Morgunblaðið - 23.10.2001, Qupperneq 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 19
Netsalan ehf.,
Frumsýning á Garðatorgi
Sá nýjasti frá Chrysler kominn til Íslands
Sýnum einnig hinn sívinsæla
Garðatorgi 3, Garðabæ,
sími 565 6241, fax 544 4211
ÞÁTTTAKA í þjóðahátíð á Reyð-
arfirði síðastliðinn laugardag fór
langt fram úr björtustu vonum og
er talið að á annað þúsund manns
hafi verið á svæðinu. Einkunnar-
orð hátíðarinnar voru Fjölmenning
á Austurlandi.
Í íþróttahúsinu hafði verið kom-
ið fyrir 650 sætum og húsið
skreytt með fánum viðkomandi
þjóða. Hátíðin hófst með ávarpi
forseta Íslands, Ólafs Ragnars
Grímssonar. Síðan voru ýmis atriði
á dagskrá, t.d. þjóðdans frá Perú,
kántrídansar og dansar frá Fil-
ippseyjum og Taílandi. Bandarísk-
ur einsöngur og hörpuleikur,
breski þjóðsöngurinn og syrpa af
skoskum þjóðlögum. Sungið var á
ýmsum tungumálum, þýsku, taí-
lensku, pólsku og íslensku og má
segja að salurinn hafi tekið virkan
þátt í söngnum.
Einnig fluttu ávörp Anna Þrúð-
ur Þorkelsdóttir, formaður Rauða
kross Íslands, og Albert Eiríksson,
framkvæmdastjóri Þjóðahátíðar á
Austurlandi.
Í Grunnskólanum voru settar
upp sýningar þar sem erlendir og
íslenskir íbúar fjórðungsins
klæddust þjóðbúningum sínum og
buðu gestum að koma og kynnast
þjóð sinni, listum og lífi, smakka á
ýmsum þjóðlegum mat o.fl. Einnig
voru þar til kynningar: Fræðslu-
net Austurlands, Rauði krossinn,
Fjölmenningarsetrið og Rætur á
Vestfjörðum, Ættfræðiþjónusta
O.R.G., Alþjóðahúsið í Reykjavík
og Þróunarstofa Austurlands.
Undirbúningur stóð í eitt ár og
sótt var þekking og reynsla til
Vestfirðinga. Rauði krossinn hafði
frumkvæði að hátíðinni og fékk
með sér fólk og fyrirtæki.
Markmiðið með þessari hátíð er
að auka samskipti Íslendinga og
útlendinga og draga fram í dags-
ljósið hvað við getum lært hvert af
öðru. Fjölbreytni eykur víðsýni,
skilning og vináttu. Gefið var út
blaðið Þræðir, sem borið var í hús
á Austurlandi. Í því eru viðtöl við
fólk af ýmsu þjóðerni þar sem það
segir frá komu sinni og dvöl á Ís-
landi. Efnt var til myndasam-
keppni meðal grunnskólanema
undir einkunnarorðunum Fjöl-
menning á Austurlandi. Á þriðja
hundrað myndir bárust og hafa 12
þeirra verið valdar til að prýða
dagatal sem Rauði krossinn mun
gefa út árið 2002.
Framhaldsskólanemar á Austur-
landi eru að gera heimasíðu um
þjóðahátíð á Austurlandi.
Þær eru stoltar á svip stúlkurnar frá Filippseyjum, enda hannyrðir þeirrar sérlega fallegar.
Þau taka sig vel út í pólsku þjóðbúningunum við hlaðið pólskt veisluborð.
Ljósmynd/Einar Þorvarðarson
Hópur Taílendinga í þjóðbúningum dansaði taílenska dansa.
Yfir þúsund manns á
þjóðahátíð á Austurlandi
Reyðarfjörður
Á AUSTURLANDI búa um 300
einstaklingar frá 36 löndum utan
Íslands.
Þau eru: Ástralía, Bandaríkin,
Belgía, Bosnía, Bretland, Búlg-
aría, Danmörk, Eistland, Filipps-
eyjar, Finnland, Frakkland, Fær-
eyjar, Grænland, Holland,
Honduras, Indónesía, Írland,
Japan, Júgóslavía, Kína, Króatía,
Lettland, Nígería, Noregur,
Nýja-Sjáland, Perú, Pólland,
Rússland, Spánn, Suður-Afríka,
Sviss, Svíþjóð, Tékkland, Tyrk-
land, Taíland og Þýskaland.
Ótaldir eru skiptinemar og ein-
staklingar sem hafa verið ætt-
leiddir.
Um 300 manns frá
36 þjóðlöndum
SAMSTARFSNEFND um samein-
ingu hefur sent frá sér bækling með
tillögum sínum um sameiningu Bisk-
upstungnahrepps, Grímsnes- og
Grafningshrepps, Laugardals-
hrepps og Þingvallahrepps. Afstaða
til sameiningar sveitarfélaganna
verður tekin í almennri atkvæða-
greiðslu laugardaginn 17. nóvember
nk.
Sterkara afl til framfara
Í bæklingnum kemur fram að til-
gangur sameiningarinnar er að efla
sóknarfæri og treysta samstöðu
byggðarlaga á svæðinu. Sameinuð
mynda sveitarfélögin sterkara afl til
framfara og geta frekar veitt íbúum
sveitarfélaganna þá þjónustu og um-
hverfi sem nútíminn kallar á.
Helsti ávinningur sameiningar að
mati nefndarinnar er sá að eitt öflugt
sveitarfélag sé betur í stakk búið til
að takast á við lögbundin verkefni
sveitarfélaga og koma fram út á við
sem málsvari byggðarlaganna í
heild. Sameining sé einnig forsenda
markvissari stjórnunar, uppbygg-
ingar og hagræðingar og til þess fall-
in að treysta byggðarlögin sem eitt
atvinnu- og þjónustusvæði.
Kynningarfundir haldnir
Almennir kynningarfundir um
sameiningu sveitarfélaganna fjög-
urra, þar sem tillögur verða kynntar
og fyrirspurnum svarað, verða
haldnir sem hér segir:
Í Grímsnes-, Grafnings- og Þing-
vallahreppi miðvikudaginn 7. nóvem-
ber kl. 20.30 í Ljósafossskóla, í
Laugardalshreppi fimmtudaginn 8.
nóvember kl. 20.30 í Grunnskólanum
Laugarvatni og í Biskupstungna-
hreppi föstudaginn 9. nóvember kl.
20.30 í Félagsheimilinu Aratungu.
Sveitarfélög í uppsveitum
Árnessýslu vestan Hvítár
Sameining for-
senda markviss-
ari stjórnunar
Árnessýsla