Morgunblaðið - 28.07.2001, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.07.2001, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001 23 að reikna ofnum má ramvegis. ráðið hafi ngar upp á rið um að runnurinn núllkvóta ggur fyrir örðun um m,“ segir ð vísinda- öðu hinna fi að segja ð tiltekinn agi meðan að leyfa danefndar að ætti að væri búið um hvern- að og þá u máli til kvótasetn- meirihluti hvalveiði- ðar þrátt éu í góðu nnfremur móti hval- i að ljúka ina til að stundaðar rðu sjálf- hafa fyr- m hversu a út. Það ekki verði því sam- ð fyrir al- erfi. „Það ðum hvað ægt og það að Ísland þjóðahval- til þess að ðisinnaðra reyna að m þá yrði við gætum ninginn ægðastur land fékk i einu at- r það vald a Íslands einhverjir ns munað borga að- að varðar er áfram ð ríki, eins kuli halda fram þeirri meginstefnu að það sé einfaldlega siðferðislega rangt að drepa hvali. Það er afstaða sem við getum ekki fellt okkur við.“ Stuðningur við frumbyggjaveiðar Þó hvalveiðar séu bannaðar eiga þær sér stað með þrennum hætti. Í fyrsta lagi er um að ræða samþykkt sem Alþjóðahvalveiðiráðið gerði fyr- ir árin 1998 til 2002 vegna svo- nefndra frumbyggjaveiða í Banda- ríkjunum, Rússlandi, Grænlandi og hjá St. Vincent og Grenadines í Kar- íbahafinu. Bandaríkjamenn mega veiða samtals 280 sléttbaka en aldrei fleiri en 67 sléttbaka á ári, fyrst og fremst í Alaska, auk þess sem þeir mega flytja 15 hvali á milli ára. Rússar mega veiða 620 gráhvali austast í Síberíu, að hámarki 140 stykki á ári með fyrrnefndum til- færslum. Grænlendingar mega veiða 175 hrefnur við Vestur-Græn- land á ári, 12 hrefnur við Austur- Grænland og 19 langreyðar. Við St. Vincent og Grenadines má veiða tvo hnúfubaka á ári. Í öðru lagi er um að ræða vísinda- veiðar Japana en í ár ætla þeir sér að veiða 160 hvali, 100 hrefnur, 50 skor- ureyðar og 10 búrhvali. Í þriðja lagi eru hrefnuveiðar Norðmanna sem eru hvalveiðar í at- vinnuskyni í andstöðu við Alþjóða- hvalveiðiráðið. „Þær eru mjög gott dæmi um hvalveiðar, sem eru sjálf- bærar, og sýna svart á hvítu að sá áróður þess efnis að um leið og veið- ar hefjist í atvinnuskyni þýði það allsherjar hrun, á ekki við rök að styðjast,“ segir Stefán. „Það er ekkert slíkt hrun í Noregi.“ Stefán segir að grunn- munur á afstöðu þeirra sem styðja almennar hvalveiðar og hinna sem sætta sig við hvalveiðar frumbyggja en ekki aðr- ar, sé sá að þeir síðarnefndu sam- þykki fyrrnefnda kvóta á þeirri for- sendu að um þarfir viðkomandi samfélaga sé að ræða. Um sé að ræða hefðbundnar veiðar til að við- halda menningunni en ekki sé horft á stofnstærðina sem sé aukaatriði hjá þeim. „Við tökum hinn pólinn, viljum meta hversu miklar veiðar viðkomandi stofn þolir en ekki skipt- ir máli hvað verður um kjötið,“ segir Stefán. Stefán bendir á að Ísland hafi nokkurn stuðning við málstað sinn í umræddu máli. Talsverður hluti ríkja, sem standi pólitískt á móti Ís- landi í málinu, sé ekki tilbúinn að láta lögræðilega rétta niðurstöðu víkja fyrir pólitíkinni. „Hérna voru ríki sem eru augljóslega á móti hval- veiðum, en þau voru með álit frá lög- fræðilegum ráðgjöfum sínum sem sagði þeim að lögfræðilega væri ekk- ert hægt að gera til að stöðva Íslend- inga. Ef ríki ætluðu að mótmæla fyr- irvara okkar ættu þau að gera það hvert fyrir sig en ráðið hefði ekki það vald. Þess vegna voru lönd eins og Frakkland og Sviss á móti því að hvalveiðiráðið tæki margnefnda af- stöðu. Jafnframt var hér fjöldinn all- ur af ríkjum sem var tilbúinn að horfa framhjá því sem er lögform- lega rétt leið til að ná fram þessum pólitísku markmiðum sínum að koma í veg fyrir hvalveiðar. Ónefnd- ir fulltrúar annarra ríkja hafa bein- línis sagt það við mig að þeir hafi haft þau fyrirmæli að láta lögform- legan rétt ekki buga sig heldur láta pólitísku afstöðuna ráða.“ Stefán segir að hvalveiðiráðið virki ekki eins og það eigi að gera. „Markmið stofnsamnings þess er að vernda hvalastofna til þess að gera nýtingu þeirra sjálfbæra til lengri tíma en ekki er verið að vinna sam- kvæmt því markmiði. Hins vegar virðist stuðningurinn frekar vera að færast í okkar átt. Fleiri ríki bætast í hópinn sem styður sjálfbæra nýt- ingu hvalastofna en hópinn sem stendur á móti. Þróunin er okkur í hag og það er okkur í hag að reyna að vinna innan ráðsins. Ég held að það sé ekki rétt að meta það þannig að það hafi verið mistök að gerast aftur aðilar.“ Að sögn Stefáns er nokkuð breið samstaða innan ráðsins um að breyta reiknireglunni, sem notuð sé til að reikna út fjárframlög, til að auðvelda fátækum ríkjum aðild að ráðinu. Vinnuhópur hafi skoðað ýmsar leiðir og virðist vera góður vilji til að koma því máli áfram. „Ég hef trú á því að ekki líði á löngu þar til þessum reglum verði breytt sem yrði þá til þess að fjölga þróunarríkjum í ráðinu og sú þróun á eftir að reynast okkar málstað vel. Þetta eru ríki sem vilja geta nýtt þær náttúruauð- lindir sem þær hafa og eru síður gin- keypt fyrir þeirri hugmynd að hvalir séu svo sérstakar skepnur að það sé siðferðislega rangt að skaða þær.“ r, að loknum 53. ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins kkur í hag AP neytinu og formaður íslensku sendinefndarinnar, og Þórður Ásgeirsson fiskistofu- nds á ársfundi Alþjóða hvalveiðiráðsins í London. Samstaða um að fjölga þróunar- ríkjum í ráðinu hentar Íslandi steg@mbl.is MIKIL umræða hefur ver-ið um mengun vegnastórbúskapar í svína-rækt og hvernig leysa megi vandamál varðandi kostnað við nýtingu lífræns búfjárúrgangs frá búunum við jarðrækt og upp- græðslu. Varlega áætlað falla til nálægt 80 þúsund tonn af svínamykju frá svínabúum hér á landi á ári. Svínabúum í landinu hefur fækkað og eru nú rúmlega 30 talsins, en þau hafa jafnframt stækkað á seinustu árum. Alls eru tæplega 4.000 gyltur og um 70 þúsund eldisgrísir í landinu í dag. Samkvæmt Handbók bænda gefur hvert fullorðið svín af sér um 400 kg af bú- fjáráburði á mánuði og grís- ir um 200 kg, en hver grís er alinn í 5 ½ mánuð þar til hann nær sláturstærð. Kristinn Gylfi Jónsson, formaður Svínaræktar- félags Íslands og svínabóndi í Brautarholti á Kjalarnesi, segir að stærsti hluti úr- gangs á svínabúum sé nýtt- ur til áburðardreifingar. „Svo er verið að vinna að lausnum hvað annað varðar á sumum búum,“ segir hann. Fram kom á síðasta ári að svínaskítur hefði verið los- aður í sjó í umtalsverðum mæli. Hefur það nú almennt verið bannað þótt veittar hafi verið tíma- bundnar undanþágur á meðan ein- stök bú eru að koma upp búnaði eða gera aðrar ráðstafanir til að losa sig við svínamykjuna. Mögulegt að setja blauthluta úrgangsins í sjó sem skolp Kristinn Gylfi segir að þeir svína- bændur, sem hafa losað í sjó, séu að vinna að lausnum á sínum málum. „Svínaskítur hefur farið í sjóinn og hefur það verið háð undanþágu frá heilbrigðisyfirvöldum þar til viðkom- andi bú hafa uppfyllt kröfur sem settar hafa verið. Það er alveg ljóst að það er bannað að setja ómeð- höndlaðan skít út í sjóinn, en ef búið er að meðhöndla hann og uppfylla ákveðin skilyrði af hálfu hins opin- bera varðandi hreinsun úrgangsins, þá verður mögulegt að setja blaut- hluta hans í sjó eins og hvert annað skolp. Það er verið að skoða lausnir í því sambandi,“ segir Kristinn Gylfi. Brautarholtsbúið fékk í fyrra tímabundið leyfi umhverfisráðuneyt- is til að losa úrgang frá búinu í sjó. Að sögn Kristins Gylfa lauk því um síðustu áramót og hefur Brautar- holtsbúið ekki sett úrgang í sjó upp frá því. „Við höfum annars vegar borið á okkar tún eða komið áburð- inum fyrir til dæmis í Sorpu.“ Kristinn Gylfi segir svínabændur almennt vinna að því að þessi mál séu í góðu lagi. ,,Gerðar hafa verið aukn- ar kröfur varðandi frárennslis- og úrgangsmál og svínabændur munu, í samræmi við góða búskaparhætti, hafa þessi mál í lagi hjá sér, vera með nægilegt geymslurými og hafa þessi mál í því horfi sem yfirvöld á hverj- um stað eru sátt við,“ segir hann. Skilyrði í leyfi Stjörnugríss að úrgangi sé dreift sem áburði Heilbrigðisnefnd Vesturlands hef- ur veitt svínabúi Stjörnugríss á Mel- um starfsleyfi, en það er meðal stærstu svínabúa landsins. Er gert ráð fyrir að hýsa megi 8.000 grísi samtímis á búinu eða rúmlega 20 þúsund grísi á ári. Áætlað er að 12 þúsund tonn af svínamykju falli til á búinu árlega þegar það verður komið í fullan rekstur. Meðal skilyrða sem sett eru í leyf- inu er að rekstur búsins megi ekki leiða til mengunar í vatni eða sjó. All- an svínaskít sem til verður við starf- semina skal nýta sem áburð og safn- þrær fyrir svínaskít skulu rúma a.m.k. sex mánaða birgðir. Sambæri- legar reglur hafa verið settar svína- búinu að Hýrumel, sem er með 500 gyltur, að sögn Helga Helgasonar, heilbrigðisfulltrúa á Vesturlandi. Hafa slíkar hauggeymslur verið reistar á búinu að Melum, að sögn Helga. Skv. starfsleyfinu er Stjörnugrís heimilt að dreifa skít á tímabilinu frá 1. apríl til 1. nóvember, en aldrei má þó dreifa á frosna jörð eða gegn- blauta. Eru þetta nokkuð rýmri skil- yrði um dreifingartíma en sett voru í upphaflegum starfsleyfisdrögum vegna búsins, þar sem gert var ráð fyrir að dreifa mætti skít á tímabilinu 1. maí til 1. október. Bannað er að dreifa skít beint í læki, vötn, skurði og sjó og skal haga dreifingu þannig að tekið sé tillit til vindátta, þannig að hún valdi nágrönnum sem minnst- um óþægindum, en á seinustu árum hefur í vaxandi mæli borið á kvört- unum vegna stækrar lyktarmengun- ar frá svínamykju, sem dreift hefur verið frá svínabúum. Þá er gerð krafa um að hræ séu sett í lokaða gáma og færð á viðurkenndan urð- unarstað. Dreifa búfjáráburði á tún og til landgræðslu í Vesturlandsskógi Ekki hefur orðið annars vart en svínabúin á Vesturlandi hafi fylgt þeim starfsreglum sem þeim hafa verið sett af heilbrigðisyfirvöldum, að sögn Helga. Hann segir búfjáráburðinum dreift á tún og samið hafi verið við aðra bændur um að taka við svínaáburði, auk þess sem hann hafi verið not- aður við landgræðslu í Vesturlands- skógi. Í starfsleyfinu er sett það skil- yrði,að ekki megi dreifa meira en 175 kílóum af köfnunarefni á hvern hekt- ara lands og ef landrými skorti þarf svínabóndinn að finna aðrar leiðir til förgunar úrgangsins. Nýlega héldu samtökin Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs ráð- stefnu um nýtingu á svínaskít við landgræðslu, en þar kom fram að í könnun meðal íbúa vegna lyktar- mengunar á Kjalarnesi frá svínabú- um, töldu 67% óþefinn mikið vanda- mál. Flestir sögðust þó jákvæðir í garð svínaræktar á svæðinu. Þá hef- ur verið í gangi tilraunaverkefni á vegum Sorpu og umhverfisráðuneyt- isins við endurvinnslu úr bylgju- pappa og svínaskít til áburðar. Þór Tómasson, verkefnisstjóri hjá Hollustuvernd ríkisins, segir svína- skít kjörinn til landgræðslu og tilval- inn áburð á tún eins og farið sé að gera, en því fylgi þó vaxandi vanda- mál vegna lyktarmengunar, þar sem svínabú hafi stækkað og íbúðabyggð- ir færst nær búunum. Svínaskítur er mjög blautur en um 90% hans er vatn. Þarf hann því mik- ið geymslurými yfir veturinn og kostnaðarsamt er að flytja úrgang- inn. Þór segir engar auðveldar lausn- ir á þessum vandamálum. Á áðurnefndri ráðstefnu kom fram í máli Ríkharðs Brynjólfssonar, prófess- ors, að skv. upplýsingum frá Danmörku skili hver gylta með 21 sláturgrís af sér 14,2 tonnum af úrgangi á ári. Í þessu magni væru 133 kg af köfnunarefni, 105 kg af fosfór og 40 kg af kal- íum. Samtals mætti því verðleggja áburðarefnin í þessu magni af skít á um 15.300 kr. Ekki sé því eftir miklu að slægjast hjá framleiðendum vegna kostnaðar við flutning úr- gangsins. ,,Bændur vilja náttúr- lega lágmarka flutnings- kostnað og kostnað al- mennt við þetta en staðreyndin er sú, að þeir sem hafa áhuga á að nota þetta í uppgræðslu og annað vilja ekkiborga mikið fyrir það enn sem komið er. Þeir sem búa til skítinn og þeir sem hafa þörf fyrir hann þurfa kannski að mætast einhverstaðar á miðri leið varðandi kostnaðinn við koma þessu fyrir,“ segir Kristinn Gylfi. Ögmundur Einarsson, fram- kvæmdastjóri Sorpu, segir ljóst að finna verði einhverjar aðrar lausnir á meðferð svínaskíts, sem ekki er dreift sem áburði, en keyra hann á förgunarsvæði Sorpu í Álfsnesi. Það sé engin lausn. Ögmundur bendir á að um 60% af svínakjötsframleiðslu í landinu sé að finna á svæðinu um- hverfis höfuðborgarsvæðið og þar falli til tugir þúsunda af svínaskít á ári. „Þetta er gríðarlegt magn, mest af þessu hefur farið í sjó og kannski er það allt í lagi, a.m.k. hafa ekki komið fram nein merki um skaðsemi þess.“ Ögmundur tekur undir að mjög dýrt sé flytja efnið til uppgræðslu og ræktunar, vegna þess hversu mikið vatnsinnihald sé í skítnum. ,,Það er enginn tilbúinn að borga á Íslandi í umhverfismál,“ segir hann. Hann segir að svínabændur hafi tekið á þessum málum. „Það er ekki nokkur vafi á því að menn eru á fullu að taka á málinu, en þetta kostar mikið fé. Það hefur verið litið á allt sem varðar þennan úrgang sem núll- kostnað, en hér er þetta eins og allsstaðar annars staðar í heiminum að verða stór kostnaðarþátt- ur, sem verður að taka til- lit til í allri framleiðslu. “ segir hann. Að mati Ögmundar stafa vanda- málin þó ekki hvað síst af því að gerð- ar eru mismunandi kröfur til búanna eftir byggðarlögum. Framleiðendur sitji ekki við sama borð eftir því hvar þeir eru á landinu. Vilji menn taka á þessum málum betur á einum stað en öðrum kosti það fjárútlát og fram- leiðendur vísi til þess, að þeir séu ekki samkeppnisfærir við bú í öðrum byggðum, þar sem slakað hefur verið á kröfum vegna hreppapólitíkur og atvinnusköpunar. ,,Þetta er í hnot- skurn vandinn við það þegar menn byrja staðbundið, en menn þurfa að taka á þessu,“ segir Ögmundur. Skiptar skoðanir eru um nýtingu úrgangs frá svínabúum Aukinn vandi fylgir skítnum Áætla má að nálægt 80 þúsund tonn af svína- mykju falli til árlega á Íslandi. Fram kemur í grein Ómars Friðriks- sonar að svínaúrgang- ur er kjörinn til land- græðslu en kostnaður fylgir dreifingu hans. Tímabundnar undanþágur til losunar svína- skíts í sjó omfr@mbl.is Hver gylta gefur af sér um 400 kg af búfjáráburði á mánuði og hver grís um 200 kg. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.