Vísir - 16.08.1979, Page 9
VÍSIR
Fimmtudagur 16. ágúst 1979
Alþýðubandalagið hefur undan-.
farna daga sett á svið einn furðu-
legasta pólitiska loddaraleik, sem
islenzkur almenningur hefur
lengi orðið vitni að. Kallar fólk þó
ekki allt ömmu sina i þeim
efnum, þegar Alþýðubandalagið
er annars vegar.
Afstaða Alþýðubandalags-
manna til viðræðna við Norð-
menn um réttindi okkar við Jan
Mayen hefur verið með þeim end-
emum, að þess verður áreiðan-
lega lengi minnst i pólitiskri um-
ræðu hér á landi.
Nánast Ijósritaðar tillögur
Matthíasar
Allt hófst þetta með þvi, að
Matthias Bjarnason setti fram
tillögur i landhelgisnefnd um
hvernig staðið skyldi að viðræð-
um við Norðmenn, og hver
meginatriði þar skyldu lögð til
grundvallar. Siðan leið og beið.
Þar kom, að Ólafur Ragnar
Grimsson fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins i landhelgisnefnd (i fjar-
veru Lúðviks Jósepssonar) tók
tillögur Matthiasar, nánast.ljós-
ritaði þær, og lagði siðan fram i
eigin nafni og flokks sins.
Matthias Bjarnason gat auðvitaö
ekki annað gert en lýsa enn og
aftur stuðningi við eigin tillögur
þótt i þetta skipti kæmu þær frá
erkióvininum, Alþýðubanda-
laginu. Var þá komin upp staða,
sem einhvern timann hefði þótt
saga til næsta bæjar: thaldið og
Austur-þýskur verksmiðjutogari að veiðum skammt frá Jan Mayen. Myndin var tekin I gæslufiugi land-
helgisgæslunnar með TF SYN laugardaginn 4. ágúst sl. en greinarhöfundur fékk þá að fljóta með.
(Ljósm. EG).
vaxa okkur að mikilvægi i allra
næstu framtið. Þessir flotar eru
að þurrka hann upp. í leiðurum
Dagblaðsins er hlegið að tali um
veiðar Rússa i Norðurhöfum, og
talað um Rússagrýlu. Slikt er
hættuleg blekking. Þessir flotar
eru þarna að veiðum. Það er blá-
köld staðreynd og Landhelgis-
gæzlan hefur að undanförnu
fylgst með veiðum þeirra á svæð-
inu.
Jan Mayen er
norsk eyja
Enn er komið upp nýtt i þessu
máli. Nú er þess krafist að við
gerum tilkall til Jan Mayen.
Nokkuð seint i rassinn gripið. Jan
Mayen er norsk eyja. Merkt sem
slik á öllum kortum og við yrðum
að athlægi i augum heimsins með
þvi að fara nú seint og um siðir að
hafa uppi landakröfur. Rétt er
hins vegar að það hefðum við
betur gert fyrr. En nú er það um
seinan og við skulum ekki láta
græðgina hlaupa meö okkur i
gönur.
Hitt er þaö sem auðvitaö skiptir
öliu máli: Jan Mayen er á land-
grunni islands. Þess vegna eigum
viö tilkall til þeirra gagna og
gæöa sem þar finnast í sjó og á
hafsbotni. Þær röksemdir skilja
Norömenn, þegar vitnaö er til
Svalbarða. Þaö er þetta sem viö
eigum aö gera kröfur til, og þaö
er þetta sem viö eigum rétt til.
Hln furöulega brennlng
kommúnistar voru sammála um
utanrikismál! Og Matthias sem
venjulega verður ekki orða vant
og kann að nefna hlutina réttum
nöfnum betur en flestir aðrir, var
gjörsamlega mát og gat ekki
annað en fagnað þessari nýju að-
stoð, greinilega þó með hálfum
huga.
Tillögur þeirra félaga voru að
þvi leytinu frábrugðnar þvi sem
áður hafði verið rætt i landhelgis-
nefnd, að þar var gert ráð fyrir,
að fiskveiðilögsaga yrði sam-
eiginleg með íslendingum og
Norðmönnum á Jan Mayen svæð-
inu. Vissu þó báðir fullvel Matthi-
as og ólafur, að þessu atriði höfðu
Norðmenn afdráttarlaust hafnað
i viðræðunum hér i Reykjavik um
daginn. Þar við bætist svo, að
ekki er vitað að slik sameiginleg
lögsaga sé neinsstaðar við lýði,
hún er fyrirbæri, sem ekki er til i
þjóðarétti og hefur ekki borið á
góma á hafréttarráðstefnu Sam-
einuðu þjóðan'na, og er þar að
aúki sjálfsagt óframkvæmanleg i
reynd.
Þrátt fyrir allt þetta lýsti utan-
rikisráðherra þvi yfir að sjálf-
sagt væri að ganga til viðræðna
við Norðmenn með öll þau atriði
að vegarnesti er fram hefðu
komið i landhelgisnefnd. Þrátt
fyrir þetta var Alþýðubandalagið
ekki tilbúið til viðræðna. Þegar
forsætisráðherra lagði fram
tillögu i rikisstjórn, sem gekk enn
i þessa sömu átt, þá var Alþýðu-
bandalagið enn ekki tilbúið. Skoð-
anir ráðherranna voru skiptar og
þeir vildu greinileéa slá málinu
enn á frest, meðan Norðmenn
héldu áfram aö moka upp loðn-
unni og Rússar kolmunna á mið-
unum við Jan Mayen.
Leiðaradans Dagblaðsins
Samtimis þessu gerðist svo enn
annað. Dagblaðið hóf leiðaradans
i svo nákvæmum takti við Al-
þýðubandalagið að þar skeikaði
hvergi. Þar byrjuðu landráða-
brigslin i garð sjávarútvegsráð-
herra og utanrikisráðherra, en til
þessa hafa Alþýðubandalags-
menn haft einkaleyfi á sliku.
Landráðabrigslin eru i stuttu
máli að segja: Við erum betri Is-
lendingar en þið, við viljum okkar
hlut meiri en þið, og við erum
langtum þjóðhollari en þið. Nú
var það ritstjóri Dagblaðsins sem
spilaði gamla kommasönginn og
lét fylgja tilbrigði um allt að þvi
glæpsamleg tengsl islenzkra og
norska jafnaðarmanna. Ariuna
söng hins vegar ólafur Ragnar,
en Sjálfstæðisflokkurinn lagði til
efnið. Aldeilis þrenning, eða
hvað?
Nú er búiö aö ákveöa viöræö-
ur viö Norömenn, sem vonandi
leiða til farsælla lykta. Þar eig-
um við að standa fast á okkar
rétti. Eftir standa sprunginn
belgur Alþýðubandalagsins og
gifuryrði Dagblaösins. Þeirra
orð og gerðir gleymast ekki, en
þau verða ekki það sem hæst
mun bera þegar litið verður til
baka, segir Eiður Guðnason, al-
þingismaður, i þessari grein
sinni um Jan Mayen-málið svo-
nefnda. Millifyrirsagnir eru
blaðsins.
Sem þessu öllu fór fram hér
veiddu Norðmenn áfram við Jan
Mayen. Þeir voru ekki einir um
hituna. Þar var jafnframt austuÞ
þýzkur verksmiðjuskipafloti,
sagður að kolmunnaveiðum.
(Sömu skipin og Lúðvik Jóseps-
son bauð til Reykjavikur hérna
um árið til áhafnarskipta, en al-
menn mótmælaalda varð til þess
að hann heyktist á aö bjóða vinum
sinum til hafnar. En Austup-Þjóð-
verjar og Norðmenn voru ekki
einir þarna. Svolitið austar á um
100 milna löngu og 15 til 20 milna
breiðu belti rétt um landheigis-
mörk okkar var 100 skipa rúss-
neskur ryksugufloti. Lika sagður
að kolmunnaveiðum. En þar
voru ekki aðeins bræðsluskip,
heldur lika hringnótaskip ásamt
móðurskipum með sildartunnur á
þilfari. Og allir að veiða kol-
munna, segir Rússinn.
Fiskifræðingur sagði mér, að
þetta væri sami flotinn og hefði
breytt miðunum við Labrador og
Nýfundnaland i eyðimörk. Hann
hefur verið hér um nokkurt skeið
og stefnir nú sjáifsagt að þvi að
þurrka upp kolmunnann. Austup.
þýzki flotinn geröi grálúðunni hér
fyrir vestan skil fyrir nokkrum
árum.
Nú er sem sé loðnan á undan-
haldi og kolmunninn á eftir að
Hafa ekki fyrirgefið kosn-
ingasigurinn
Það var i raun réttri aldrei
neinn ágreiningur um að ræða við
Norðmenn. Það sem Alþýðu-
bandalagsmönnum gramdist var
að islenzkir ráðherrar úr Alþýðu-
flokknum skyldu geta átt vinsam-
legar viðræður við norska ráð-
herra úr verkamannaflokknum
til að freista þess að finna farsæla
lausn á þessu máli. Þar að auki
hafa hvorki Alþýðubandalag né
Sjálfstæðisflokkur fyrirgefið
okkur kosningasigurinn i fyrra og
gera sennilega aldrei. Þess vegna
er hvert tækifæri notað til að
reiða til höggs og þá skiptir engu
hvort spilað er með þjóðarhags-
muni og fréttalekar skipulagðir
til útlanda, ef verða mætti að
stundargróða i hinu pólitiska
striði.
Nú er búið að ákveða viðræður
við Norðmenn, sem vonandi leiða
til farsælla lykta. Þar eigum við
að standa fast á okkar rétti. Eftir
standa sprunginn belgur Alþýðu-
bandalagsins og gifuryrði Dag-
blaðsins. Þeirra orð og gerðir
gleymast ekki, en þau verða ekki
það sem hæst mun bera, þegar
litið verður til baka.
Eiður Guönason
alþingismaöur
Gunnar ólafsson skipherra. Eldfjalliö Beerenberg gnæfir upp úr skýjaslæöunni, sem oftast hylur Jan Mayen. (EG).