Morgunblaðið - 28.07.2001, Síða 28
MINNINGAR
28 LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Guðjón KristinnMatthíasson sjó-
maður fæddist í Vest-
mannaeyjum 30. apr-
íl 1962. Hann lést af
slysförum um borð í
Smáey VE 144 21.
júlí síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Lilja Alexandersdótt-
ir, f. 31.10. 1938, og
Matthías Guðjónsson,
f. 14.8. 1938, d. 19.3.
1984. Börn þeirra
eru: Alexander
Matthíasson, f. 11.6.
1959, Þuríður Ósk
Matthíasdóttir, f. 8.10. 1967, og
Lilja Matthíasdóttir, f. 15.2. 1971.
Um haustið 1983 kynntist Guð-
jón Guðnýju Þóreyju Stefnisdótt-
ur frá Siglufirði, f. 30.5. 1966. Þau
hófu sambúð 1984. Foreldrar
hennar eru Guðný Garðarsdóttir,
f. 17.8. 1936 og Stefnir Guðlaugs-
son, f. 20.7. 1933, d. 6.12. 1980.
Börn þeirra eru:
Steingrímur, f. 12.3.
1952, Garðar Ragn-
ar, f. 1.3. 1954, og
Auðunn Arnar, f.
30.9. 1956. Seinni
maður Guðnýjar er
Ólafur Sæmundsson,
f. 16.7. 1945. Guðjón
og Guðný eignuðust
þrjú börn, Ólaf
Stefni, f. 30.11. 1986,
Anítu, f. 17.9. 1989,
og Agnesi, f. 6.3.
1991.
Guðjón lauk gagn-
fræðaprófi frá
Barnaskóla Vestmannaeyja. Hann
vann við fiskvinnslu sín yngri ár
og fór síðan til sjós á Sighvati
Bjarnasyni VE 81. Árið 1988 hóf
hann störf um borð í Smáey VE
144 og vann þar er hann lést.
Útför Guðjóns fer fram frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum í
dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Elsku vinur og frændi. Nú þurfum
við að kveðja þig í hinsta sinn og það
er sárt, svo óendanlega sárt. Við
þökkum þó fyrir allar góðu samveru-
stundirnar. Ég alveg frá fæðingu, þar
sem við systrasynirnir, fæddir sinn á
hvoru árinu, vorum mikið saman. Öll
bernskubrekin rifjast upp og ekki
vantaði þá hugmyndaflugið í þig, kæri
vinur, og var þá stríðnisglampi í aug-
um og bros á vörum. Þú varst líka
hrakfallabálkur af Guðs náð og fékkst
margar bylturnar og beinbrotin, en
alltaf komstu heill frá þessu þar til í
síðustu byltunni um borð. Við þögð-
um saman, hlógum saman, sungum
saman og alltaf var jafn gaman. Á
Jónsmessunni í fyrra og svo í ár velt-
um við okkur upp úr dögginni og vor-
um klárir á því að við værum lang-
flottastir. Ekki lengur „picnic“ með
þér, þar sem við félagarnir syntum
berrassaðir í sjónum undan Breiða-
bakka eða létum okkur líða um Klauf-
ina í flotgöllum, glápandi upp í him-
ininn yfir Heimaey segjandi allt og
ekkert.
Fullorðnir menn komnir með fjöl-
skyldu og ekki minnkaði samgangur-
inn við það.
Allar ferðir fjölskyldnanna saman,
sameiginlegu fjölskyldukvöldin með
mat og tilheyrandi. „Kasínu“-kvöldin,
aðfangadagskvöldin, gamlárskvöldin,
ættarmótin, þjóðhátíðirnar. Allt eru
þetta ljúfar minningar, þar sem þú
svo broshýr og kátur varst hrókur
alls fagnaðar. Minningarnar eru góð-
ar en þær áttu bara að verða svo
miklu fleiri. Nú vantar mig vin minn,
sem kom við á vinnustað eftir fiski-
túrana og dró mig út úr stressi hvers-
dagsins í stutt spjall, eftir á að hyggja
allt of stutt spjall.
Vér reynum harm að hylja
og hjarta djúpstæð tár,
en það er þungt að skilja
að þú sért orðinn nár.
Þú gekkst frá okkur glaður
með góðleiks bros um kinn
og hugur bar þig hraður
þú hraustur æskumaður,
en þá í síðasta sinn.
En lokað er ei leiðum
það ljómar bak við ský,
á morgunhimni heiðum
rís heilög sól á ný.
Þær innstu vonir ölum
að eftir hinsta blund
vér duft úr jarðar dölum
í drottins himnasölum
þá eigum endurfund.
(J.B.P.)
Við erum þakklát fyrir þann tíma
sem við áttum saman. Við verðum að
trúa því að það sé líf eftir dauðann og
að þú sért á góðum stað, þér líði vel og
takir svo á móti okkur þegar að því
kemur.
Kæri vinur, við gætum Guðnýjar,
Óla, Anítu og Agnesar fyrir þig og
reynum að hjálpa þeim í þeirra miklu
sorg. Okkar innilegustu samúðar-
kveðjur til Dúfu og systkina.
Guð geymi þig, kæri vinur.
Davíð, Aðalheiður og börn.
Gaui Matt, eins og við kölluðum
hann, hafði verið fastur starfsmaður
hjá okkur, á Smáey Ve 144, frá byrjun
árs 1990 en þar áður í nokkra mánuði
GUÐJÓN KRISTINN
MATTHÍASSON
✝ Guðmundur Eyj-ólfsSon fæddist á
Suður-Hvoli í Mýrdal
í V-Skaftafellssýslu
12. nóvember árið
1912. Hann lést á
dvalarheimilinu
Hjallatúni hinn 22.
júlí síðastliðinn. For-
eldrar hans voru Eyj-
ólfur Guðmundsson
bóndi, kennari og rit-
höfundur á Suður-
Hvoli, f. 31.8. 1870 í
Eyjarhólum í Mýrdal,
d. 16.10. 1954, og kona hans Arn-
þrúður Guðjónsdóttir, húsfreyja á
Suðurhvoli, f. 21.12. 1872, d. 3.10.
1962. Systkini hans voru: Anna
Guðmundur stundaði nám við
Flensborgarskóla í Hafnarfirði ár-
in 1930–1932 og var einn vetur við
nám í Samvinnuskólanum. Hann
var við verslunarstörf hjá Kaup-
félagi Árnesinga á Selfossi árin
1941–1945, var við byggingarfélag
á Selfossi árin 1945–1947 og skrif-
stofustjóri hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna árin 1947–1949. Gerðist
bóndi á Suður-Hvoli árið 1950 og
frá árinu 1954 bjó hann félagsbúi
þar ásamt systkinum sínum Önnu
og Sigurði. Ásamt búskapnum sat
hann til fjölda ára í hreppsnefnd
Dyrhólahrepps og sýslunefnd V-
Skaftafellssýslu og var formaður
Búnaðarfélags Dyrhólahrepps og
skólanefndarformaður í nokkur ár.
Síðustu tvö ár ævi sinnar dvaldi
Guðmundur á dvalarheimilinu
Hjallatúni í Vík í Mýrdal.
Útför Guðmundar fer fram frá
Skeiðflatarkirkju í Mýrdal í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
Rósa, f. 30.5. 1905, d.
21.3. 1991, bjó á Suð-
ur-Hvoli, Ingveldur, f.
2.2. 1907, d. 22.11.
1994, húsfreyja í Kerl-
ingardal og Norður-
garði, maki Daníel
Guðbrandsson, f. 9.12.
1906, d. 28.7. 1964,
Steinunn, f. 1.5. 1910,
d. 21.11. 1979, hús-
freyja í Pétursey, maki
Sigurjón Árnason, f.
17. 4. 1891, d. 29.7.
1986, Sigurður, bóndi
á Suður-Hvoli, f. 21.1. 1915, d. 8.9.
2000, maki Sigurbjörg Guðnadótt-
ir, f. 26.7. 1925, óskírt sveinbarn, f.
3.3. 1919, dáið sama dag.
Ferðaár fjörutíu
fjöld bera drenglyndis.
Foreldrarnir þakka,
þú ert þeim til yndis.
Enn er upp í móti,
enn ber eftir að keppa.
Ódáins arði fríðum
einarðir sem hreppa.
Gæti þín góðir andar.
Gleðji þig öll þín vinna.
Orðstír drengs og dáða
dýrmætan skaltu finna.
Þessar vísur orti hann Eyjólfur
afi, þegar Guðmundur sonur hans
varð fertugur, og víst er það að
hann var foreldrum sínum einatt til
yndis og ánægju. Ég get ekki annað
en samglaðst Guðmundi föðurbróð-
ur mínum að hafa hlotið hvíldina.
Það þráði hann orðið svo mjög að
losna við sinn veikburða líkama og
rísa upp ungur í annað sinn á eilífð-
arlandinu þar sem kvöl og þjáning
eru ekki lengur til, þar sem afi,
amma og öll systkinin, vinirnir og
kunningjarnir eru öll mætt til að
taka á móti honum og eflaust verð-
ur þar glatt á hjalla.
Hann var fjórði í röð barna afa
míns og ömmu og heitinn Guð-
mundur í höfuð föðurafa síns Guð-
mundar Ólafssonar, bónda og for-
manns í Eyjarhólum. Ein fyrsta
minning hans var frá jarðarför af-
ans þar sem litli drengurinn hróp-
aði: „Þið megið ekki kasta mold í
kistuna hans afa míns.“
Sem barn fékk Guðmundur misl-
inga og sem fylgikvilla tapaði hann
að töluverðu leyti heyrn og þó að
faðir hans færi seinna með hann til
Reykjavíkur þá tókst ekki að lag-
færa heyrn drengsins. Sem
drengsnáði var Guðmundur ákveð-
inn og viljasterkur en oft nokkuð
óþægur að eigin sögn.
Skólagöngu sína sótti hann fyrst
að Litla-Hvammi, þar sem Hryggj-
arkvísl og Hafursá renna saman og
voru kvíslarnar oft mikill farartálmi
og drengnum skipað að bíða austan
ár þangað til að einhver fullorðinn
sækti hann. Stundum óhlýðnaðist
hann þó því boði og fékk ákúrur
fyrir tiltækið. Einn vetur var hann í
unglingaskóla í Vík og eftir ferm-
ingu var honum komið fyrir tvo
vetrarparta til náms hjá frænda
sínum sr. Sveinbirni Högnasyni á
GUÐMUNDUR
EYJÓLFSSON
!
" " # $%
&'
" " # (
( )* +," ' ) - ' )#
% " $ . #
#' ' /&
!
" !
#
$#$
" "
" (0
120
3(
+
4* '& 56
' )
7 '
8 ( )/ ' )#
$ ' ( )/ 9)
& #
$% / ( )/ :;1) #
%( )/ 1# %# #
/ /& #'/ / /&
4 '
%
& ' (
)
*+ ,(
-.'/-0 1
)(
'203-/-0
* ,
,
4 ,
"
$
.' ' <=>?%-
5
" 7882-(244 1
36
7
% $)
))) 1' )#
'& ?@
1 '
(
" 8 ! $
"
(7382!(0244 " '<
7 )
/ $ # *$
,
)8
$
,
"
( ; #
3 '' ) 7 #
; # ( )* ( 7
( ) $ # (
7
'+ 9) #
'%) ( ) $ 7&' #
#'/ /&
9, (0(
9 '& <A
%
1; ' # ( )*
;)
:
8
4$3-8($32
9&' ?<
7 )
;
*
7, +
5
"$ !
7
& &
!
! #
$#$ :B # $ #
# C ( #
&' 2 $ #
4 7 ) #
/ #
/ /& #'/ / /&