Morgunblaðið - 14.07.2001, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 43
DAGBÓK
Gullsmiðir
Ég vil koma á framfæri þökkum til hins mikla
fjölda vina minna og ættingja, sem glöddu mig
með kveðjum, gjöfum og heimsóknum á fimm-
tugsafmæli mínu 23. júní sl.
Allir þeir, sem lögðu fram krafta sína til að
gera hátíðina í Laufási á Jónsmessunni
ógleymanlega, fá innilegar þakkir.
Sérstakar þakkir fá sóknarbörnin mín í Lauf-
ásprestakalli fyrir þann vinarhug sem þau
sýndu með ótrúlegri samstöðu og einstökum
gjöfum.
Guð blessi ykkur öll.
Pétur Þórarinsson
í Laufási.
Hugheilar þakkir færi ég öllum þeim, er sýndu
mér vinarþel á 100 ára afmæli mínu 6. júlí sl.,
með heimsóknum, gjöfum og heillaóskum.
Verið öll guði falin.
Kristín Eiríksína Ólafsdóttir,
Aðalstræti 32, Akureyri.
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert ákveðinn en líka
sanngjarn og nýtur því virð-
ingar og trausts samstarfs-
manna þinna.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú gleðst yfir því að öldurn-
ar hefur nú lægt og allir eru
aftur á eitt sáttir. Þú mátt
draga þann lærdóm að tala
hreint út um hlutina.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér reynist erfitt að hafa
áhrif á aðra. Áður en þú
heldur lengra skaltu leita
ástæðunnar og gleymdu ekki
að líta líka í eigin barm.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert upp á þitt besta og
hefur jákvæð áhrif á um-
hverfi þitt með léttleika þín-
um. Njóttu þess en varastu
að láta oflæti ná tökum á þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þegar þú hefur tekið ákvörð-
un verður þér helst ekki
haggað. Það er ágætt að
standa fast á sínu en stund-
um þarf líka að taka tillit til
annarra.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú leggur þitt af mörkum til
að gera aðra hamingjusama
og kímnigáfa þín fellur í góð-
an jarðveg. Leyfðu henni því
að njóta sín til fulls.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er betra að fara sér
hægar og gera hlutina vel
heldur en að kasta til hönd-
unum og fá skammir í hatt-
inn. Þolinmæðin þrautir
vinnur allar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Rómantíkin ræður ríkjum
þessa dagana og þú ert í sjö-
unda himni því allt virðist
ætla að ganga upp hjá þér.
Leyfðu þér bara að njóta
þess.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gættu þess að dæma mann-
inn ekki af útlitinu einu sam-
an og kannaðu vandlega
hvað inni fyrir býr því þá
gæti margt átt eftir að koma
þér á óvart.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Láttu allar áhyggjur lönd og
leið um stund og lyftu þér
upp og njóttu augnabliksins.
Leggðu áherslu á að um-
gangast aðeins jákvætt fólk.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú færð tækifæri til að láta
ljós þitt skína og skalt ekki
óttast því þegar upp er stað-
ið mun útkoman koma sjálf-
um þér mest á óvart.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Breytingar liggja í loftinu
hvort sem þér líkar það bet-
ur eða verr svo það fer best á
því að fylgja flæðinu. Þér
verður gert spennandi til-
boð.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Refsaðu þér ekki fyrir gömul
mistök því það eina sem þú
getur gert er að biðjast af-
sökunar og sjá til þess að
þau gerist ekki aftur.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
60 ÁRA afmæli. Ámorgun, 15. júlí,
verður sextugur Elías Jó-
hannesson, húsasmíða-
meistari og útfararstjóri,
Hjarðarholti 8, Akranesi.
Af því tilefni taka Elías og
eiginkona hans, Dröfn Ein-
arsdóttir, á móti ættingjum
og vinum kl. 15 í sal Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á
Akranesi.
80 ÁRA afmæli. Í daglaugardaginn 14. júlí
verður áttræður Rögnvald-
ur Rögnvaldsson, Víghóla-
stíg 17, Kópavogi, fyrrv.
vörubílstjóri á Siglufirði og
strætisvagnastjóri hjá
Strætisvögnum Kópavogs.
Eiginkona hans er Guðrún
Albertsdóttir.
EFTIRFARANDI spil úr
leik Dana og Spánverja á
EM mun vafalítið ganga
aftur í mörgum bridsbók-
um framtíðar.
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ 106542
♥ D72
♦ G9632
♣ --
Vestur Austur
♠ 873 ♠ --
♥ Á98 ♥ KG1063
♦ 10 ♦ ÁKD875
♣Á108654 ♣32
Suður
♠ ÁKDG9
♥ 54
♦ 4
♣KDG97
Í opna salnum vakti
Spánverjinn Goded á
rauðri tvílita sögn í aust-
ur og síðan stigmögnuð-
ust sagnir upp í sex spaða
doblaða, sem Matthias
Bruun spilaði í suður:
Vestur Norður Austur Suður
Lantaron Blakset Goded Bruun
Pass Pass 2 spaðar 3 spaðar
4 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu 5 spaðar
Pass Pass 6 hjörtu Pass
Pass 6 spaðar Dobl Allir pass
* Minnst 5-5 í rauðu lit-
unum.
Sex spaðar fara tvo nið-
ur með útspili í hjarta eða
tígli, en Lantaron valdi að
leggja niður laufásinn.
Það reyndist Spánverjum
dýrkeypt. Bruun tromp-
aði, fór heim á spaðaás og
henti D72 í hjarta niður í
KDG í laufi. Trompaði
svo hjarta og spilaði tíg-
ulgosa úr borði! Með því
vildi hann tryggja að
vestur kæmist ekki inn til
að trompa út. Legan var
á bandi sagnhafa – austur
átti þrjá efstu í tígli og
varð að taka slaginn. Þar
með gat Bruun víxl-
trompað afganginn og
fékk því níu slagi á tromp
og þrjá á lauf – samtals
tólf og 1210 fyrir spilið.
Þetta er út af fyrir sig
nóg til að gera spilið eft-
irminnilegt, en á morgun
sjáum við hvernig danska
parið á hinu borðinu fékk
að vinna sex hjörtu
dobluð í AV!
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
LJÓÐABROT
HLÖÐSKVIÐA
Hlöðr var þar borinn
í Húnalandi
saxi ok með sverði,
síðri brynju,
hjalmi hringreifðum,
hvössum mæki,
mari vel tömum
á mörk inni helgu.
Hlöðr reið austan,
Heiðreks arfi;
kom hann að garði,
þar er Gotar byggja,
á Árheima,
arfs at kveðja;
þar drakk Angantýr
erfi Heiðreks.
--
STAÐAN kom upp á EM
einstaklinga er fór fram í
Ohrid í Makedóníu. Einn af
efstu mönnum mótsins,
Loek Van Wely (2670), hafði
svart í stöðunni gegn Art-
ashes Minasjan (2554).
45...Rgxe4! 46.Bxe4 Rxe4
Grundvallarhugmynd svarts
byggist á því að eftir
47.Hxe4 Df2 getur
hvítur ekki varist
máti með góðu
máti. Hann reyndi
47.Rab1 en gafst
upp um leið þar
sem fátt væri um
fína drætti eftir
47…Rf2+ 48. Kg1
Rg4. Skákin tefld-
ist í heild sinni:
1.e4 c5 2.Rc3 e6
3.g3 Rc6 4.Bg2 g6
5.d3 Bg7 6.Be3 d6
7.Dd2 Rd4 8.Rd1
e5 9.c3 Rc6 10.Re2
b6 11.O-O Rge7
12.Bh6 O-O 13.Bxg7 Kxg7
14.Re3 f6 15.f4 b5 16.d4 cxd4
17.cxd4 Db6 18.Had1 a5
19.Kh1 Ha7 20.d5 Rd8
21.fxe5 dxe5 22.Hc1 Rf7
23.a4 bxa4 24.Rc3 Bd7
25.Rc4 Dd4 26.De2 Hc8
27.Ra3 Hb7 28.Hfd1 Db4
29.Hd2 Rd6 30.Df3 Db3
31.Hf2 Rg8 32.Bf1 Hbc7
33.Hfc2 Hc5 34.Bd3 h5
35.De2 Rh6 36.Dd2 Rhf7
37.Hf1 Bh3 38.He1 Rg5
39.He3 H8c7 40.De1 Db4
41.Dc1 Dd4 42.Re2 Hxc2
43.Rxc2 Db6 44.Rc3 a3
45.Rxa3 o.s.frv.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
FRÉTTIR
Þessir duglegu krakkar söfnuðu 20.536 kr. í sjóð til
styrktar rannsóknum á heilahimnubólgu. Þau heita Sól-
veig Björk Ásmundardóttir, Hafdís Gunnarsdóttir,
Hildur Eva Ásmundardóttir og Haraldur Gunnarsson.
Hlutavelta
Danskur karlmaður, sem er
búsettur í Svíþjóð, vill
skiptast á símakortum.
Otto Madsen
Toppv. 22
S - 14754 Tumba
Sverige
Stærðfræðingur sem býr í
Vilnius í Litháen óskar eftir
íslenskum pennavinum.
Hann safnar frímerkjum,
nýjum og notuðum. Þýska,
franska, rússneska auk
móðurmáls.
Aleksandras Dreimanas
Zirmunu 30 - 27
2051 Vilnius
Lithuania.
Danskur frímerkjasafnari
leitar að pennavinum á Ís-
landi sem vilja skiptast á frí-
merkjum.
Jørgen Villumsen
Kalundborgvej 247
DK - 4300 Holbæk
Danmark
Pennavinir
ÞORLEIFUR Ágústs-
son varði doktorsverk-
efni sitt við líffræði-
deild Gautaborgar-
háskóla 27. apríl sl.
Titill doktorsritgerð-
arinnar er „Growth
hormone endocrino-
logy of Salmonids:
Regulatory mechan-
isms and hormone
dynamics“. Andmæl-
andi Þorleifs var pró-
fessor Stephen
McCorm ick, Banda-
ríkjunum, heimsþekkt-
ur vísindamaður á sviði
lífeðlisfræði fiska.
Þorleifur Ágústsson
fæddist 28. júní 1966 á Akureyri,
sonur hjónanna Ágústs Þorleifsson-
ar, fyrrverandi héraðsdýralæknis á
Akureyri, og Auðar Ólafsdóttur,
sjúkraliða við Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri. Sambýliskona Þorleifs
er Heiða Björg Hilmisdóttir M.Sc.
næringarhagfræðingur og forstöðu-
maður Eldhúss Landspítala – há-
skólasjúkrahúss. Sonur þeirra er
Hilmir Jökull Þorleifsson, fæddur 8.
júní 1998. Þorleifur Ágústsson lauk
stúdentsprófi frá Verkmenntaskól-
anum á Akureyri 1987 og B.Sc. í líf-
fræði frá Háskóla Íslands 1993.
Þess má geta að Þorleifur mun vera
fyrsti nemandi Verkmenntaskólans
á Akureyri sem lýkur doktorsprófi.
Doktorsverkefni Þorleifs fjallar
um lífeðlisfræðilega stjórn vaxtar-
hormóns, allt frá framleiðslu að líf-
eðlisfræðilegum áhrifum þess í vefj-
um. Við rannsóknir var notast við
laxfiska (Atlantshafslax og regn-
bogasilung) sem hafa flókinn lífs-
feril og geta lagað sig að lífi jafnt í
ferskvatni og sjó. Þor-
leifur hefur átt sam-
starf við fræðimenn
beggja vegna Atlants-
hafs, ásamt því að hafa
dvalið í Japan við
rannsóknir. Leiðbein-
andi Þorleifs við dokt-
orsverkefnið var pró-
fessor Björn Þrándur
Björnsson.
Rannsóknir Þorleifs
hafa leitt í ljós betri
skilning á flóknu ferli í
stjórnun framleiðslu
og losun vaxtarhorm-
óns í heiladingli og
mikilvægum þætti
þess í seltuþoli lax-
fiska og hafa niðurstöður rannsókn-
anna verið birtar í virtum vísinda-
tímaritum á sviði hormóna- og
lífeðlisfræði, segir í fréttatilkynn-
ingu. Þorleifur starfar hjá Íslenskri
erfðagreiningu við rannsóknir í
lyfjaerfðafræði.
Doktorsvörn
í lífeðlisfræði fiska
Þorleifur
Ágústsson
HÖRÐUR H. Bjarnason,
sendiherra, afhenti þann 9. júlí
Walter Schwimmer, aðalfram-
kvæmdastjóra Evrópuráðsins,
trúnaðarbréf sitt sem fasta-
fulltrúi Íslands hjá Evrópu-
ráðinu.
Afhenti
trúnaðar-
bréf