Morgunblaðið - 26.09.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.09.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ KAUPMÁTTUR dagvinnulauna jókst að meðaltali um 3,4% á milli annars ársfjórðungs í ár og sama tímabils á síðasta ári. Dagvinnulaun hækkuðu að meðaltali um 9,6% á tímabilinu, samkvæmt launakönnun Kjara- rannsóknanefndar, en vísitala neysluverðs hækkaði um 6% á sama tímabili. Fram kemur að launahækkun flestra starfsstétta hafi verið á bilinu 8 til tæp 13% á tímabilinu, ef undan er skilið sérhæft verkafólk sem hækkaði einungis um 3,4%, en skýringin á því felst í tekjutapi fisk- vinnslufólks vegna vinnudeilu sjó- manna og útgerðarmanna. Þá hækkuðu laun á höfuðborgarsvæð- inu mun meira en laun úti á landi eða um 11,2% samanborið við 7,4% og laun karla hækkuðu ívið meira en kvenna eða um 9,9% samanborið við 9,2%. Þá kemur fram að á umræddu tímabili frá öðrum ársfjórðungi 2000 til jafnlengdar í ár hafi verið ýmist ein eða tvær launahækkanir samkvæmt kjarasamningum. Verkafólk og iðnaðarmenn hafi fengið eina launahækkun sam- kvæmt samningum, en afgreiðslu- fólk, skrifstofufólk, tæknar og sér- fræðingar hafi almennt hækkað tvívegis á tímabilinu, annars vegar á miðjum öðrum ársfjórðungi ársins 2000 og síðan aftur í upphafi árs 2001. Ef litið er til hækkana einstakra starfstétta voru þær þannig að laun almenns verkafólks hækkaði um 8,7% á tímabilinu, véla- og vél- gæslufólks hækkaði um 12,9%, sér- hæfðs verkafólks um 3,4%, iðnaðar- manna um 11,8%, þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks um 11,1%, skrif- stofufólks um 8,0%, tækna og sér- menntaðs starfsfólks um 8,2%, og sérfræðinga um 9,9%.                         !"          #                 "  $     %  "  $     &                                         ' $ (   )*+)  + *,,,  - - - -  - -  - - Annar ársfjórðungur ársins 2000 til jafnlengdar í ár Kaupmáttur dagvinnu- launa jókst um 3,4% NÝJA Hagkaupsverslunin í Smáralind verður stærsta verslun landsins, en hún er 10.440 fer- metrar að stærð eða rúmur hekt- ari. Sem dæmi um stærðina má nefna að á gólfinu er rými fyrir 13 handboltavelli. Utan á versluninni er stærsta neonskilti landsins, en hver stafur í nafni verslunarinnar er fjórir metrar á hæð og skiltið í heild 26 metrar á lengd. Aðalinngangurinn í verslunina snýr út að bílastæðunum en einnig eru tveir inngangar frá gangi verslunarmiðstöðvarinnar. Fjöldi iðnaðarmanna er á fullu fyrir opn- unina 10. október nk. og mynd er komin á verslunina. Trausti Reyn- isson verslunarstjóri segir að þessa dagana séu um 40 til 50 iðn- aðarmenn að störfum í Hagkaups- versluninni en að auki vinni um 15 manns við að setja upp deildir og raða í hillur. Vægt til orða tekið er um mjög stóra verslun að ræða, en til sam- anburðar má geta þess að Nýkaup og Hagkaup í Kringlunni eru sam- tals um 7.000 fermetrar. Hjá Árna kaupmanni í svonefndu Árna- magasíni, sem var við Fálkagötu, mátti fá allt milli himins og jarðar meðan það var og hét, en þar var ekki pláss fyrir eina inn- kaupakerru. Á aðalgangi nýju Hagkaupsverslunarinnar geta 10 innkaupakerrur verið hlið við hlið, en alls fara um 2.000 fer- metrar undir ganga í versluninni. „Hér verða breiðir gangar fyrir viðskiptavinina,“ segir Trausti, en gert er ráð fyrir 21 afgreiðslu- kassa við innganginn. Eins og vera ber í stórri verslun er gott skipulag á hlutunum. Hver deild tekur við af annarri og segir Finnur Árnason, framkvæmda- stjóri Hagkaupa, að þarna verði t.d. stærsta mjólkurtorg landsins, stærsta dömuundirfatadeild landsins og stærsta leikfangadeild landsins auk annarra stórra deilda. Ennfremur nefnir hann að í matvöruhlutanum verði m.a. steikarborð í samvinnu við Kjöt- list, heitur matur, salatbar, sér- stakur samlokubar og sérstök deild fyrir lífrænar vörur. Trausti segir að mörg handtök þurfi til að ganga frá öllum hlutum en bætir samt við að allt sé á áætlun og til þessa hafi aðeins verið unnið í dagvinnu, „en það geta dottið inn nokkrir tímar í næturvinnu þegar nær dregur“, segir hann. Deildir hafa verið merktar, hill- ur settar upp og þurrvara er víða komin á sinn stað. Einnig ýmsar aðrar vörur, eins og raftæki, leik- föng, skór, töskur, föt, snyrtivörur og ýmsar gjafavörur. Trausti segir að til að stilla upp hillunum í matvörudeildinni sé bú- ið að tæma um 11.000 kassa af þurrvörum en þegar betur er að gáð eru þær yfirleitt aðeins fremst í hverri hillu. Það er því mikið verk eftir. „Þetta er ákveðið púsluspil en við vitum nákvæm- lega hvar allt er og vinnum sam- kvæmt fyrirfram ákveðnu skipu- lagi.“ Stærsta verslun landsins opnuð í Smáralind eftir hálfan mánuð Trausti Reynisson verslunarstjóri við aðalinngang verslunarinnar, en þar geta 10 innkaupakerrur verið hlið við hlið. Auður Jónsdóttir og Bjarni Leifsson vinna við að koma vörum fyrir á sinn stað. Hagkaup á rúmum hektara Morgunblaðið/Þorkell Hagkaupsskiltið utan á versluninni er stærsta neonskilti landsins. Hver stafur er fjórir metrar að hæð og skiltið alls 26 metrar að lengd. TVEIR menn sitja í gæsluvarð- haldi að kröfu lögreglunnar í Reykjavík vegna gruns um aðild að kókaínsmygli til landsins. Um er að ræða 140 grömm af kókaíni sem annar mannanna var með inn- vortis. Hann var handtekinn í Reykja- vík 16. september, skömmu eftir komu frá Danmörku. Hann var sendur í röntgenskoðun og kom í ljós að hann var með kókaín inn- vortis. Í kjölfarið var hann var úr- skurðaður í tveggja vikna gæslu- varðhald. Hinn maðurinn, sem talinn er tengjast málinu, var handtekinn 18. september og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Sama dag var þriðji maðurinn handtekinn í tengslum við rann- sókn málsins en honum var sleppt að loknum yfirheyrslum. Fíkniefnadeild lögreglunnar sér um rannsókn málsins. Tekinn með 140 grömm af kókaíni ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi á mánudag karlmann í tveggja mánaða fangelsi fyrir mat- vöruþjófnað í verslunum og fyrir að aka stolinni dráttarvél í heimildar- leysi. Ákærði var sakfelldur fyrir að hafa stolið kjöti fyrir tæpar fimm þúsund krónur og kökudropum og fyrir að aka dráttarvél í heimildar- leysi frá Kleppsspítala að Lögreglu- stöðinni í Reykjavík. Síðastliðin 19 ár hefur maðurinn alloft sætt sektum fyrir ýmis brot gegn umferðar- og áfengislögum og almennum hegningarlögum. Tveggja mán- aða fangelsi fyrir þjófnað BROTIST var inn í skrifstofuhús- næði í austurhluta Reykjavíkur á fjórða tímanum í fyrrinótt og tals- verðar skemmdir unnar á því. Nokkrir aðilar hafa aðstöðu í hús- inu, en brotist var inn í sjö skrif- stofur þess og hurðir skemmdar. Ekki er þó vitað til þess að neinu hafi verið stolið, að sögn lög- reglunnar í Reykjavík. Málið er í höndum rannsóknardeildar lög- reglunnar í Reykjavík. Sá sem braust inn í húsnæðið var ófundinn í gær. Brotist inn í skrifstofu- húsnæði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.