Morgunblaðið - 26.09.2001, Side 44

Morgunblaðið - 26.09.2001, Side 44
DAGBÓK 44 MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Brú- arfoss kemur og fer í dag. Kyndill og Atli Mar koma í dag. Erla og Dettifoss fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Polar Prinsess og Florinda komu í gær. Gemine fór í gær. Brúarfoss fer í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sól- vallagötu 48. Skrifstofa sími 5514349, flóamark- aður, fataútlutun og fatamóttaka sími 552- 5277 eru opin miðviku- daga kl. 14 til 17. Mannamót Norðurbrún 1, Furu- gerði 1 og Hæð- argarður 31. Farin verður haustlitaferð í Bása við Þórsmörk 27. sept. ef veður leyfir. Hafa verður með sér nesti til dagsins, hlý föt og góða skó. Leið- sögumaður: Helga Jörg- ensen. Lagt af stað frá Norðurbrún 1 kl. 8.30 og síðan teknir farþegar í Furugerði og Hæð- argarði. Skráning á Norðurbrún í síma 568- 6960, Furugerði í síma 553-6040 og í Hæð- argarði í síma 568- 3132.Vinsamlega stað- festið pantanir. Aflagrandi 40. Ensku- námskeið hefjast þriðju- daginn 3.okt. Skráning í afgreiðslu og síma 562- 2571. Einnig er hæt að komast að í bókbandi sem er á föstudögum kl. 13. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–12 opin handavinnustofan, kl. 13 spilað, kl. 13–16.30 opin smíðastofan, kl. 10- 16 púttvöllurinn opinn. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl. 9–12 vefnaður, kl. 9–16 handavinna og fótaað- gerð, kl. 10–10.30 banki, kl. kl. 13 spiladagur, kl. 13–16 vefnaður. Opið hús fimmtudaginn 4. okt kl. 19–21. Ágústa Sigrún Ágústsdóttir syngur lög af geisladiski föður síns. Upplestur og dans. Allir velkomnir. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðjudögum og fimmtu- dögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Jóga á föstu- dögum kl. 13.30. Kóræf- ingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mos- fellsbæ á Hlaðhömrum á fimmtudaga kl. 17–19. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586-8014 kl. 13–16. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9– 16.45 hárgreiðslustofan og handavinnustofan opnar, kl. 10–10.45 leik- fimi, kl. 14.30 banki. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Spænska hefst 27. sept. kl. 12.15. Leshringur á Bókasafni Garðabæjar byrjar 1. okt kl. 10.30. Bútasaum- ur byrjar 3. okt. kl. 16 í Garðaskóla. Leshringur á Bókasafni Álftanesi byrjar 10. okt. kl. 15. Nánar www.fag.is. Sími 565 6622. Félag eldri borgara, Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl 16.30–18. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handa- vinna. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Myndlist kl. 13, pílukast kl. 13:30. Á morgun verður krukkumálun kl. 13. Dansleikur verður á föstudaginn 28. sept. Caprí Tríó leikur fyrir dansi. Aðgöngumiði gildir sem happdrætti. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Miðviku- dagur: Göngu-Hrólfar fara í létta göngu frá Hlemmi kl. 9.45. Söng- félag FEB kóræfing kl. 17. Línudanskennsla Sigvalda fellur niður. Söngvaka kl. 20.45 um- sjón Sigurbjörg Hólm- grímsdóttir. Stjórnandi Eiríkur Sigfússon. Námskeið í framsögn og upplestri hefst fimmtu- daginn 27. september kl. 16.15. Fræðslunefnd FEB efnir til heimsókn- ar og fræðslukynningar hjá Íslenskri erfðagrein- ingu föstudaginn 28. september. Brottför frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 14. Ath. takmarkaður fjöldi þátttakenda. Þriðjudaginn 2. október kl. 12 koma eldri borg- arar frá Svíþjóð í heim- sókn til í Ásgarð Glæsibæ. Félagar eru hvattir til að koma og taka á móti þeim og skemmta sér undir fjöldasöng og harm- ónikuleik. Léttur hádeg- isverður. Skrifstofa fé- lagsins er flutt að Faxafeni 12, sama síma- númer og áður. Fé- lagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Upp- lýsingar og skráning í ferðir og námskeið á skrifstofu FEB kl. 10–16 s. 588-2111. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 fótaaðgerð og opin vinnustofa, postulín, mósaik og gifsafsteypur, kl. 9–13 hárgreiðsla, kl. 9–16 böðun. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum frá kl. 10–17, kl. 10.30 boccia, kl. 13 félagsvist, kl. 16 hringdansar, kl. 17 bobb. Hraunbær 105. Kl. 9 op- in vinnustofa, handa- vinna, bútasaumur, kl. 9–12 útskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 11 banki, kl. 11–12 pútt, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 föndur, kl 15 teiknun og málun. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi, hittast á morgun, fimmtudag, á Korpúlfs- stöðum. Púttað kl. 10, gönguferð kl. 11. Kaffi- stofan er opin. Allir vel- komnir. Upplýsingar veitir Þráinn Haf- steinsson í síma 545- 4500. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–16 fótaaðgerðir, kl. 9– 12 tréskurður, kl. 10-11 sögustund, kl. 13–13.30 banki, kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun. Vesturgata 7. Kl. 8.25– 10 sund, kl. 9–16 fótaað- gerð og hárgreiðsla, kl. 9.15–16 postulínsmálun og myndmennt, kl. 13– 14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurður. Haustfagnaður verður fimmtudaginn 11, októ- ber, kvöldverður skemmtiatriði, söngur dans og fleira nánar auglýst síðar upp- lýsingar í síma 562-7077. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 10 fóta- aðgerðir, morgunstund, bókband og bútasaum- ur, kl. 12.30 versl- unarferð kl. 13 hand- mennt og kóræfing, kl. 13.30 bókband, kl. 15.30 kóræfing, Vitatorg. Álftanes. For- eldramorgnar í Hauks- húsum kl. 10–12 í dag. Heitt á könnunni. Barðstrendingafélagið Spilað í Konnakoti, Hverfisgötu 105, kl. 20.30 í kvöld. Allir vel- komnir. Sjálfsbjörg, félagsheim- ilið Hátúni 12. Kl. 19.30 í kvöld félagsvist. Orlofsnefnd húsmæðra í Kópavogi, fyrirhugar ferð á Njáluslóðir laug- ardaginn 6. október. Lagt af stað frá Digra- nesvegi 12 kl. 12. Leið- sögumaður Arthúr Björgvin Bollason. Sögusetrið á Hvolsvelli tekur á móti gestum með þriggja rétta veislumáltíð, sem snædd er við langeld, að hætti fornra höfðingja. Sýnd- ur er leikþáttur þar sem Hallgerður og Bergþóra eru í aðalhlutverkum. Að lokum verður stiginn dans. Sætafjöldi er tak- markaður við 40. Upp- lýsingar og skráning hjá Ólöfu sl. 5540388 eða Sigurbjörgu eftir kl. 17 í s. 5543774. Skíðadeild Víkings. Kynningarfundur verð- ur haldinn í Víkinni 27. september kl. 20. ITC deildin Melkorka. Fundur í Menningar- miðstöðinni Gerðubergi í kvöld kl. 20. Stef fund- arins er „Sá einn veit er víða ratar“. Fundurinn er öllum opinn. Upplýs- ingar veitir Jóhanna Björnsdóttir s. 553 1762 og 552 4400, netfang: hannab@isl.is Í dag er miðvikudagur 26. sept- ember, 269. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Þjónn Drottins á ekki að eiga í ófriði, heldur á hann að vera ljúfur við alla, góður fræð- ari, þolinn í þrautum, hógvær er hann agar þá, sem skipast í móti. (II. Tím. 2, 24.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 skrugga, 4 manna, 7 dulin gremja, 8 gefur upp sakir, 9 beita, 11 numið, 13 viðbjóður, 14 eignar- jarðar, 15 nöf, 17 þróttar, 20 ambátt, 22 fiskur, 23 bál, 24 stjórnar, 25 fleinn. LÓÐRÉTT: 1 óskýrt tal, 2 ótti, 3 ræktaðra landa, 4 snjór, 5 sveigjanleg, 6 undin, 10 týna, 12 frístund, 13 reykja, 15 auðsveipur, 16 látin, 18 ól, 19 beiskan, 20 skordýr, 21 klæðleysi. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 goðheimur, 8 kubba, 9 mamma, 10 fáu, 11 peð- in, 13 rella, 15 ókind, 18 snæða, 21 róm, 22 kalla, 23 eflir, 24 snögglega. Lóðrétt: 2 ofboð, 3 hrafn, 4 ilmur, 5 urmul, 6 skip, 7 taða, 12 inn, 14 enn, 15 óska, 16 iglan, 17 draug, 18 smell, 19 ærleg, 20 arra. NÝLEGA var frá því greint í fjölmiðlum að farið væri að bera á því að fyr- irtæki segðu upp starfsfólki sem orðið væri 45 eða eldra. Ímynd rekstursins væri í voða ef einhver gam- all hálffimmtugur starfs- kraftur sæist á ferli í fyr- irtækinu. Það má vel vera að sýna megi fram á þetta í ein- hverjum hæpnum fræði- bókum þar sem mörgum raunþáttum er sleppt, t.d. starfsreynslu – starfsþekk- ingu og viðskiptamanna- vild. Ef þessi umtöluðu fyrir- tæki hafa ekki not fyrir þennan dýrmæta starfs- kraft er um leið verið að gefa okkur þeim eldri þau skilaboð að fyrirtækið kæri sig ekki um okkar viðskipti. Við getum með góðri sam- visku beint viðskiptum okk- ar annað. Við sem erum eldri en 45, sýnum samstöðu og verslum við fyrirtæki sem kunna að meta okkur. Atli Hraunfjörð, Marargrund 5, Gbæ. Lyfjaverð hækkað Á SELTJARNARNESI var Bónusapótek sem var selt og Lyf og heilsa keypti. Við eigendaskipti var lokað í nokkra daga en þegar opnað var aftur var búið að hækka ákveðin lyf um 16– 20%. Ég kannaði verð á þessum lyfjum annars stað- ar til að fá þessa hækkun staðfesta. Hér eftir hlýt ég að kaupa þessi lyf þar sem verðið er hagstæðara. G.B.J. Og enn um umferðarteppu ÉG er alveg sammála Helgu og Sigurlaugu sem skrifuðu í Velvakanda sl. miðvikudag og laugardag um umferðarteppu í Garða- bænum. Ég er líka ein af þeim sem sitja alla morgna í um- ferðarteppu á leiðinni frá Hafnarfirði til Reykjavík- ur. Frá Engidal og að Vífils- staðavegi sit ég og er pirr- uð yfir hvað umferðin geng- ur hægt og hvað þetta tefur mig mikið á leið í vinnuna. Svo hef ég líka reynt að fara Reykjanesbrautina en ekki er það betra. Ég veit ekki af hverju það er ekki gert eitthvað í þessu en mig munar um þennan tíma sem ég sit þarna svo að ég hef stund- um tekið upp á því að punta mig á meðan ég sit föst í röðinni í Garðabænum, það er eina ráðið fyrir mig ef ég ætla að nýta allan minn tíma sem er náttúrlega ekki nógu gott. Með kveðju til þeirra sem málið snertir og í von um að þetta sé lagfært á einhvern máta. Una. Að hlusta á veðurspá SKÚTUSIGLINGA- MENN sem lentu í erfið- leikum sl. laugardag kenndu því um að þessu veðri hefði ekki verið spáð. Á hvaða veðurspá hlustuðu mennirnir eiginlega? Fyrr- verandi fellibylur var mættur á svæðið og spáð stormi á Faxaflóa í hverj- um veðurfregnatíma, síðast í hádeginu á laugardag. Lægir síðdegis var þá sagt. – Og spáin rættist. Þeir ættu að kenna einhverju öðru um ófarir sínar. G. Guðmundsdóttir. Dökkblár anorakkur seldur í misgripum! ÞAU leiðu mistök áttu sér stað á flóamarkaði Hjálp- ræðishersins í Garðastræti föstudaginn 21. september kl. 16 að dökkblár anorakk- ur var seldur í misgripum. Anorakkurinn var seldur á meðan eigandi hans var að máta föt og hafði hann lagt hann frá sér á meðan. Anorakkurinn er með skinnkanti á hettu og merkinu Fjäll á annarri erminni, einnig með ásaumuðu Snoopy-merki sem á stendur Ice is nice. Anorakksins er mjög sárt saknað af eiganda sínum og fæst hann borgaður til baka. Sá sem keypti ano- rakkinn er vinsamlega beð- inn að hafa samband í síma 588-4844 eða 893-1816. Tapað/fundið Gleraugu týndust GLERAUGU í gylltri um- gjörð týndust sl. föstudag á leiðinni Rauðalækur, Hrísateigur, Laugarnes- vegur, Sundlaugavegur, Borgartún að Sóltúni 11. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 553-6396 eða 895-6396. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Ertu 45 ára eða eldri? Víkverji skrifar... LÁNASJÓÐUR íslenskra náms-manna nefnist stofnun, sem margir Íslendingar þekkja til. Stofn- un þessi er ekki þekkt fyrir að vera sérstaklega þjónustusinnuð, en ný- verið kviknaði þar ljós innan dyra og í ljósinu leyndist hugmynd um nýtt greiðslufyrirkomulag. Hingað til hafa þeir, sem eru í skuld við sjóðinn, fengið sendan reikning tvisvar á ári. Annar þeirra, vorboðinn, hefur verið föst upphæð, en hinn, haustboðinn, tekjutengdur og fer þá upphæðin eftir tekjum skuldunautarins. Sam- kvæmt hinu nýja fyrirkomulagi býðst viðskiptavinum Lánasjóðsins að dreifa þessum greiðslum yfir árið. Þetta kostar eitthvað örlítið, en það er að sjálfsögðu aukaatriði. Aðalat- riðið var hins vegar að Lánasjóður- inn bjó til úr þessu afbragðsboði sínu nokkurs konar lotterí og í bréfi, sem sent var skuldunautum og orðið raf- rænn kom að minnsta kosti fyrir einu sinni, var sérstaklega tekið fram að ef þeir brygðust nógu hratt og örugglega við ættu þeir þess kost að hreppa ferð til Barselónu á Spáni. Nú er Víkverji í hópi þeirra sem um árabil hafa fengið sinn greiðsluseðil sendan og greitt hann á tilskildum tíma án þess Lánasjóðnum hafi nokkru sinni hugkvæmst að bjóða honum til Barselónu. Lánasjóðurinn hefur ekki einu sinni boðið honum á Blönduós. Reyndar hafði Víkverji ekki heldur átt von á því að Lána- sjóðurinn byði honum í ferðalög, enda ekki talið það í verkahring sjóðsins. Víkverja finnst hins vegar skjóta skökku við að ekki sé nóg með að hann sé látinn borga lánin sín, heldur sé skattpeningur hans, ein- mitt þegar aðhalds er þörf í gjald- eyrisviðskiptum, notaður til að fjár- magna utanlandsferðir sem Lánasjóðnum hugkvæmist að nota sem agn til að kalla fram ákveðna hegðun viðskiptavina sinna. Lána- sjóðurinn hefur ávallt markað sér sérstöðu og hefur enn verið skerpt á henni með þessari aðgerð sem brýt- ur blað í kynningar- og markaðs- stefnu hins opinbera. Nú má vænta þess að aðrar stofnanir sigli glað- beittar í kjölfarið. Samgönguráðu- neytið gæti til dæmis boðið ókeypis reynsluakstur á afskekktum vegar- spottum þegar þeir eru malbikaðir í fyrsta skipti ef þungaskatturinn er greiddur með klinki og menntamála- ráðuneytið gæti boðið þeim í kynn- isferðir á ómenguð málsvæði, sem borga leikskólagjöldin í póstkröfu. VÍKVERJI er í hópi þeirra, semþyrstir í að afla sér sem mestra upplýsinga um voðaverkin, sem unn- in voru í Bandríkjunum 11. septem- ber, og þá ekki síst um bakgrunn málsins. Ýmislegt hefur verið skrifað um þessi mál, hvort heldur sem er ástandið í Miðausturlöndum og Mið- Asíu, utanríkisstefnu Bandaríkj- anna, hryðjuverk og Osama bin Lad- en og samtök hans. Um helgina hélt Víkverji í bæinn og hugðist kanna hvort eitthvað leyndist forvitnilegt um þessi mál í stærstu bókabúðum landsins. Úrvalið reyndist heldur fá- tæklegt og fannst ekki neitt sem með einum eða öðrum hætti varðaði árás- ir hryðjuverkamanna á New York og Washington, utan nokkur tímarit, og voru þó 12 dagar liðnir frá því að at- burðirnir áttu sér stað. Víkverji hraktist því á netverslunina Amazon, þar sem ýmissa bóka var völ. Þeim viðskiptum fylgir hins vegar biðin eftir bréfberanum, sem vissulega er ekki sama tilfinning og að geta geng- ið inn í bókabúð, fundið bók, keypt hana og byrjað að lesa um leið, og hvarflaði að Víkverja hvort bókabúð- irnar væru að láta úr greipum renna tækifæri með því að bregðast ekki hraðar við þegar atburðir gerast. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.