Morgunblaðið - 26.09.2001, Side 36

Morgunblaðið - 26.09.2001, Side 36
KIRKJUSTARF 36 MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ VETRARSTARF Keflavíkurkirkju er hafið fyrir nokkru. Stefnt er að þróttmiklu vetrarstarfi eins og oft áður. Barnastarf. Prestar safnaðarins hafa gefið út messuskrá fyrir mán- uðina september og október. Messað verður kl. 11 alla sunnu- daga og jafnframt verður barnastarf í safnaðarheimilinu Kirkjulundi á svipaðan hátt og undanfarin ár. Í starfsmannahópi sunnudagaskólans eru Elín Njálsdóttir, Laufey Gísla- dóttir, Helgi Már Hannesson, Sig- ríður Karlsdóttir, Brynja Dís Gunn- arsdóttir, Þóra Jenný Benónýsdóttir og sr. Sigfús Baldvin Ingvason. Kyrrðar- og fyrirbænastund. Á miðvikudögum í hverri viku verður kyrrðar og fyrirbænastund í í kap- ellu Vonarinnar kl. 12.10 fyrir alla aldursflokka og svo súpa, salat og brauð á vægu verði kl 12.25. Umsjón hefur Ástríður Helga Sigurðardóttir cand theol. Stofnun barnakórs kirkjunnar. Nýung í starfi kirkjunnar er stofnun barnakórs sem hinn nýi organisti kirkjunnar Hákon Leifsson sér um. Æfingar verða á miðvikudögum kl. 16 en kirkjukórinn er með æfingar einnig á miðvikudögum kl. 19.30 til 22.30. Áfallateymi. Fræðslustundir um áfallahjálp verða á þriðjudagskvöld- um kl. 20:30–22. Alfa námskeið. Alfa námskeið hefjast í Kirkjulundi hinn 19. sept. kl. 19 undir stjórn Ragnars Snæs Karlssonar og Málfríðar Jóhanns- dóttur og sr. Sigfúsar Ingvasonar og Laufeyjar Gísladóttur og nú er boðið upp á það nýmæli að hafa framhalds- námskeið Alfa 2 sem verður á sama tíma og á sömu kvöldum. Munu þátt- takendur námskeiðanna borða sam- an en síðan skiptist fræðslan í venju- legt Alfa námskeið og Alfa 2. Bókin sem lögð er til grundvallar á nám- skeiði 2 er eftir höfund Alfa nám- skeiðanna Nicky Gumbel og kallast „Líf á nýjum nótum“. Erindi. Sæmundur Hafsteinsson, sálfræðingur, ræðir efnið „Öruggt sjálfstraust og mannleg samskipti “ hinn 20. eða 27 okt. kl. 10–12 og 13– 14. Dr. Sigurlína Davíðsdóttir heldur erindi um streitu lífshætti og heilsu- far hinn 17. nóv. kl. 10–12 og 13–14. Í bæði skiptin verður léttur hádegis- verður í boði. Kirkjudagur. Fram hefur komið tillaga um að félagsamtökum og starfsmannahópum verði boðið upp á að velji sér sérstakan sunnudag sem kirkjudag og mæti þar og taki þátt í messugjörðinni. Tvö félög hafa þeg- ar tekið upp þennan sið, og mun verða haft samband á næstunni við starfsmannahópa og félagsamtök í sókninni þessu viðvíkjandi. Keflavíkurkirkja. Bör Börsson í Langholtskirkju Í VETUR mun sr. Tómas Guð- mundsson lesa hina vinsælu sögu Börs Börssonar eftir Johan Falken- berget í þýðingu Helga Hjörvar. Hver sem komin(n) er til vits og ára man ekki eftir hinum stórskemmti- lega upplestri Helga Hjörvar á sög- unni í útvarpinu hér á árum áður. Upplestur sr. Tómasar verður kl. 14.30–15.15 á miðvikudögum. Komið verður saman í Guðbrandsstofu í anddyri Langholtskirkju. Kaffi og smákökur eru á boði safnaðar. Til- valið er að koma með prjónana með sér eða aðra handavinnu. Upplýsing- ar veitir Svala Sigríður Thomsen djákni í síma 520 1300 eða 862 9162. Verið hjartanlega velkomin, starfs- fólk Langholtskirkju. Foreldra- og barnamorgunn 27. september. Opið hús; upplestur, söngstund, kaffispjall. Safnaðarstarf Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur málsverður á eftir. Grensáskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12. Samverustund aldraðra kl. 14. Biblíulestur, bænastund, kaffi- veitingar og samræður. Háteigskirkja. Mogunbænir kl. 11. Súpa og brauð kl. 12 í hádegi í Setr- inu á neðri hæð safnaðarheimilis. Brids kl. 13 fyrir eldri borgara. Yngri deild barnakórsins æfir kl. 16.30 undir stjórn Birnu Björnsdótt- ur. Kórinn er ætlaður börnum úr 1.–3. bekk. Eldri deild barnakórsins æfir kl. 17.30 undir stjórn Birnu Björnsdóttur. Kórinn er ætla-ður börnum úr 4.–6. bekk. Kvöldbænir kl. 18. Langholtskirkja. Heilsuhópurinn hittist kl. 11–12 í Litla sal. kaffispjall, heilsupistill, létt hreyfing og slökun. Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkj- unni kl. 12–12.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests og djákna í síma 520-1300. Kærleiksmáltíð kl. 12.30. Matarmikil súpa, brauð og álegg 500 kr. Samvera eldri borgar kl. 13–16. Kaffi og smákökur, tekið í spil, upplestur (Bör Börsson), málað á dúka og keramik. Boðið er upp á akstur heiman og heim fyrir þá sem komast ekki að öðrum kosti til kirkju. Verið velkomin. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–7.05. Kirkjuprakkarafundur kl. 14.10–15.30 ætlaður börnum í 1.–3. bekk. Gospelkvöld kl. 20 í Hátúni 10. Guðrún K. Þórsdóttir stjórnar. Þor- valdur Halldórsson og Margrét Scheving syngja og slá á létta strengi ásamt heimilisfólki. Sr. Bjarni Karlsson flytur hugvekju. (Sjá síðu 650 í Textavarpi). Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10. Trúaruppeldi og samfélag kirkjunn- ar. Fræðsla í umsjón sr. Arnar Bárð- ar Jónssonar. Umsjón Elínborg Lár- usdóttir. 7 ára starf kl. 14. Öll börn í 2. bekk velkomin. Skráning í síma 511-1560. Opið hús kl. 16–18. Kaffi- sopi, fræðsla og spjall. Bænamessa kl. 18. Prestur sr. Örn Bárður Jóns- son. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Léttur málsverður í safnaðar- heimili eftir stundina. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Digraneskirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10. Mæður og feður eru velkomin að koma og taka þátt í samveru fram undir hádegi með börnum sínum. Helgistund kl. 11. Unglingadeild Digraneskirkju og KFUM&K, 13–16 ára kl. 20. Grafarvogskirkja. KFUM fyrir drengi 9–12 ára kl. 17.30–18.30. Kirkjukrakkar í Rimaskóla fyrir börn 7–9 ára kl. 18–19. Æskulýðs- félag Engjaskóla fyrir börn 8.–9. bekk kl. 20–22. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17. Litlir lærisveinar í Lindaskóla kl. 17. Kópavogskirkja. Starf með 8–9 ára börnum í dag kl. 16.45–17.45 í safn- aðarheimilinu Borgum. Starf með 10–12 ára börnum TTT á sama stað kl. 17.45–18.45. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir velkomnir. Tekið á móti fyrirbæna- efnum í kirkjunni og í síma 567-0110. Vídalínskirkja. Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12 í safnaðarheimilinu. Álftanes. Foreldramorgnar í Hauks- húsum kl. 10–12 í dag. Heitt á könn- unni. Hlökkum til að sjá ykkur. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir eldri borgara í dag kl. 13:00. Helgistund, spil og kaffiveitingar Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafund- ir verða í Lágafellsskóla alla mið- vikudaga frá kl. 13.30–15. Keflavíkurkirkja. Fermingarhópur 2002 fer í Vatnaskóg. 1. hópur: Holtaskóli og 8. MK, Heiðarskóla Brottför frá Kirkjulundi kl. 8 árd. Æfing Kórs Keflavíkurkirkju frá 19.30–22.30. Stjórnandi Hákon Leifsson. Alfanámskeið kl. 19–22. Ytri-Njarðvíkurkirkja. Spilakvöld aldraðra á morgun fimmtudag kl. 20. Lionsmenn í Njarðvík sjá um akst- urinn og þeir sem vilja láta þá sækja sig hringi á fimmtudag milli kl. 10 og 12 í síma 421-5013. Sóknarprestur. Kletturinn, kristið samfélag. Bæna- stund kl. 20. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladeflía. Fjöl- skyldusamvera kl. 18 sem hefst með léttri máltíð á vægu verði. Kl. 19 er kennsla og þá er skipt niður í deildir. Það er krakkaklúbbur fyrir krakka 2–12 ára, unglingafræðsla fyrir 13– 15 ára unglinga, fræðsla fyrir ungt fólk á aldrinum 16–20 ára. Þá er grunnfræðsla en þar eru kennd und- irstöðuatriði kristinnar trúar. Síðan er kennsla á ensku. Einnig eru til skiptis biblíulestrar, bænastundir og vitnisburðarstundir. Það eru allir hjartanlega velkomnir að koma og vera með okkur. Samband íslenskra Kristniboðs- félaga, Háaleitisbraut 58. Samkoma í Kristniboðssalnum í kvöld kl. 20.30. Andrés Jónsson og Guðlaugur Gunnarsson tala. Allir hjartanlega velkomnir. Haustmarkaður Kristni- boðsins verður laugardaginn 8. sept. í húsi KFUM&K, Holtavegi 28 og hefst kl. 14. Vetrarstarf Keflavíkur- kirkju Keflavíkurkirkja. MINNINGAR ✝ Dagur Daníels-son fæddist í Guttormshaga í Holt- um í Rangárvalla- sýslu 17. október 1918. Hann lést í Landspítalanum 27. júlí síðastliðinn. For- eldrar Dags voru Daníel Daníelsson, bóndi í Guttorms- haga, f. 16.11. 1880, d. 10.4. 1932, og Guð- rún Sigríður Guð- mundsdóttir hús- freyja, f. 12.9. 1885, d. 3.9. 1977. Systkini Dags eru Guðmundur, kennari og rithöfundur, f. 4.10. 1910, d. 6.2. 1990; Valgerður húsfreyja, f. 19.3. 1912, d. 11.5. 1999; Þorsteinn bóndi, f. 28.10. 1913; Gunnar bíl- stjóri, f. 7.5. 1916, d. 13.9. 1997; Elín hús- freyja, f. 20.1. 1920; Steindór múrari, f. 10.9. 1923; Svava, húsfreyja og kenn- ari, f. 31.12. 1927. Eftirlifandi eigin- kona Dags er Ólína Guðmunda Sigurð- ardóttir frá Kirkju- bóli við Arnarfjörð. Synir þeirra eru: Daníel Reynir, tré- smiður og kennari, f. 16.4. 1945, kona hans Guðlaug Snorradóttir kennari, þau skildu; og Kristinn, f. 1.6. 1952, synir hans eru Björn Dagur, Kári og Valur . Útför Dags fór fram í kyrrþey. Dagur Daníelsson dó á sjúkrahúsi 27. júlí síðastliðinn eftir stutta legu. Faðir okkar dó í apríl 1932 rúmlega fimmtugur. Móðir okkar hélt áfram búskap með hjálp okkar systkina. Dagur var fermdur vorið sem pabbi dó. Þá var kreppa utan lands og innan og þeir sem ekki vildu safna skuldum sniðu sér oft þröngan stakk. Það kom í hlut Dags að sjá um viðhald og umbætur á því sem aflaga fór. Hann var mjög laginn við smíðar og hefði átt að læra smíðar og stunda sem aðalatvinnu. Næstu árin var hann heima eða heiman til skiptis. Nokkrar vertíðir var hann í Grindavík og tvö til þrjú sumar var hann kaupamaður í ná- lægum sveitum. Eitt haust fór hann að vinna hjá Ölgerðinni Agli Skalla- grímssyni. Þar var ekki tjaldað til einnar næt- ur. Þar vann hann til sjötugs, um 50 ár. Þar hitti hann eftirlifandi konu sína. Ólínu G. Sigurðardóttur, ætt- aðri úr Arnarfirði. Synir þeirra eru tveir og sonarsynir þrír. Hús sitt reisti hann í Kópavogi og bjó þar síð- an. Á yngri árum var hann fé- lagslyndur og gladdist með glöðum, smakkaði vín og kveikti í sígarettu, en allt var það mjög í hófi. Mörg sumur fór fjölskyldan í ferðir út í heim til skoða sig um. En einhvern- tíma sumarsins kom hann að Gutt- ormshaga til að styrkja ættarböndin og sjá um að rætur hans til átthag- anna héldust. Konu hans og afkom- endum sendi ég samúðarkveðjur og vona að gæfan fylgi þeim. Þorsteinn Daníelsson. Dagur Daníelsson hefur kvatt. Hann var mér jafnan nálægur og brást aldrei trausti mínu. Nokkur ár var ég eiginlega heimagangur hjá þeim Degi og Ólínu. Ég hafði þar stundum herbergi, fæði og það sem mest var um vert, ég naut umhyggju þeirra. Þótt þau væru komin úr fjarlægum héruðum virtist þeim takast vel að tengja sam- an mismunandi dagfar og matar- venjur. Ég naut góðs af þessu og er þakklátur. Þarna kynntist ég líka arnfirsku fólki, t.d. foreldrum Ólínu, þeim Sig- urði og Jónu. Þau voru ekki mjög lík, en þau voru sterkir persónuleikar og virtust bera djúpa virðingu hvort fyrir öðru og öllu góðu. Ég leit ný- lega í dagbókarpistla mína frá júlí- mánuði 1943. Þá var ég eiginlega fluttur að heiman en var þar í kaupa- vinnu. Þá var Dagur fluttur suður og kominn í fasta vinnu, en nú fékk hann sumarfrí og þá kom hann auð- vitað beint heim og var þar í nokkra daga. Hann kom ekki til að sóla sig eða leggjast í leti. Hann kom til að taka þátt í hinu al- menna starfi á heimilinu. Þá fyrst og fremst því sem lent hafði í undan- drætti. Þannig féll honum aldrei verk úr hendi. Einnig mun hann mörgum sinnum hafa rekið erindi heimilisins hér fyrir sunnan. Alla tíð var hann til fyrirmyndar í öllu lífi sínu og störfum. Þannig voru sam- skipti hans við vinnufélagana ein- staklega notaleg. Um 50 ára skeið vann Dagur í Öl- gerðinni Agli Skallagrímssyni. Aðal- starf hans þar var að sjóða ölið í brugghúsinu. Það mun vera vanda- samt og krefjandi starf og unnið gjarnan að næturlagi. Dagur var mikill hófsmaður í mat og drykk, „utan einu sinn – á hann trúi ég rynni“ nokkur galsi, en þá var hann og margir aðrir á fyrsta degi í haustfjallferð – og menn höfðu gjarnan pela í vasa. Þetta kvöld í Áfangagili söng hann manna hæst og sló dálítið um sig í hópi góðra kunn- ingja. Líklega er sjaldgæft að hjónum takist að haldast jafn vel í hendur öll sín búskaparár og þeim Degi og Ollu. Þetta speglaðist á heimili þeirra innan dyra og eins í þeirra vandlega ræktaða garði. Hann setti sig ekki úr færi að gleðja og gera manni greiða. T.d. hélt hann fallega ræðu í afmælis- veislu mágkonu sinnar 1997. Ég ætla að leyfa mér að þakka Guðlaugu Snorradóttur þá einstöku umhyggju og alúð sem bróðir minn og kona hans nutu hjá henni. Ólína, eigin- kona Dags, og aðrir aðstandendur hans hafa mikið misst. Við Rannveig vottum þeim samúð okkar og vonum að hinn alvaldi máttur styrki þau í söknuði þeirra. Steindór Daníelsson. DAGUR DANÍELSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.