Morgunblaðið - 28.07.2001, Blaðsíða 16
ÚR VERINU
16 LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HOFFEL SU er komið til heima-
hafnar á Fáskrúðsfirði eftir miklar
breytingar í Póllandi. Breytingarnar
kosta alls um 270 milljónir króna og
tóku þær um sex og hálfan mánuð.
„Þetta tók mun lengri tíma en áætlað
var, en að öðru leyti eru við mjög
ánægðir með breytingarnar,“ segir
Eiríkur Ólafsson, útgerðarstjóri
Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga, sem á
skipið.
Skipið var lengt um átta metra og
afluthluti þess var hækkaður um
einn metra. Þá var hvalbakur lengd-
ur og settur veltitankur. Allar yfir-
byggingar eru nýjar, það er stýris-
hús og íbúðir þar undir. Þá voru allar
aðrar vistarverur, íbúðir, eldhús og
fleira, endurnýjaðar.
Einnig var nótabúnaður settur á
skipið með nýrri kraftblökk og til-
heyrandi og flottrollstromlur eru nú
tvær í stað einnar. Skipið var sand-
blásið hátt og lágt og málað og kæli-
kerfi í lestum lagfært. Loks var spil-
kerfi lagt upp á nýtt með sömu
spilum, en nýjum dælubúnaði. Þá
var bætt við tæki í brú.
Lestar mældust 1.150 rúmmetrar
fyrir breytingu en eru nú 1.600, sem
þýðir að skipið ber um 1.550 tonn af
ókældum fiski, en um 1.100 til 1.200
af sjókældum fiski. Breytingarnar
kostuðu um 270 milljónir og þar var
hlutur Pólverjanna um 220 milljónir.
Skipstjóri á Hoffelli er Bergur
Einarsson og yfirvélstjóri Unnsteinn
Halldórsson. Stefnt er að því að skip-
ið fari á kolmunnaveiðar í næstu
viku.
Hoffell SU komið til heimahafnar á Fáskrúðsfirði eftir breytingar í
Póllandi. Í baksýn er fjallið Hoffell, sem skipið er nefnt eftir.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Bergur Einarsson, skipstjóri í brúnni á breyttu Hoffelli.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Hoffell SU heim
eftir breytingar
ÁÆTLAÐAR beinar tekjur af ferða-
mönnum vegna hvalaskoðunar á Ís-
landi í fyrra námu allt að 660 millj-
ónum króna en talið er að hvalveiðar
myndu skila að minnsta kosti tveim-
ur milljörðum í útflutningstekjur á
ári.
Ásbjörn Björgvinsson, forstöðu-
maður Hvalamiðstöðvarinnar á
Húsavík, segir að 25% aukning hafi
orðið á fjölda gesta í hvalaskoðunar-
ferðum milli áranna 1999 og 2000.
35.250 manns hafi farið í hvalaskoð-
unarferðir hér við land fyrra árið en
44.000 í fyrra. Hann segir að ætla
megi að beinar tekjur ferðaþjónust-
unnar af hvalaskoðunarferðum hafi
numið allt að 660 milljónum króna á
liðnu ári, en tekjurnar skiptist á milli
fyrirtækja eins og flugfélaga, rútu-
fyrirtækja, bílaleiga, hótela, gisti-
heimila, veitingahúsa, hvalaskoðun-
arfyrirtækja og annarra fyrirtækja
sem með einum eða öðrum hætti
komi beint að þjónustu við þessa
ferðamenn. Þegar horft sé til marg-
feldisáhrifa beinna tekna af ferða-
þjónustunni megi áætla að heildar-
velta vegna hvalaskoðunarferða-
mennsku nemi 1.075.800.000 kr. eða
tæplega 1,1 milljarði og er þá gert
ráð fyrir margfeldisstuðlinum 1,63
fyrir beina veltu.
Meira en tveir milljarðar
Jón Gunnarsson, formaður Sjáv-
arnytja, segir að reikna megi með að
sambærilegar hvalveiðar og Íslend-
ingar stunduðu gæfu af sér að
minnsta kosti tvo milljarða í beinar
útflutningstekjur og þær sköpuðu
auk þess um 200 ársstörf. Upphæðin
miðist við verðið eins og það var þeg-
ar hvalveiðar voru heimilaðar, en
rætt sé um að verðið nú sé miklu
hærra, þótt gera megi því skóna að
það lækki með meira framboði.
Engu að síður vilji margir halda því
fram að tekjurnar yrðu mun hærri
en umræddir tveir milljarðar.
Tilraunum með DNA-próf á hval-
kjöti og -rengi er lokið og er nú fátt
því til fyrirstöðu að Norðmenn hefji
útflutning á hvorutveggja. Jón segir
að gera megi ráð fyrir að Norðmenn
afgreiði hrefnukjöt til Japans síð-
sumars eða í haust og þar sé talað
um mjög háar fjárhæðir.
Hvalveiðar og hvalaskoðun
Miklir möguleikar
VIÐSKIPTI
ÖRYGGISMIÐSTÖÐ Íslands hf.,
sem í vor sameinaðist Vörutækni
ehf. og Eldverki ehf., flytur nú um
helgina starfsemi sína í Borgartún
31. Starfsmenn Öryggismiðstöðvar
Íslands eru nú um 85 talsins og gera
rekstraráætlanir ráð fyrir að velta
fyrirtækisins verði 650 milljónir á
þessu ári. Eftir sameininguna í vor
er Öryggismiðstöð Íslands annað af
tveimur langstærstu fyrirtækjum
landsins á sviði öryggismála.
Samkvæmt upplýsingum frá
Öryggismiðstöð Íslands er styrkur
fyrirtækisins sú alhliða þjónusta sem
það veitir og hin mikla samanlagða
reynsla sem bjó í fyrirtækjunum
þremur sem í vor sameinuðust.
Öryggismiðstöð Íslands býður við-
skiptavinum sínum myndavélaeft-
irlit, fjarskoðun, öryggiskerfi, að-
gangsstýrikerfi, öryggisgæslu, bæði
farandgæslu og staðbundna gæslu,
brunaviðvörunarkerfi, þjófavarna-
hlið, slökkvikerfi, handslökkvitæki
og margs konar vörur og þjónustu á
sviði eld- og vatnsvarna. Fyrirtækið
er jafnframt hið eina á landinu sem
rekur eigin öryggismiðstöð með
mannaðri gæslu allan sólarhringinn.
Öryggismiðstöð Íslands flytur starfsemi sína í Borgartún 31.
Öryggismiðstöð Íslands flytur í Borgartún
Áætluð velta fyrirtækis-
ins um 650 milljónir
FARÞEGUM hefur fjölgað um 2,5%
í millilandaflugi Flugleiða fyrstu sex
mánuði ársins og voru þeir rúmlega
669 þúsund á tímabilinu. Í frétt frá
Flugleiðum kemur fram að þar mun-
ar mest um 5,0% fjölgun farþega á
leið um Ísland yfir Norður-Atlants-
hafið, en farþegafjöldi til og frá Ís-
landi var svipaður miðað við sama
tíma í fyrra.
Sætanýting á þessu tímabili hefur
aukist um 3,2 prósentustig, hefur
verið 71% fyrstu sex mánuði þessa
árs, en var 67,8% sömu sex mánuði á
árinu 2000. Sætaframboð hefur verið
um 1,5% minna í ár en á síðasta ári,
en salan hefur aukist um rúmlega
3%.
Farþegum í millilandaflugi Flug-
leiða fækkaði um 2,9% í júní frá júní
á síðasta ári. Þeir voru 152.976 nú en
157.562 í júní 2000. Farþegum sem
áttu erindi til Íslands eða frá Íslandi
fækkaði um 5,1%, en þeim sem fljúga
yfir Norður-Atlantshafið um Ísland
fækkaði um 0,4%. Farþegum á við-
skiptafarrými fækkaði um 6,9% og á
almennu farrými um 2,6%.
Í júní jókst sætaframboð Flug-
leiða um 2,3% en salan minnkaði um
1,7%, sem leiddi til þess að sætanýt-
ing var í mánuðinum rúmlega þrem-
ur prósentustigum verri en í júní í
fyrra. Hún var 79,3% í júní í ár, en
82,5% á síðasta ári.
Frá áramótum til júníloka varð
hinsvegar 10,8% samdráttur í far-
þegafjölda hjá Flugfélagi Íslands,
dótturfélagi Flugleiða, frá árinu á
undan, en 0,3% aukning hjá Flug-
leiðum-Frakt. Farþegum í innan-
landsflugi fækkaði í júnímánuði um
22,7%, úr rúmlega 39 þúsundum í
rúmlega 30 þúsund. Þá fækkaði
fluttum tonnum hjá Flugleiðum-
Frakt um 6,7%.
Fjölgun farþega í milli-
landaflugi Flugleiða
JAMES Archer, syni Jeffreys Arch-
er lávarðar sem dæmdur hefur verið
fyrir meinsæri, hefur verið meinað
að vinna í fjármálahverfi Lundúna,
City.
James og tveir starfsfélagar hans,
David Crisanti og Adrian Ezra, voru
fundnir sekir um markaðsmisnotk-
un í starfi sínu hjá fjárfestingar-
bankanum Credit Suisse First
Boston. Árið 1999 játaði James
Archer markaðsmisnotkun og var
honum stuttu seinna sagt upp störf-
um ásamt félögum sínum tveimur.
Um var að ræða hlutabréf í
sænska fyrirtækinu Stora. Síðustu
dagana í desember 1998 þrýsti Jam-
es Archer gengi hlutabréfanna nið-
ur með því að selja mikinn fjölda
bréfa en leggja einnig inn pöntun
hjá verðbréfamiðlara í Svíþjóð um
farsíma svo að erfiðara yrði að rekja
málið til hans. Strax í kjölfar við-
skipta Archer lækkaði gengi bréf-
anna úr 90 sænskum krónum í 60.
James og félagar hans tveir voru
undir eftirliti í tvö ár og hafa nú allir
verið útilokaðir frá vinnu í City. All-
ir þrír voru fundnir sekir um að
blekkja starfsmenn sænsku kaup-
hallarinnar og CSFB.
Syni Jeffreys
Archer vísað
frá City
HEILDARSALA Debenhams á
tímabilinu 25. febrúar til 21. júlí
var 8,7% meiri en á sama tímabili á
síðasta ári. Munar þar mestu um
aukningu í sölu fatnaðar og hús-
búnaðar en verslunin er deildar-
verslun sem selur fatnað, fylgi-
hluti, heimilisvörur og snyrtivörur.
Belinda Earl, forstjóri Deben-
hams, er hæstánægð með góða af-
komu fyrirtækisins. Hún segir að
fyrirtækið hafi laðað að nýja við-
skiptavini með áherslu á eigin
vörumerki og aukið þannig mark-
aðshlutdeild sína. Marks & Spenc-
er, helsti keppinautur Debenhams
í Bretlandi, hefur ekki aukið við sig
að undanförnu en sala M & S dróst
saman um 3,4% á tímabilinu 1.
apríl til 7. júlí. Markaðshlutdeild
Debenhams hefur aukist mikið síð-
an í fyrra og er nú um 13%. M & S
hefur þó enn stærri markaðshlut-
deild þrátt fyrir minnkandi sölu.
Debenhams á Íslandi í haust
Debenhams áformar að opna
átta nýjar verslanir í Bretlandi á
næstu þremur árum. Auk þess
verða opnaðar verslanir í Stokk-
hólmi, Saudi-Arabíu og í Samein-
uðu arabísku furstadæmunum. Þá
opnar Baugur Debenhamsverslun
hér á Íslandi í haust, í verslunar-
miðstöðinni Smáralind, Kópavogi.
Baugur er rekstraraðili Deben-
hams á Norðurlöndunum og
áformar einnig að opna verslun í
Stokkhólmi haustið 2002.
Debenhams eyk-
ur sölu um 8,7 %
UNDIRRITUÐ hefur verið vilja-
yfirlýsing þess efnis að Húsasmiðjan
hf. kaupi Áltak ehf., sem er leiðandi í
sölu á byggingarhlutum á áli með
sérstaka áherslu á utanhússfrágang.
Í tilkynningu frá Húsasmiðjunni
kemur fram að Áltak hafi verið í ör-
um vexti undanfarin ár og gera áætl-
anir ráð fyrir að velta þess á árinu
verði um 260 milljónir. Niðurstöðu
um málið er að vænta fyrir 15. sept-
ember.
Húsasmiðjan
kaupir Áltak
♦ ♦ ♦