Morgunblaðið - 14.07.2001, Síða 46

Morgunblaðið - 14.07.2001, Síða 46
FÓLK Í FRÉTTUM 46 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ óskar eftir strákum og „strákslegum“ stelpum á aldrinum 12-15 ára til að leika í tónlistarmynd- bandi sem kvikmyndað verður í lok mánaðarins. Áhugasamir eru vinsamlega beðnir um að mæta sunnudaginn 15. júlí milli kl. 14 og 17 á Laugaveg 26 (sama hús og Skífan), Grettisgötumegin hjá Labrador kvikmyndum. i l l l i il l i í li i i í l i i i l i i j lí illi l ( í ) i i j i SUMARIÐ er tíminn þegar íslenskar popphljómsveitir keppast um að vera sem sýnilegastar í sjóðheitum sólar- geislunum. Framlög keppenda þetta árið er að finna á slagarasafnplötunni Svona er sumarið 2001 sem nú er komin í búðir. Þar kasta allar helstu popphljómsveitir landins út önglum sínum og útvarpshlustendur geta ekki annað en raulað með inn í skammdegið. Á plötunni er að finna ný lög með Svölu, Sálinni hans Jóns míns, Landi & sonum, Bubba ásamt Stríði & friði, Írafári, Í svörtum fötum, Einari Ágústi, Á móti sól, Greifunum, Butt- ercup, Sóldögg, Fabúlu, Herberti Guðmundssyni, SSSól, Útrás, Simma & Jóa, Spútnik og Súrefni. Týpísk stelpa „Ég hlakka rosalega til að nýja lag- ið fari í spilun,“ segir Birgitta Hauk- dal, söngkona Írafárs, og á þar við lagið „Eldur í mér“ en sveitin á einnig á plötunni lagið „Fingur“. „Mér finnst það alveg æðislegt. Það er svo- lítið persónulegt og það er svo gaman að syngja það. Ég er líka kannski svo týpísk stelpa; þetta er rólegt lag og svona, við föllum oft fyrir þeim. Það gæti því kannski verið það. Textinn er í bland saminn til bróður míns, sem er dáinn, og til kærastans míns. Þannig að það hefur mikla merkingu fyrir mig að syngja þetta lag og heyra.“ Poppunnendur ættu að vera farnir að kannast við lagið „Fingur“ sem hefur hljómað ótt og títt síðustu mán- uði á þeim útvarpsstöðvum sem sinna meginstraumnum. En af hverju skyldu fingur vera Birgittu svona mikið hugðarefni? „Ég setti mig í spor þess sem er blindur. Ég vildi fá að snerta og finna í staðinn fyrir að sjá. Ég er sem sagt ekki að syngja „Ó, hvað þú ert sætur, ó, ég elska þig“ og allt það. Þetta er í raun og veru ekki ástartexti.“ Írafár hefur gert plötusamning við Skífuna og ætlar að gefa út plötu í maí á næsta ári. Háskólarokk „Við erum mjög ánægðir með lag- ið,“ segir Hreimur Örn Heimisson um lagið „Summer“, framlag Lands & sona til safnplötunnar. „Þetta er líka fyrsta lagið þar sem einhver utan hljómsveitarinnar kemur nálægt lagasmíðunum.“ Samstarfsmaður Lands & sona kallar sig Jive Jones og kemur til með að vinna með sveitinni að væntanlegri plötu sem kemur út á Bandaríkja- markaði á næsta ári en sveitin skrif- aði nýlega undir plötusamning við bandaríska útgáfufyrirtækið London Sire sem er í eigu Time Warner AOL útgáfurisans. „Þetta er svona stóra lagið á plöt- unni. Í því erum við komnir meira út í háskólarokk eins og Blink 182 eru að gera. Þetta lag er það sem okkur þyk- ir vænst um og það sem við fengum að taka mestan þátt í sjálfir. Við sett- um það í spilun af því að það er meira í áttina að því sem við höfum verið að gera í gegnum tíðina. Hefðum við sett eitthvert annað lag af plötunni í spil- un hefði fólk spurt sig hver grefillinn væri í gangi því við erum meira þekktir sem poppband. Við vildum helst ekki koma aðdáendum okkar í opna skjöldu heldur koma þeim hægt og rólega á bragðið. Það er nægilega stórt stökk að vera að syngja á ensku.“ Hreimur segir textann fjalla um þá hamingjutilfinningu sem fyllir nem- endur við skólaslit. Sönglínan „Do you remember getting high?“ á lík- lega eftir að lyfta nokkrum auga- brúnum, sérstaklega í ljósi þess hve oft meðlimir sveitarinnar hafa talað gegn fíkniefnum. „Maður getur notað þetta orð um það eitt að skemmta sér,“ útskýrir Hreimur. „Hann Jive semur með mér textann og ef hann hefði ætlað að fara að semja um dópneyslu eða eitthvað annað þá hefðum við aldrei gert þetta. Við erum hreinir og þekktir fyrir það og ætlum ekkert að fara að hætta því.“ Land & synir ætla að láta mikið á sér bera í sumar, verða m.a. á þjóðhá- tíð í Eyjum þetta árið. En í haust flyst svo sveitin til Bandaríkjanna. Eru þeir þá farnir fyrir fullt og allt? „Nei, ég segi það nú ekki. Það er ekki nóg að fá plötusamning, maður verður nú líka að eiga lög sem eru vinsæl. Það getur vel verið að við komum til baka með skottið á milli lappanna, maður veit það ekki.“ „Nett klikkun“ „Það er nett klikkun að ætla að fara að gefa út plötu,“ upplýsir Einar Ágúst sem á lagið „Fiður “ á plötunni. „Maður er búinn að vera í hljómsveit sem hefur þeyst um allt landið og leggja gríðarlega mikla vinnu í það að vera í popphljómsveit. Að stökkva úr því umhverfi og ætla svo að fara að gera einhverjar „gloríur“ sjálfur tek- ur á taugarnar. Nú er maður sjálfur að standa undir þessu en ekki fimm manns.“ Tónlist Einars Ágústs er þó nokk- uð ólík popptónum Skítamórals, sál- aráhrifin meiri og innblásturinn er greinilega sóttur í annan brunn. „Þetta er sú tónlist sem ég „fíla“ best sjálfur. Fönktónlist með ein- hverju smá hiphop innskoti. Mig langar mikið að finna í mér blámann- inn. Mér finnst rosalega heillandi það sem listamenn eins og Macy Gray og Lenny Kravitz eru að gera. Svoleiðis tónlist hentar minni rödd best. Ég er rosalega strekktur á taugum yfir því hvort ég nái sömu spilagleðinni á plötunni og er í þessu lagi. Það er erf- itt hérna á Íslandi, hér er enginn svartur upptökustjóri sem maður getur hringt í til að fá aðstoð.“ Það er nokkuð ljóst þegar hlustað er á textann að Einar Ágúst er ekki að setja sig í spor starfsmanns Dún- og fiðurhreinsunarinnar þótt titillinn gefi það kannski í skyn. „Textinn fjallar um hvernig við höfum öll okkar sannfæringu en er- um samt svo fljót að fara út af spor- inu. Falla fyrir freistingum og svona. Mín lög eru frekar ástaróður til al- mættisins en til einhverra kerlinga úti í bæ.“ Lagið er samið af Kristjáni Grét- arssyni gítarleikara, en hann kemur til með að manna undirleikssveit Ein- ars. Þeir félagar auglýsa þó hér með eftir trommu- og bassaleikara til þess að ganga í hljómsveitina. Afsakið hlé? „Þetta fyrra lag sem er farið að hljóma á öldum ljósvakans, „Nú finn ég það aftur“, er nú kannski bara í Greifastíl, svona „syngdu með“-lag,“ segir Kristján Viðar Haraldsson, söngvari Greifanna, en sveitin á einn- ig lagið „Kominn heim“ á plötunni. Sá orðrómur hefur verið á kreiki undanfarnar vikur að Greifarnir séu við það að hætta? „Við spilum út september, þá ætl- um við að taka okkur hlé. Hversu lengi veit enginn, það verða örugg- lega nokkur ár, kannski um alla eilífð. Þetta er orðið ágætt í bili en ég trúi því að það eigi eftir að koma fleiri lög frá okkur. Hvort sem það verður und- ir Greifanafninu eða ekki. Ég á a.m.k. einhver lög á lager.“ Þrátt fyrir yfirvofandi samstarfs- slit virðist hljómsveitin enn vera að prófa sig áfram í tónlistinni. „Seinna lagið er svolítið öðruvísi en við höfum verið að gefa út áður. Ein- hver orðaði það þannig að þetta væri popplag í þungarokksútsetningu. Það er nokkuð harðara en áður. Þetta verður aldrei spilað á Bylgjunni. Við vissum það alveg frá byrjun. En það er allt í lagi, við verðum líka að fá að gera tilraunir.“ Stefna á frekari útgáfu Í nýlegri léttri könnun sem fram fór í Fólkinu á mbl.is voru notendur spurðir hvaða sveitaballahljómsveit yrði sú vinsælasta í ár. Það sem kom mest á óvart í niðurstöðunum var hve hátt hlutfall atkvæða hljómsveitin Í svörtum fötum fékk, en hún lenti í öðru sæti af þeim 13 sem hægt var að kjósa um. „Þetta kom okkur skemmtilega á óvart,“ segir Jón Jósep Snæbjörns- son, söngvari sveitarinnar. „Við erum reglulega ánægðir með þetta. Við höfum ekki farið mikið út á land, er- um ekkert sérstaklega iðnir við það, en höfum verið iðnir við að spila í bænum.“ Hljómsveitin á lagið „Nakinn“ á safnplötunni. Jón segir að textinn fjalli ekki um neina sérstaka persónu heldur sé saminn fyrir þá sem koma að sjá og heyra sveitina leika á tón- leikum. „Við vorum jafn lengi með lagið og alla síðustu plötu, eða tólf daga, en núna kostaði þetta fimm sinnum meira. Við stefnum á frekari útgáfu á árinu en ég býst fastlega við því að það verði fremur í formi stakra laga en breiðskífu.“ Já, svona er sumarið 2001. Hvernig verður sum- arið? Birgir Örn Stein- arsson komst að því. Safnplatan Svona er sumarið 2001 er komin út biggi@mbl.is Nýaldarpopp Hljómsveitin Í svörtum fötum.  Írafár. Hreimur, söngvari Lands & sona.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.