Morgunblaðið - 22.07.2001, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2001 53
AI MBL
ÓHT Rás2
Kvikmyndir.is
EÓT Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ATH. myndin er sýnd óklippt B. i. 16.
Myndin segir sögu tveggja
kvenna sem hafa orðið utan-
veltu í þjóðfélaginu sem hittast
fyrir tilviljun og halda í
blóðugt ferðalag um Frakkland.
( )
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Dýrvitlaus og
drepfyndinn
Með Rob Schneider
úr Deuce Bigalow:
Male Gigolo
Framleitt af hinum eina
sanna Adam Sandler
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Sýnd kl. 8 og 10
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Strik.is
Kvikmyndir.is
ÓHT Rás 2
DV
Kringlunni 4 - 6, sími 588 0800
EINA BÍÓIÐ MEÐ
THX DIGITAL Í
ÖLLUM SÖLUM
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 2 og 4.
Mán kl. 4.
Vit nr 236.Sýnd kl. 6 og 9.30. B.i. 12. Vit nr 235.
Sýnd kl. 1.45.
Mán kl. 4.
Vit nr 246
EÓT Kvikmyndir.is
PEARL HARBOR
7 desember 1941, skyndiárás sem breytti lífi þeirra að eilífu. r , i r r tti lífi irr ilíf .
www.sambioin.is
Sýnd kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20. Vit 255.
Á þessum hraða eru það eðlishvötin sem ráða!
Frábær kappakstursmynd í
leikstjórn Renny Harlin (Die Hard 2, Cliffhanger, Deep Blue Sea)
Spenna á yfir 380 km hraða!
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Mán kl. 6, 8 og 10. Vit nr. 249
Snorrabraut 37, sími 551 1384
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Strik.is
HL.MBL
Sýnd kl.10. B.i.14. Vit nr 220.
7 desember 1941,
skyndiárás sem breytti lífi þeirra að eilífu.
www.sambioin.is
Sýnd kl. 6 og 8. Vit 242.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Vit 255.
Á þessum hraða eru það eðlishvötin sem ráða!
Frábær kappakstursmynd í
leikstjórn Renny Harlin (Die Hard 2, Cliffhanger, Deep Blue Sea)
Spenna á yfir 380 km hraða!
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit nr. 249
ÞAÐ ER kannski ekki
svo mikið stuð í Suð-
mönnum en engu að síð-
ur er hér á ferð metnaðarfull ung
hljómsveit sem framkvæmir hlutina
með sínu nefi og á sínum hraða.
Hljómsveitin var stofnuð af bræðr-
unum Kjartani og Helga Benedikts-
sonum árið ’96. Kjartan plokkar bass-
ann á meðan yngri bróðirinn hans sér
um söng og gítarleik. Trommarinn
Magnús Magnússon bættist fljótlega
við og þríeykið gaf út sína fyrstu
breiðskífu, Hugsunarvélina, árið ’98.
„Við byrjuðum mjög hægt, en við
erum svona að reyna að finna okkur,
hvað við erum í rauninni, hvernig tón-
list við viljum spila og hvernig við vilj-
um koma henni á framfæri,“ útskýrir
Helgi. „Ég held að næsta skref sé svo
að átta okkur á hvernig við viljum
hljóma á plötu. Það er líka hluti af því
að finna réttu lögin. Við semjum
kannski alveg fullt af lögum sem eru
svo ekki Suð-lög. Á endanum kemst
maður að því hvernig lög við viljum
hafa á heilsteyptri plötu. Einlita plötu
sem hefur ákveðið andrúmsloft.“
Í lok síðasta árs bættist svo gítar-
leikarinn Vagn Leví við en hann
kannast íslenskir rokkunnendur við
úr hljómsveitinni Brain Police þar
sem hann syngur og leikur á gítar.
„Hann má ekkert syngja í þessari
hljómsveit,“ segir Helgi í góðu gríni.
Vilja vera sáttir við sitt
Það er greinilegt að sveitin hefur
verið í mikilli mótun frá því að þeir
gáfu út frumraun sína og verður því
spennandi að fylgjast með framhald-
inu.
„Við viljum ekkert vera að flýta
okkur, við ætlum fyrst að vera sáttir
við það efni sem við erum með,“ segir
Helgi. „Svo ákveðum við hvort við
viljum gefa út og hvernig. Við ætlum
bara að byrja á því að taka upp nokk-
ur lög og sjá svo hvar við stöndum.
Við ætlum ekkert að vera að hendast
út í einhverjar skuldbindingar strax.
Það vantar ekki lögin, en við viljum
bara bæta nokkrum við í viðbót og
vinsa síðan út. Bara til þess að
tryggja það að við séum allir sáttir við
öll lögin sem við gefum út.“
Hljómsveitin hefur hingað til hald-
ið tónleika með mánaðar millibili en í
sumar hafa þeir verið duglegri við að
sýna sig. Í kvöld gefst svo tónlistar-
áhugamönnum kostur á að bera
hljómsveitina augum og hlýða á tóna
hennar á Gauki á Stöng en þar halda
þeir svokallaða „Geimverurokkstón-
leika“ ásamt sveitunum Lúnu, Nátt-
fara og Kjartani.
„Við ætlum að spila nýju lögin okk-
ar aðallega,“ svarar Helgi aðspurður.
„Við sjáum oft á tónleikum hvort þau
eru að virka eða ekki. Maður er samt
með það á bak við eyrað hvað séu góð
lög og hvaða lög eru ekki nægilega
góð, en síðan kannski kynnist maður
öðru á tónleikum. Þetta skekkist að-
eins af því að við erum kannski búnir
að heyra þessi lög þúsund sinnum.
Aðrir eru að heyra þetta í fyrsta
skiptið.“
Áhugasömum er bent á heimasíðu
hljómsveitarinnar www.sud.is, þar
sem m.a. er hægt að nálgast Hugs-
unarvélina í heild sinni.
Gaukurinn verður opnaður í kvöld
kl. 21:30 og aðgangseyrir er 500 krón-
ur.
Suð (f.v.) Helgi Benediktsson, Vagn Leví,
Kjartan Benediktsson og Magnús Magnússon.
Suð-
lög
Geimverurokk á Gauknum
Morgunblaðið/Ásdís
Í DAG færast sólin inn í ljónsmerkið
og þá á afmæli fólkið sem er mik-
ilvægast og framar öllu vill tjá sig,
fólk sem blómstrar í sviðsljósinu,
fólk sem vill taka af skarið og leiða
aðra fram til afreka. Þetta er lifandi,
einlægt og góðhjartað fólk. Því
finnst gaman að segja sögur og
brandara og láta álit sitt í ljós á öll-
um hlutum.
Til að njóta sín til hins ýtrasta ráð-
leggja stjörnurnar ljónum að berjast
fyrir málefni sem þau hafa trú á eða
vinna að skapandi verkefnum. Ljón-
um er sérlega illa við að vera hunsuð
og verða að vera í miðju allrar at-
hygli ... alltaf. Einnig eiga þau aga-
lega erfitt með að þola litlaust um-
hverfi og að takast á við
hversdagslegar „rútínur“. Þess
vegna ættu öll ljón, stór sem smá, að
einbeita sér að verkefnum þar sem
skapandi sjálfstjáningin skiptir öllu,
einsog í frumlegum viðskiptaháttum
eða í skemmtanabransanum. Annars
er á hættu að lífsneistinn hreinlega
slokkni. Þá er líklegra að neikvæðar
hliðar ljónanna komi í ljós, en þau
eiga það til að vera kæfandi, sjálf-
hverf, kröfuhörð, frek, löt, hávaða-
söm og dónaleg. En skemmtileg eru
þau.
Það engin furða að mikið af kvik-
myndastjörnum og liði í skemmtana-
bransanum eru einmitt ljón. Í dag
verður þýska leikkona Franka Pot-
ente, sem flestir þekkja sem æpandi
rauðhausinn í Hlauptu Lóla hlauptu
27 ára gömul. Velski leikarinn Rhys
Ifans sem sló í gegn í Notting Hill
verður 33 ára, David Spade úr Just
Shoot Me verður 37 ára, og sjálfur
Willem Dafoe verður 46 ára.
Í Los Angeles þar sem þetta
ágæta fólk allt býr skreið sólin inn í
ljónsmerkið kl. 11.24 í morgun. Það
hefði þó verið mun betra að þjóf-
starta afmælishöldunum í gærkvöld,
því þá var tunglið ennþá í ljóni, en
það fer inn í meyjuna kl. 3.28 í dag.
Stjörnurnar segja að tunglið hafi
mikil áhrif á skapferli fólks. Þegar
tunglið er í ljóni er fólk kraftmikið,
fullt af eldmóði og til í hvað sem er.
Meyjan hefur hins vegar þau áhrif á
mannskapinn að hann dregur sig
meira tilbaka, verður umhugað um
heilsuna, nákvæmur og vill helst
hugsa um vinnuna. Það verður því
lítið gaman í fertugsafmælinu hans
Woodys Harrelsons á morgun, en
sama dag verður Philip Seymor
Hoffman 34 ára. Á þriðjudaginn kl.
4.08 færir tunglið sig yfir í vog og
fólk aftur orðið samkvæmishæft,
kurteist, félagslynt, skynsamt og
heillandi. Það verður því sjálfsagt
allt í góðu hjá Jennifer Lopez sem
verður 31 árs daginn þann. Allir
þangað!
Ljónin stór og smá
Reuters
Woody á von á
skapvondu fólki til
sín á morgun.
Reuters
David er kom-
inn í sparifötin.
Philip Seymor
spilar bara Abba í
sínu partýí.
Rhys tekur á móti
þér með viský í ann-
ari og pitsu í hinni.
Willem býður upp
á vindla.
Stuðið verður hjá Jennifer.
„Gerðu það, komdu
í afmælið mitt.“