Morgunblaðið - 14.07.2001, Blaðsíða 37
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 37
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Bakarí
Óskum eftir aðstoðarmanni eða nema nú þegar.
Upplýsingar gefur Ragnar á staðnum eða í
síma 698 0626.
Bakarinn á hjólinu,
Álfheimum 6.
Biskup Íslands
auglýsir laust til afleysingar embætti
sóknarprests í Ólafsfjarðarprestakalli,
Eyjafjarðarprófastsdæmi, frá 1. október
2001 til 30. september 2004.
● Kirkjumálaráðherra setur í embættið.
● Um launakjör fer skv. ákvörðun kjaranefndar,
en að öðru leyti gilda um starfið lög um
stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar
nr. 78/1997 og lög um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
● Óskað er eftir því að umsækjendur geri í um-
sókn skriflega grein fyrir menntun sinni,
starfsferli og öðru því sem þeir óska eftir að
taka fram.
● Allar nánari upplýsingar um embættið,
starfskjör, erindisbréf, helstu lög og reglur
sem um starfið gilda, eru veittar á Biskups-
stofu, s. 535 1500, grænt nr. 800 6550, fax
551 3284.
● Umsóknarfrestur rennur út 15. ágúst 2001.
● Umsóknir sendist Biskupi Íslands, Biskups-
stofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
Með vísan til 13. og 15. gr. laga um jafna stöðu
og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000 eru kon-
ur hvattar til að sækja um ofangreint embætti.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FÉLAGSSTARF
Gróðursetning
Hin árlega gróðursetning Sjálfstæðisfélaganna
í Kópavogi fer fram í dag kl. 16.00. Gróðursett
verður í lundi sjálfstæðismanna v/Hvannhólma.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
FYRIRTÆKI
Framleiðslufyrirtæki
Til sölu lítið framleiðslufyrirtæki með mikla
möguleika. Verð 14 millj.
Tilboð sendist auglýsingadeild Morgunblaðs-
ins fyrir 27. júlí merkt: „Fyrirtæki — 11395“.
SUMAR- OG ORLOFSHÚS
Sumarbústaðalóðir
í Biskupstungum
Á Reykjavöllum er nýtt sumarbústaðahverfi.
Þar er ævintýralegt útsýni yfir Ármót og til jökla
og Heklu. Lóðirnar eru leigulóðir og eru ca 1/2
ha að stærð. Innifalið í stofngjaldi er vegur og
lagnir fyrir heitt og kalt vatn að lóðarmörkum
og heildargirðing umhverfis hverfið. Innifalið
er tengigjald fyrir heitt vatn.
Eigum einnig örfáar eignarlóðir eftir.
Boðið er upp á aðstöðu fyrir báta við Tungufljót.
Greiðslukjör. Verið velkomin að skoða.
Uppýsingar í símum 897 3838 og 861 8689.
Tilboðsverð á glæsilegu húsi
í Skútahrauni 9, Hafnarfirði
Opið til sýnis í dag og sunnud. kl. 13-16
Til sölu fullb. 60 fm heilsárs-orlofshús, m. úti-
geymslu, verönd, 3 svefnherb., eldhúsinnr., fata-
sk., rúmst., hreinlætist., raflögn, miðstlögn o.fl.
Hamraverk sumarhús ehf., sími 894 3755.
36. þing SUS
á Seltjarnarnesi
14.—16. september 2001
Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna hef-
ur ákveðið að halda næsta þing sambandsins
á Seltjarnarnesi 14.—16. september nk. Baldur,
f.u.s. verður gestgjafi þingsins.
Dagskrá, samkvæmt lögum og venju, og tilhög-
un málefnastarfs verða auglýst síðar á SUS.is .
Munið að skrá netfang á netfangalista SUS,
sus@xd.is .
Samband ungra sjálfsstæðismanna. SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
15. júlí. Skarðsmýrarfjall,
5 klst. ganga, hæðaraukning um
300 m. Verð 1400 fyrir félags-
menn, 1700 fyrir aðra. Fararstjóri
Björn Finnsson. Brottför frá BSÍ
(austan) kl. 10.30 með viðkomu í
Mörkinni 6.
Sunnudagsferð 15. júlí kl. 8.
Langavatnsdalur — Hreða-
vatn. 5—6 t. falleg gönguleið
um hluta Hítarvatnsvegar. Verð
2.700 kr. f. félaga en 3.000 kr. f.
aðra. Brottför frá BSÍ. Miðar í far-
miðasölu.
Helgarferðir 20.—22. júlí.
1. Jökuldalir — Strútslaug,
gönguferð.
2. Laugar — Fjallabaksleiðir,
ökuferð Básar og Fimm-
vörðuháls um hverja helgi.
Kynnið ykkur spennandi
helgar- og sumarleyfisferðir,
framundan m.a. Vesturöræfi
21.—25. júlí.
Sjá heimasíðu: utivist.is .
upplýsingar er að finna á mbl.is/upplýsingar
ATVINNU- OG RAÐAUGLÝSINGAR
ATVINNA
mbl.is
ENDURHÆFINGARSAMBÝLI
Byrgisins í Rockville hefur verið í
uppbygginu og mótun síðan í mars
1999. Meðferðarpláss í Rockville eru
nú um 50 talsins og þremur vinnu-
stöðum hefur verið komið á fót, járn-
smíðaverkstæði, trésmíðaverkstæði
og bílaverkstæði.
Þar fer fram starfsþjálfun og end-
urhæfingarvinna og er það mikil-
vægur hluti þeirrar meðferðar sem
Byrgið býður upp á.
Íþróttahús
Umfangsmiklar breytingar og
lagfæringar hafa að undanförnu
staðið yfir á íþróttahúsi. Í húsinu
hefur verið innréttaður 150 fm salur
með mjög góðri lyftinga- og æfinga-
aðstöðu og er salurinn fullbúinn ein-
hverjum bestu þjálfunar- og líkams-
ræktartækjum sem völ eru á. Í
áætlun þessa árs fyrir íþróttahúsið
er svo gert ráð fyrir til viðbótar;
handboltasal og körfuboltasal, einn-
ig ljósabekkjum og gufubaði.
Íþróttahúsið verður einnig vinnu-
staður skjólstæðinganna, þeir koma
til með að sjá þar um ýmis tilfallandi
störf, t.d. ræstingar, afgreiðslu o.fl.
Umsjónarmaður hússins og þjálfari í
æfingasal verður Ragnar Hauksson.
KFM-útvarp í Rockville
KFM, Kristilega fjölmiðlasmiðj-
an, hefur verið starfandi frá því í júní
árið 2000. Útvarpsstöðin er í endur-
hæfingarsambýli Byrgisins í Rock-
ville og sendir út kristilegt útvarps-
efni allan sólarhringinn. Stöðin
sendir út á fm 107,0 á Reykjavíkur-
svæðinu og fm 104,9 á Suðurnesjum.
Rekstur stöðvarinnar er algjör-
lega aðskilinn frá rekstri Byrgisins
en byrjað er að nýta stöðina í sam-
vinnu við Byrgið sem endurhæfing-
arvinnustað skjólstæðinga í með-
ferð. Útvarpsstjóri KFM er
Guðmundur Jónsson og dagskrár-
stjóri er Sverrir Júlíusson. Um 10
manns starfa nú við stöðina og rekst-
ur og umfang vex stöðugt.
Fimmtíu meðferðarpláss
í Byrginu í Rockville
MARGAR trillur róa frá Ólafsvík og er oft annríki við löndunarkranana.
Hér sjást nokkrar þeirra í lok góðviðrisdags. Afli hefur verið góður í vor,
en gæftir stopular.
Morgunblaðið/Helgi
Margar trillur róa frá Ólafsvík
Ólafsvík. Morgunblaðið.
LANDSSAMTÖK hjartasjúklinga
færðu nýlega HL-stöðinni í Reykja-
vík fjögur þrekhjól.
Var þar með bætt úr brýnni þörf
því þátttaka hjarta- og lungnasjúk-
linga í endurhæfingu á HL-stöðinni
fer stöðugt vaxandi.
Gáfu fjög-
ur þrekhjól