Morgunblaðið - 23.10.2001, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 23.10.2001, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt þá tillögu heilbrigðisráðherra að skipa starfshóp sjö ráðuneytisstjóra sem á að koma með tillögur að aðgerðum gegn sýkla- og eitur- efnahernaði hér á landi. Formað- ur starfshópsins, sem þegar hefur hist, er Ólafur Davíðsson, ráðu- neytisstjóri í for- sætisráðuneyt- inu. Sóttvarnarlæknir og fleiri sérfræðingar eru starfshópnum til ráðuneytis en meðal þess sem hann þarf að kanna er kostnaður við að- gerðirnar. Samkvæmt upplýsingum úr heilbrigðiskerfinu er talið að kostnaður gæti hlaupið á nokkrum tugum milljóna króna, verði gripið til víðtækra varúðarráðstafana. Stjórnvöld eru með þessu að hlýða kalli Alþjóðaheilbrigðisstofnunar- innar sem beindi þeim tilmælum til þjóða heims að huga að viðbúnaði sínum gegn árásum með sýkla- og eiturefnavopnum. Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra kynnti aðgerðirnar á fundi rík- isstjórnarinnar í síðustu viku. Í sam- tali við Morgunblaðið sagði hann að heilbrigðiskerfið væri öflugt og vel í stakk búið til að eiga við einstök til- vik af þessu tagi. Engin hætta væri talin á ferðum en eigi að síður væri það skylda stjórnvalda að halda vöku sinni ef alvarleg tilvik kæmu upp, samanber grun um miltisbrand í póstsendingu til Borgarendurskoð- unar í gær. Jón sagði kostnaðinn við aðgerð- irnar geta orðið verulegan, t.d. ef safna þyrfti birgðum af bóluefni, koma upp meiri viðbúnaði á Land- spítalanum, auka fræðslustarf eða setja upp sóttkví á Keflavíkurflug- velli. Aðgengi að bóluefnum kannað Ráðherra sagði starfshópinn þeg- ar hafa hafið störf og hann væri bú- inn að fela sóttvarnarlækni að safna upplýsingum um viðbúnað og að- stæður á móttökudeildum og rann- sóknarstofum þar sem tekið yrði við fórnarlömbum þessa hernaðar. Leit- að hefur verið eftir áliti sóttvarnar- ráðs á hugsanlegri hættu sem stafa kann af sýkla- og eiturefnavopnum og viðbrögðum við þeim og sóttvarn- arlæknir hefur haldið samráðsfund með yfirlæknum smitsjúkdóma- deildar, veirufræðideildar og sýkla- deildar Landspítalans. Einnig hefur upplýsinga verið afl- að frá lyfjafyrirtækjunum um að- gengi að bóluefnum og ráðuneytis- stjóri heilbrigðisráðuneytisins hefur rætt óformlega við aðstoðarmann bandaríska heilbrigðisráðherrans um hugsanlega aðstoð Bandaríkja- manna ef hætta stafaði af sýkla- og eiturefnavopnum. Þá mun stjórnskipuð samstarfs- nefnd um sóttvarnir krefja allar rannsóknarstofur í landinu og alla þá aðila sem sem senda þeim sýni til sýklagreiningar um að tilkynna sótt- varnarlækni um mögulega sjúk- dómsvalda sem finnast í sýnunum. Starfshópi sjö ráðuneytisstjóra ætlað að skila tillögum um aðgerðir gegn sýkla- og eiturefnavopnum Kostnaður gæti hlaup- ið á tugum milljóna Jón Kristjánsson ÁRLEGUR samráðsfundur yfir- manna forsætisráðuneyta OECD- ríkja hófst í Reykjavík í gær og verður honum fram haldið í dag. Fundar- efnið í gær var hvernig stjórn- völd gætu brugðist við þeim ógnum sem að ríkjun- um steðjaði, hvort sem það væri vegna náttúruhamfara eða hryðjuverka. Að sögn Ólafs Davíðssonar, ráðu- neytisstjóra í forsætisráðuneytinu sem situr fundinn fyrir Íslands hönd, voru hryðjuverkin í Banda- ríkjunum ofarlega á baugi og hvernig stjórnvöld gætu varist slíkri vá. Umræðuefnið var ákveðið fyrir ári en til viðbótar ætla fulltrúar frá ríflega tuttugu OECD-ríkjum að ræða í dag um verkaskiptingu opinberra aðila og einkaaðila. Sér- fræðingar frá sömu ríkjum sitja einnig fundinn, ásamt starfsmönn- um OECD. Ólafur sagði í samtali við Morgunblaðið að á fundinum hefði m.a. verið fjallað um hvaða aðferð- ir OECD-ríkin nota til að greina opinberlega frá hættuástandi og hvernig samskiptum er háttað við fjölmiðla og almenning þegar mikil vá stendur fyrir dyrum. Nauðsyn- legt hefði verið talið að halda al- menningi vel upplýstum á hverjum tíma. Allir að fást við sama vandann „Hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september síðastliðinn hafa gjörbreytt viðhorfum stjórnvalda til þessara mála. Fulltrúi frá Bandaríkjastjórn skýrði okkur frá því hvernig þarlend stjórnvöld skipulögðu sínar aðgerðir. Það kom greinilega fram að öll ríkin hafa tekið þessi mál til rækilegrar athugunar eftir atburðina í Banda- ríkjunum og eru að fást við sömu vandamálin með svipuðum hætti. Fyrirfram segja flestir að mjög ólíklegt sé að eitthvað gerist hjá þeim en enginn getur lengur leyft sér að taka þannig á málum. Við verðum að hafa allan viðbúnað ef upp kemur hættuástand á borð við hryðjuverk. Þetta kom mjög skýrt fram á fundinum,“ sagði Ólafur. Eins og áður sagði var umræðu- efni fundarins ákveðið fyrir ári en Ólafur sagði að þá hefði engan grunað hversu ógnvænlegt þetta mál yrði nú. Menn hefðu fyrir ári meira haft hugann við náttúru- hamfarir en hryðjuverk og á fyrr- nefnda sviðinu hefðu íslensk stjórnvöld getað miðlað talsverðri reynslu til grannríkjanna. Á fundinum í gær var einnig fjallað um dýrasjúkdóma eins og kúariðu og gin- og klaufaveiki og greindi fulltrúi Breta frá aðgerð- um þeirra gegn slíkri hættu. Nauðsynlegt að halda almenningi vel upplýstum Ólafur Davíðsson Yfirmenn forsætisráðuneyta OECD-ríkja funda í Reykjavík um hryðjuverk og fleiri ógnir  Hefja þarf umfangsmikið kennslu- og fræðslustarf og efla kunnáttu og skilning heil- brigðisstétta á afleiðingum sýkla- og eiturefnavopna. Einn- ig þarf að fræða lögreglu, hjálparsveitir og sjúkraflutn- ingamenn.  Fjölga þarf líklega þeim fimm einangrunarherbergjum með þrýstibúnaði sem eru á Land- spítala – háskólasjúkrahúsi í Fossvogi.  Möguleiki þarf að vera á sóttkví á Keflavíkurflugvelli og sóttvörnum í sjúkraflutningum.  Endurskoða þarf aðkomu póst- húsa og tollgæslu vegna flutn- inga til landsins og heilbrigð- isyfirlýsingu skipstjóra og flugstjóra við komu til landsins.  Bæta þarf aðstöðu rannsókn- arstofa til greiningar á orsök- um hættulegra sýkinga og eitr- ana.  Nauðsynlegt er að efla vöktun og alþjóðlegt samstarf um sótt- varnir.  Taka þarf ákvarðanir um um- fang birgða af bóluefnum, sýklalyfjum og öðrum nauðsyn- legum búnaði í landinu vegna möguleika á slíkum árásum hér á landi eða í nágrannalöndum.  Taka þarf upp formlegar við- ræður við Bandaríkin, Norð- urlöndin og NATO um sam- starf og aðstoð ef hætta stafar af sýklavopnum. Nauðsynlegar úrbætur í sýklavopnavörnum SKRIFSTOFUR Borgarendur- skoðunar við Tjarnargötu 12 voru innsiglaðar í gær en þær verða lok- aðar þar til niðurstöður rannsókna á hvítu dufti, sem rann úr umbúð- um utan um The Economist, liggja fyrir. Talin var hætta á að að milt- isbrandsgró gæti leynst í duftinu. Búist er við að sýklarfræðideild Landspítala – háskólasjúkrahúss ljúki rannsókn sinni í fyrramálið, miðvikudagsmorgun. Tveir starfsmenn Borgarendur- skoðunar komust í snertingu við duftið og voru þeir fluttir með sjúkrabifreið á slysadeild. Alls fengu 15 manns meðferð gegn hugsanlegu miltisbrands- smiti, að sögn Más Kristjánssonar, smitsjúkdómalæknis á Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Már segir að fólkinu hafi verið gefið sýklalyfið ciprofloxacin. Lyfjagjöfin hafi verið í öryggisskyni en litlar líkur séu í raun taldar á því að miltis- brandsgró hafi verið í duftinu. Sýni voru tekin af fólkinu og af umbúð- um tímaritsins og þau send til rann- sóknar hjá sýklafræðideild Land- spítalans. Lögregla og slökkvilið höfðu mikinn viðbúnað við skrifstofur Borgarendurskoðunar eftir að þeim barst tilkynning um dularfullt duft sem hefði fallið úr póstsendingu. Guðbrandur Bogason, stöðvarstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, stjórnaði aðgerðum slökkviliðsins í Tjarnargötu. Hann segir að til- kynningin hafi verið tekin mjög al- varlega og viðbúnaður hafi verið í samræmi við það. Þegar slökkviliðið kom á vett- vang hafi starfsmenn Borgarendur- skoðunar verið búnir að setja um- búðirnar og tímaritið í plastkassa. Eiturefnakafarar voru sendir eftir kassanum sem var pakkað í svartan ruslapoka og límt vandlega fyrir. Talið var að duftið hefði snert hörund tveggja starfsmanna en þeir höfðu þrifið sig eftir mætti þegar slökkviliðið kom á vettvang. Starfsmennirnir voru látnir fara úr þeim fötum sem líklegt var talið að duftið hefði komið við áður en þeim var ekið á slysadeild. Þegar skrif- stofurnar höfðu verið rýmdar var húsnæðið innsiglað. Sett í poka og kassa Ólafur Jónsson, rekstrarstjóri Ráðhúss Reykjavíkur, sagði að þegar starfsmaður Borgarendur- skoðunar hafi opnað plastumbúðir utan um The Economist hafi tor- kennilegt duft fallið úr því. Starfs- maðurinn hafi brugðist rétt við í alla staði, sett umbúðirnar og tíma- ritið í plastpoka og pokann í plast- kassa og loks þvegið sér. Síðan hafi verið hringt í lögreglu sem gerði sínar ráðstafanir. Ólafur segir að á mánudaginn fyrir rúmlega viku hafi verið farið yfir það í ráðhúsinu hvernig yrði brugðist við ef þangað bærist torkennilegur póstur. Fundað var með starfsmönnum skjalasafns, síma- og upplýsinga- þjónustu og öryggis- og húsvörð- um. Þá var keyptur búnaður sem talinn var geta komið að gagni, s.s. grímur fyrir öndunarvegi, hanskar, plastbox og plastpokar. Skrifstofur Borgarendurskoðunar eru við Tjarnargötu en þegar starfsmaður- inn varð var við duftið var farið eft- ir plastpokum og plastboxi í ráð- húsið. Sjálfur fór Ólafur á skrifstofur Borgarendurskoðunar eftir að hann frétti af duftinu dularfulla og hann var því einn þeirra sem fengu sýklalyf gegn miltisbrandi. Christopher Collins, dreifingar- stjóri hjá The Economist, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að þegar verið væri að framleiða The Economist og fleiri tímarit væri meinlaust hvítt duft notað til að koma í veg fyrir að plastpokarnir sem tímaritinu er pakkað inn í loði saman. Duftið geri það að verkum að auðveldara er að koma tímarit- inu inn í pokana. Þetta hafi tíðkast í mörg ár og ekki aðeins hjá þeim prentsmiðjum sem prenta The Eco- nomist. „Ég held að fyrir nokkrum vikum hefði enginn veitt þessu at- hygli en þá voru menn ekki hræddir við miltisbrand en nú eru menn svo- lítið taugaveiklaðir,“ sagði Collins. „Við teljum enga ástæðu fyrir fólk að hafa áhyggjur en sé fólk áhyggjufullt höfum við fullan skiln- ing á því að það vilji hafa samband við yfirvöld og jafnvel leiti til lækn- is.“ Svipað atvik kom upp í síðustu viku en þá lét einn af áskrifendum The Economist í Madrid lögreglu vita af torkennilegu dufti í umbúð- um tímaritsins. Aðspurður hvort viðbrögð lögreglu í Madrid hafi ver- ið svipuð og yfirvalda í Reykjavík segir Collins að lögreglan í Madrid hafi tekið sýni af duftinu en ekki að- hafst frekar. Þar hafi reyndar verið um að ræða einstakling en ekki op- inbera stofnun sem gæti skýrt mis- munandi viðbrögð yfirvalda. Lög- reglan í Madrid hafi rannsakað duftið sem hafi reynst meinlaust. Collins segir að önnur tímarit hafi orðið fyrir svipuðum atvikum. „Þetta er ekki bara The Economist og ekki bara Reykjavík,“ en þetta mun vera níunda tilfellið í Evrópu. Morgunblaðið/Júlíus Slökkviliðsmenn í eiturefnabúningum fjarlægðu hluti sem komust í snertingu við torkennilegt hvítt duft. Skrifstofur Borgarendur- skoðunar innsiglaðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.