Morgunblaðið - 22.07.2001, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2001 45
DAGBÓK
BOBBY Levin var með spil
vesturs í keppni á OK-brids
fyrir nokkrum árum. Levin
var í vörn gegn fjórum
hjörtum og sýndi mikla
framsýni:
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♠ K9643
♥ ÁG65
♦ 8
♣ 853
Vestur Austur
♠ 1085 ♠ DG
♥ 3 ♥ 972
♦ Á75 ♦ G109432
♣ DG10764 ♣ ÁK
Suður
♠ Á72
♥ KD1084
♦ KD6
♣ 92
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 hjarta
3 lauf 4 hjörtu Pass Pass
Pass
Levin kom út með lauf-
drottningu og austur tók þar
tvo slagi og skipti síðan yfir í
tígulgosa. Sagnhafi dúkkaði
lymskulega, en Levin sá við
honum – hann yfirdrap með
tígulás og spilaði hálaufi.
Hvers vegna í ósköpunum?
Levin lá á að eyðileggja
laufhótunina í borði, því
annars þvingast hann í
svörtu litunum í lokin:
Norður
♠ K9
♥ –
♦ –
♣ 8
Vestur Austur
♠ 108 ♠ D
♥ – ♥ –
♦ – ♦ 109
♣ G ♣ –
Suður
♠ Á7
♥ 4
♦ –
♣ –
Lokastaðan yrði þessu lík
og vestur getur enga björg
sér veitt þegar suður spilar
síðasta trompinu. En með
því að gefa sagnhafa tvo tíg-
ulslagi (sem hann gat ekki
notað) tryggði Levin vörn-
inni spaðaslag í lokin. Glæsi-
legt.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
LJÓÐABROT
ÞRYMSKVIÐA
Reiðr var þá Vingþórr,
er hann vaknaði
ok síns hamars
um saknaði:
skegg nam at hrista,
skör nam at dýja,
réð Jarðar burr
um at þreifask.
Ok hann þat orða
alls fyrst um kvað:
„Heyrðu nú, Loki,
hvat ek nú mæli,
er eigi veit
jarðar hvergi
né upphimins:
áss er stolinn hamri!“
Gengu þeir fagra
Freyju túna,
ok hann þat orða
alls fyrst um kvað:
„Muntu mér, Freyja,
fjaðrhams léa,
ef ek minn hamar
mættak hitta?“
- -
Árnað heilla
70 ÁRA afmæli. Nk.þriðjudag, 24. júlí,
verður sjötug Anna Mar-
grét Albertsdóttir, Fells-
múla 18, Reykjavík. Af því
tilefni taka hún og eiginmað-
ur hennar, Hildiþór Kr.
Ólafsson, á móti ættingjum
og vinum í safnaðarheimili
Grensáskirkju frá kl. 17–21
á afmælisdaginn.
Ljósm. Myndrún ehf.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Akureyrarkirkju 14.
júlí sl. af sr. Svavari A. Jóns-
syni Kolbrún Sjöfn Magnús-
dóttir og Kristján Gísli
Gunnarsson. Á myndinni
með þeim er dóttir þeirra,
Magnea Björg. Heimili
þeirra er á Akureyri.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Sverrir
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu 4.560 kr.
til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Tinna Hrönn
Óskarsdóttir og Magðalena Björk Birgisdóttir.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú gengur hreint til verks
og það kunna menn að meta,
þótt sumum þyki framkoma
þín fullharkaleg.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú kemst aldrei neitt áleiðis
ef þú ert of hræddur til þess
að stíga fyrsta skrefið. Það
má margt gera án þess að
taka of mikla áhættu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það reynir sérstaklega á þol-
inmæði þína í dag. Vertu því á
varðbergi gegn hvers kyns
óþoli og vertu stimamjúkur
við börn og gamalmenni.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Nú er tími athafna. Blástu í
herlúðra og vertu hvergi
smeykur við að hrinda áætl-
unum þínum í framkvæmd.
Hlutirnir geta ekki annað en
gengið upp.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Sýndu sérstaka ráðdeild í
fjármálum; gerðu fjárhags-
áætlun og stattu svo á henni
eins og hundur á roði. Láttu
aðra engin áhrif hafa á þig.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Verður er verkamaður launa
sinna og nú er komið að þér
að hljóta umbun erfiðis þíns.
Gleymdu því bara ekki að þú
varst ekki einn um hituna.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú nærð engan veginn að
klára verkefnalista þinn í
dag. Gakktu í þau verk sem
mestu skipta og kláraðu þau,
en leyfðu smáhlutunum að
dragast.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú verður að haga málum svo
að þú sjáir skóginn fyrir
trjám. Vertu sjálfstæður og
hlauptu ekki upp til handa og
fóta eftir duttlungum ann-
arra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Um sinn skaltu varast að
beina athyglinni að þér, nema
þú sért með það á tæru
hvernig þú ætlar að taka á
hlutunum. Undirbúðu þig af
kostgæfni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Lánið leikur við þig ef þú
bara leyfir sjálfum þér að
stýra ferðinni og lætur ekki
athugasemdir annarra hrekja
þig af leið. Sýndu nú dug.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þótt fólk bjóði af sér góðan
þokka og þú viljir treysta því
umsvifalaust, skaltu fara þér
hægt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það verða engar breytingar í
lífi þínu nema þú sért sjálfur
staðráðinn í að svo verði.
Vertu djarfur, því enginn get-
ur unnið hlutina fyrir þig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Láttu nöldur samstarfs-
manns þíns lönd og leið.
Hann gefst upp þegar hann
sér að orð hans hrína ekki á
þér. Gerðu þér dagamun í
kvöld.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
STAÐAN kom upp á EM
einstaklinga sem haldið var
í Ohrid í Makedóníu. Ser-
gei Tivjakov (2603), sem
teflir nú fyrir Holland,
hafði hvítt gegn Smbat
Lputjan (2607). 22.Re5!
Áhrifaríkt og snoturt.
Svartur má engan veginn
þiggja riddarafórnina þar
sem hann yrði mátaður eft-
ir 22...fxe5 23.Bxe5+ Kg8
24.Dg4+ Kf7 25.Dg7#.
22...Had8 23.Bh4! Tafl-
mennska hvíts er frábær.
Svartur getur engum vörn-
um komið við. 23...Bc6
24.Rg4 Hxd1+ 25.Hxd1
Rd7 26.Hxd7! Dxd7
27.Bxf6+ Kg8 28.Rh6+
Kf8 29.Dg4 og svartur
gafst upp enda stutt í að
hann verði mátaður. Skák-
in telfdist í heild sinni: 1. e4
e6 2.d4 d5 3.Rd2 Be7 4.Bd3
c5 5.dxc5 Rf6 6.De2 Rc6
7.Rgf3 a5 8.O-O O-O 9.a4
Rd7 10.Rb3 Rxc5 11.Rxc5
Bxc5 12.c3 Bd7 13.Bf4 Re7
14.e5 Rg6 15.Bg3 f5 16.exf6
gxf6 17.c4 dxc4 18.Bxc4
De7 19.h4 Hfe8 20.Hfd1
Kh8 21.h5 Rf8 o.s.frv.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
KIRKJUSTARF
Í DAG sér Þorvaldur Halldórsson
um tónlistina í Þingvallakirkju við
guðsþjónustu kl.14, ásamt organist-
anum Guðmundi Vilhjálmssyni. Þor-
valdurhefur verið ráðinn til tónlist-
arflutnings í kirkjum landsins þetta
árið.
Í sumar ætlar hann að ferðast um
og vera prestum til halds og trausts
við helgihaldið. Hann hefur á und-
anförnum árum helgað krafta sína
trú sinni og eru þau hjónin Margrét
Scheving ásamt syninum Þorvaldi
yngra þekkt fyrir vandaðan flutning
léttrar tónlistar við helgihald. Að
lokinni guðsþjónustu í Þingvalla-
kirkju mun Þorvaldur sjá um tónlist-
arflutning í helgistund í Grunnskól-
anum á Laugarvatni, kl. 16.30. Með
Þorvaldi á báðum stöðum þjónar
settur sóknarprestur á Þingvöllum
og Mosfellsprestakalli í Grímsnesi,
séra Þórey Guðmundsdóttir. Báðar
athafnirnar verða með léttara sniði
en hefðbundið er.
Safnaðarstarf
Hallgrímskirkja. Sumarkvöld við
orgelið, tónleikar kl. 20. Felix Hell
frá Þýskalandi leikur verk eftir J.S.
Bach, F. Mendelssohn-Bartholdy,
N. Schneider, J.G. Reinberger og F.
List.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum í kirkj-
unni alla daga frá kl. 9–17 í síma 587-
9070.
Krossinn. Almenn samkoma í Hlíða-
smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Al-
menn samkoma kl. 20. Lofgjörðar-
hópur Fíladelfíu leiðir söng. Ræðu-
maður Vörður L. Traustason,
forstöðumaður. Allir hjartanlega
velkomnir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Almenn
fjölskyldusamkoma sunnudaga kl.
17.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þingvallakirkja
Sumarkirkja
Snertilinsur
- fyrir siglingarmenn -
6 linsur í pakka,
prófun, meðferðarkennsla,
vökvi og box.
frá 7.500.- kr.
sólgleraugu fylgja með! sími 551 1945
Antik bara batnar,
batnar og batnar
UPPBOÐSHÚS JES ZIMSEN,
Hafnarstræti 21,
sími 511 2227, gsm 897 4589, fax 511 2228.
Húsgögn, listmunir, málverk og skrýtnir og skemmtilegir munir.
Bjóðum upp, seljum, kaupum og skiptum.
Kollsvík
Við sem tengjumst Kollsvík eða Kollsvíkingum
ætlum að hittast í Þjórsárveri helgina 27.-29. júlí,
skemmta okkur og rifja upp gamla tíma.
Upplýsingar gefa Valdi í síma 486 3406, Árni í símum
435 1391/863 6131 og Snæbjörn í síma 899 2154.
!"