Morgunblaðið - 06.09.2001, Side 61
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 61
Högnarnir
(Tomcats)
G a m a n m y n d
Leikstjóri: Gregory Poirier. Aðal-
hlutverk: Jerry O’Connel, Shannon
Elizabeth, Jake Busey. (95 mín.)
Myndform. Bönnuð innan 12 ára.
HÉR er á ferðinni mynd sem sver
sig í ætt við ærslafullan dónahúmor
gamanmynda á borð við American
Pie og er sem slík
ágæt skemmtun
enda þótt smekk-
leysið sé eflaust
ekki að allra skapi.
Vinir nokkrir
leggja peninga í
pott sem fara skal
til þess þeirra sem
síðastur stendur
eftir ógiftur.
Nokkrum árum og góðum fjárfest-
ingum síðar er potturinn orðinn risa-
vaxinn og aðeins tveir úr hópnum
enn piparsveinar, skopmyndateikn-
arinn Michael og glaumgosinn Kyle.
Sá fyrrnefndi þarf nauðsynlega á
peningunum að halda og verður að
koma hinum í hnapphelduna innan
30 daga. Sem gengur ekki þrauta-
laust fyrir sig þar sem Kyle er ófor-
betranlegur kvennabósi. Kannski
ekki merkilegur söguþráður en
myndin nýtir gefin tækifæri til að
kitla hláturtaugarnar og kímnin
virkar oft ágætlega, þótt lágkúruleg
sé.
MYNDBÖND
Síðasti
pipar-
sveinninn
Íþróttahundurinn 3
(Air Bud: World Pup)
G a m a n m y n d
Leikstjóri: Bill Bannerman. Aðal-
hlutverk: Kevin Zegers, Caitlin
Wachs, Brittany Paige Bouck.
(90 mín.) Skífan. Öllum leyfð.
ÞETTA er í þriðja skiptið sem
undrahundurinn Buddy gengur í
félagslið og leiðir það til sigurs á
ótrúlegan hátt.
Þetta er líka sögu-
þráður sem orðinn
er með eindæmum
þreyttur og nýj-
asta viðbótin í
myndaröðinni
bætir litlu sem
engu við kunnug-
lega formúluna.
Körfubolta er
skipt út fyrir fótbolta en öll önnur
framvinda myndarinnar er keimlík
þeim fyrri. Að vísu eignast Buddy
hvolpa í þessari mynd en samband
hans við tíkina Molly getur vart
talist rík frásagnarleg uppspretta.
Enn eru vondir kallar á eftir
íþróttaundrinu en forsendur þeirra
illskiljanlegar og uppátækin ófynd-
in. Eins og svo oft vill verða með
svokallaðar fjölskyldumyndir er
aðeins lægstu mögulegum sam-
nefnurum kvikmyndalistarinnar
fullnægt hér.
Ég myndi segja að þremur
íþróttahundsmyndum sé ofaukið á
myndbandamarkaðnum.
Heiða Jóhannsdótt ir
Fótbolta-
hetjan
ferfætta
HROLLVEKJAN
Jeepers Creepers
sló óvænt í gegn um
helgina vestanhafs.
Engin mynd hefur
gengið svo vel um-
rædda „löngu
helgi“.
Jeepers Creepers
er fremur lítil mynd
í sniðum og er sú
fyrsta af sjö sem
fyrirtæki Francis Ford Coppola,
American Zoetrope, gefur út í
samvinnu við United Artists. Þess
má geta að ein þessara mynda er
No Such Thing, sem Hal Hartley
tók að hluta á Íslandi og Friðrik
Þór Friðriksson er titlaður aðal-
framleiðandi að.
Velgengni Jeepers
Creepers er sögð
helgast af því að langt
sé síðan hreinræktaða
hrollvekju hefur rekið
á fjörur. Leikstjórinn
er Victor Salva sem er
þekktastur fyrir
Powder.
O með Josh Hart-
nett kemur inn í 7.
sæti en þar fer nútímaútfærsla á
Othello Shakespeares. Mikið fát
hefur verið á henni þessari og hún
orðin tveggja ára gömul. Iramax
hefur hinsvegar ekki lagt í að sýna
hana fyrr vegna eldfims viðfangs-
efnis, ofbeldis á skólalóðinni.
!
!"
!"
!"
! "
!"
!"
!"
!"
! "
!
"
"#$%&
"'%$'&
"
#$(&
#'$%&
)*$%&
'
$'&
($'&
"$'&
"+$#&
"'$%&
Óvæntur hryllingur
Jeepers Creepers: Al-
vöruóhugnaður!
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi