Morgunblaðið - 23.09.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ráðstefna um viðskiptasérleyfi
Minni
áhætta
RÁÐSTEFNAN Erviðskiptasérleyfi(Franchise) eitt-
hvað fyrir þig? verður
haldin á morgun á Grand
Hóteli klukkan 14 til 17.
Þeir sem standa að ráð-
stefnunni er Félag um við-
skiptasérleyfi og Price-
WaterhouseCoopers. Emil
B. Karlsson hjá Félagi um
viðskiptasérleyfi hefur
haft umsjón með undir-
búningi ráðstefnunnar.
Hann var spurður hvað
viðskiptasérleyfi væri?
„Viðskiptasérleyfi er
það þegar eitt fyrirtæki
veitir öðru fyrirtæki rétt
til þess að nota viðskipta-
hugmynd sína. Þegar búið
er að sanna að einhver til-
tekin viðskiptahugmynd
fyrirtækis gangi upp er auðveld-
ara að stofna stofna sambærilegt
fyrirtæki annars staðar. Dæmi
sem allir þekkja er MacDonalds
og ýmsar merkjavöruverslanir í
fatatísku.“
– Eru viðskiptasérleyfi að ryðja
sér æ frekar til rúms?
„Já, svo sannarlega, við erum
hér á Íslandi með um hundrað fyr-
irtæki sem eru rekin með þessu
formi. Ástæðan er sérstaklega sú
að það er miklu minni áhætta að
reka svona fyrirtæki heldur en að
stofna hefðbundið fyrirtæki af því
að viðskiptahugmyndin hefur
þegar sannað sig annars staðar.“
– Er auðveldara að fjármagna
svona fyrirtækja en hin hefð-
bundnu?
„Það þarf minni stofnkostnað
vegna þess að samningurinn felur
það í sér að það er verið taka upp
form sem þegar hefur gengið upp.
Sá sem selur sérleyfið tekur líka
að einhverju leyti þátt í stofn-
kostnaði, samningarnir fela það í
sér.“
– Hverjir stofna helst svona
fyrirtæki?
„Konur eru í meirihluta á al-
þjóðavísu. Það er talið að vegna
þess að áhættan er þarna minni
þá sælist þær fremur til að hasla
sér þarna völl, konur eru sam-
kvæmt rannsóknum minna fyrir
að taka áhættu en karlar. Í Sví-
þjóð eru t.d. 60% fyrirtækja með
viðskiptasérleyfi stofnuð af kon-
um en þær eru aðeins 30% stofn-
enda hefðbundinna fyrirtækja.“
– Hvað fer fram á ráðstefnunni
á Grand Hóteli á morgun?
„Hingað kemur maður sem er
varaforseti innan alþjóðafélags
um viðskiptasérleyfi. Hann heitir
Marcel R. Portmann og hefur
mikla og langa reynslu af við-
skiptasérleyfum og stjórnar m.a.
upplýsingasöfnum um viðskipta-
sérleyfi. Hann hefur eigin reynslu
af að stofna svona fyrirtæki og
hefur starfað lengi sem ráðgjafi
um viðskiptasérleyfi. Hann mun
fjalla um hvernig þeir sem reka
þegar fyrirtæki geta metið það
með tilliti til þess hvort
þeir geti selt viðskipta-
sérleyfi sjálfir og hins
vegar að hverju menn
þurfa að huga sem
vilja kaupa viðskipta-
sérleyfi.“
– Eru slík leyfi dýr?
„Yfirleitt ræðst það af veltu-
hlutfalli. Mörg fyrirtæki í versl-
unar- og veitingageiranum eru
með viðskiptasérleyfi en það eru
æ fleiri atvinnugreinar að taka
þetta rekstrarform upp.“
– Hverjir fleiri tala á ráðstefn-
unni?
„Formaður Félags um við-
skiptasérleyfi, Gunnar Þ.S. Elv-
arsson, opnar ráðstefnuna og
verður ráðstefnustjóri. Hann rek-
ur verslunina Sand í Kringlunni.
Björgvin Bjarnason, ráðgjafi hjá
PriceWaterhouseCooper, talar
um kosti og galla viðskiptasér-
leyfa. Árni Vilhjálmsson hrl. talar
um samninga og viðskiptasérleyfi.
Þá verða sagðar tvær reynslusög-
ur íslenskra fyrirtækja. Þær
segja Hákon Hákonarson, fram-
kvæmdastjóri HS, sem rekur m.a.
Boss og nýja verslun sem heitir
Mango – hann mun fjalla um
reynslu sérleyfistaka og Georg
Georgiou framkvæmdastjóri
Pizza 67 mun fjalla um reynslu
sérleyfisgjafa.“
– Er langt síðan Félag um við-
skiptasérleyfi tók til starfa?
„Það var stofnað 27. mars á
þessu ári og aðaltilgangur þessa
félags er að veita upplýsingar til
þeirra sem reka viðskiptasérleyf-
isfyrirtæki og hjálpa þeim sem
vilja stofna slík fyrirtæki. Það er
kappsmál þessa félags að aðstoða
ekki síst þau íslensk fyrirtæki
sem vilja selja viðskiptasérleyfi
innanlands sem utanlands. Það
geta allir gerst félagar í þessu fé-
lagi hvort sem þeir reka fyrirtæki
eða sem einstaklingar.“
– Hvernig miðlar félagið sínum
upplýsingum?
„Við erum að opna heimasíðu
núna, www.franchise.is, sem er
rekin í samstarfi við öll hin Norð-
urlöndin, þar sem menn geta aflað
sér upplýsinga um sérleyfi sem
eru í boði og komið sín-
um sérleyfum á fram-
færi.“
– Geta svona fyrir-
tæki skilað svipuðum
hámarksarði og hefð-
bundin fyrirtæki?
„Þau geta það en það er líka
annað mikilvægt við þau í sam-
félagslegu tilliti – þau eru mjög
atvinnuskapandi, Bretar halda því
t.d. fram að ekkert sé eins at-
vinnuskapandi og stofnun sérleyf-
isfyrirtækja. Ráðstefnan er opin
öllum sem hafa áhuga á að kaupa
eða selja sérleyfi og þeim sem
veita faglega eða fjárhagslega
þjónustu.“
Emil B. Karlsson
Emil B. Karlsson fæddist í
Reykjavík 24. mars 1953. Hann
lauk fil. cand. próf 1983 frá Há-
skólanum í Lundi í kynning-
artækni. Hann hefur starfað
lengst af hjá Iðntæknistofnun,
fyrst sem kynningarstjóri stofn-
unarinnar og síðan sem for-
stöðumaður Evrópumiðstöðvar.
Nú er hann verkefnisstjóri hjá
Samtökum verslunar og þjón-
ustu. Emil er kvæntur Hallveigu
Thordarson jarðfræðingi og eiga
þau samtals fimm börn.
Fyrirtæki með
viðskiptasér-
leyfi mjög at-
vinnuskapandi
NORRÆN ráðstefna, Sprogpoli-
tisk strategikonference, um að-
gerðir og samræmingu til verndar
norrænum tungumálum á pólitísk-
um grundvelli hófst í fyrradag á
Hótel Borgarnesi. Ráðstefnuna
sitja pólitískir fulltrúar Norður-
landaráðs sem móta málverndar-
stefnu í samvinnu Norður-
landanna, auk þess sem allir þeir
aðilar sem vinna á vegum Norð-
urlandaráðs að málfarslegum efn-
um sitja ráðstefnuna. Þar á meðal
eru starfsmenn orðabóka og allir
þeir aðilar sem koma nálægt nor-
rænu samstarfi á tungumála-
grundvelli. Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti Íslands, setti
ráðstefnuna í fyrradag en henni
lauk í gær.
Sölvi Sveinsson skólameistari og
fulltrúi norrænu málnefndarinnar,
segir markmiðið með ráðstefnunni
að reyna að samræma vinnu þess-
ara aðila betur með því að bera
saman bækur og ákveða verka-
skiptingu milli aðila. „Markmiðið
með ráðstefnunni er að þeir aðilar
sem eru að sinna svipuðum eða
hliðstæðum verkefnum vinni meira
saman og reyna að forðast að
menn séu að taka upp ný verkefni
á sama sviði til að nýta fjármunina
sem best.“
Að sögn Sölva eru Danir t.d. að
reyna að móta pólitíska stefnu til
verndar dönskunni og Svíar hafa
verið að vinna að svipuðum að-
gerðum á vettvangi stjórnmálanna.
„Nú er á pólitískum vettvangi í
Danmörku og Svíþjóð verið að
reyna að búa til málstefnu sem á
að hafa það að markmiði að tungu-
málið dugi áfram til að tala um allt
sem gerist í samfélaginu. Þeir eru
á ákveðnum sviðum búnir að týna
dönsku eða sænsku um eitt og
annað og nota bara ensku. Þetta
fer vaxandi og þess vegna eru þeir
að reyna að spyrna við fótum,“
segir Sölvi.
Norræn ráðstefna um
samræmda málvernd
Ég er að koma.
BROTIST var inn í Sjónvarpsmið-
stöðina í Síðumúla um tíuleytið í
fyrrakvöld og stolið þaðan tíu mynd-
bandsupptökuvélum, en verðmæti
hverrar vélar er á bilinu 100–300
þúsund krónur.
Rúða í versluninni var brotin til
þess að komast að vélunum og fór
þjófavarnarkerfi hennar í gang.
Fljótlega eftir innbrotið fundust vél-
arnar skammt frá versluninni. Þeir
sem voru að verki eru enn ófundnir.
Tíu mynd-
bandsupp-
tökuvélum
stolið
♦ ♦ ♦