Morgunblaðið - 23.10.2001, Síða 18

Morgunblaðið - 23.10.2001, Síða 18
LÖGREGLAN fór með níu ungmenni í athvarf útideildar Reykjanesbæjar síðastliðið föstudagskvöld en þá höfðu þessir aðilar samvinnu um sérstakt átak í útivistarmál- um barna og unglinga í Reykjanesbæ. Haft var samband við for- eldra unglinganna og voru þeir ýmist sóttir eða útideild- in lét aka þeim heim. Sam- kvæmt upplýsingum lögregl- unnar í Keflavík voru tveir unglinganna sem hún hafði afskipti af ölvaðir, en þeir voru 13 og 15 ára. Þá var einni 16 ára gamalli stúlku vísað út af skemmtistað í Keflavík. SUÐURNES 18 ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SIGURLÍNA Guðjónsdóttir og Kristján Þ. Ársælsson sigruðu í Ís- landsmóti Galaxy-sambandsins í hreysti. Er þetta þriðja Íslandsmót- ið í greininni og var það að þessu sinni haldið í íþróttahúsinu í Kefla- vík síðastliðinn laugardag. „Fitness“, sem stundum en nefnt hreysti, er ört vaxandi grein hér á landi og var nú metþátttaka hjá sambandinu. 20 konur tóku þátt í keppninni og 19 karlar og var þetta í fyrsta skipti sem konur eru í meiri- hluta. Undankeppni fór fram deginum áður í Smáralind í Kópavogi og var þar skorið úr um hvaða 24 kepp- endur yrðu í úrslitum, en 12 karlar og 12 konur keppa til úrslita í grein- inni. Í undankeppninni keppa konur í armbeygjum og karlar í upphíf- ingum og dýfum. Bæði kyn keppa svo í samanburði þar sem konur koma fram í bikini og karlar í sund- skýlu. Dæmt er eftir útliti og tekið er tillit til líkamsstöðu, vöðvaskurð- ar og útgeislunar þokka og heil- brigðis. Gaman að nýju stelpunum Í úrslitum reyndu konurnar með sér í armbeygjum, hraðaþraut og samanburði, en úrslitin ráðast af þrennu, armbeygjur vega 20% og hraðaþraut 30% en samanburður vegur mest eða 50%. Íslandsmeistari kvenna varð Sig- urlína Guðjónsdóttir frá Vest- mannaeyjum, Lilja Kjalarsdóttir varð í öðru sæti og Aðalheiður Jen- sen í því þriðja. Undirbúningur fyrir keppni sem þessa getur verið afar langur og erf- iður, þá sérstaklega fyrir konur sem eru að eðlisfari með meiri fitu í lík- amanum en karlar og þurfa því að leggja hart að sér í æfingum og mataræði til þess að ná fram sjáan- legum og skornum vöðvum. Sigurlína, sem sigraði í kvenna- flokki, var að vonum ánægð með ár- angurinn, en þetta var hennar ann- ar titill í „fitness“: „Ég ákvað fyrir þremur vikum að taka þátt í Ís- landsmótinu. Ég er búin að æfa af krafti í langan tíma þar sem ég ætl- aði til Brasilíu ásamt Keflvíkingnum Freyju Sigurðardóttur, en meiðsli komu í veg fyrir að ég gæti æft um tíma, þannig að óljóst var hvort ég yrði tilbúin í tæka tíð,“ sagði Sig- urlína eftir mótið. „Keppnin var mjög fín og það var gaman að sjá nýju stelpurnar sem voru að koma inn. Þær stóðu sig vel og ég hvet þær allar til að halda áfram. Annars small allt saman hjá mér í þessari keppni og ég tek bikarinn heim,“ bætti Sigurlína við og vildi nota tækifærið til að þakka öllum sem hafa stutt hana til dáða og þá sér- staklega líkamsræktarstöðinni Hressó í Vestmannaeyjum. Úrslitin í karlaflokki ráðast af upphífingum og dýfum sem gilda 25%, hraðaþraut 25% og saman- burði 50%. Hlutskarpastur þar varð Kristján Þ. Ársælsson, eins og und- anfarin ár, Ívar Guðmundsson varð í öðru sæti og Jósef Valur Guð- mundsson í þriðja sæti. Þarf að leggja harðar að mér Kristján Þ. Ársælsson er kominn með gott safn titla í „fitness“ og þar af einn á alþjóðlegum vettvangi. Hann hefur haft mikla yfirburði í greininni hér á landi fram til þessa, enda með góðan bakgrunn, en hann var í landsliði Íslands bæði í fim- leikum og júdó, auk þess sem hann lagði stund á vaxtarrækt um tíma. „Þetta er í fyrsta sinn sem ein- hver ógnar mér í samanburðinum og þýðir það að ég verð að fara að leggja harðar að mér á því sviði því þetta er aðeins farið að þyngjast,“ sagði Kristján í lok móts, en hann varð í 1.-2. sæti í samanburðinum. Kristján hafði þó mikla yfirburði í hraðaþrautinni, sem hann kláraði á 12 sekúndna betri tíma en Ívar, sem hafnaði í öðru sæti. „Þetta snýst allt um að vinna tíma í hraðaþrautinni og þar skipta minnstu smáatriði miklu máli,“ sagði Kristján og bætti því við að ekki væri erfitt fyrir hann að undirbúa sig undir slíka keppni. „Ég þarf bara að taka einn mánuð í að borða saltlausan mat og fitu- snauðan til að ná góðum skurði á líkamann, en til að standa sig vel í „fitness“ þarf maður að hafa mikla leikgleði og dálitla tónlist í sér,“ bætti Kristján við. Fjölmenni var á Íslandsmóti Galaxy-sambandsins í hreysti um helgina Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Sigurvegarar á hreystimótinu, Sigurlína Guðjónsdóttir í kvennaflokki og Kristján Ársælsson, sigurvegari karla. Sigurlína og Kristján sigruðu Keflavík NEMENDUR úr sjötta bekk grunn- skólanna í Reykjanesbæ og Sand- gerði hafa lokið þriggja vikna frönskunámskeiði. Segjast þau hafa lært margt en langar að læra meira. Frönskunámskeiðið var á vegum Miðstöðvar símenntunar á Suð- urnesjum og Háskóla Íslands og lauk því síðastliðinn laugardag. Leiðbeinendur voru Jórunn Tóm- asdóttir og Gérard Lemarquis, auk frú Vigdísar Finnbogadóttur, fyrr- um forseta Íslands, sem hóf nám- skeiðið. Markmið var að vekja at- hygli og forvitni barnanna á menningu Frakka og kenna þeim gagnlegan orðaforða. Jórunn sagði að nemendurnir hefðu verið duglegir. „Þau hafa staðið sig vel á þessum tíma. Fransk- an var þeim algerlega framandi tungumál, þar sem ekkert þeirra hafði lært neitt í málinu fyrr,“ sagði Jórunn, ánægð með árangurinn. Fallegt mál Helena Rós Þórólfsdóttir úr Myllubakkaskóla í Keflavík, Ósk Jó- hannesdóttir úr Heiðarskóla í Kefla- vík, Halldís Thoroddsen úr Holta- skóla í Keflavík, Gísli Guðnason úr Sandgerðisskóla og Fannar Már Guðnason úr Njarðvíkurskóla voru öll á námskeiðinu sem þau sögðu hafa verið skemmtilegt. „Við erum búin að læra að heilsa, kveðja, telja og fleira sem maður þarf að kunna til að geta bjargað sér í Frakklandi. Þegar við vorum lítil fannst okkur franskan bara vera eitthvað bull, en núna finnst okkur það fallegt mál og okkur langar að læra það enn bet- ur,“ sögðu krakkarnir hinir ánægð- ustu og bættu því við að það hefði líka verið spennandi að fá frú Vig- dísi í heimsókn. „Hún sagði okkur að París og Róm væru fallegustu borgir í heimi og okkur langar öll að fara til Par- ísar. Við viljum sjá Eiffel-turninn og Sigurbogann, enda getum við bjarg- að okkur þar núna, því við erum bú- in að læra svo margt. Vigdís sagði okkur líka að það væri mjög kurteist fólk í Frakklandi sem heilsar alltaf og kallar hvert annað herra, frú eða ungfrú og biðst alltaf afsökunar ef það rekst utan í einhvern“, sögðu nemendurnir greinilega mjög upp með sér yfir þessari framandi menn- ingu. Morgunblaðið/Sigríður Hjálmarsdóttir Halldís Thoroddsen, Ósk Jóhannesdóttir, Gísli Guðnason, Helena Rós Þórólfsdóttir og Fannar Már Guðnason voru ánægð með frönskunámið sem þau fengu á þriggja vikna námskeiði Miðstöðvar símenntunar. Langar að læra frönskuna enn betur Keflavík/Njarðvík/Sandgerði LÖGREGLUMENN sem voru við eftirlitsstörf á Hafn- argötu í Keflavík síðastliðið föstudagskvöld tóku eftir því að áhöldum til fíkniefnaneyslu var kastað út um glugga bíls sem þar var á ferð. Í bílnum voru þrír menn, tveir átján ára og einn tvítug- ur, og viðurkenndu þeir neyslu fíkniefna. Hins vegar fundust engin efni í bifreið- inni eða á mönnunum, sam- kvæmt upplýsingum lögregl- unnar. OPINN fundur verður um sjáv- arútvegsmál í Sandgerði á morgun, miðvikudag. Fulltrúaráð sjálfstæðisfélag- anna í Gullbringusýslu stendur fyrir fundinum sem verður í veitingahúsinu Vitanum og hefst klukkan 20. Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráð- herra og þingmennirnir Krist- ján Pálsson og Árni Ragnar Árnason verða gestir fundarins. Opinn fundur um sjávarútveg Sandgerði Níu ung- lingar færðir í athvarf útideildar Reykjanesbær Köstuðu frá sér áhöldunum Keflavík ÖLL kennsla á vegum Tónlistar- skóla Reykjanesbæjar lagðist niður í gær vegna verkfalls tónlistarkenn- ara. Um 600 nemendur stunda nám við skólann. Um 40 kennarar eru við Tónlistar- skóla Reykjanesbæjar. „Það er allt stopp, ég er hérna einn með ritaran- um,“ sagði Haraldur Árni Haralds- son skólastjóri í gær. Tónlistarskólinn vinnur í nánu samstarfi við grunnskólana í Reykja- nesbæ. Allir nemendur 1. og 2. bekkjar grunnskólanna eru í for- skóla í Tónlistarskólanum og er þeim kennt á skólatíma og nemendur í þriðja til sjöunda bekk fá að fara úr tímum í hljóðfæranám. Auk þess er fjöldi fólks, allt frá fimm ára aldri til rúmlega sextugs, í hljóðfæranámi í þeim tveimur byggingum sem skól- inn sjálfur hefur yfir að ráða. En öll kennsla liggur niðri núna. Kveðst Haraldur vona að verkfallið standi ekki svo lengi að samstarfið við grunnskólana skaðist. Skammarlega lág laun Hann segist hafa orðið var við óánægju foreldra og nemenda með ástandið. Fólki finnist þessi menntun mikilvæg og vilji ekki missa af henni. Haraldur Árni lýsir þeirri skoðun sinni að laun tónlistarkennara séu skammarlega lág miðað við menntun þeirra og starf og kveðst óttast að þeir muni leita annarra starfa ef ekki verði bætt úr því nú. Hann segir að það þjóni einnig hagsmunum sveit- arfélaganna og tónlistarskólanna að bæta launin, það muni skila sér til baka í öflugra starfi og meiri starfs- ánægju. 600 nemend- ur án tónlist- arkennslu Reykjanesbær

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.