Morgunblaðið - 23.10.2001, Síða 10

Morgunblaðið - 23.10.2001, Síða 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ STEINGRÍMUR J. Sigfússon var endurkjörinn formaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns fram- boðs, með langvinnu lófataki full- trúa á landsfundi flokksins á sunnudag. Engin mótframboð við kjör stjórnar flokksins komu fram á fundinum og var tillaga uppstill- inganefndar um æðstu stjórn, meðstjórnendur og flokksráðs- menn samþykkt einróma. Svanhildur Kaaber var endur- kjörin varaformaður flokksins, Kristín Halldórsdóttir var endur- kjörin ritari og Tryggvi Friðjóns- son gjaldkeri. Þá voru eftirtaldir kjörnir meðstjórnendur: Anna Guðrún Þórhallsdóttir Vesturlandi, Stefanía Traustadóttir Reykjavík, Drífa Snædal Reykjavík, Karólína Einarsdóttir Austurlandi og Magnús Jósepsson Vesturlandi. Festa sig í sessi í sveitarstjórnum Steingrímur sagði er niðurstöð- ur stjórnarkjörs lágu fyrir að auk þess málstaðar sem flokkurinn stæði fyrir væri hin mikla sam- staða dýrmætasta eign Vinstri- heyfingarinnar. ,,Hún er sú eining, eindrægni og kraftur sem birtist í því að við erum ekki að fljúgast á við okkur sjálf. Við erum ekki eins og ökutæki, sem eyðir 90% í mið- stöðina og á ekki nema 10% eftir í hjólin. Allur okkar styrkur beinist að þeim verkefnum sem við erum að vinna í pólitíkinni og út á við,“ sagði hann. Steingrímur sagði einnig í ræðu er hann sleit lands- fundi flokksins um miðjan dag á sunnudag að Vinstrihreyfingin –grænt framboð væri hreyfiaflið í íslenskum stjórnmálum um þessar mundir. Hann sagði að á næsta eina og hálfa árinu færu fram tvennar afdrifaríkar kosningar, til sveitarstjórna og Alþingis. „Þessar kosningar verða líka gríðarlega mikilvægar fyrir okkar hreyfingu. Þar ætlum við í fyrra tilvikinu að festa okkur í sessi og koma ár okkar fyrir borð í sveit- arstjórnum landsins, alstaðar þar sem þess verður nokkur kostur. Og síðan alþingiskosningarnar að ári liðnu. Þar ætlum við að ná í hlöðu þeirri uppskeru sem við eig- um núna út um víða velli og verða vel búin til pólitískra verka kom- andi ára og áratuga að þessum tveimur kosningum liðnum,“ sagði hann. Landsfundurinn samþykkti ný lög Vinstrihreyfingarinnar á lands- fundinum á sunnudag þar sem skipulag flokksins er m.a. lagað að nýrri kjördæmaskipun. Voru kjörnir fimm flokksráðsmenn á fundinum, einn fyrir hvert kjör- dæmi. Tillaga uppstillinganefndar um eftirtalda í flokksráð var samþykkt samhljóða: Ragnar Stefánsson Norðurlandi eystra, Ármann Jak- obsson Reykjavík, Katrín Freys- dóttir Suðurlandi, Jóhanna B. Magnúsdóttir Reykjanesi og Gunnlaugur Haraldsson Vestur- landi. Einkavædd almannaþjónusta færð til opinberra aðila á ný Miklar umræður fóru fram um álit starfshópa og afgreiðslu álykt- ana flokksins á síðasta degi lands- fundarins. Auk afgreiðslu stjórn- málaályktunar voru afgreiddar ályktanir í ýmsum málaflokkum. Drög að ályktunum sem lögð voru fyrir þingið breyttust töluvert við umfjöllun starfshópa og komu einnig fram nokkrar breytingartil- lögur við umræðurnar á sunnudag, sem einnig voru samþykktar að mestu óbreyttar. Í stjórnmálaályktun landsfund- arins, sem samþykkt var með öll- um greiddum atkvæðum undir lok fundarins, segir m.a.: ,,Hlutverk Vinstrihreyfingarinn- ar – græns framboðs í íslenskum stjórnmálum er þeim mun mik- ilvægara sem ljóst er að naprir hægri vindar hafa skekið undir- stöður samfélagsins. Leiðarljós síðustu ríkisstjórna undir forystu Sjálfstæðisflokksins, fyrst með Al- þýðuflokknum og nú með Fram- sóknarflokknum, er blind trú á fjármagnið og markaðinn, nýfrjáls- hyggjan með sínum hörðu gildum. Annars vegar hefur þetta leitt til vaxandi auðsöfnunar fárra og hins vegar til versnandi lífskjara þeirra sem minnst hafa efnin og til stór- felldrar byggðaröskunar. Heyja þarf kröftuga baráttu fyrir fé- lagslegum réttindum og jöfnuði og fyrir varðveislu náttúru og um- hverfis.“ Í ályktuninni segir einnig að með einkavæðingu opinberra fyr- irtækja hafi framganga ríkis- stjórnarinnar verið með eindæm- um. Nú síðast hafi steininn tekið úr í málefnum Landsímans. „Þar þjösnast ríkisstjórnin áfram með eitt af verðmætustu og mikilvæg- ustu almenningsþjónustufyrirtækj- um landsins í andstöðu við vilja al- mennings og hlustar ekki á nein varnaðarorð. Landsfundur Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs krefst þess að fallið verði frá áformum um einkavæðingu Land- símans og áskilur Vinstrihreyfing- in –grænt framboð sér rétt til að færa einkavædda almannaþjónustu til opinberra aðila á nýjan leik,“ segir í stjórnmálaályktuninni. Ófyrirsjáanleg átök ef ráð- herra fer gegn úrskurði Skipulagsstofnunar Ríkisstjórnin er einnig sökuð um að hafa klofið þjóðina í herðar nið- ur með offorsi í stóriðjumálum og í sérstakri ályktun um stóriðju og Steingrímur J. Sigfússson var einróma endurkjörinn formaður á landsfundi VG Morgunblaðið/Ásdís Steingrímur J. Sigfússon var endurkjörinn formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Steingrímur tekur hér við heillaóskum landsfundarfulltrúa. Við hlið hans er Ragnar Arnalds, fyrrverandi alþingismaður. Hreyfiaflið í íslenskum stjórnmálum Víða er komið við í ályktunum landsfundar VG, sem lauk á sunnudag. Í frásögn Ómars Friðrikssonar kemur fram að í ályktun um stóriðjumál er ríkisstjórnin sökuð um offors og í sjávarútvegsmálum er lagt til að núverandi kvótakerfi verði fyrnt með byggðatengingu og vistvænni nýtingu fiskimiðanna. FJÖLBREYTILEIKINN er nauð- synlegur hverju samfélagi en hann á sér líka takmörk. Þetta var meginniðurstaða hringborðs- umræðna á landsfundi Vinstri- hreyfingarinnar – græns fram- boðs sem haldnar voru á laugardag en þar var jafnframt imprað á þeirri skoðun að Ísland yrði ekki fjölmenningarlegt sam- félag með því einu að bjóða hing- að til lands fjölda útlendinga. Samfélagið yrði fyrst fjölmenn- ingarlegt þegar menningar- samskipti Íslendinga og þeirra út- lendinga sem hér búa yrðu gagnvirk, þ.e. þegar Íslendingar legðu sig eftir því að læra af þeim aðfluttu, rétt eins og þeir verða að aðlagast íslenskum aðstæðum. Yfirskrift hringborðsumræðn- anna var: „Byggjum framtíð á fjölbreytni“. Ármann Jakobsson íslenskufræðingur reið á vaðið í umræðunum og sagði ljóst að mik- il einsleitni hefði einkennt íslenskt samfélag í gegnum aldirnar. Ein- hver teikn væru á lofti nú um stundir en því færi þó fjarri að Ís- land væri fjölmenningarsamfélag. Sagði hann orðið fjölbreytni að vísu mjög vera í tísku en því mið- ur ekki í verki. Það ætti ekki síður við um at- vinnumál en menningu – þannig væri patentlausnin í atvinnulífinu í dag að byggja eitt stykki álver. Reykjavík einhæft samfélag en mikil flóra á Vestfjörðum Jóhann Björnsson heimspek- ingur sagði fjölbreytni flókið hug- tak og ekki alltaf jákvætt enda mætti segja að fjölbreytnin yrði mönnum stundum um megn. Á endanum lærðu menn þó að lifa með henni. Jóhann sagði að vissulega styddi hann fjölbreytni í flóru mannlífsins og að sannarlega tengdist hugtakið umburðarlyndi og frjálsræði. Í þeim efnum mætti hins vegar fara yfir strikið eins og í öðru. Vandi fjölbreytninnar væri sá að menn tækju að hugsa með sér að þeir gætu gert það sem þeir vildu í hennar skjóli. Dorothee Katrin Lubecki, ferðamálafulltrúi á Ísafirði, sagði að það hefði komið henni á óvart er hún flutti til Vestfjarða frá Berlín í Þýskalandi hversu lífið þar væri fjölbreytt, þrátt fyrir einhæfni á yfirborðinu. Reykjavík væri einstaklega ein- hæft samfélag, að hennar mati, eins og útvötnuð útgáfa af banda- rísku þjóðfélagi, en fjölbreytnina fyndi hún meðal fólksins á Vest- fjörðum. Þar byggju menn yfir einörðum skoðunum og ofgnótt hugmynda. Vandinn fælist í því að ekki væri stutt nógu dyggilega við bak frumkvöðlanna á landsbyggð- inni. Þar þyrfti að gera bragarbót. Einar Már Guðmundsson rithöf- undur sagði að oft byggi ótrúleg einsleitni að baki yfirborðs- kenndri umræðu um fjölbreytni. Tók hann sem dæmi fjölmiðla á Ís- landi og á Vesturlöndum, allir væru þeir eins. Skáldskapurinn – lygin – leitaðist hins vegar við að tjá önnur sjónarmið og væri því í raun stórpólitískt fyribæri. „Fátt vitnar betur um andleysi og tómleikakennd nútímans en vaxandi ofbeldi og aukin neysla harðra vímuefna,“ sagði Einar Már. „Dekrið við skuggahliðarnar stafar af skorti á birtu. Það er Bakkabræðraheimspeki að ætla sér sífellt að bera myrkrið inn á meðferðarstofnanir og láta nefnd- ir og stofnanir föndra við málið einar og sér. Spurningin er: hvernig veitum við æskulýð lands- ins andlega birtu? Hvernig sigr- umst við á tómleikanum?“ Svaraði Einar því til að það þyrfti að huga að hinum innri heimi, virkja stóriðjuna í koll- inum, efla smáiðnað andans. Að minnsta kosti eitt hundrað tungumál töluð á Íslandi Ingibjörg Hafstað fram- kvæmdastjóri hefur unnið við að kenna nýbúum íslensku. Hún sagði okkur öll fanga eigin menn- ingar, menningin væri rammi sem Fjölbreytileikinn á sér TÖLUVERÐAR umræður urðu á landsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um orðalag ályktun- ar vegna hryðjuverkaárásanna í Bandaríkjunum og loftárásanna á Afganistan. Kom fram í máli nokk- urra landsfundarfulltrúa að gæta þyrfti jafnvægis í fordæmingu á báð- um þessum atburðum. Í endanlegri ályktun sem sam- þykkt var samhljóða á fundinum er lýst harmi vegna hryðjuverkanna í Bandaríkjunum 11. september sl. ,,Jafnframt fordæmir fundurinn harðlega loftárásir Bandaríkjamanna og Breta í Afganistan og stuðning ríkisstjórnar Íslands við þær. Árás- irnar hafa þegar kostað marga sak- lausa og varnarlausa borgara lífið og stefna í tvísýnu lífi heillar þjóðar sem þegar býr við hungurmörk. Þær að- gerðir eru ekki til framdráttar alþjóð- legri baráttu gegn hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi. Þvert á móti eru þær til þess eins fallnar að æsa upp hatur og ofbeldi. Leita á allra friðsamlegra leiða til þess að koma í veg fyrir hryðjuverk og láta þá svara til saka fyrir alþjóðlegum dómstólum sem gerast sekir um slíka glæpi. Hryðjuverk eru í reynd til- ræði, ekki aðeins við fórnarlömbin hverju sinni heldur við siðað sam- félag. Sú eldraun sem við stöndum frammi fyrir er að bregðast þannig við að okkur takist að varðveita rétt- arríkið og þær grundvallarreglur um mannréttindi sem mannkynið hefur sameinast um.“ Gagnrýna fréttastofa sjónvarps Sveinn Rúnar Hauksson gagn- rýndi harðlega fréttaflutning fjöl- miðla af árásum Bandaríkjamanna í Afganistan, einkum umfjöllun Ríkis- sjónvarpsins. Lagði hann fram svo- hljóðandi viðbótartillögu við ályktun landsfundarins um menningarmál: ,,Landsfundurinn vekur athygli á áfellisdómi er fréttastofa sjónvarps hlaut nýverið hjá siðanefnd Blaða- mannafélags Íslands er fréttastofan þáði boðsferð Ísraelsstjórnar. Niður- staðan var alvarlegt brot á siða- reglum BÍ. Krefjast verður þess að fréttastofa sjónvarps hlíti lögum og gæti óhlutdrægni í umfjöllun um al- þjóðamál, en hún hefur í of ríkum mæli einkennst af gagnrýnislausum stuðningi við bandaríska utanríkis- stefnu og stríðsrekstur.“ Var tillaga Sveins Rúnars sam- þykkt með öllum greiddum atkvæð- um sem ályktun landsfundarins. Fordæma stuðning ríkisstjórnarinnar við loftárásir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.