Vísir - 16.08.1979, Síða 11
11
vtsm
Fimmtudagur 16. ágúst 1979
AVlSANAMÍLIB:
'mmé
M
>^.v.^ «pís****
cV$V&v ♦yví^VvX/v^*y
'Zjmtfdmm '
• lll aft ilu ir ii
<" íhorfrndur
k»kH..br»i
1 A*Ullr*i j
l■nrnlr
fyrir
„Einstaka læknar njðta
Dessara vaxtakjara hjá
Búnaðarbanka ísiands”
seglr formaður Læknalélags Reykjavfkur
„Ég hef heyrt lækna segja það
að þeir hefðu ávisanareikninga
með sparisjóðsvöxtum i Bún-
aðarbankanum, en læknasam-
tökin sem slik hafa ekki gert
neitt samkomulag um þetta og
þvi verður bankinn að svara
fyrir sig”.
Svo fórust orð Erni Smára
Haraldssyni formanni Læknafé-
lags Reykjavikur þegar Visir
spurði hann hvort læknum hefðu
verið veittir sparisjóðsvextir af
ávisanareikningum, en könnun
bankaeftirlitsins hefur leitt i
ljós að ýmsir hópar manna njóti
þessara friðinda, eða 22%
vaxta i stað 5,5%. Sagði hann að
allur fjárhagur Læknafélagsins
hefði verið kannaður af þar til
skipaðri nefnd á vegum félags-
ins, en þar hefðu ekki komið I
ljós nein bein tengsl við Bún-
aðarbankann né aðra banka
hvað varöaði þessa vexti.
örn taldi það hins vegar vera
einstaklingsbundið hvort lækn-
ar hefðu haft ávisanareikninga
á þessum kjörum og væri það
i þeirra mál og Búnaðarbankans,
en ekki læknasamtakanna.
— HR.
MARQT
Bíllinn sem vekur eftirtekt
ekki bara verðsins vegna.
Fiat 125P hef ur vakið athygli á íslandi
m.a. vegna óvenju góðra aksturseigin-
leika, styrkleika og sparneytni (ca. 10
I. per 100 km).
Vélarstærð 85 fta hámarkshraði 155
km.
Innifalið í verði er m.o.
□ Kraftbremsur með diskum á öllum
hjólum.
Radialdekk
Tvöföld framijós með stillingu
Læst bensinlok
Bakkljós
Rautt Ijðs i öllum hurðum.
Teppalagður
Loftræstikerfi
öryggisgler
2ja hraða miðstöð
Tau I sætum
2ja hraða rúðuþurrkur
Rafmagnsrúðusprauta
Hanskahólf og hilla
Kveikjari
Litaður baksýnisspegill
Verkfærataska
Gljábrennt lakk
Ljós i farangursgeymslu
2ja hólfa karborator
Synkroniseraður glrkassi
Hituð afturrúða
Hallanleg sætisbök
Höfuðpúöar
Ofl. ofl.
ryuvarn
2.780.00
miðað við gengi 7/8 ’79
FÍAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANOI
DAVÍÐ SIGURÐSSON hf.
SlOUMÚLA 35. SÍMI 85855.
ENNÞA
Bankaef tirlit Seðla-
bankans hefur skilað
skýrslu til viðskiptaráð-
herra um ávísanamálið
og hefur könnun þess
leitt i Ijós að talsverð
brögð eru að því að ýmsir
aðilar fái almenna spari-
sjóðsvexti greidda á
ávísanareikninga sína.
Enn sem komið er hafa
niðurstöður þessarar
könnunar ekki verið birt-
ar.
Þessi könnun fór fram
vegna skrifa Vísis um
málið í mars s.l. og verða
hér rif juð upp helstu atr-
iði sem það snýst um.
Málið hófst með þvi að
Visir komst yfir og birti 16.
mars s.l. hlut úr kvörtunarbréfi
Alþýðubankans til Samvinnu-
nefndar banka og sparisjóða en
þar segir m.a.:
„Sagt er að starfsfólk rikis-
bankanna fái sparisjóðsvexti á
ávisanareikninga og fái auk
þess að gefa út innistæðulausar
ávisanir án þess að það komi
fram á listum yfir innistæðu-
lausar ávisanir og án þess að
greiða sektarvexti eða annan
kostnað eins og annað fólk i
landinu”.
Strax daginn eftir, laugardag-
inn 17. mars, fékk Visir stað-
festingu þess hjá nokkrum
bankastjórum rikisbankanna,
að starfsmenn fengju 19% vexti
af ávisanareikningum, sem
laun þeirra væru greidd inn á.
Þetta kom einnig fram i yfirlýs-
ingu frá Samvinnunefnd banka
og sparisjóða, sem birtist i blað-
inu sama dag.
Hins vegar mótmælti sam-
vinnunefndin þvi harðlega að
starfsfólkið fengi að gefa út
innistæðulausar ávisanir. En
samvinnunefndin tók ekkert
fram um það, hvaða meðferð
innistæðulausar ávisanir starfs-
manna fengju.
Magnús Jónsson bankastjóri
Búnaðarbankans sagði hins
vegar um það atriði i samtali
við Visi:
„Það er rétt, þeir fara ekki á
refsivexti. . .”
Einnig var viðtal við Svavar
Gestsson viðskiptaráðherra i
Visi þennan sama dag þar sem
hann lýsti þvi yfir, að hann
myndi láta kanna málið.
Mánudaginn 19. mars hafði
Visir aflað sér viðbótarupplýs-
inga um málið. Blaðið birti frétt
um aö læknar hefðu um alllangt
skeið einnig fengið 19% vexti á
ávisanareikninga.
Haft var samband við Magnús
Jónsson bankastjóra Búnaðar-
bankans en hann kvaðst ekki
vita til þess að læknum væru
boðin sömu kjör og starfsmönn-
um bankans.
0UPPLYST
'r.
&
9
- _ »'k»«bonkarnlr«-
Lasknar tá »o%
Xfí
V
VI
anar
UUSln
Samkvænu
áreiðanlegum
“Ppltsingum sem
'fsir heíur aíiaö
ser mun það hafa
tiökast um all-
•angl skeið að
reikninga
nokkrum
bankanna
tfna
hjú
Liiis
n t>»nkanj
Ann»x» v»
rikis
mrnn ' g',.nj0'4’ 5l*rf»-
i .V™
,'aas
•s \ \ VO\
dl að kjar e
'iBikipumtaMl
Bjðrn Trjifrm
sioð*rb»nk»j!jorii
b»nk»rum htfur »
f »*rnuli \ifi Vki 0
•«r ohcun
>'*ar |
/ Þ'i »fi
Æ Igvoll og
✓ 4» I ivrr
brisi skipan
k Vk'AV.
Nokkrar blaðaúrklippur úr VIsi um ávisanamálið.
Visir telur sig þó hafa heim-
ildir fyrir þvi að óformlegur
samningur hafi verið gerður
milli Búnaðarbankans og lækna
fyrir um 25 árum um framan-
greind vaxtakjör.
Eins og fram kemur i Visi I
dag I samtali við örn Smára
Haraldsson formann Læknafé-
lags Reykjavikur hefur hann
upplýsingar um, að nokkrir
læknar hafi ávisanareikninga i
Búnaðarbankanum á spari-
sjóðsvöxtum, en hann kannast
ekki við, að læknasamtökin hafi
gert neinn samning um slikt.
Svavar Gestsson sagði i við-
tali við Visi s.l. mánudag, að
fullnaðarrannsókn væri ekki
lokið i þessu máli. En þó væri
ljóst að það væri afar algengt að
menn hefðu ávisanareikninga á
fullum sparisjóðsvöxtum.
Svavar sagði einnig að þessi
sami háttur væri hafður á viðast
hvar i bankakerfinu, en ekki
eingöngu i rikisbönkunum.
Þó margt hafi verið upplýst I
þessu er ennþá margt á huldu.
Fram hefur komið að það eru
ekki rikisbankarnir sem þarna
eiga einir hlut að máli og ekki
eingöngu um starfsmenn þeirra
að ræða.
Eftir er að upplýsa i hve mikl-
um mæli þessi mismunun á
vaxtakjörum á sér stað og hvort
hugsanlegt sé, að læknar séu á
sérstökum samningi i Búnaðar-
bankanum eða fleiri bönkum.
Það hefur einnig ekki komið
fram hvaða meöferð innistæðu-
lausar ávisanir á þessum reikn-
ingum fá. — KS.