Morgunblaðið - 28.07.2001, Side 18
NEYTENDUR
18 LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
UNDANFARIÐ hefur borið tals-
vert á því að auglýstur sé óáfengur
bjór. Þær tegundir sem hafa verið
áberandi eru meðal annarra
Grolsch, Fosters og Dab en þær
hafa þær verið ófáanlegar í versl-
unum að undanförnu. Samkeppnis-
stofnun rannsakar nú málið og hefur
leitað eftir skýringum frá innflytj-
endum.
Anna Birna Halldórsdóttir, for-
stöðumaður markaðsmálasviðs hjá
Samkeppnisstofnun, segir ljóst sam-
kvæmt samkeppnislögum að ekki sé
heimilt að auglýsa óáfengan bjór
nema hann standi neytendum til
boða í verslunum. Sé hann ekki til
sölu í neinni verslun er um að ræða
villandi auglýsingu sem er brot á
samkeppnislögum. „Ef ekki er hægt
að sýna fram á að þeir séu að selja
vöruna er hægt að stoppa birtingu
auglýsingarinnar. Ég get ekki séð að
það breyti neinu þótt varan standi
inni á lager hjá þeim, hún verður að
standa neytendum til boða.“
Þarf þá varan að vera til sölu í ein-
hverri verslun til að þessar auglýs-
ingar standist samkeppnislög?
„Auglýsinganefnd, sem er ráð-
gjafarnefnd samkeppnisráðs, taldi í
öðru máli að vara yrði að standa
neytendum til boða þegar auglýsing
er birt, að öðrum kosti er auglýs-
ingin villandi.“
Hægt að kaupa útrunninn
Dab hjá innflytjanda
Tegundirnar Léttur Fosters og
Léttur Dab hafa verið auglýstar
talsvert undanfarið. Hvar er hægt
að fá þessa vöru?
„Þú getur fengið Dab hjá okkur
en hann er sennilega útrunninn því
það er enginn sem hefur beðið um
hann,“ segir Jón Páll Haraldsson
sölustjóri Austurbakka. „Við tókum
inn 10–15 kassa til að eiga þegar við
fórum að auglýsa og það hefur eng-
inn beðið um hann. Þess vegna höf-
um við ekki pantað inn Léttan Fost-
ers enn þá og gerum ekki fyrr en
einhver vill kaupa hann af okkur.“
Eru þessar tegundir hvergi í sölu
hjá verslunum eða veitingahúsum?
„Nei, en þær eru fáanlegar hjá okk-
ur.“ Finnst ykkur ekki óeðlilegt að
vera að auglýsa þessa vöru svona
mikið ef þið seljið ekki neitt af
henni? „Nei, ég væri alveg til í að
selja mikið af óáfengum bjór en við-
skiptavinurinn verður að ráða því.“
Jón Páll bætir við að þeir hafi áður
reynt að markaðssetja aðrar teg-
undir óáfengs bjórs án árangurs.
„Það vill enginn þennan óáfenga
bjór, Íslendingar virðast ekki enn þá
vera tilbúnir til að kaupa þessar teg-
undir.
Í hvaða tilgangi er verið að aug-
lýsa þennan bjór? „Við erum að aug-
lýsa merkið þarna og það má túlka
það hvernig sem menn vilja, auðvit-
að hefur það áhrif á áfenga bjórinn
líka.“ Er þá ekki verið að fara í
kringum lögin? „Nei, það er ekki
verið að fara í kringum þau, lögin
eru svona, þetta er það sem við meg-
um gera. Lögin eru svo náttúrulega
meingölluð og í sjálfu sér út í hött.“
Verslanir sýna ekki áhuga
Að undanförnu hafa auglýsingar
fyrir óáfengan Grolsch sést víða.
Hvar er hægt að kaupa óáfengan
Grolsch?
„Þú getur fengið hann hjá okkur,
en hann er ekki seldur í neinum
verslunum eins og er,“ segir Eyjólf-
ur Lárusson, sölustjóri veitingasviðs
hjá Ölgerðinni.
Hafa einhverjar verslanir verið
með hann?
„Nei, en menn geta fengið hann
hjá okkur ef þeir hafa áhuga, sem
hefur ekki gerst hingað til. En hann
er til á okkar lager í einhverju
magni.“ Aðspurður um hvort von sé
á því að óáfengur Grolsch fáist í
verslunum á næstunni segir Eyjólf-
ur: „Það er vonandi að það verði, við
erum alltaf að reyna að koma út nýj-
um vörum.“ Hann segist ekki geta
tilgreint ákveðnar verslanir sem
verið sé að semja við.
En finnst Eyjólfi ekki óeðlilegt að
auglýsa þennan óáfenga bjór svona
mikið ef hann er hvergi í sölu? „Það
er verið að vinna í að koma honum í
sölu.“
Er ekki með þessu verið að aug-
lýsa áfengan bjór? „Nei, alls ekki.
Það er ekki okkar skilningur.“ Nú
eru flöskurnar sem þið eigið til á lag-
er ekki með smellutappa eins og þær
sem hafa verið auglýstar, hvernig
stendur á þessu?
„Við höfum átt þetta líka með
smellutappa en varan er uppseld í
augnablikinu,“ segir Eyjólfur.
Teljast ekki vera
áfengisauglýsingar
Samkvæmt lögum er óheimilt að
auglýsa áfengi. Auglýsingar sem
hafa sést undanfarið þar sem aug-
lýstur er óáfengur bjór þykja mjög
tvíræðar, sérstaklega þegar litið er
til þess að óáfengi bjórinn er lítið
sem ekkert í sölu og því lítill til-
gangur í að auglýsa hann.
Snorri Sigurjónsson, lögreglu-
fulltrúi í áfengis- og vopnalagadeild
hjá ríkislögreglustjóra, segir þó erf-
itt að stöðva auglýsingarnar. „Þetta
myndi sennilega sleppa, því miður.
Þetta er auðvitað tvískinnungur og
eitthvað sem við erum ósáttir við.“
Starfshópur fjallar nú um viðbrögð
lögreglu við áfengisauglýsingum og
er niðurstöðu hans að vænta á haust-
dögum. Snorri telur núverandi regl-
ur þarfnast úrbóta og segir þær
meiga vera skýrari og ótvíræðari.
En má þá búast við því að ríkislög-
reglustjóri aðhafist eitthvað varð-
andi nýjasta dæmið af auglýsingum
þar sem óáfengur Grolsch er sýnd-
ur? „Mér finnst það afar ólíklegt.
Þetta er merkt sem áfengislaus bjór
og því ekki hægt að stöðva þetta en
það vita allir hvað verið er að aug-
lýsa.“
Samkeppnisstofnun athugar auglýsingar á óáfengum bjór
Sumar tegundir ófáan-
legar í verslunum
Óáfengur bjór hefur
verið auglýstur mikið
undanfarið. Brjánn Jón-
asson kynnti sér málið
og komst að því að í ein-
hverjum tilvikum er
ekki hægt að fá óáfenga
útgáfu drykkjanna í
verslunum.
Morgunblaðið/Arnaldur
Óáfengur Grolsch á lager Ölgerðarinnar. Athygli vekur að dósirnar eru
merktar á arabísku og flöskurnar eru ekki þær sömu og eru auglýstar.
brjann@mbl.is
DVD-diskar ekki
alltaf til leigu
Hvers vegna fást ekki DVD-
diskar í stórum myndbandaleigum
eins og Bónus-leigunum?
Þóroddur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Bónusvídeó, Vídeó-
hallarinnar og Toppmynda, segir
DVD-diska fást á sumum leigum og
segir sérlega gott úrval í Vídeóhöll-
inni, en þar séu yfir 1.000 diskar.
Hins vegar segir Þóroddur það mis-
munandi eftir leigum hvort DVD-
diskar fáist í Bónusvídeó.
Af hverju fást þeir ekki þar, er
þetta ekki framtíðin?
„DVD-diskar eru lítill hluti af
markaðnum. Ég held að þetta sé
frekar í framtíðinni í sölu, ekki
leigu. Það er einfaldlega svo auðvelt
að skemma diskana, rétt eins og ef
spólurnar væru ekki í boxum. Það
er talsvert um það að fólkið rispi
diska til að fá annan ókeypis. Disk-
arnir eru ekki framleiddir hérlendis
og þess vegna fáum við ekki annan í
staðinn fyrir þann skemmda.
Þetta kerfi hefur ekki komið vel
út hérna. Það kemur of lítið af
myndum á DVD, í hverjum mánuði
koma um 45 ný myndbönd, þar af
þrjú sem einnig koma á DVD.“
Hvernig stendur þetta undir sér í
Vídeóhöllinni?
„Það er svo stór leiga, þangað
kemur fólk alls staðar að úr bænum
svo það hefur gengið ágætlega þar.
Annars staðar hefur þetta gengið
afleitlega. Þetta er í gangi á sumum
stöðum en stendur engan veginn
undir kostnaði. Nú hafa DVD-
diskar verið á leigunum í eitt til tvö
ár og það er ekki enn farið að skila
hagnaði. Ástæðan gæti verið sú að
það eru of fáar myndir sem koma út
á DVD svo myndir sem fólk vill sjá
koma ekki hingað til lands.“
Spurt og svarað um neytendamál
Gasbrennarar brenna illgresi
Ný tegund illgresisbrennara er
komin á markað hérlendis. Brennar-
arnir eru ekki með opnum loga eins
og hefur tíðkast heldur keramikplötu
yfir brennaranum sem svíður illgres-
ið með innrauðum geisla við 1000° C.
Brennararnir fást í Garðheimum.
Nýtt
ERLENT
Atlantshafsbandalagið
Vilja minni við-
búnað í Noregi
ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ
(NATO) telur ástæðulaust að halda
lengur úti sérstökum liðsafla sem
ætlað er að að efla varnir Noregs á
spennu- eða átakatímum. Bjørn
Tore Godal, varnarmálaráðherra
Noregs, kveðst ekki hafa miklar
áhyggjur af áformum þessum.
Að sögn norska ríkisútvarpsins
hafa herforingjar á vegum NATO
skýrt norskum yfirvöldum frá því að
þeir telji að breyta eigi gildandi
áætlunum um varnir Noregs. Hér
ræðir um svonefndar „eyrnamerkt-
ar“ hersveitir, liðsafla sem nefnist á
enskri tungu NATO Composite For-
ces (NCF). Yrði herlið þetta flutt til
landsins norska hernum til aðstoðar
á hættu- eða átakatímum.
Kjell Grandhagen, sem á sæti í
norsku herstjórninni, segir í viðtali
við dagblaðið Aftenposten að innan
NATO sé að finna raddir er haldi því
fram að liðsafli þessi fari ekki saman
við það skipulag varnarviðbúnaðar
sem bandalagið hyggist styðjast við
í framtíðinni. Hann segir að norsk
hermálayfirvöld séu þessu mati ekki
sammála og vinni að því að tryggja
að slíkt herlið verði áfram til taks.
Vilja loka birgðastöðvum
Að sögn Aftenposten vilja ráða-
menn innan NATO jafnframt leggja
niður birgðastöðvar í Noregi. Í þeim
er að finna hergögn og tækjabúnað
sem notaður yrði til varnar Noregi
yrði landið fyrir árás. Hafa þær ver-
ið eitt lykilatriðið á sviði norskra ör-
yggis- og varnarmála um langt ára-
bil.
Norska fréttastofan NTB hefur
eftir Godal varnarmálaráðherra að
tíðindi þessi valdi honum ekki telj-
andi áhyggjum. „Hér ræðir um
áætlun sem miðar að því að auka
sveigjanleika og viðbragðsflýti her-
sveita NATO. Mörg ár munu líða
þar til áform þessi verða að veru-
leika.“
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, brá á leik með
starfssystur sinni, Makiko Tan-
aka, utanríkisráðherra Japans, í
Hanoi á fimmtudagskvöld. Söng
Powell gamalt lag um ástsjúkan
kúreka og tók Tanaka undir með
honum. Powell er í ferðalagi um
Suðaustur-Asíu og kom í gær til
Seoul, höfuðborgar Suður-Kóreu.
Í yfirlýsingu ráðherrans um mál-
efni Kóreuskaga segir að hann
vonist til þess að fundur þeirra
Vladímírs Pútín Rússlandsforseta
og Kim Jong-Il, forseta Norður-
Kóreu, hafi jákvæð áhrif á mál-
efni Kóreuríkjanna. Kim Jong-Il
er nú í heimsókn í Rússlandi og
sagðist Powell vona að Pútín
hvetti hann til að hefja á ný við-
ræður við Suður-Kóreu og Banda-
ríkin.
Reuters
Ráðherrar bregða á leik
NÝ RANNSÓKN sýnir að menn
fóru að stunda ofveiði og útrýma
tegundum í hafinu fyrir þúsund-
um ára og varð lífríkið því verr
undir rányrkju nútímans búið en
ella. Skýrt var frá niðurstöðum
rannsóknanna í tímaritinu
Science í gær.
Fyrir um 3.000 árum, löngu fyr-
ir komu Evrópumanna til Amer-
íku, voru innfæddir íbúar álfunnar
farnir að veiða meira af sæskjald-
böku í Karíbahafi en stofnar
þoldu. Einnig var veitt of mikið af
sækúm við strendur Ástralíu og
selum við Alaska.
Evrópumenn fundu
ekki upp rányrkju
„Hugmyndir um að innfæddar
þjóðir hafi farið vel með nánasta
umhverfi sitt eru nú dregnar í
efa,“ sagði Charles Peterson, pró-
fessor í líffræði hafsins við há-
skóla Norður-Karólínu í Banda-
ríkjunum. Hann sagði að niður-
stöðurnar sýndu að maðurinn
hefði haft „ótrúleg“ áhrif á um-
hverfi sitt gegnum tíðina.
Alls tóku 19 vísindamenn þátt í
rannsóknum og fóru þær fram í
fjórum heimsálfum. Voru meðal
annars kannaðar matarleifar í bú-
stöðum fólks í strandhéruðum,
lýsingar landkönnuða á ofgnótt
veiðidýra og fleira. Vísbendingar
eru um að þegar fyrir 10.000 árum
hafi ofveiði og kæruleysi verið far-
in að valda breytingum á lífríki
hafsins. Eitt af því sem veldur því
að myndun þörunga er að kæfa
kórallavöxt í Karíbahafinu er að
grænar sæskjaldbökur, sem var
útrýmt, og fleiri dýr átu þörunga.
Ofveiði í
þúsundir ára
Washington. AP.