Morgunblaðið - 22.07.2001, Blaðsíða 44
DAGBÓK
44 SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Á
morgun mánudag eru
væntanleg Kapitonas,
Marcinkus, Amsterdam,
Akureyrin EA, Vædde-
ren og Víðir EA og út
fara Sina, Amsterdam
og Catrisa II.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag er Venus væntan-
legt.
Viðeyjarferjan. Tíma-
áætlun Viðeyjarferju:
Mánudaga til föstudaga:
til Viðeyjar kl. 13, kl. 14
og kl. 15, frá Viðey kl.
15.30 og kl. 16.30. Laug-
ardaga og sunnudaga:
Fyrsta ferð til Viðeyjar
kl. 13 síðan á klukku-
stundar fresti til kl. 17,
frá Viðey kl. 13.30 og
síðan á klukkustundar
fresti til kl. 17.30. Kvöld-
ferðir eru föstu- og laug-
ardaga: til Viðeyjar kl.
19, kl. 19.30 og kl. 20, frá
Viðey kl. 22, kl. 23 og kl.
24. Sérferðir fyrir hópa
eftir samkomulagi. Við-
eyjarferjan sími 892
0099.
Lundeyjarferðir dag-
lega, brottför frá Viðeyj-
arferju kl.10.30 og kl.
16.45, með viðkomu í
Viðey u.þ.b. 2 klst. Sími
892 0099.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. kl. 10 boccia, kl. 14
félagsvist, kl. 12.30 bað-
þjónusta.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9–12 opin handa-
vinnustofan, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia, kl.
13.30–16.30 opin smíða-
stofan/útskurður, kl.
13.30 félagsvist, kl. 10–
16 púttvöllurinn opinn.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 almenn
handavinna, kl. 9.30–11
morgunkaffi/dagblöð, kl.
10 samverustund, kl.
11.15 matur, kl. 15 kaffi.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Fótaaðgerðir
mánud og fimmtud.
Uppl. í síma 565-6775.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára 9
er opin á morgun kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Á morgun
kl. 8 böðun, kl. 9 fótaað-
gerð, kl. 9.30 hjúkrunar-
fræðingur á staðnum, kl.
10 verslunin opin, kl.
11.20 leikfimi, kl. 11.30
matur, kl. 13 handavinna
og föndur, kl. 15 kaffi-
veitingar.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Púttæfingar á Hrafn-
istuvelli þriðjudaginn
kl. 14 til 16.
Orlofið á Hótel Reyk-
holti í Borgarfirði 26.–
31. ágúst nk. Skráning
og allar upplýsingar í
símum ferðanefndar
555 0416, 565 0941,565
0005 og 555 1703. Panta
þarf fyrir 1. ágúst.
Félagsheimilið Hrauns-
el verður lokað vegna
sumarleifa starfsfólks
til 12. ágúst.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin alla virka daga frá
kl. 10:00–13:00. Matur í
hádeginu. Mánudagur:
Brids kl. 13.00. Mið-
vikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Ásgarði
Glæsibæ kl. 10.00.
Dagsferð 7. ágúst, Hít-
ardalur-Straumfjörður.
Brottför frá Glæsibæ kl.
9.00. Leiðsögn Þórunn
Lárusdóttir. Skráning
hafin. Ákveðið hefur
verið að fara aðra 8
daga hringferð um
Norðausturland 20.
ágúst nk. vegna mikillar
eftirspurnar, ef næg
þátttaka verður. Þeir
sem hafa skráð sig á
biðlista eru vinsamleg-
ast beðnir að hafa
samband við skrifstofu
FEB. Silfurlínan er op-
in á mánudögum og
miðvikudögum frá kl.
10.00 til 12.00 fh. í síma
588-2111. Upplýsingar á
skrifstofu FEB kl. 10.00
til 16.00 í síma 588-2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Á morgun. Sund- og
leikfimiæfingar á veg-
um ÍTR í Breiðholts-
laug á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 9.30.
Púttvöllurinn er opinn
virka daga kl. 9–18,
Kylfur og boltar í af-
greiðslu sundlaugarinn-
ar til leigu. Allir vel-
komnir. Veitingabúð
Gerðubergs er opin
mánudaga til föstudaga
kl. 10–16. Félagsstarfið
fellur niður vegna sum-
arleyfa frá 2. júlí – 14.
ágúst.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Á morgun kl.
9–11 morgunkaffi, kl. 9–
12 hárgreiðsla, kl.
11.30–13 hádegisverður,
kl. 14 félagsvist, kl. 15–
16 eftirmiðdagskaffi.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun er handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum frá
kl. 9.30–12.
Hraunbær 105. Á
morgun kl. 10 bæna-
stund, kl. 13 hár-
greiðsla, kl. 13.30 til
14.30 gönguferð.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun,
fótaaðgerðir, kl. 13 spil-
að.
Norðurbrún 1. Fótaað-
gerðarstofan lokuð 16.–
20. júlí. Vinnustofur lok-
aðar í júlí vegna sum-
arleyfa.Bókasafnið opið
kl. 12–15, ganga kl. 10.
Vesturgata 7. Á morgun
kl. 9 dagblöð og kaffi,
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 almenn
handavinna, kl. 10–11
boccia, kl. 11.45 matur,
kl. 14.30 kaffi.
Vitatorg. Á morgun kl. 9
smiðjan og hárgreiðsla,
morgunstund og almenn
handmennt, kl. 10 fóta-
aðgerðir, kl. 11.45 mat-
ur, kl. 13 leikfimi og
frjáls spil, kl. 14.30 kaffi.
GA-fundir spilafíkla,
eru kl. 18.15 á mánudög-
um í Seltjarnarnes-
kirkju (kjallara), kl.
20.30 á fimmtudögum í
fræðsludeild SÁA Síðu-
múla 3–5 og í Kirkju
Óháða safnaðarins við
Háteigsveg á laugardög-
um kl. 10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis eru
með fundi alla mánu-
daga kl. 20 á Sólvalla-
götu 12, Reykjavík.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn verður á
morgun kl. 10 við Safa-
mýri og kl. 14 við Njáls-
götu.
Minningarkort
Líknarsjóður Dóm-
kirkjunnar, minninga-
spjöld seld hjá kirkju-
verði.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði eru afgreidd í síma
456-2700.
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafnar-
firði fást í Bókabúð
Böðvars, Pennanum í
Hafnarfirði og Blóma-
búðinni Burkna.
Minningakort Áskirkju
eru seld á eftirtöldum
stöðum: Kirkjuhúsinu
Laugavegi 31, þjónustu-
íbúðum aldraðra við
Dalbraut, Norðurbrún 1,
Apótekinu Glæsibæ og
Áskirkju Vesturbrún 30
sími 588-8870.
KFUM og KFUK og
Samband íslenskra
kristniboða. Minningar-
kort félaganna eru af-
greidd á skrifstofunni,
Holtavegi 28 í s. 588
8899 milli kl. 10 og 17
alla virka daga. Gíró- og
kredidkortaþjónusta.
Minningarkort Hjarta-
verndar, fást á eftirtöld-
um stöðum á Reykja-
nesi: Kópavogur:
Kópavogs Apótek,
Hamraborg 11. Hafnar-
fjörður: Lyfja, Setbergi.
Sparisjóðurinn, Strand-
gata 8–10, Keflavík:
Apótek Keflavíkur, Suð-
urgötu 2, Landsbankinn
Hafnargötu 55–57.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftirtöld-
um stöðum á Vestur-
landi: Akranes:
Hagræði hf., Borgarnes:
Dalbrún, Brákabraut 3.
Grundarfjörður: Hrann-
arbúð sf, Hrannarstíg 5.
Stykkishólmur: Hjá
Sesselju Pálsd., Silfur-
götu 36. Ísafjörður:
Póstur og sími, Aðal-
stræti 18. Strandasýsla:
Ásdís Guðmundsd.
Laugarholti, Brú.
Í dag er sunnudagur 22. júlí, 203.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
En Jesús kallaði þau til sín og
mælti: Leyfið börnunum að koma til
mín, varnið þeim eigi, því að slíkra
er guðs ríki.
(Lúk. 18.16.)
HVER er maðurinn til
hægri á myndinni (heldur
á ljósmyndavél)? Sá sem er
til vinstri á myndinni er
Björn Sigfússon (1905–
1991) háskólabókavörður.
Myndin var tekin í Reykja-
vík um 1980 eða litlu fyrr.
Þeir, sem geta gefið ein-
hverjar upplýsingar, vin-
samlegast hafi samband
við Sveinbjörn Björnsson í
síma 554-4472, Víghóla-
stíg 14, 200 Kópavogi.
Tóbaksauglýsingar
og berar konur
í sjónvarpi
MIG langar að hnýta að-
eins í skrif Víkverja fyrir
stuttu, þar sem hann skrif-
ar um tóbaksauglýsingarn-
ar á Formúlu 1-keppninni.
Aldrei hef ég tekið eftir
þeim, enda er ég niður-
sokkinn í að horfa á keppn-
ina sjálfa, en ekki á auglýs-
ingarnar á bílunum. Ég
held að þeir sem eru á móti
þessum tóbaksauglýsing-
um séu að leggja sig í líma
við að taka eftir auglýsing-
unum og ergja sig í stað
þess að einbeita sér að
kappakstrinum sjálfum. Og
til þeirra sem eru að hefja
málsókn á hendur sígar-
ettuframleiðendum: Verið
ekki með þessa hræsni,
auðvitað vissuð þið og vitið
hvað þið voruð og hvað þið
eruð að sjúga að ykkur.
Ættu alkóhólistar að fara í
mál við framleiðendur alkó-
hóls? Ættu þeir sem taka
bláar myndir á leigu eða
kaupa þær að fara í mál við
framleiðendur, ef þeir yrðu
svo ógæfusamir að fremja
kynferðisglæp? Nei, auð-
vitað ekki. Hættið að kenna
alltaf öðrum um ófarir ykk-
ar og takið sökina á ykkur.
Mikið er býsnast yfir því
ef sést í fagran konulíkama
í sjónvarpi. Fjöldi kvenna
tjáir sig í fjölmiðlum og lýs-
ir yfir hneykslun sinni og
telur viðbjóð að bjóða sjón-
varpsáhorfendum upp á
þetta á kvöldin. Ég spyr,
hvort er fegurra að horfa á
fagran konulíkama í sjón-
varpi eða allar blóðsúthell-
ingarnar og morðin á
hverju kvöldi? Ég sá að
minnsta kosti 5 höfuð fjúka
í einum þættinum um Kleo-
pötru á milli kl. 21–22 á
RÚV og ekki eru nú bless-
uð börnin farin að sofa þá
að sumarlagi. Væri ekki
nær fyrir þær konur, sem
eru að býsnast yfir að fagr-
ir konulíkamar sjáist í sjón-
varpi, að tjá sig aðeins um
svona sýningar.
Víkingur.
Fyrirspurn
LESANDI hafði samband
við Velvakanda og langaði
að fá upplýsingar hjá fyr-
irtækinu, sem selur
Grolsch-léttöl. Hvar getur
maður keypt ölið, sem er
0,0% í glerflösku? Ég sá
það auglýst á baksíðu
Fréttablaðsins þriðjudag-
inn 17. júlí sl.
Þakkir til Harðar
Torfasonar
OFT hefur Hörður Torfa-
son glatt mitt gamla hjarta,
þó aldrei meir en með þátt-
unum á Rás 2 um Johnny
Cash. Vil ég þakka honum
innilega fyrir.
Álfheiður.
Tapað/fundið
Íþróttapeysa og flís-
peysa töpuðust
GRÁ íþróttapeysa og blá
flíspeysa frá 66’ af ungum
dreng töpuðust einhvers
staðar á svæði 101. Skilvís
finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband í
síma 552-9294.
Dýrahald
Hefur einhver séð
Snældu?
SNÆLDA, sem er svört og
hvít 1½ árs læða, hvarf fyr-
ir skömmu frá Kaplaskjóls-
vegi. Hún er eyrnamerkt
og var með appelsínugula
ól með bláu merkisspjaldi.
Þeir sem hafa orðið varir
við hana eru vinsamlegast
beðnir um að hafa samband
í síma 562-3203 eða 694-
4973. Hennar er sárt sakn-
að.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Kannast ein-
hver við
manninn?
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 spítali, 8 plantna, 9
erfðafé, 10 fauti, 11 fisk-
ur, 13 látna, 15 grunn
skora, 18 slóttuga, 21 löð-
ur, 22 karldýr, 23 gesta-
gangur, 24 röskar.
LÓÐRÉTT:
2 grafa, 3 heimting, 4
stétt, 5 ósætti, 6 bjartur, 7
mergð, 12 dugur, 14 reið,
15 skott, 16 fugl, 17 af-
sögn, 18 grön, 19 pípuna,
20 fengur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 spons, 4 frísk, 7 rella, 8 Óttar, 9 peð, 11 kofa, 13
magi, 14 ræddi, 15 bjóð, 17 spik, 20 urt, 22 lærin, 23 jól-
in, 24 ræðni, 25 níska.
Lóðrétt: 1 sprek, 2 orlof, 3 skap, 4 flóð, 5 ístra, 6 korði,
10 eldur, 12 arð, 13 mis, 15 bylur, 16 ófróð, 18 pilts, 19
kenna, 20 unni, 21 tjón.
Víkverji skrifar...
ROSKIN kona, sem er Víkverjaafskaplega kær, hafði orð á því
á dögunum að innheimta reikninga
hjá Orkuveitu Reykjavíkur hlyti að
vera orðin býsna drjúg tekjulind.
Sagði hún að sérstakt gjald væri nú
innheimt með hverjum greiðsluseðli
með rafmagns- og hitareikningum
og um væri að ræða dágóða upphæð í
hvert skipti. Sagðist hún hafa komið
úr ferð út á land ekki alls fyrir löngu
og við heimkomuna hefðu beðið
hennar einir þrír, fjórir greiðsluseðl-
ar frá Orkuveitunni. Innheimtur
kostnaður vegna útsendingar þess-
ara greiðsluseðla hefði verið ríflega
eitt þúsund krónur, fyrir utan upp-
hæðina sjálfa, og það er ekki svo lítil
upphæð með reglubundnum hætti
fyrir hina öldruðu sem verða að reiða
sig á ellilífeyrinn og þurfa fyrir vikið
að fara vel með hverja einustu krónu.
x x x
ÞAÐ fylgir sögunni í þessu dæmigömlu konunnar að hvorki hún
né svo margir aðrir aldraðir hafa
komið sér upp greiðslukortum. Vík-
verji þekkir marga eldri borgara
sem ekki geta hugsað sér að „borga
upp á krít“, eins og það er orðað,
heldur greiða fremur með reiðufé.
Þetta fólk verður síðan vitaskuld illa
úti í innheimtukerfi nútímans sem
gerir ráð fyrir afslætti og lægri inn-
heimtukostnaði við korthafa. Þetta
er ekki í fyrsta skipti sem dæmi
koma upp af málum þar sem reiðufé
er orðið verri pappír en blessuð
plastkortin sem fylla veski yngri
landsmanna – ekki alltaf þeim til
mikillar blessunar.
x x x
FYRST farið er að ræða eldriborgara þessa lands getur Vík-
verji ekki annað en látið í ljós
hneykslan sína yfir frásögn aldraðs
manns í Vesturbænum nú nýskeð.
Sá sagði sínar farir ekki sléttar og
benti á að fjöldi aldraðra í hverfinu
veigraði sér nú við að fara út í apó-
tekið eða verslunina af ótta við að
verða bitbein óforskammaðra öku-
manna á leiðinni.
Í sakleysi sínu vildi Víkverji auð-
vitað spyrja hvort leiðin væri ekki
greið fyrir gamla fólkið og hvort ekki
væru gangbrautarljós í Vesturbæn-
um eins og annars staðar?
Jú, ekki stendur á því. En það
dugir bara ekki til þegar æstir öku-
menn í henni Reykjavík eru annars
vegar.
Gamli maðurinn sagði sem sé að
græna gangbrautarljósið héldi alls
ekki nógu lengi og oftar en ekki væri
því komið rautt þegar eldri borgarar
hefðu aðeins náð að ganga sem næmi
hálfri leið, eða að eyju milli akreina.
Þar stæði það, felmtri slegið, fram að
næsta ljósi eða tæki á sig rögg og
gengi alla leið yfir og þyrfti þá að
sæta því að dónalegir og óþolinmóðir
ökumenn, oftast karlmenn, að sögn
gamla mannsins, lægju á bílflautunni
eða hrópuðu ókvæðisorð út um opna
bílrúðuna um að viðkomandi ætti nú
að hunskast yfir götuna svo umferð-
in gæti gengið eðlilega fyrir sig.
x x x
VÍKVERJI veit af að minnstakosti tveimur lyfjaverslunum í
Vesturbænum sem liggja við fjöl-
farnar umferðargötur, annars vegar
Hringbraut og hins vegar Hofsvalla-
götu. Hann biður því Vesturbæinga
að taka sér nú ærlegt tak og geng-
isfella ekki sjálfa sig með slíkri og
þvílíkri framkomu. Sérstaklega
gagnvart því fólki sem á allt annað
og betra skilið.