Morgunblaðið - 26.09.2001, Síða 23

Morgunblaðið - 26.09.2001, Síða 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2001 23 Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin til London í haust. Komið til London á föstudagsmorgni og flug til baka á mánudagskvöldi. Í London bjóðum við þér úrval hótela á frábæru verði. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 15.400 M.v. hjón með 2 börn, 2ja-11 ára. Flugsæti. Flugvallarskattar kr. 4.485 fyrir fullorðna og kr. 3.800 fyrir börn ekki innifaldir. Verð kr. 17.900 Flugsæti. Flugvallarskattar kr. 4.485 ekki innifaldir. Bókaðu strax og tryggðu þér þetta ótrúlega tilboð. Örfá sæti í boði. Helgartilboð til London 12.-15. október frá kr. 15.400 Gott úrval 3ja og 4 stjörnu hótela í hjarta London NORSKAN er ekki eitt af stóru Evróputungumálunum, málið er tal- að af tæpum 4 milljónum íbúa Nor- egs. Í Bandaríkjunum búa að vísu fleiri af norskum ættum en heima- fyrir, og margir þeirra tala ágæta norsku. Kennsla í norsku í íslenskum skól- um hefur verið í boði frá 1971. Undirrituð var þá beðin um að taka að sér kennslu þeirra grunn- og framhaldsskólanema sem höfðu góð- an grunn í málinu. Á sjöunda ára- tugnum fóru margar íslenskar fjöl- skyldur utan til Noregs til náms og starfa. Börn og unglingar sem sneru heim með foreldrum sínum voru allt að því tvítyngd og höfðu sérlega góð tök á norsku talmáli. Þessir nem- endur þekktu einnig deili á norsku samfélagi og tjáskiptareglum þess, menningu og siðum. Þessir nemend- ur voru auðlind fyrir þjóð sína og því fengu þeir að læra norsku sem skyldunámsgrein bæði í grunn- og framhaldsskóla. Tungumálið norska Skyldleiki norskunnar og íslensk- unnar er öllum kunnur. Íslensku landnámsmennirnir komu flestir frá Noregi á 9. og 10. öld og mál þeirra var forn- norska eða það tungu- mál sem talað var af norrænum mönnum í Noregi, Færeyjum, Orkneyjum, Skotlandi og víðar. Á 14. öld tap- ast ritmál fornnorsk- unnar m.a. vegna svarta dauða og í kjöl- far ríkjasambands með Svíum og Dönum flæða áhrif dönskunnar og einnig sænskunnar yfir Austur-Noreg. Allt frá þeim tíma hefur norskan orðið fyrir mun meiri breytingum en ís- lenskan. Þrátt fyrir breytingar í ald- anna rás er þó enn talsverður skyld- leiki með norsku og íslensku. Flestir Norðmenn eru vel þjálf- aðir í að greina mismunandi fram- burð í mállýskum, og hægt og skilmerkilega töluð íslenska ætti að skiljast vel. Sér í lagi í Vestur-Noregi á heimasvæði nýnorsk- unnar. Á málsvæðinu frá Roglandi í suð- vestri, Horðaland í Miðvestri, Sogni og Fjörðunum til Mæris í norðvestri, hafa varð- veist mállýskur sem þróast hafa hægar frá fornnorskunni. Enginn vandi er að spyrja um nál og þráð í Hardangri. En fyrir austan fjall er betra að spyrja um nol og trod (nål og tråd), enda mál heimamanna líkara dönsku. Þrjú opinber ritmál eru í Noregi, en fjölmargar mállýskur Eftir að samband Noregs og Danmerkur var leyst upp árið 1814 hélt danskan áfram að vera ritmál í Noregi. Fljót- lega fór að bera á gagnrýnisröddum og bar mest á ljóðskáldinu Henrik Wergeland og hans sjónarmiðum um að sérhvert sjálfstætt ríki ætti að eiga sitt eigið tungumál. Í kjölfar- ið kom eldhuginn Ivar Aaasen frá Ørsta á Mæri sem talaði fyrir því að varðveita bæri norsku mállýskurnar fyrir áhrifum dönskunnar. Ivar Aaa- sen safnaði saman orðum og notkun þeirra vítt og breitt um Noreg og af- raksturinn kom út á orðabók 1850. Gallinn við norsku þess tíma var sá að enginn innlendur staðall var til. Danskan var því eina staðlaða tungumálið sem ritað var og skrifað í Noregi á þessum tíma. Til að leysa þetta vandmál var annars vegar lögð áhersla á að taka inn sérnorsk orð og beygingar í danska ritmálið, og búa til svokallað bókmál, hins vegar var búið til nýtt ritmál á grunni mál- lýskna sem talaðar voru í Vestur- Noregi (landsmál). Sá staðall sem þannig varð til heitir nú nýnorska. Opinber ritmál eru í dag þrjú í Noregi; tvö þeirra eru af sömu „rót“: bokmål og nynorsk. U.þ.b. 15% norsku þjóðarinnar nota nýnorsku við opinber samskipti. Hin u.þ.b. 85% nota bokmål. Notendur bok- måls búa flestir í Austur- og Norður- Noregi, og flestir nýnorskunotendur í Vestur-Noregi. Það mál sem valið er til ritmáls- kennslu í skólum, fer eftir ósk for- eldra og meirihlutinn ræður. Í op- inberri stjórnsýslu er skylt að svara erindi á því máli sem það berst til embættisins. Norskur orðaforði: Raspeball og arbeidsklær Tiltölulega auðvelt er fyrir Íslend- inga að skilja norskan orðaforða ef þeir nota hugmyndaflugið. En dugar ekki alltaf til. Jafnvel Norðmenn eiga erfitt með að panta sér uppá- haldsmeðlætið sitt á veitingastað þegar það heitir: raspeball, raspe- kake, potetball, klubb, kumle og kumpe allt eftir því hvar í landi mað- ur er niðurkominn. Og innihald kart- öflubollana breytist einnig eftir mál- svæðum; þær eru soðnar með svínakjöti fyrir austan, kindakjöti fyrir vestan og fiski fyrir norðan. Bragðið gæti því verið vísbending um málið. Og ýsan heitir hyse fyrir vestan og kolje fyrir austan. Vörslugjald fyrir tunguna? Eftir 40 ára búsetu hér á landi sé ég í hendi mér að Norðmenn eiga Ís- lendingum greiða að gjalda: Vörslu- gjald í þúsund ár fyrir tunguna. Sameiginleg upprunaleg tunga hefur fyrst og fremst varðveist hér á Íslandi. Í raun er ekki hægt að verð- leggja slíkt menningarafrek. En til að sýna þakklætisvott gætu Norð- menn afhent Íslendingum eins og einn til tvo olíubrunna með vinnslu- rétt í Norðursjó. Þegar fiskiflotinn hefur fengið sitt, mætti nýta það sem afgangs verður í að stofna t.d. ferðasjóð fyrir Íslendinga sem hafa hug á að skoða sig um í Noregi og blanda geði við menn. Eins væri hægt að hugsa sér stuðning við íslenska námsmenn til framhaldsnáms í Noregi, á sérsvið- um sem Norðmenn hafa mikla þekk- ingu á. Norska fjölbreyti- legt tungumál með rætur í íslensku Í tilefni af evrópskutungumálaári birtir Morgunblaðið greinar um hin ýmsu tungumál. Hér fjallar Björg Juhlin um norskuna á Degi evrópskra tungumála en um skyldleika hennar og íslenskunnar þarf ekki að fjölyrða. Greinin er birt í sam- vinnu við Stíl, samtök tungumálakennara. Björg Juhlin Höfundur er deildarstjóri í norsku við Menntaskólann við Hamrahlíð. STOFNUN í erlendum tungu- málum, með þátttöku Hugvís- indastofnunar, gengst fyrir dag- skrá í Háskóla Íslands í tilefni Dags evrópskra tungumála sem haldinn er hátíðlegur í dag. Dagskráin hefst með ljóðalestri úti fyrir aðalbygg- ingu Háskólans á ýmsum tungu- málum. Kl. 15 hefst dagskrá í Há- tíðarsalnum þar sem áhersla verður lögð á þýðingar, menningargildi þeirra og mikilvægi í því að kynnast ólíkum menningarheimum. Þeir sem fram koma eru Guðbergur Bergsson, rithöfundur, Guðbjörn Guðbjörnsson, tenór og nemandi í þýsku við H.Í., Fríða Björk Ingvars- dóttir, bókmenntafræðingur og Gauti Kristmannsson þýðingafræð- ingur. Á milli atriða verða sögð ým- is spakmæli frá öðrum löndum. Árið 2001 er evrópskt ár tungu- mála, skipulagt af Evrópusamband- inu og Evrópuráðinu til að sýna fram á fjölbreytileika Evrópu þeg- ar litið er til tungumála þeirra sem töluð eru í álfunni. Annað markmið er að hvetja til náms í erlendum tungumálum. Allt árið hefur ým- islegt verið á döfinni til að vinna að þessum markmiðum og vekja fólk til meðvitundar um ólík tungumál og menningu þá sem tengist hverju tungumáli. Í maí hélt Endurmenntun- arstofnun H.Í. tungumálahátíð; fyrsta vikan í september var vika sí- menntunar með áherslu á tungu- mála- og tölvuþekkingu. Einn stærsti dagur þessa átaks er í dag, 26. september, sem er samevr- ópskur dagur tungumála. Þá taka öll svið menntunar í landinu þátt í að vekja athygli á mikilvægi þess að læra fleiri en eitt tungumál bæði sér til skemmtunar, til menningar- auka og til að sjá dyr opnast að nýj- um heimum. Mikilvægi tungumálsins minnst í Háskóla Íslands BYRJUNIN lofar góðu. John Travolta í öllum sínum svalleika heldur ræðu um að Hollywood fram- leiði bara lélegar myndir nú á dög- um. Fljótlega eftir það kemur eitt áhrifamesta skot sem ég hef séð lengi í kvikmyndum, mjög flott. Það hlakkar í mér. En fljótlega eftir það bregðast vonir mínar og væntingar um að nú sé ég loksins, eftir mjög erfitt sumar, að sjá góða kvikmynd. Hinn myndarlegi Ástrali Hugh Jackman leikur tölvuhakkarann Stanley sem býr einn og yfirgefinn í hjólhýsi í Texas eftir fangelsisvist. Þá kemur hin fagra Ginger, sem englakroppurinn Halle Berry túlkar, og dillar rassinum framan í hann, og fær hann til að vinna fyrir yfirmann sinn, hryðjuverkamanninn Gabriel, sem John Travolta leikur. Hvort það er rass Ginger, eða það að honum er lofað forræði yfir dóttur sinni, sem gerir það að verkum að hann tekur starfinu, er ekki alveg ljóst. Sagan sjálf er frekar þunn og ekki sérlega áhugaverð. Gabriel er mikill aðdáandi töframannsins Harry Houdinis og varar Stanley við að ekki sé allt sem það sýnist. Handrit myndarinnar á að leika gáfulega í kringum og með sjónhverfingapæl- ingar hans, en það reynist heldur til- komulítið. Stanley er algjört fórnar- lamb, og maður á að fá samúð með honum því að dóttirin býr hjá mömmu sinni sem er mikill alkóhól- isti og gift klámmyndaframleiðanda. Of auðvelt og ófrumlegt. Útlit myndarinnar á að vera áhrifamikið, allt svo flott og fínt fyrir augað. Vissulega er upphaf myndar- innar áhugavert, en annars er útlitið of úthugsað, of áferðarfínt, en án þess að hafa neinn sérstakan stíl eða gera neitt nýtt. Og hvernig geta þrír karlmenn rúllað niður mjög háa moldarfjallshlíð og það sést ekki rykkorn á þeim á eftir? Og af hverju þarf Halle Berry að sýna á sér ber brjóstin í tilgangslausu atriði? Nema það eigi að vera ánægjuleg óvænt uppákoma fyrir herramenn? Reynd- ar miðast flest í myndinni við að höfða til hvata og drauma ungra manna, og sagan verður útundan. Fyrst hélt ég hreinlega að eitt- hvað hefði farið fram hjá mér. Fljót- lega áttaði ég mig hins vegar á því, að myndin er ruglingslega framsett og í rauninni er ekkert að skilja. Ekki er allt sem sýnist – eða hvað? KVIKMYNDIR S a m b í ó i n Leikstjórn: Dominic Sena. Handrit: Skip Woods. Aðalhlutverk: John Travolta, Hugh Jackson, Halle Berry og Don Cheadle. 99 mín. Warner Bros 2001. SWORDFISH Hildur Loftsdótt ir ORGELTRÍÓ Agnars Más Magnús- sonar leikur á Hverfisbarnum í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 21.30. Agnar er nýlega fluttur heim eftir dvöl í New York þar sem hann var í einkatímum hjá Larry Goldings, orgelleikara og píanista. Hinir meðlimir tríósins eru Jóel Pálsson, sem leikur á tenórsaxófón, og Erik Quick, sem spilar á slag- verk. Orgeltríó á Hverfisbarnum GOETHE-Zentrum á Laugavegi 18 sýnir þýsku gamanmyndina „Fuss- ball ist unser Leben“ frá árinu 2000 kl. 20.30 annað kvöld, fimmtudags- kvöld. Í myndinni, sem lýsir lífi „litla mannsins“ á hlýlegan hátt, segir frá hópi kunningja sem lifa fyrir fót- bolta. Með aðalhlutverk fer Uwe Ochsenknecht, sem hlaut Þýsku kvikmyndaverðlaunin árið 2000 fyrir leik sinn. Myndin er með enskum texta og aðgangur er ókeypis. Gamanmynd í Goethe Zentrum ♦ ♦ ♦ DILBERT mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.