Morgunblaðið - 28.07.2001, Qupperneq 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ENGIN gögn er að finna í skjala-
safni menntamálaráðuneytisins um
athugasemdir Framkvæmdasýslu
ríkisins og nefndarmanna bygg-
inganefndar Þjóðleikhússins við
störf formanns nefndarinnar, Árna
Johnsen, né minnispunktar ráðu-
neytisins vegna þeirra. Þetta kem-
ur fram í svari menntamálaráðu-
neytisins til Morgunblaðsins sem
óskaði eftir aðgangi að þessum
gögnum.
Óskað var eftir þessum upplýs-
ingum m.a. í kjölfar ummæla Öss-
urar Skarphéðinssonar, formanns
Samfylkingarinnar, um að rétt væri
fyrir ráðuneytið að birta alla minn-
ispunkta um mál Árna þar sem at-
hugasemdir hefðu borist frá Óskari
Valdimarssyni, forstjóra Fram-
kvæmdasýslunnar, og þeim sem
voru með Árna í byggingarnefnd-
inni, þ.e. Stefáni Baldurssyni þjóð-
leikhússtjóra og Steindóri heitnum
Guðmundssyni, fyrrum forstjóra
Framkvæmdasýslunnar.
Í svarbréfi ráðuneytisins segir:
„Það upplýsist hér með að í skjala-
safni menntamálaráðuneytisins er
ekki að finna nein gögn er innihalda
upplýsingar sem óskað er eftir.“
Ráðuneytið
segir engin
gögn vera
til staðar
Athugasemdir til
byggingarnefndar
Þjóðleikhússins
ALMENNUR bændafundur sem
haldinn var á Egilsstöðum í fyrra-
kvöld, hafnaði algjörlega ákvörðun
Goða hf. um verð fyrir afurðir í haust
og greiðslutilhögun ásamt slátrun.
Fundurinn samþykkti einnig álykt-
un þar sem hvatt er til stofnunar
félags, sem standi fyrir eða hafa
milligöngu um slátrun á Austurlandi
og sölu afurða.
Sem kunnugt er hefur Goði hf. lok-
að sláturhúsinu Egilsstöðum, en það
var eina stórgripasláturhús fjórð-
ungsins. Í haust verður fé slátrað á
Fossvöllum í Jökulsárhlíð og á
Hornafirði og býður Goði sauðfjár-
bændum eystra verð sem er 15%
undir viðmiðunarverði fyrir kjöt í 1.
flokki, en 25% undir viðmiðunarverði
fyrir 2. og 3. flokk. Það er 8% lægra
en í fyrra. Goði segist ekki geta
greitt fyrir kjötið á þessu ári, en
greiðsla komi í janúar og október
2002.
Um 120 þúsund dilkar eru umfram
það sem fer í sláturhús þeirra aðila
sem standa utan við Goða í hefð-
bundinni sláturtíð. Forsvarsmenn
Goða setja fram sem möguleika að
taka slátrunina í verktöku og vilja fá
100 milljónir króna fyrir leigu á slát-
urhúsunum á Fossvöllum, Horna-
firði og Hvammstanga og að Lands-
samband sauðfjárbænda standi fyrir
hönd bænda að þeim samningi.
Aðalsteinn Jónsson, formaður
Landssambandsins, sagði á fundin-
um að bændum væri stillt upp við
vegg andspænis óraunhæfum kost-
um. Þegar mönnum væri boðið upp á
slíkt væri ekki um neitt að ræða.
„Það liggur á borðinu,“ sagði Aðal-
steinn, „að aðrir sláturleyfishafar
ætla að borga fyrir afurðir með svip-
uðum hætti og síðasta haust og taka
nokkurn veginn hækkun á vísitölu
neysluverðs inn í sína verðskrá. Ef
samtök bænda færu að ganga að
þessum tillögum Goða hf., væri verið
að búa til tvær stéttir framleiðenda í
landinu. Ef einhver ímyndar sér að
samtök sauðfjárbænda geti staðið að
slíkum gjörningi, þá er það meiri-
háttar skekkja í hugsun.“
Goði rúinn trausti
Yfir tvö hundruð manns sóttu
bændafundinn og var einróma
ákveðið að stofna undirbúningsfélag
að sláturfélagi, sem standi fyrir eða
hafi milligöngu um slátrun á Austur-
landi og sölu afurða. Áhrifasvæði
félagsins verður hið sama og Kaup-
félags Héraðsbúa. Reynt verður að
ná samkomulagi um að leigja Foss-
vallasláturhúsið af Goða, en ekki er
ljóst hvernig það verður gert eða
hvort það er yfir höfuð hægt.
Fundurinn samþykkti eftirfar-
andi: „Bændur á þjónustusvæði slát-
urhúsanna á Fossvöllum og Breið-
dalsvík eru reiðubúnir til þátttöku í
slíku félagi ásamt KHB, sveitar-
félögum á þjónustusvæðinu,
Byggðastofnun og hugsanlega fleiri
aðilum. Fundurinn getur á engan
hátt sætt sig við að Goði hf., sem sótt
hefur um greiðslustöðvun, haldi slát-
urhúsum á svæðinu í gíslingu og tel-
ur allar hugmyndir fyrirtækisins um
slátrun á þess vegum með öllu
óraunhæfar. Fyrirtækið er rúið
trausti bænda og starfsfólks í slát-
urhúsum og þess ekki um komið að
taka að sér verkefnið. Þá hlýtur sú
spurning að vakna, hvort réttlætan-
legt sé að fyrirtæki í greiðslustöðvun
stofni til jafn umsvifamikils rekstrar
og fjárskuldbindinga og fylgir slátr-
un og afurðasölu.“
Fram kom að Landsbanki Íslands
myndi hugsanlega leggjast á árar
með bændum í þessu verkefni. Þá
var rætt um að 2,5% af verði þeirra
afurða, sem bændur leggðu inn hjá
félaginu á komandi hausti yrðu lögð
inn á stofnsjóð þess. Undanskilið
stofnsjóðsframlagi yrði þó verðmæti
þess kjöts sem er útflutningsskylt.
Áður en slátrun hefst væri tryggt að
80% af verði þessara afurða yrði
greitt til framleiðenda fyrir næstu
áramót og að fullu greitt fyrir febrú-
arlok 2002. Stefnt yrði að því að
greiða 40% af áætluðu verði fyrir út-
flutning í desember nk.
Á fundinum komu fram efasemdir
um eignarhald Goða á sláturhúsum
eystra og því varpað fram hvort ekki
mætti rifta samningum um sölu
þeirra, þar sem þau væru ógreidd og
afsal hefði ekki verið gefið út ennþá.
Þannig mætti taka húsin upp í skuld
Goða við Kaupfélag Héraðsbúa, en
hún er nú á annað hundrað milljóna.
Hörð gagnrýni kom fram á stjórn og
framkvæmdastjóra Kaupfélags Hér-
aðsbúa, fyrir að hafa samþykkt að
sameina sláturhúsið Goða þrátt fyrir
ítrekaðar viðvaranir um stöðu Goða.
Þuríður Backmann, þingmaður
VG á Austurlandi, sagði landbúnað-
arnefnd Alþingis telja að málið væri
ekki inni á sínu borði að svo stöddu.
Bændur á Austurlandi undirbúa stofnun slátrunar- og afurðasölufélags
Segja Goða halda slát-
urhúsum í gíslingu
Egilsstaðir
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Þungt var í bændum á fundinum. Í ræðustól er Aðalsteinn Jónsson, for-
maður Landssambands sauðfjárbænda.
Í TILLÖGUM áhugahóps um vernd-
un Þjórsárvera felst að friðland við
Þjórsárver yrði stækkað allverulega,
en samkvæmt tillögunum myndi allt
það landsvæði sem færi undir vatn
vegna Norðlingaöldulóns liggja inn-
an friðlands.
Sigþrúður Jónsdóttir náttúru-
fræðingur er í forsvari fyrir áhuga-
hóp um verndun Þjórsárvera og seg-
ir hún að svæðið utan friðlands
Þjórsárvera hafi lítið verið skoðað
með tilliti til náttúrufars. Hins vegar
sé full ástæða til að meta það ásamt
friðlandinu í heild á eigin forsendum
og út frá fleiri þáttum en til orkuöfl-
unar.
„Við sendum tillögurnar til Nátt-
úruverndar ríkisins og þeir senda
þetta svo áfram til umsagnar. Okkar
afstaða er alveg skýr, við viljum ekk-
ert lón og ekkert rask á þessu svæði
og teljum að engin málamiðlun komi
til greina,“ segir Sigþrúður.
Tillögur um verndun Þjórsárvera
Allt lónið verði
innan friðlandsins
!
"# $ %$&
'
FJÁRMAGNSKOSTNAÐUR
Reykjavíkurborgar, kostnaður vegna
vaxta, verðbóta og gengismismunar,
var rúmlega 2.812 milljónir króna árið
2000. Júlíus Vífill Ingvarsson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir há-
alvarlegt hversu mikið fjármagns-
kostnaður borgarinnar hafi hækkað á
undanförnum árum.
Afleiðing af skuldasöfnun
borgarinnar
„Ég fór þess á leit við fjármáladeild
borgarinnar að tekið yrði saman hver
fjármagnskostnaður og þróun fjár-
magnskostnaðar hefði verið í Reykja-
vík undanfarin ár. Árið 1995, sem er
fyrsta samfellda ár R-listans hér í
Reykjavík, var fjármagnskostnaður
borgarinnar rúmlega 860 milljónir, en
nú er hann orðinn rúmlega 2,8 millj-
arðar. Þetta eru fjármunir sem fara
út um gluggann og eru upphæðir sem
rekja má beint til skuldasöfnunar
Reykjavíkurborgar,“ segir Júlíus Víf-
ill.
Hann segist munu fara fram á það í
Borgarráði að fjármáladeild borgar-
innar verði gert að gera áætlun um
það á þessu ári, hvert fjármagns-
kostnaður borgarinnar stefnir og seg-
ir viðbúið að sú tala verði mjög há.
„Ég held að það sé rétt að menn
átti sig á því, að skuldasöfnun borg-
arinnar leiðir til þess fjármagns-
kostnaðar sem við erum að horfa upp
á núna. Þetta er kostnaður sem kem-
ur aldrei til baka, er engum til góða og
er það sem menn kalla gjarnan blóð-
peninga,“ segir Júlíus Vífill, en til
samanburðar megi nefna að fyrir um-
rædda fjárhæð væri hægt að reka alla
leikskóla borgarinnar og eiga 400
milljónir í afgang.
Rúmlega 2,8 millj-
arðar árið 2000
Fjármagnskostnaður Reykjavík-
urborgar hækkar verulega
EKKI hefur verið tekin ákvörðun
um hvort lögð verður fram kæra á
hendur manni sem uppvís varð að
því að henda slógi í fjöruborðið í
Skarðsvík í þjóðgarðinum Snæfells-
jökli. Helgi Helgason, framkvæmda-
stjóri Heilbrigðiseftirlits Vestur-
landssvæðis, segist fyrst og fremst
hafa leitað eftir lögregluaðstoð með-
an ekki var ljóst hver hafði framið
verknaðinn, en í fyrradag hafi hann
komist að hver var þarna að verki og
haft af honum tal.
„Það var aðili sem hefur verið að
slægja fisk í Snæfellsbæ sem setti
þetta þarna niður,“ sagði hann.
Hefur áður séð slóg í Skarðsvík
„Þarna er gamalt haugastæði og
meðan sá hugsanagangur var við lýði
að sjórinn tæki við öllu fóru menn
þarna út eftir á vörubílum og
sturtuðu í sjóinn. Þetta var svo tekið
fyrir á níunda áratugnum en þá var
farið að brenna og grafa rusl á svip-
uðum slóðum,“ sagði hann. Helgi
segist áður hafa orðið var við að slógi
væri hent í víkina og hefur rætt við
fiskverkendur á svæðinu um það.
„Þessi ákveðni aðili er ekki með
starfsleyfi en hann hefur fengið fyr-
irmæli um að sækja um á grundvelli
reglugerðar um atvinnurekstur sem
haft getur mengun í för með sér. Þá
verður þetta sett í starfsleyfið varð-
andi förgun á úrgangi frá svona
starfsemi.“
Helgi segist hafa gert manninum,
sem ekki sé kunnugur staðháttum,
grein fyrir brotinu en eigi eftir að
ræða frekar við lögreglu. Í framhaldi
af því verði svo tekin ákvörðun um
hvort tilefni sé til ákæru. „En hann
fær að minnsta kosti kröftuga
áminningu,“ sagði Helgi.
Ólafur Kristján Ólafsson, sýslu-
maður í Stykkishólmi, staðfesti að
lögreglan á Snæfellsnesi myndi ann-
ast rannsókn málsins en hún væri
ekki hafin, enda ætti lögregla eftir að
fá afhent frekari gögn frá heilbrigð-
iseftirliti.
Úrgangi fargað í nýja þjóðgarðinum
Slógi hent í fjöru
ÞESSIR ábúðarfullu lögreglumenn
fylgjast hér með ökumanni taka
dökka filmu úr framrúðu bifreiðar
sinnar. Ökumaðurinn hefur vænt-
anlega fengið fyrirmæli um að fjar-
lægja filmuna frá laganna vörðum
en samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Reykjavík er ekki leyfi-
legt að hafa slíkar filmur í fremri
hliðarrúðum bifreiða. Filmurnar
eru taldar byrgja ökumönnum sýn.
Vilji ökumenn hafa litaðar rúður
verða þeir að kaupa til þess sértak-
lega viðurkenndar rúður.
Filmurnar úr,
takk fyrir
Morgunblaðið/Tobías Sveinbjörnsson