Morgunblaðið - 22.07.2001, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2001 9
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt helgarævintýri
til Mílanó, þann 10. ágúst. Nú getur þú kynnst
þessari einstöku borg sem er miðstöð tísku og hönnunar á Ítalíu, og notið
þess að skoða mörg frægustu listasöfn Ítala, sjá síðustu kvöldmáltíð Leonar-
dos með eigin augum, Il Duomo dómkirkjuna í miðbænum, þriðju stærstu
dómkirkju heims, versla í Galeria Vitorio Emanuelle eða kanna veitingastaði
og næturlífið í Corso Como. Gott 3ja stjörnu hótel í hjarta borgarinnar, Hotel
Soperga, öll herbergi með sjónvarpi, síma, baði og loftkælingu.
Verð kr. 36.433
M.v. hjón með barn, flug, hótel,
skattar.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Beint flug - 5 nætur
Aðeins 10 herbergi
Verð kr. 39.995
M.v. 2 í herbergi með
morgunmat, flug, skattar.
5 daga helgarferð til
Mílanó
10. ágúst
frá kr. 36.433
NÍU nemendum sem lokið hafa einu
ári á hrossabraut við bændaskólann
á Hólum í Hjaltadal, Hólaskóla, og
ætluðu að halda áfram námi, hefur
verið tilkynnt um að þeir fái ekki
skólavist á komandi vetri.
Nemendurnir útskrifuðust sem
hestafræðingar og leiðbeinendur í
vor.
Sækja þarf um skólavist ár hvert
til að halda áfram námi en boðið er
upp á þriggja ára nám og þá útskrif-
ast nemendur sem þjálfarar og reið-
kennarar. Þegar haft var samband
við Valgeir Bjarnason, aðstoðar-
skólameistara í Hólaskóla, sagði
hann að allir nýnemar árið 2000
hefðu í vor verið látnir vita að þeir
gætu jafnvel ekki haldið áfram námi.
Inntur eftir ástæðu þess segir
hann hana fyrst og fremst vera að-
stöðuleysi. Aðspurður af hverju ekki
væri fækkað nýnemum í stað þess að
neita þessum níu um áframhaldandi
nám segir hann að þetta sé fyrst og
fremst spurning um aðstöðuleysi
fyrir verklega kennslu. Námið á öðru
ári sé mestmegnis verklegt og þess
vegna hafi þurft að bregðast svona
við. Stefnt er að því að bæta aðstöð-
una eins fljótt og mögulegt er, sam-
kvæmt upplýsingum Valgeirs.
„Við erum í samningaviðræðum
við okkar ráðuneyti, ráðuneyti land-
búnaðarmála, um þetta,“ segir hann
og bætir við að það sem hafi verið og
sé vandamál þeirra sé að þeir hafi
treyst á viðbótarfjárveitingu frá
fjárveitingavaldinu til að klára reið-
skemmu eftir að hafa fengið fjárveit-
ingu árið 2000 til að bæta aðstöðu
þar. Þeir hafi því tekið inn þessa
nemendur, haustið 2000, í trausti
þess að viðbótarfjárveiting fengist.
„Málið er fyrst og fremst það að
hætt var við umrædda fjárveitingu,
fjárveitingavaldið hafði strikað yfir
hana. Það eiginlega hengdi okkur.“
Nemendunum ekki
hafnað fyrir lífstíð
„Okkur þykir þetta ákaflega leitt.
Við erum mjög sorgmæddir yfir því
að hafa þurft að taka þessa ákvörðun
og höfum fulla samúð með þessum
nemendum okkar. En því miður; til
að geta boðið upp á sómasamlega
kennslu vantar okkur aðstöðu.“
Inntur eftir því hvað hann mæli
með að þessir níu nemendur geri
segir hann að þeim hafi nú ekki verið
hafnað fyrir lífstíð. Í bréfum skólans
til umræddra nemenda hafi þeir ver-
ið hvattir til að sækja um að ári og þá
verði aðstaðan vonandi orðin sóma-
samleg.
En hvernig voru þessir níu nem-
endur valdir úr hópi árgangsins?
„Fyrst og fremst var farið eftir
hæfni í verklegu námi. Verklegar
einkunnir,“ segir hann og bætir við
að þetta sé alltaf spurning um að-
ferðafræði. Þetta hafi þó verið
ákveðið þar sem verkleg hæfni sé
það sem unnið er að á öðru ári.
Að sögn Valgeirs er Hólaskóli eft-
irsóttur meðal áhugamanna um
hestamennsku og segir hann að
hafna hafi þurft 30 nemendum í ár
sem vildu hefja nám.
„Við höfum ávallt þurft að hafna
töluvert mörgum nemendum sem
má rekja til þess að aðstaðan hjá
okkur er gjörsamlega sprungin,“
segir hann en getur þess að nýnem-
um muni þó ekki fækka milli ára,
þeir séu 24 talsins.
Hrossabraut við Hólaskóla í Hjaltadal
Níu nemendur fá ekki
að halda áfram námi
SÆNSK sumarhátíð stendur yfir í
versluninni IKEA. Þar gefst fólki
kostur á að hitta Línu langsokk
og Emil í Kattholti og ríkir sann-
kölluð karnivalstemmning. Við
opnun hátíðarinnar á fimmtudag-
inn hitti þessi snáði skötuhjúin
Línu og Emil, þar sem þau
dreifðu sænska fánanum og
blöðrum.
Morgunblaðið/Billi
Lína og Emil á
sænskri sumarhátíð
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA
hefur gefið út reglugerð til að
hrinda í framkvæmd lagabreyt-
ingu sem Alþingi samþykkti sl.
vor um úrræði til að bregðast
við greiðsluvanda vegna lána
Íbúðalánasjóðs. Breytingarnar
taka gildi á næstu dögum þegar
reglugerðin verður birt, en þær
veita Íbúðalánasjóði aukna
heimild til að koma til móts við
fólk í greiðsluerfiðleikum.
Heimilt hefur verið að breyta
vanskilum í lán til 15 ára til að
leysa úr tímabundnum
greiðsluerfiðleikum og frysta
afborganir í þrjú ár til viðbótar.
Skv. nýju reglunum verður
heimilt að lengja lánstímann
eftir að þriggja ára frestun lýk-
ur og ekki er lengur nauðsyn-
legt að menn séu komnir í
greiðsluerfiðleika til að geta
fengið skuldbreytingu og lengt
lán sín þegar greiðsluvandi
stafar af óvæntum tímabundn-
um erfiðleikum s.s. vegna veik-
inda, slysa og atvinnuleysis.
Ný úrræði
við vanda
vegna
íbúðalána
mbl.isFRÉTTIR