Morgunblaðið - 28.07.2001, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 28.07.2001, Blaðsíða 35
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001 35 HELGIHALD þarfnast ekki hús- næðis heldur lifandi fólks. Kirkja Jesú Krists er ekki steypa, heldur lifandi steinar, manneskjur af holdi og blóði. Þess vegna er hægt að fara út úr kirkjubyggingum með helgi- hald og fagnaðarerindið og mæta fólki í dagsins önn. Í tilefni af því bjóðum við til messu í Kolaportinu sunnudaginn 29. júlí kl. 14. Bjarni Karlsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, predikar og þjón- ar ásamt Eygló Bjarnadóttur guð- fræðinema og Önnu Jónu Ármanns- dóttur. Þorvaldur Halldórsson leiðir lofgjörðina. Áður en Kolaportsmess- an hefst kl. 13.40 mun Þorvaldur Halldórsson flytja þekktar dægur- perlur. Þá er hægt að leggja inn fyr- irbænarefni til þeirra sem þjóna í messunni. Í lok stundarinnar verður fyrir- bæn og smurning. Messan fer fram í kaffistofunni hennar Jónu í Kola- portinu sem ber heitið Kaffi port, þar er hægt að kaupa sér kaffi og dýrindis meðlæti og eiga gott sam- félag við Guð og menn. Það eru allir velkomnir. Miðborgarstarf KFUMog K. Safnaðarstarf Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar kl. 12-12.30. Lára Bryndís Eggerts- dóttir leikur á orgel. Kolaportsmessa KIRKJUSTARF M O N S O O N M A K E U P lifandi litir SESSELJA Jónsdóttir opnar sýn- ingu í dag á 25 olíumálverkum í Kaffistofunni Lóuhreiðri í Kjör- garði við Laugaveg. Sesselja er fædd í Skerjafirðinum en uppalin í Laugarnesinu. „Reykvíkingur í húð og hár,“ segir hún. Þetta er fyrsta einkasýning Sess- elju en hún byrjaði að fást við mál- verk fyrir 3 árum með því að sækja námskeið hjá eldri borgurum. „Þetta eru eins konar fantasíu- landslagsmyndir sem ég mála,“ segir Sesselja og segist eiga leið- beinanda sínum, Jean-Marc Capaul, mest að þakka fyrir að hafa hvatt sig áfram. Morgunblaðið/Sverrir Sesselja Jónsdóttir. Málverk í Lóuhreiðri ÞRIGGJA daga kynningarnámskeið í Falun Gong, sem er ævafornt kín- verskt sjálfsræktarkerfi, verður haldið dagana 31. júlí til 2. ágúst, milli klukkan 18 til 21 hvern dag. Námskeiðið er haldið í Hljómskála- garðinum, nærri Hljómskálanum við styttu Jónasar Hallgrímssonar. Kenndar verða 5 grunnæfingar Fal- un Gong og innsýn gefin í þá heim- speki sem liggur að baki Falun Gong. Námskeiðið er öllum opið og samkvæmt hefð Falun Gong er ekk- ert þátttökugjald. Falun Gong- námskeið FERÐAFÉLAGIÐ Útivist fer sunnudaginn 29. júlí kl. 09.00 í gönguferð um gamla þjóðleið úr Hvalfirði í Skorradal er nefnist Síld- armannagötur. Þetta er skemmtileg 5 – 6 klst. ganga sem ekki er síður áhugaverð en þjóðleiðin þekkta um Leggjabrjót milli Hvalfjarðar og Þingvalla. Brottför er frá BSÍ og stansað við Select Vesturlandsvegi. Verð er 1.900 kr. fyrir félaga í Útivist og 2.100 kr. fyrir aðra. Gönguferð um Síldar- mannagötur Í KVÖLD, laugardag, 28. júlí, heldur Vésteinn Ólason prófessor fyrirlest- ur að Skriðuklaustri í Fljótsdal sem hann nefnir Dauði Baldurs og draug- ar í fornum sögum. Í fyrirlestrinum mun hann fjalla um afstöðu til dauð- ans og dauðra í íslenskum fornbók- menntum. Jafnframt verða lesnir kafla úr þeim textum sem til umfjöll- unar eru. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.00 og aðgangseyrir er kr. 500. Dauði Baldurs og draugar í fornum sögum ÁRIÐ 1951 varð ÍA fyrst félaga utan Reykjavíkur til að vinna Íslands- meistaratitil í meistaraflokki karla í knattspyrnu. Í sumar eru 50 ár frá þessum tímamótum í íþróttasögu Akraness og hefur því verið ákveðið að efna til fagnaðar sunnudaginn 29. júlí nk. til þess að minnast þessa at- burðar. Dagskráin verður eftirfarandi: kl. 16 látinna félaga minnst í Akra- neskirkju, kl. 17 dagskrá í tilefni dagsins í sal Grundaskóla, kl. 20 Símadeildin ÍA-KR. „Heiðursgestir dagsins eru leik- menn ÍA árið 1951 og konur þeirra. Öllum íbúum Akraness og aðdá- endum Gullaldarliðsins er boðið að taka þátt í dagskránni og eldri knatt- spyrnumenn og stjórnarmenn í íþróttahreyfingunni á Akranesi eru hvattir til að koma,“ segir í frétta- tilkynningu. Hálf öld frá því ÍA varð fyrst Íslandsmeistari Í DAG verður Tröllakeppnin í fjalla- hjólreiðum haldin í Mosfellsbæ og nágrenni. Vegalengdin sem hjóluð verður er u.þ.b. 40 km. Lagt verður af stað frá Íþróttamiðstöðinni á Varmá kl. 11 og hefst skráning kl. 10 og er skráningargjald kr. 700. „Leiðin er mjög fjölbreytt og mátulega krefjandi. Hjólað er á malbiki, malarvegum og -slóðum, reið- og skógarstígum, jafnframt sem að hjólað er yfir þrjár árspræn- ur. Keppt verður í þremur flokkum, A-flokki karla, kvennaflokki og B- flokki. Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sæti í hverjum flokki, auk þess verða úrdráttarverðlaun. Keppnin er haldin af Trölla- klúbbnum, sem samanstendur af áhugafólki um fjallahjólreiðar,“ seg- ir í fréttatilkynningu. Tröllakeppni í fjallahjólreiðum ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.