Morgunblaðið - 22.07.2001, Blaðsíða 14
LISTIR
14 SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
L
ÍKAMLEG tilfinning fyrir
rými, eins og við skráum
hana í minninu, leggur jafn-
framt grunninn að vitund
okkar og skynjun á afstæð-
ari máta. Þannig verður
ákveðin lífsreynsla á
ákveðnum stað til þess að móta sjálfsvitund
okkar bæði sem einstaklinga og sem hluta af
heild. Þegar blaðamaður skoðaði verk kóreska
listamannsins Do-Ho Suh á Feneyjatvíær-
ingnum varð honum fyrst hugsað til hugleið-
inga Málfríðar Einarsdóttur, rithöfundar, um
samastað sinn í tilverunni í samnefndri bók
hennar. Do-Ho Suh var einn þeirra sem hvað
mesta athygli vöktu á tvíæringnum, fyrir verk
sem byggja á vangaveltum um togstreitu á
milli sjálfsvitundar einstaklings og hlutverks
hans í samfélagsheildinni, en þær eru vissu-
lega hluti af sammannlegri reynslu burt séð
frá uppruna. Gagnrýnar raddir á tvíæringnum
héldu því þó fram að list
Do-Ho Suh væri helst til
einföld í hugmynda-
fræðilegum skilningi.
Ekki eru þó allir sam-
mála því að það sé ljóður
á listsköpun að vera auð-
skilin eða hafa víðtæka
skírskotun, enda nutu verk Do-Ho Suh ekki
síst athygli fyrir hve vel þau voru útfærð og
sterk sem fagurfræðileg og tilfinningaleg
heild.
Sjálfsvitund einstaklingsins og hlutverk
hans í þjóðfélaginu er því eins og áður segir
áberandi þema í verkum Do-Ho Suh, þar sem
hann rannsakar innbyrðis tengsl einstaklinga
og fjöldans í ólíkum rýmum á afar afhjúpandi
máta. Eitt þeirra verka sem hann sýnir á
tvíæringnum, „Public Figures“ (eða „Merkir
einstaklingar“), hefur beina vísun í listheiminn
sjálfan og hlutverk hans, auk þess að vísa til
þess dýrðarljóma er umlykur þá sem sam-
félagið hefur upp á stall á opinberum vett-
vangi. Sýningarstallurinn er lykilatriði í verk-
inu, settur fram sem aðalatriði en ekki
undirstaða fyrir hefðbundið „mikilmenni“, á
stað sem er dæmigerður fyrir slíka upphafn-
ingu. Augnatillit áhorfandans er þó fljótt að
beinast undir stallinn en þar gefur að líta ara-
grúa smárra mannsmynda, sem halda honum
uppi berum höndum. Tengslin við aldargömul
gildi austrænnar hugmyndafræði þar sem
verðmæti einstaklingsins liggur í framlagi
hans til heildarinnar, eru augljós og athygl-
isvert að bera þau saman við þá einstaklings-
hyggju sem lengi hefur verið talinn hornsteinn
vestrænnar menningar. Vísanir verksins í
valdastrúktúr samfélagsins, fórnir þeirra und-
irokuðu til dýrðar valdinu, eru augljósar og
áhrifamiklar, enda í fullu samræmi við tvíræð-
an titil verksins, sem í raun gerir mannfjöld-
ann sem heldur stallinum á lofti að hinum
„merku einstaklingum“. Sú niðurstaða er sér-
staklega áhrifamikil í ljósi þess að listamað-
urinn sýnir mannfjöldann í mjög smækkaðri
mynd, sem felur þó síst af öllu í sér „minnkun“.
Verk Do-Ho Suh í skála Kóreu á Fen-eyjatvíæringnum er á áþekkum efn-islegum nótum. Þar vísar listamað-urinn ekki einungis til ljómans sem
umlykur þá sem samfélagið hefur hafið á stall,
heldur til þeirrar dýrðar sem löngum hefur
loðað við hernað og fórnir á einstaklingum í
þágu föðurlandsins. Verkið heitir „Some/One“
(sem útleggja má bæði sem „Einhver“ og sem
„Margir/Einn), en titillinn lýsir vel þeirri inn-
byrðis togstreitu sem í verkinu felst. Verkið er
eins og risastór brynja sem rís upp úr sam-
felldu hafi eitt hundrað þúsund auðkenn-
ismerkja (dogtags) af hálsfestum hermanna
sem þeir bera svo hægt sé að bera kennsl á þá
fallna. Brynjan, sem er eins og kápa með hettu
og víðum ermum að lögun, stendur með út-
breiddan faðminn eins og æðri vera og tákn
fyrir föðurlandið. Að innan er hún gyllt og
ljómandi eins og musteri eða opinbert minn-
ismerki – en um leið hol og ógnvekjandi. Auð-
kennismerkin sem mynda þennan mikla hlífi-
skjöld eru óteljandi og minna óþægilega á
allan þann fjölda manna sem leggur líf sitt að
veði í herþjónustu. Til að leggja enn frekari
áherslu á mannfjöldann sem um er að ræða
hefur Do-Ho Suh þakið veggi sýningarrým-
isins með veggfóðri sem við fyrstu sýn virðist
þakið smágerðu mynstri er rennur saman í
eina heild. Við nánari athugun kemur í ljós að
á veggfóðrinu gefur að líta örsmáar andlits-
myndir af óteljandi hermönnum. Allir eru þeir
að sjálfsögðu ólíkir einstaklingar, sem verður
sérstaklega áberandi innan þess þrönga
ramma sem einkennisbúningar þeirra marka,
en einsleitni þeirra miðar auðvitað fyrst og
fremst að því að afmá persónuleg einkenni ein-
staklingsins og steypa alla í sama mót.
Í þessu verki má bera kennsl á óræð mörk
sjálfsvitundar og samfélagsheildar, en það er
einmitt samruni af einhverju tagi sem er
grundvöllur þjóðernis og hugmynda okkar um
skil á milli einstakra þjóða. Fyrir áhorfandann
sem einstakling er verkið einkar áhrifaríkt,
þar sem það leikur á tilfinningu hans fyrir eig-
in sjálfi í sameiginlegum reynsluheimi mann-
kyns. Með þá vitneskju í farteskinu að Do-Ho
Suh fluttist rétt fyrir þrítugt frá Kóreu til
Bandaríkjanna, þar sem ólíkir kynþættir og
menningarhópar þrífast hlið við hlið í sund-
urleitu samfélagi sem er um margt ólíkt ein-
sleitu föðurlandi hans, upplifir áhorfandinn
nýja vídd í verkunum þar sem þjóðerni og
landamæri virðast umfram allt afstæð.
Þegar dvalið er við verkið „Some/One“
verða spurningar er varða vald og valdboð
óneitanlega áleitnar. Ljóst er að á milli ein-
staklinga í fjöldasamfélagi og þeirra krafta
sem stjórna þeim er flókið samband. Það er at-
hyglisvert að toppur valdastrúktúrsins er
hvergi sýnilegur á áþreifanlegan máta, frekar
en í verkinu „Public Figures“, þar sem styttan,
tákn valdsins sem venjulega er aðalatriðið, er
einfaldlega ekki til staðar. Hin mikla brynja
sem mynduð er úr auðkennismerkjum her-
mannanna er að vísu stór og áhrifamikil, en
um leið óræð og tóm, rétt eins og áhorfand-
anum hafi verið falið að fylla það tómarúm
sjálfur, eða velta fyrir sér ásýnd valdsins út frá
nýju sjónarhorni. Frammi fyrir slíkum fjölda
(fallinna ?) hermanna er tæpast hægt að kom-
ast hjá því að velta því fyrir sér hvaða vald það
er sem byggir múra og markar línur á milli
einnar þjóðar og annarrar og tilgangi þess fyr-
ir einstaklinginn. Í ljósi þeirra átaka sem átt
hafa sér stað á heimaslóðum listamannsins,
Kóreuskaganum, verður verkið enn sterkara.
Verk Do-Ho Suh voru víða á tvíæringnum
því Harald Szeemann valdi verk hans til sýn-
ingar í stóru samsýninguna í ítalska skálanum.
Þar hefur Do-Ho Suh unnið verk inn í heilan
sal sem hefur sterkar tengingar við verkin
„Public Figures“og „Some/One“. Enn eru
veggir salarins fóðraðir með örsmáum andlits-
myndum. Þær mynda tengingu við gólfið sem
er fullkomlega gegnsætt og haldið uppi af
óteljandi fjölda smárra mannsmynda rétt eins
og stallinum í „Public Figures“. Í einhverjum
skilningi er því einnig búið að hefja áhorfand-
ann sjálfan (sem er risavaxinn í samanburði
við smækkaðar mannsmyndirnar undir gólf-
inu) á stall í þessu verki, jafnvel þannig að
margir þeirra sem komu að þessum sal hikuðu
í fyrstu við að ganga inn á sjálft glergólfið og
„troða“ þannig á mannfjöldanum sem heldur
því uppi.
Þannig eru tengsl einstaklingsins, semáhorfanda, við þetta verk sér-kennilega virkt ferli sem lýsir bæðistöðugleika ákveðinna gilda í mann-
legu samfélagi þar sem einsleitur fjöldinn er
undirstaða alls, og margbreytileika í við-
brögðum stakra einstaklinga við þessum sömu
gildum. Verkið hefur því einnig markvissar
vísanir í þá marxísku hugmyndafræði sem
hafði svo mótandi áhrif á síðustu öld, ekki síð-
ur en í einstaklingsdýrkun vestrænnar menn-
ingar, þar sem það dregur fram í dagsljósið
stöðuga árekstra á milli einstaklingsins sem
hluta af samfélaginu og þess félagslega og
menningarlega rýmis sem honum er gert að
hrærast í.
Rétt eins og verk Málfríðar Einarsdóttur,
eru verk Do-Ho Suh vandlega tvinnuð frásögn
af minningum og mannkynssögu – hugleiðing
um samastað í tilveru sem okkur hefur enn
ekki tekist að móta á viðunandi máta, hvorki
sem einstaklingar né þjóð, þó flest sættum við
okkur við hlutskipti okkar. Styrkur Suh felst í
yfirlætislausum vísunum í sammanlegan veru-
leika. Þær eru þó sérkennilega átakalausar
enda myndi valdsmannlegri leið að viðfangs-
efninu vera í fullkominni andstöðu við þá sam-
kennd með hlutskipti „lítilmagnans“ sem verk-
in lýsa – „lítilmagna“ sem verður að
„stórmenni“ í félagi við aðra í viðleitni sinni til
að halda uppi mannlegu samfélagi.
AF LISTUM
Eftir Fríðu Björk
Ingvarsdóttur
fbi@mbl.is
Samastaður í tilverunni
Hið gegnsæja gólf, sem listamaðurinn hefur búið
til í einum sýningarsala tvíæringsins, hvílir á
uppréttum höndum þúsunda smækkaðra ein-
staklinga – mannfjölda sem hefur áhorfandann
sjálfan upp á stall.
„Public Figures“ eftir Do-Ho Suh, er einskonar
viðsnúningur á hefð tengdri opinberum minn-
ismerkjum um mikilmenni samfélagsins. Í stað
þess að mikilmennið tróni á stallinum, er sjón-
um áhorfandans beint að þeim smækkuðu „stór-
mennum“ sem bera stallinn uppi.
„Some/One“ hverfist um brynju sem búin er til
úr 100.000 auðkennismerkjum hermanna.
Brynjan breiðir úr sér yfir allt gólf salarins svo
sýningargestir ganga á miklum faldi hennar og
jafnframt á nöfnum hermannanna.