Morgunblaðið - 28.07.2001, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isJóhann Ingi Gunnarsson svarar
kalli frá Kiel / B1
Kristinn Jakobsson dæmir í
Makedóníu / B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r28.
j ú l í ˜ 2 0 0 1
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR og náttúrufræð-
ingar hafa náð samkomulagi við samninganefnd
ríkisins um kjarasamninga.
Að sögn Herdísar Sveinsdóttur, formanns
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, felst mun-
urinn á nýja samningi félagsins og þeim sem var
felldur fyrr í sumar í því að hækkun er á grunn-
launum, en gerðar voru breytingar á vinnutíma
þannig að grunnlaunin hækka á bilinu 10,4% upp í
11,9% í staðinn fyrir 6,9%.
„Við og samninganefnd ríkisins lögðumst á eitt
til að komast að niðurstöðu og við erum mjög
ánægð með hana.“
Skrifað var undir samninginn 25. júlí. Í gær var
samningurinn kynntur fyrir hjúkrunarfræðingum
í Keflavík og sagði Herdís að henni hefði fundist
samningurinn leggjast mjög vel í fólk. „Við erum
síðan að fara núna og kynna samninginn úti á
landi“
Náttúrufræðingar semja
Ína Björg Hjálmarsdóttir, formaður Félags ís-
lenskra náttúrufræðinga, sagði að grunnlaunin
hefðu hækkað um 6,9%.
„Við óskuðum eftir meira rými í launarömm-
unum og fengum því framgengt. Samkomulag
náðist um möguleika á árangurstengingu og er þá
ákveðið af hverri stofnun fyrir sig hvort hún tekur
það kerfi upp. Engir sérstakir peningar verða
lagðir í það en það getur verið mismunandi eftir
stofnunum en einnig þarf að ganga frá því hvaða
árangur menn meta til launa.“
Aðspurð segir Ína að samninganefndin sé sátt
við samninginn og töldu þau að ekki væri hægt að
komast lengra án þess að fara í aðgerðir.
Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar
ríkisins, segir að 77 kjarasamningar séu gerðir á
þessu samningstímabili við 134 félög. Af 77 samn-
ingum eru einungis samningar við þrjú félög ófrá-
gengnir. Það eru Sjúkraliðafélag Íslands, Stétt-
arfélag sálfræðinga á Íslandi og Félag
leikskólakennara.
Hjúkrunarfræðingar hafa undirritað nýjan samning
Ríkisvaldið á eftir að gera
þrjá kjarasamninga
ÍSLANDSMEISTARAMÓT í
krikket verður haldið á Tungu-
bakkavelli í Mosfellsbæ í dag. Er
þetta í annað sinn sem mótið er
haldið og í þetta sinn munu eigast
við tvö lið, sameiginlegt lið Kylf-
unnar frá Reykjavík og Glaums
frá Stykkishólmi, sem tókust á í
fyrra þegar mótið var haldið í
fyrsta sinn, og nýtt lið sem sam-
anstendur að mestu leyti af starfs-
mönnum Tryggingamiðstöðv-
arinnar. Hefur það vakið nokkra
athygli erlendis að krikket sé
stundað sem keppnisíþrótt hér á
landi og eru íþróttafréttamenn frá
bresku sjónvarpsstöðinni Sky
komnir hingað í þeim tilgangi að
flytja fréttir af keppninni.
Ragnar Kristinsson er formaður
Íslenska krikketsambandsins, sem
er meðlimur í Evrópska krikket-
sambandinu ECC, og segir hann
að þaðan fái þeir sendan löglegan
búnað til keppninnar. Eins sé búið
að ganga úr skugga um að völl-
urinn sem keppt verður á, Tungu-
bakkavöllur, sé löglegur.
Komnir í hálfgert öngstræti í
þjálfaramálum
„Þetta er allt mjög óformlegt,
en við skráðum okkur samt í ECC
og þaðan fengum við styrk, búnað
og annað,“ segir Ragnar. „Þannig
komst einhver blaðamaður í málið
og varð svona heillaður af því að
það skyldi vera keppt í krikket á
Íslandi. Hann tók viðtal við mig
nú rétt fyrir áramót fyrir „Wisden
almanak“, sem er árbók og að
mér skilst einskonar biblía krikk-
etáhugamanna. Það virðist hafa
vakið nokkurn áhuga og síðan
hefur síminn varla stoppað. Það
var birt viðtal við mig í London
Times um krikket á Íslandi og nú
eru þeir að koma frá Sky til að
fylgjast með mótinu,“ segir Ragn-
ar.
Aðspurður segist hann ekki
geta ímyndað sér hvað það sé sem
veki þennan áhuga manna á
krikketiðkun hér á landi, en hann
segir starfsfólk ECC hafa tjáð
þeim að fyrirspurnir um krikket á
Íslandi séu í miklum meirihluta
allra þeirra fyrirspurna sem sam-
bandinu berist.
„Ætli þeim finnist ekki bara
skrýtið að það sé hægt að leika
krikket hérna. Ég veit eiginlega
ekki hvort við ættum að segja
þeim að það sé varla leikið krikk-
et á Íslandi. Þetta er svona hálf-
gert öngstræti sem við erum kom-
in í. Nýlega fengum við svo
sendan þjálfara frá ECC, við vor-
um búin að humma það fram af
okkur í meira en ár að taka við
honum en þeir vildu ólmir senda
hann. Svo kom hann og sagði okk-
ur að við værum í klassa rétt fyr-
ir ofan Tékkland og Lúxemborg.“
Höldum uppi rétta
„krikket-andanum“
Ragnar segir leikmenn liðanna
mjög spennta fyrir keppni dags-
ins. Þeir séu margir ágætlega
færir og að nýliðar hafi fengið
góða kennslu og þjálfun á und-
anförnum dögum. „Við leikum eft-
ir reglunum og það er aðalatriðið.
Svo eru allir í hvítum búningum
eins og venja er. Fyrst við erum
að spila þetta, viljum við nátt-
úrlega vera flottir og reynum að
bæta upp fyrir getuna með því að
líta vel út. Síðan höldum við að
sjálfsögðu uppi rétta „krikket-
andanum“, sem er heiðarleiki, góð
framkoma og almenn prúð-
mennska út í gegn,“ segir Ragnar
og tekur fram að allir áhugasamir
séu velkomnir á Tungubakkavöll í
dag, en keppnin hefst klukkan
12:30.
Fréttamenn frá Sky fylgjast með
Íslandsmeistaramótinu í krikket
Morgunblaðið/Jim Smart
Frá keppni sem fram fór hér á landi í fyrra, þegar enskt krikketlið sótti Íslenska krikketsambandið heim.
18 MÁNAÐA gömlum dreng
sem bakkað var á við Arnarsm-
ára í Kópavogi á fimmtudags-
kvöld líður vel eftir atvikum að
sögn Sævars Halldórssonar,
barnalæknis á barnadeild í
Fossvogi.
Drengurinn lenti undir bíln-
um þegar bakkað var á hann og
segir Sævar að hann hafi slopp-
ið ótrúlega vel. Hann vildi þó
ekki leyfa honum að fara heim
af sjúkrahúsinu í gær.
Slapp
ótrúlega vel
TALSVERT hvasst var á höf-
uðborgarsvæðinu og víðar á land-
inu í gær. Í Skipholti, þar sem unnið
er að viðhaldi á fjölbýlishúsi, féll
vinnupallur á hliðina. Engan sakaði
og var pallurinn reistur á ný.
Morgunblaðið/Þorkell
Vinnupallur
á hliðina
♦ ♦ ♦
FÓLKSBÍLL valt eftir að honum
var ekið út af Skeiða- og Hruna-
mannavegi sunnan við bæinn Hauk-
holt í Biskupstungnahreppi um
klukkan 17 í gær. Talið er að öku-
maður hafi misst stjórn á bílnum í
lausamöl.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Selfossi fór bíllinn eina og
hálfa veltu og hafnaði á hliðinni utan
vegar. Ökumaðurinn slapp að mestu
ómeiddur en grunur lék á að farþegi,
kona á þrítugsaldri, hefði meiðst á
hálsi eða baki. Þeim var báðum ekið
með sjúkrabifreið á slysadeild Land-
spítala – háskólasjúkrahúss í Foss-
vogi. Samkvæmt upplýsingum frá
spítalanum er konan ekki talin alvar-
lega slösuð.
Bifreiðin er talin ónýt.
Missti stjórn
á bílnum og
ók út af