Morgunblaðið - 23.10.2001, Síða 16

Morgunblaðið - 23.10.2001, Síða 16
AKUREYRI 16 ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ VOGIR Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum eitt mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband Síðumúla 13, sími 588 2122 www.eltak.is KRISTJÁN Þór Júlíusson, bæj- arstjóri á Akureyri, tók fyrstu skóflustunguna að fjölnota íþróttahúsi á félagssvæði Þórs við Skarðshlíð sl. laugardag að við- stöddu fjölmenni. Þetta var stór dagur í íþróttasögu Akureryrar en markmið bæjaryfirvalda með byggingunni er að koma upp inn- anhússaðstöðu fyrir knattspyrnu og frjálsar íþróttir. Bæjarstjóri notaði til verksins stunguskóflu sem KA færði Þór að gjöf á 75 ára afmæli félagsins árið 1990. Bæjarstjóri lét ekki þar við sitja heldur stökk upp í vélskóflu og tók aðra skóflu- stungu á vélinni. Í kjölfarið skrif- aði bæjarstjóri undir samning við Stefán Friðfinnsson, fram- kvæmdastjóra Íslenskra að- alverktaka hf., um byggingu hússins. Við það tækifæri sagði bæjarstjóri m.a. að aðstaða til knattspyrnuiðkunar í bænum hefði frekað versnað undanfarin ár en hins vegar hefðu Akureyr- arfélögin náð frábærum árangri á knattspyrnuvellinum í sumar. Og hann spurði hvernig yrði með frekari árangur liðanna eftir að húsið rís og sagði að þá væri ekki víst að landið dygði til. Húsið tilbúið eftir rúmt ár Unnið verður að jarðvegs- skiptum nú í haust, auk þess sem knattspyrnuvöllurinn verður fergjaður. Framkvæmdir við hús- ið hefjast næsta vor en húsinu á verktakinn að skila í desember á næsta ári. Húsið er um 9.500 fer- metrar að stærð, auk þess sem byggður verður 67 fermetra tengigangur við Hamar, þar sem búningsaðstaða, böð og snyrt- ingar verða nýtt. Í húsinu verður löglegur knattspyrnuvöllur lagð- ur gervigrasi og aðstaða fyrir frjálsar íþróttir. Heildarkostn- aður við þessa framkvæmd er um hálfur milljarður króna. Við athöfnina á laugardag færði Stefán Friðfinnsson, fram- kvæmdastjóri Íslenskra að- alverktaka, KA og Þór pen- ingagjöf, 100 þúsund krónur hvoru félagi, og bolta. Eftir at- höfnina var viðstöddum boðið upp á veitingar í Hamri. Morgunblaðið/Kristján Stefán Friðfinnsson, framkvæmdastjóri Íslenskra aðalverktaka, afhenti formönnum KA og Þórs, Helgu Stein- unni Guðmundsdóttur og Jóni Heiðari Árnasyni, peningastyrk og bolta að gjöf við athöfnina á félagssvæði Þórs. Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, tók fyrstu skóflustunguna að fjölnota íþróttahúsi á félagssvæði Þórs og lék sér aðeins með torfuna við það tækifæri. Fyrsta skóflustungan tekin að fjölnota íþróttahúsi BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam- þykkti á síðasta fundi sínum tillögu umhverfisráðs þess efnis að breyta göngugötunni í vistgötu og opna hana fyrir bílaumferð alla virka daga frá kl. 8–22. Í vistgötu eiga gangandi vegfarendur réttinn gagnvart bíla- umferð. Báðir bæjarfulltrúar Akur- eyrarlistans lögðu fram bókun á fundinum, þar sem fram kom að þeir væru á móti því að göngugatan væri opin fyrir bílaumferð yfir sumartím- ann. Ásgeir Magnússon, formaður bæj- arráðs og bæjarfulltrúi Akureyrar- listans, sagðist vilja sjá að þetta svæði yrði notað með öðrum hætti yfir sumarið. Nauðsynlegt væri að leita leiða til að lífga upp á miðbæinn. Tillögu umhverfisráðs um að hleypa umferð á götuna með lág- marksaðgerðum til bráðabirgða var vísað til framkvæmdaráðs og einnig þeirri tillögu að fresta þeim um- fangsmiklu framkvæmdum sem fyr- irhugað er að ráðast í á næsta ári. Framkvæmdaráð samþykkti að fela framkvæmdadeild að gera nauðsyn- legar breytingar þannig að gatan yrði vistgata með lágmarkskostnaði. Göngugatan opnuð fyrir bílaumferð TILBOÐ voru opnuð hjá Vega- gerðinni í gær í rekstur tveggja ferja í Eyjafirði, Hríseyjarferju og Grímseyjarferju. Vegagerð- in óskaði eftir tilboðum í rekst- urinn síðastliðið sumar. Annars vegar er um að ræða ferjuleið- ina Dalvík-Grímsey-Dalvík með ferjunni Sæfara á tíma- bilinu 2002 til 2004. Þrjú tilboð bárust í reksturinn. Þau voru frá Jóni Magnússyni í Reykja- vík, Eysteini Ingvasyni, Reykjavík, og Samskipum, Reykjavík. Um var að ræða þrjú mis- munandi tilboð eftir því hvað í þeim var falið. Lægsta tilboðið var frá Jóni Magnússyni, 79,2 milljónir, 82,3 milljónir og 102,3 milljónir. Eysteinn bauð, 87,1 milljón, 89,1 milljón og 117,6 milljónir, en tilboð Samskipa var 176,0 milljónir, 176,2 millj- ónir og 178 milljónir. Félagið sendi einnig inn frávikstilboð sem var lægra en það miðar við breytingar á búnaði skipsins. Verktaki áætlaði kostnað á bilinu 78 til 83,6 milljónir. Hreppurinn býður í reksturinn Reksturinn er boðinn út á tímabilinu 2002 til 2004. Sam- skip hafa séð um rekstur Sæ- fara frá því síðasta útboð fór fram. Rekstur Hríseyjarferjunnar Sævars var nú boðinn út í fyrsta skipti, en eitt tilboð barst í reksturinn frá Hríseyjar- hreppi að upphæð 93.408.683 krónur. Áætlaður verktaka- kostnaður er að upphæð 108.570.000 krónur. Þrjú tilboð í Grímseyj- arferjuna ÞRÍR keppendur urðu efstir og jafn- ir í opnum flokki á Haustmóti Skák- félags Akureyrar sem er nýlokið. Þeir Jón Viðar Björgvinsson, Stefán Bergsson og Halldór Brynjar Hall- dórsson hlutu allir 7,5 vinninga af 9 mögulegum. Halldór og Stefán þurfa því að tefla einvígi um titilinn Skák- meistari Skákfélags Akureyrar en Jón Viðar er í Taflfélagi Dalvíkur og getur því ekki unnið titilinn. Björn Ívar Karlsson frá Vestmanneyjum hafnaði í fjórða sæti með 6,5 vinn- inga og Tómas Veigar Sigurðarson í því fimmta með 4,5 vinninga. Jón Viðar og Stefán komu taplaus- ir út úr mótinu en Halldór tapaði fyr- ir Jóni Viðari í 2. umferð eftir drama- tískt tímahrak beggja keppenda. Halldór lét tapið ekki setja sig út af laginu og vann allar skákirnar sem eftir voru, nema gegn Stefáni í 8. og næst síðustu umferð en viðureign þeirra lyktaði með jafntefli eftir langa og mikla baráttu. Októberhraðskákmót félagsins fer fram 25. október kl. 20, en 28. októ- ber fer fram 15 mínútnamót kl. 14. Barna- og unglingaæfingar eru á laugardögum í vetur frá kl. 13.30 til 16. Teflt er í Íþróttahöllinni. Þrír keppendur efstir og jafnir VÍÐÁTTA nefnist þróunarverkefni sem nemendur í 5. bekk 1 í Síðu- skóla taka þátt í en það er á vegum Velferðarsjóðs íslenskra barna. Það hófst síðastliðið vor og stendur til áramóta 2002, en þetta verkefni byggist á notkun myndfundabún- aðar sem tengir saman skólastofur víða um land. Anna Sigrún Rafnsdóttir, kennari bekkjarins, sagði að 7 skólar á Ís- landi tækju þátt í verkefninu, 3 í stærðfræði og 4 í íslensku. Skól- arnir eru, auk Síðuskóla á Akur- eyri, Dalvíkurskóli, Melaskóli í Reykjavík, Fellaskóli í Fellabæ, Grundaskóli á Akranesi, Smáraskóli í Kópavogi og Grunnskólinn á Ísa- firði. Fleiri skólar munu síðar bæt- ast í þennan hóp, en áætlanir miða að því að um 50 skólar muni taka þátt í þessu verkefni áður en yfir lýkur. Markmiðið að auka gæði náms Anna Sigrún sagði að markmiðið væri að auka gæði náms í grunn- skólum þannig að sífellt fleiri börn nytu sem bestrar kennslu. Kennsl- an fer fram með myndsamskiptum, ein til tvær kennslustundir í viku og eru þá tengdar tvær til fjórar kennslustofur í einu, allt eftir eðli viðfangsefnisins hverju sinni. „Það má líkja þessu við það að einn bekkur fái aðra bekki í heimsókn með öllum þeim námsmöguleikum sem það býður upp á,“ sagði Anna Sigrún. Nú í októbermánuði vinna börnin að verkefni um ljóðskáld í heima- byggð og vinna þá kynningu á þeim og verkum þeirra. Mikil áhersla er lögð á að samskiptin séu gagnvirk, þ.e. að nemendur í hverri kennslu- stofu taki virkan þátt allan tímann, skiptist á skoðunum og hugmynd- um. „Á þennan hátt kenna börnin hvert öðru og oft hafa skapast líf- legar umræður milli landshluta. Þetta er afar skemmtilegt verkefni og það hefur skilað góðum árangri, börnin hafa lært heilmikið á þessu og þá hafa þau eignast nýja vini víða um land, sem þau annars hefðu ekki átt kost á að kynnast. Þannig að börnin eru mjög jákvæð og spennt fyrir þessu verkefni,“ sagði Anna Sigrún. Sjö skólar taka þátt í þróunarverkefninu Víðáttu Líflegar umræður milli landshluta Morgunblaðið/Kristján Börn í 5. bekk í Síðuskóla, sem taka þátt í Víðáttu, ræða við jafnaldra sína í Grunnskólanum á Ísafirði um myndfundabúnað. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.