Morgunblaðið - 26.09.2001, Page 19

Morgunblaðið - 26.09.2001, Page 19
AP GESTIR í dómkirkjunni Etchmi- adzin, um 25 kílómetra frá Jerev- an, höfuðborg Armeníu, hlýða á ávarp Jóhannesar Páls II páfa í gær. Þriggja daga opinber heim- sókn páfa til landsins hófst í gær. Armenar urðu fyrstir allra þjóða til að gera kristni að ríkistrú, árið 301, en kirkja landsmanna er sjálf- stæð og lýtur ekki Rómarvaldinu. Páfi er 81 árs og orðinn hrumur og mjög skjálfhentur. Fór svo að hann gat ekki lesið ávarpið til enda og tók þá prestur við og lauk lestr- inum. Jóhannes Páll páfi kom til Armeníu frá Kasakstan en þar sagði hann á mánudag að kaþólska kirkjan virti „raunverulega ísl- amstrú“ en „hatur, ofstæki og hryðjuverk eru svívirðing við nafn Guðs og afskræma hina sönnu ímynd mannsins“. Hlýtt á boðskap páfa ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2001 19 Engjateigi 5, sími 581 2141 VÍSINDAMENN í Bandaríkjunum og Kanada hafa með tilraunum sýnt fram á að tónlist getur örvað sömu heilastöðvar og þær sem bregðast jákvætt við góðum mat og velheppn- uðu kynlífi. Hvers konar tónlist hef- ur þessi áhrif er hins vegar mismun- andi eftir einstaklingum. Skýrsla um rannsóknirnar birtist í gær í riti Bandarísku vísindaaka- demíunnar. Tilraunir hafa áður sýnt að stöðvar sem tengjast áðurnefnd- um unaðssemdum kynmaka og neyslu matar eru meðal annars í miðheila og heilaberkinum. Notaðir voru svonefndir PET-skannar til að finna þau svæði í heilanum sem bregðast svo ákaft við ákveðinni tónlist að „fólki finnst sem um það fari unaðshrollur“ og kom í ljós að sumar af stöðvunum sýna sams kon- ar merki um vellíðan og þær gera þegar þátttakandinn nýtur kynlífs eða snæðir sælkerafæðu. Áður höfðu þátttakendurnir tíu, allt miklir tónlistarmenn, verið látn- ir tilgreina hvaða tónlist þeim þætti best, hvaða lög fengju sælutilfinn- ingu til að hríslast um þá. Einn af vísindamönnunum, dr. Anne Blood, sagði hins vegar að um 80% af fólki þekktu þann unað sem ákveðin tón- list hefði í för með sér og mjög lík- legt væri að sömu heilastöðvar væru að verki í öllum. Það færi síðan eftir einstaklingnum og smekk hans hvaða tónlist hefði þessi áhrif en við- brögðin í heilanum væru þau sömu hjá öllum ef tónlist vekti þeim unað. Dr Ira Glick, prófessor í geðlækn- ingum við Stanford-háskóla, segir að hlustun á tónlist sé eitt af því sem hægt sé að nota gegn tímabundinni streitu og vitað sé að sérhver breyt- ing á sviði tilfinninga og atferlis eigi sér samsvörun í breytingum á sam- eindum í heilanum. „Með þessari nýju tækni, PET- skannanum, getum við í fyrsta sinn séð þær,“ segir Glick. Áhrif tónlistar á stöðvar í heilanum Svipuð örvun og af góðum mat og kynlífi Reuters Britney Spears ásamt eftirlæt- isslöngunni sinni. Washington. AP. Napster semur við útgefendur San Jose í Kaliforníu. AP. NETFYRIRTÆKINU Napster hefur tekist að ná sáttum í máli sem útgefendur tónlistar höfðuðu vegna dreifingar á Netinu og meintra brota á höfundarrétti. Er talið að samningurinn geti gefið Napster færi á að halda áfram að dreifa efn- inu en þá gegn gjaldi. Það varð að hætta starfsemi sinni í júlí vegna málshöfðunarinnar. Napster mun greiða samtökum tónlistarútgefenda í Bandaríkjun- um 26 milljónir dollara, rúmlega 2,6 milljarða króna, fyrir tónlist sem áður hefur verið dreift án leyfis og auk þess 10 milljónir dollara fyr- irfram upp í gjöld vegna væntan- legs efnis. Einnig var samið um reglur sem fara verði eftir í sam- skiptum Napster við lagahöfunda og útgefendur. Ekki er víst að fyr- irtækinu takist að yfirvinna aðra erfiðleika; óvíst er til dæmis hvað verður um málarekstur fjölmargra geislaplötuútgefenda gegn netfyrir- tækinu. Kólumbía Hugðust myrða Pastrana Bogota. AP. LEYNILÖGREGLAN í Kólumbíu handtók um síðustu helgi tvo menn sem sagðir eru tengjast samsæri um að myrða Andras Pastrana for- seta í borginni Armenia í júlí sl. Samtök vopnaðra sveita hægri- manna, AUC, munu hafa verið á bak við tilræðið en er yfirvöld kom- ust á snoðir um áætlunina var fyr- irhugaðri ferð forsetans til Armenia frestað. Liðsmenn AUC eru andvígir að- ferðum Pastrana við að semja um frið við uppreisnarsveitir vinstri- sinna er nefnast FARC. Einkum eru þeir andvígir því að forsetinn skyldi árið 1998 ákveða að láta FARC-mönnum eftir landsvæði á stærð við Sviss þar sem þeir ráða ríkjum og er stjórnarhernum bann- að að reyna að reka þá á brott. Líkja AUC-menn ástandinu á svæð- inu við upplausnina í Afganistan og heimta að Pastrana þvingi upp- reisnarmenn til að gera vopnahlé. Forsetinn gerði sér vonir um að með tilslökun sinni yrði auðveldara að fá uppreisnarmenn til að hefja friðarviðræður. Bæði AUC og FARC eru á lista Bandaríkjastjórnar yfir alþjóðleg hryðjuverkasamtök. AUC eru talin hafa á bak við tjöldin samráð við yf- irstjórn kólumbíska hersins sem fengið hefur aðstoð hjá Bandaríkja- mönnum er vilja að Kólumbíustjórn beiti sér af meira afli gegn fram- leiðslu á fíkniefnum. Meira er framleitt af kókaíni í Kólumbíu en nokkru öðru landi og fer mikið af efninu á markað í Bandaríkjunum. FARC fjármagnar að miklu leyti starf sitt með fíkni- efnasölu eða óbeinum tekjum af fíkniefnaframleiðslunni. Einnig ræna samtökin oft fólki og krefjast lausnargjalds og hefur það háttalag valdið því að almenningur reynir eftir mætti að komast hjá því að nota þjóðvegina. VÁCLAV Havel, forseti Tékk- lands, mun að öllum líkindum fá að fara heim af sjúkrahúsi á morgun, að því er læknir forsetans greindi frá í gær. Havel var fluttur á sjúkrahús á mánudaginn og var óttast að hann hefði fengið hjarta- áfall. Sagði læknirinn að hjartsláttur- inn í Havel væri orðinn eðlilegur, en á mánudaginn var hann tvöfalt hraðari en eðlilegt er. Hefði verið beitt rafstraumsmeðferð sem geng- ið hefði vel. Havel verður 65 ára í næstu viku og hefur átt við veikindi að stríða undanfarin fimm ár. Havel heim af spítala Prag. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.