterkum mat
er nánast eðlilegt og þarf ekki að
vera merki um vélindabakflæði þó
að svo geti verið. Vélindað er pípa
sem flytur fæðuna úr munni og
niður í maga. Þar sem vélindað
opnast inn í magann er sterkur
hringvöðvi sem hindrar að maga-
innihald geti flætt upp í vélindað.
Vélindabakflæði verður þegar
þessi hringvöðvi starfar ekki eðli-
lega. Þetta getur gerst ef hring-
vöðvinn hefur skemmst eða slapp-
ast af einhverjum ástæðum eða ef
þindarslit er til staðar. Þindin er
vöðvi sem skilur brjósthol frá
kviðarholi og við þindarslit gúlp-
ast hluti af maganum upp í
brjósthol en við það aukast líkur
á bakflæði upp í vélinda. Algeng-
ustu óþægindi við vélindabakflæði
eru brjóstsviði og nábítur en
einnig geta verið til staðar upp-
þemba, hæsi, þörf fyrir að ræskja
sig, næturhósti og kyngingarörð-
ugleikar en öll þessi einkenni
versna eftir máltíðir, við að
beygja sig niður eða liggja útaf.
Sumar fæðutegundir örva sýru-
myndun í maga og má þar nefna
mikið kryddaðan og brasaðan
mat, en við það eykst hætta á vél-
indabakflæði. Sumt veikir hring-
vöðvann og má þar nefna súkku-
laði, piparmyntu, kaffi, áfengi og
þó sérstaklega nikótín (úr tóbaki
eða nikótínlyfjum). Offita, og þá
sérstaklega ístra, eykur hættu á
bakflæði vegna þrýstings á mag-
ann og sama gerist á meðgöngu
en þá er hringvöðvinn þar að auki
kraftminni en annars. Við lang-
varandi bakflæði í vélinda geta
orðið skemmdir á slímhúðinni
vegna þess að slímhúð vélindans
er ekki gerð til að þola súrt
magainnihald. Þetta getur leitt til
bólgu, sára og blæðinga og á
löngum tíma til örmyndunar sem
þrengir vélindað og veldur kyng-
ingarörðugleikum. Sjúkdóms-
greiningin byggir mest á sjúk-
dómssögu, röntgenmyndatöku og
speglun. Einnig eru stundum
gerðar mælingar á þrýstingi og
sýrustigi í vélindanu. Við röntg-
enmyndatöku er sjúklingurinn
látinn gleypa skuggaefni og síðan
eru teknar myndir. Speglun er
gerð í deyfingu með svipuðu tæki
og notað er við magaspeglun, og
þá er hægt að skoða útlit slím-
húðarinnar og taka sýni úr henni
ef ástæða er til. Þeir sem þjást af
vélindabakflæði geta sjálfir gert
ýmislegt til að bæta ástandið.
Forðast ber að neyta fæðu í 2-3
klukkustundir áður en gengið er
til náða, þeir sem reykja eiga að
hætta því án tafar, forðast ber
feitan mat, mjólk, súkkulaði, pip-
armyntu, koffein, sítrus ávexti,
tómatvörur, pipar og áfengi (sér-
staklega rauðvín eða hvítvín).
Borða á minna í einu og forðast
þröng föt. Gott er að ræða lyfja-
notkun við lækni vegna þess að
sum lyf auka hættu á bakflæði í
vélinda. Hægt er að hækka höfða-
lag rúms um 10-20 cm, ekki er
nóg að nota auka kodda vegna
þess að það hækkar bara höfuðið.
Þeir sem eru of feitir ættu að
megra sig, stundum er það allt
sem þarf. Oft hjálpar að nota lyf
sem minnka sýrumyndun í maga
eða sem flýta magatæmingu. Ef
þindarslit er til staðar getur verið
þörf fyrir að laga það með skurð-
aðgerð og einnig eru gerðar sér-
stakar aðgerðir til að draga úr
vélindabakflæði.
Hvað er vélindabakflæði?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Algengustu
óþægindi
við vélinda-
bakflæði eru brjóst-
sviði og nábítur
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækn-
inn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið
er á móti spurningum á virkum dögum milli
klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum
eða símbréfum merkt: Vikulok. Fax
5691222. Einnig geta lesendur sent fyrir-
spurnir sínar með tölvupósti á netfang
Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hot-
mail.com.
ann í Washington í Seattle fóru yfir
læknaskýrslur um 20 þúsund
kvenna sem gengist höfðu undir
keisaraskurð á tímabilinu 1987-1996
og eignast svo annað barn á sama
tímabili.
Líkurnar á að legið rifnaði hjá
þeim sem fóru beint í annan keisara
voru hverfandi eða í um tveimur
fæðingum af hverjum eitt þúsund.
Við að fæða eðlilega þrefölduðust
líkurnar á rifnu legi og fimmföld-
uðust svo ef fæðing var framkölluð
með öðrum lyfjum en prostagland-
íni. Langmest áhætta var svo fyrir
hendi þegar fæðing var framkölluð
með prostaglandíni og voru þá lík-
urnar á að legið rifnaði í fæðing-
unni fimmtánfaldar eða í um 24,5
fæðingum af hverjum eitt þúsund.
ÞÆR konur sem gengist hafa undir
keisaraskurð og fæða svo síðar eðli-
lega en með gangsetningu eru í
áhættuhópi hvað varðar alvarlegar
aukaverkanir að því er fram kemur
á fréttavef Reuters. Áhættan felst í
auknum líkum á að legið rifni um
örið sem á því er eftir keisara-
skurðinn en rifið leg getur stofnað
lífi móður og barns í mikla hættu.
Tvær nýbirtar rannsóknir styðja
þessar niðurstöður, önnur þeirra
var unnin af vísindamönnum við
Háskólann í Washington í Seattle
og birtist í The New England
Journal of Medicine nú í júlí en hin
birtist í maíhefti the American
Journal of Obstetrics and Gyneco-
logy. Dr. Mona Lydon-Rochelle og
samstarfsmenn hennar við Háskól-
Allar þessar konur höfðu áður
gengist undir keisaraskurð. Að mati
dr. Michael F. Green við
Massachusettes General Hospital
sjúkrahúsið í Boston, sem fylgir
rannsókninni úr hlaði í júlíhefti The
New England Journal of Medicine,
er ástæða fyrir lækna að gera kon-
um, sem vilja reyna eðlilega fæð-
ingu að undangengnum keisara-
skurði, grein fyrir þeirri áhættu
sem því getur fylgt.
Eðlileg fæðing eftir
keisaraskurð hættuleg?
TENGLAR
..............................................
American Journal of Obstetrics and
Gynecology.
http://www.mosby.com/ajog/
The New England Journal of Medic-
ine.
http://www.nejm.org/
DREYMI börn illa, séu þau óró-
leg í svefni eða jafnvel svefn-
genglar væri ástæða til að fjar-
lægja sjónvarp, tölvu eða hvað
annað það úr barnaherberginu
sem heldur vöku fyrir barninu á
kvöldin. Þetta segir dr. Brett R.
Kuhn hjá Svefnrannsóknarstöð
barna við háskólann í Nebraska
en hann hefur meðhöndlað með
góðum árangri 10 börn á aldr-
inum 2 til 9 ára sem þjáðust af
ástandi sem kallast parasomnias.
Því fylgja miklar og tíðar mar-
traðir og svefngöngur. Meðferð
dr. Kuhn sem skilaði góðum ár-
angri fólst í að heildarsvefntími
barnanna var lengdur, ýmist
með stuttum blundi yfir daginn
eða lengri nætursvefni. Samhliða
því þurftu foreldrar barnanna að
endurskipuleggja háttatíma
barnanna og koma honum í fast-
ar skorður, börnunum var kennt
að sofna sjálfum í sínu eigin
rúmi en ekki í rúmi foreldranna.
Niðurstaðan var sú að meðal-
svefntími barnanna lengdist um
1 klukkustund og 25 mínútur að
meðaltali og þeim leið miklu bet-
ur. Áður en dr. Kuhl hóf afskipti
af börnunum voru 4 þeirra með-
höndluð með lyfjum vegna
svefnóróleikans en þeirri með-
ferð tókst að hætta í öllum til-
vikum.
Sjónvörp úr svefn-
herbergjum barna
Morgunblaðið/Kristinn
Sjónvörp í svefnherbergjum hjá börnum geta stytt nætursvefninn.
Chicago. Reuters.MARGIR velta fyrir sér af
hverju húðflúr hverfur ekki af
húðinni við eðlilega endurnýjun
hennar eða fyrir tilstuðlan
hvítra blóðkorna sem sjá um að
hreinsa burtu aðskotahluti úr
líkamanum. Ástæðan er sú að
einungis frumur í efsta lagi húð-
arinnar, sem kallast epidermis,
eru í stöðugri endurnýjun.
Dýpri lög húðarinnar, sem kall-
ast dermis, endurnýja sig ekki á
sama hátt en við húðflúrun er
litarefni komið fyrir í því lagi
húðarinnar.
Hvað varðar störf hvítu blóð-
kornanna eru litakornin í húð-
flúrinu of stór til þess að hvítu
blóðkornin nái að gleypa þau og
flytja burtu. Þegar leysigeisli er
notaður til að fjarlægja húðflúr
mylur hann litakornin í salla
sem er nógu fíngerður fyrir
hvítu blóðkornin sem þá taka til
sinna ráða og losa líkamann við
húðflúrið.
Húðflúr
að eilífu
Reuters
Húðflúr fylgir eigandanum alla leið í gröfina.
22 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ