Morgunblaðið - 23.10.2001, Page 20
Morgunblaðið/Golli
LYFJAVERSLUN Íslands hf.
seldi í gær allan eignarhlut sinn í
Delta hf., en Lyfjaverslunin átti
rúmar 34 milljónir hluta og rúmar
13 milljónir hluta í framvirkum
samningum. Gengi bréfanna var
34,50 krónur á hlut og samtals var
söluverðmætið því rúmir 1,6 millj-
arðar króna. Lokagengi fyrir helgi
var 33,50 krónur, en gengið hækk-
aði um rúm 10% í gær og var loka-
gengi gærdagsins 37 krónur.
Lyfjaverslunin var fyrir söluna
stærsti hluthafi Delta með 15,7%
hlutafjár. Söluhagnaður Lyfja-
verslunarinnar vegna hlutabréf-
anna í Delta er áætlaður rúmlega
500 milljónir króna eftir skatta.
Eiginfjárhlutfall Lyfjaverslunar-
innar hefur farið lækkandi síðustu
misseri. Hlutfallið var 41% um mitt
ár 1999, 29% um mitt ár í fyrra en
var komið niður í 12% um mitt þetta
ár. Við söluna hækkar eiginfjár-
hlutfallið í rúmlega 25%. Sturla
Geirsson, forstjóri Lyfjaverslunar
Íslands, segir að ástæða þess að fé-
lagið seldi bréf sín í Delta sé sú að
það hafi verið að vaxa mikið. Ætl-
unin hafi verið að fjármagna vöxt-
inn að hluta til með hlutafjárútboði,
en eins og staðan sé í dag á mörk-
uðum sé mjög erfitt að fara í hluta-
fjárútboð. Þess vegna hafi þótt mun
vænlegri kostur að selja bréfin í
Delta, meðal annars vegna þess að
þau hafi farið hækkandi að undan-
förnu. Þá segir Sturla að stjórnend-
um Lyfjaverslunarinnar hafi þótt
gengi bréfa hennar lágt um þessar
mundir og það hafi enn frekar stutt
þessa ákvörðun. Við þetta bætist að
félagið eigi í málaferlum við einn
stærsta hluthafann og það hefði
gert hlutafjárútboð nánast ómögu-
legt.
Íslandsbanki keypti 5 milljónir
króna að nafnverði af bréfum
Lyfjaverslunar í Delta og miðlaði 5
milljónum að auki til annars eða
annarra fjárfesta. Fyrir kaupin átti
Íslandsbanki 8,3% í Delta, en eftir
kaupin fór hlutur bankans upp í
10,6%, eða rúmar 23 milljónir hluta.
Af þessum 23 milljónum hafa 16,7
milljónir verið seldar framvirkt,
þannig að bankinn á tæplega 3% í
Delta sé litið til framvirku sölunn-
ar.
Búnaðarbanki Íslands keypti
samtals um 371⁄2 milljón króna að
nafnverði af hlutafé og framvirkum
samningum um hlutafé í Delta af
Lyfjaversluninni og eftir þessi
kaup var eignarhlutur bankans
14,2%. Að sögn Árna Tómassonar
bankastjóra er markmið bankans
ekki að eiga stóran hlut í félaginu,
heldur kemur bankinn að þessum
kaupum sem milligönguaðili fyrir
fjárfesta sem höfðu lýst áhuga á að
eignast hlut í Delta.
Lyfjaverslun selur
eignarhlut sinn í Delta
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STAÐA heimsmála getur haft áhrif á
markaðsstöðu fyrir framleiðsluvörur
Laugafisks í Nígeríu. Þetta kemur
fram á heimasíðu Útgerðarfélags Ak-
ureyringa. Lúðvík Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Laugafisks, segir að á
því svæði sem Laugafiskur selur mest
vörur sínar í Nígeríu hafi komið upp
alvarlegar skærur milli kristinna og
múslima og fjöldi manna látið lífið.
Þótt menn voni að þessi átök hafi ekki
áhrif á markaðsmálin sé ekki hægt að
útiloka að það geti gerst.
„Við höfum vissar áhyggjur af
þessu ástandi því að Nígería er ní-
unda fjölmennasta ríki múslima í
heiminum og allar þær skærur sem
eru þarna eru á milli trúarbragða,
múslima og kristinna. Okkar mark-
aðir eru í austur-, suður- og vestur-
hluta Nígeríu þar sem kristnir menn
eru í meirihluta, en hins vegar seljum
við ekkert inn á norðursvæði landsins
þar sem múslimar eru í meirihluta,
enda borða þeir ekki þessa vöru. Á
dögunum voru fréttir af því að um
tvöhundruð manns hefðu fallið í erj-
um milli kristinna og múslima. Þetta
eru beinar afleiðingar af því sem hef-
ur verið að gerast í heiminum síðustu
vikur og þetta ástand getur haft áhrif
á sölu á vörum okkar,“ segir Lúðvík.
Að undanförnu hefur neysla á
skreið og skreiðarafurðum verið að
aukast í Nígeríu, en Lúðvík telur þó
vart raunhæft að ætla að Laugafiskur
selji meira magn á þessu ári til Níger-
íu en í fyrra. Skýringin er fyrst og
fremst vinnslustopp hjá Laugafiski sl.
vor vegna sjómannaverkfallsins. Hins
vegar segir Lúðvík að veruleg aukn-
ing hafi orðið í verksmiðju fyrirtæk-
isins í Njarðvík. Þar sé nú verið að
framleiða 2 tonn af skreiðarmjöli í
litlum pokum upp í pantanir frá Níg-
eríu. Þetta sé mun dýrari vara heldur
en hinir klassísku hausar og hryggir
sem seldir eru í stórum einingum til
Nígeríu og millistéttir og þeir sem
hafi minna fé á milli handa þar í landi
kaupa.
Vinnsla hafin í Færeyjum
Það er í mörg horn að líta hjá
Laugafiski þessa dagana. Fyrirtækið
er þátttakandi í nýju þurrkunarfyr-
irtæki í Færeyjum og er framleiðsla
þar þegar hafin. Lúðvík segir að held-
ur hægt gangi í fyrstu og vart verði
kominn skriður á framleiðsluna fyrr
en eftir áramót en þá verður búið að
setja upp nýja framleiðslulínu sem
Skaginn á Akranesi er að smíða. Nú
eru starfandi 20–25 manns í Færeyj-
um en eftir að tæknivæðingin verður
komin í það horf sem ætlunin er má
ætla að starfsmenn verði 16–18 tals-
ins.
Heimsmálin geta haft áhrif á
markaðsstöðu Laugafisks
Óvissuástand
í Nígeríu
Standard & Poor’s
staðfestir óbreytt
lánshæfismat
BANDARÍSKA matsfyrirtækið
Standard & Poor’s hefur staðfest
óbreytt lánshæfismat fyrir Ísland,
samkvæmt frétt fyrirtækisins sem
gefin var út í gær. Í tilkynningu frá
Seðlabanka Íslands til Verðbréfa-
þings kemur fram að einkunn fyrir
langtímaskuldir í erlendri mynt er
A+ og eru horfur um einkunnina
taldar neikvæðar en voru áður stöð-
ugar.
Í frétt Standard & Poor’s segir að
breyting á horfum endurspegli hækk-
andi skuldahlutföll hins opinbera og
aukna áhættu í fjármálakerfinu en
skuldahlutföll ríkisins höfðu lækkað
stöðugt frá miðjum síðasta áratug.
Efnahagsuppsveiflan sem hófst árið
1996 og knúin var áfram af lánsfé er
nú að hjaðna einmitt þegar ytri skil-
yrði hafa versnað. Hugsanlega gæti
afleiðingin orðið tiltölulega lítill hag-
vöxtur og áhættusamari eignir
bankakerfisins. Að mati S&P eru vís-
bendingar um áhættu í fjármálakerfi
fyrir hendi á Íslandi, svo sem mikil
eftirspurn fjármögnuð af lánsfé, ör
hækkun fasteignaverðs og ójafnvægi
í utanríkisviðskiptum. Vegna skulda-
söfnunar setti S&P Ísland á lista með
fjármálakerfum sem sýna merki
álags. Líkur hafa aukist á rýrnandi
gæðum útlána vegna horfa um minni
hagvöxt og vegna versnandi skulda-
stöðu við útlönd.
Veikist fjármálakerfið enn frekar
gæti komið til þess að íslenskar fjár-
málastofnanir þyrftu á auknu eigin fé
að halda, hugsanlega úr ríkissjóði.
Erlendar skuldir landsins eru miklar
(um 280% af útflutningi árið 2001).
Mikil raungengislækkun krónunnar
undirstrikar áhrif erlendrar skuld-
setningar fyrirtækja og banka.
Hagvöxtur hefur minnkað jafnt og
þétt úr 5% árið 2000, búist er við sam-
drætti á næsta ári en hagvexti á ný
árið 2003. Minni hagvöxtur ásamt
gengislækkun krónunnar hefur þegar
haft áhrif á stöðu ríkisfjármála og
leitt til hækkunar ríkisskulda eftir
stöðuga lækkun þeirra um tíma.
Þetta er óháð öðrum breytingum sem
orðið hafa í fjármálageiranum. Fjár-
lagafrumvarpið fyrir 2002 sem lagt
var fram í byrjun október gerir ráð
fyrir lítilsháttar afgangi en er byggt á
bjartsýnum forsendum um hagvöxt
og tekjur. S&P telur að halli ríkis-
sjóðs árið 2002 geti orðið um 1,8% af
vergri landsframleiðslu. Verulegar
skattalækkanir gætu orðið enn meiri
Þrándur í Götu fyrir því að jafnvægi
náist aftur í fjármálum ríkissjóðs.
FISKAFLI landsmanna í nýliðnum
septembermánuði var 111.831
tonn, að því er fram kemur í tölum
frá Hagstofu Íslands. Aflinn í sept-
embermánuði í fyrra nam 89.973
tonnum og er aukningin því 21.858
tonn. Mun betri kolmunnaafli
skýrir að mestu þennan mun milli
ára því aukning kolmunnaaflans
nemur 13.154 tonnum. Hafa því
veiðst 285.449 tonn af kolmunna í
ár samanborið við 194.539 tonn á
sama tíma í fyrra. Síldveiði í sept-
ember var 17.549 tonn í ár en var
11.140 tonn í september í fyrra.
Botnfiskaflinn síðastliðinn sept-
embermánuð var 38.051 tonn sem
er ívið meira en á sama tíma í
fyrra þegar 36.838 tonn höfðu
borist á land. Í ár veiddust 7.655
tonn af úthafskarfa en enginn út-
hafskarfaafli fékkst á sama tíma-
bili í fyrra. Nokkru betri skel- og
krabbadýraafli barst á land í ár
eða 5.754 tonn á móti 4.675 tonn-
um í fyrra. Skýrist munurinn á
auknum afla í úthafsrækju, 718
tonn, og kúfiski, 759 tonn.
Heildaraflinn það sem af er
árinu nemur 1.682.016 tonnum
sem er nokkru minni afli en á
sama tíma í fyrra þegar 1.698.755
tonn höfðu veiðst og er munurinn
tæp 17 þúsund tonn. Gerist þetta
þrátt fyrir 90 þúsunda tonna
aukningu á kolmunnaafla þar sem
botnfisksafli hefur dregist saman
um tæp 35 þúsund tonn og síld-
arafli um rúmt 101 þúsund tonn.
Meiri afli í
september
!
!"
" #$
#
%
&%
!
'! ( %
!
$$)*
&+ ) %
, -
.
$%
' -%#
Lyfjaverslun Íslands
eignast allt hlutafé
í Lyfjadreifingu
LYFJAVERSLUN Íslands hf. hef-
ur keypt 13% hlut Farmasíu ehf. í
Lyfjadreifingu ehf. og eftir kaupin á
Lyfjaverslun Íslands hf. allt hlutafé
í Lyfjadreifingu ehf. Lyfjadreifing
ehf. dreifir lyfjum, heilbrigðisvörum
og neytendavörum á innanlands-
markaði. Við kaup Lyfjaverslunar
Íslands hf. á Thorarensen Lyf ehf. í
upphafi ársins eignaðist félagið 87%
hlut í Lyfjadreifingu ehf.
Í tilkynningu frá Lyfjaverslun Ís-
lands segir að kaupin séu hluti af
þeirri hagræðingarvinnu sem nú
eigi sér stað innan félagasamstæðu
lyfjaverslunar eftir kaupin á A.
Karlsson hf. og Thorarensen Lyf
ehf. og stefnt sé að því að sameina
dreifingarþátt Lyfjaverslunar Ís-
lands hf. og Lyfjadreifingar ehf.
innan skamms. Við það verði til
langstærsta dreifingarfyrirtæki í
lyfjum og heilbrigðisvörum hér á
landi með um 54% markaðshlutdeild
í dreifingu lyfja.
Jafnframt kaupunum var gengið
frá langtímasamkomulagi um að
Lyfjadreifing ehf. sjái um dreifingu
á lyfjum og öðrum vörum sem
Farmasía ehf. markaðssetur hér á
landi. Farmasía ehf. er umboðsaðili
og markaðssetur m.a. lyf frá einu
stærsta lyfjafyrirtæki heims, Merck
Sharp & Dohme.
Velta Delta fram
úr áætlunum
VELTA Delta hf. á þriðja ársfjórð-
ungi fer 600 milljónum króna fram
úr áætlunum, að því er fram kemur í
tilkynningu frá félaginu. Ástæðan er
sú að sala á sýklalyfinu Ciprofloxacin
og ofnæmislyfinu Loratadine fer
fram úr áætlunum á árinu. Áætluð
velta fyrir fyrstu níu mánuðina var
rétt rúmir 2 milljarðar króna og
áætluð velta fyrir árið í heild var um
2,7 milljarðar. Dótturfélag Delta hf.
á Möltu er ekki inni í þessum tölum.
IBM með
nýjan UNIX-
netþjón
IBM hefur kynnt öflugasta UNIX-
netþjón sem um getur, en hann hef-
ur verið fimm ár í þróun. Er í raun
um að ræða nýjan flokk UNIX-
netþjóna sem byggist á nýjum ör-
gjörvum og tækni úr móðurtölvum.
Hinn nýi IBM p690-netþjónn, sem
kallaður hefur verið Regatta, er um
helmingi ódýrari en nýlegir net-
þjónar.
„IBM p690 mun gera fyr-
irtækjum kleift, á hagkvæmari
hátt, að sameina og fækka UNIX-
netþjónum í sínum rekstri og keyra
mjög stór tölvuverkefni á aðeins
einum netþjóni. Til að leysa hin
stærstu og flóknustu verkefni er
hægt að tengja saman marga p690-
netþjóna í eina ofurtölvu með yfir
1000 örgjörvum,“ segir í frétt frá
Nýherja.
„Fyrir fimm árum setti IBM sér
það markmið að endurskapa UNIX-
netþjóninn og í dag er verið að setja
á markað netþjón byggðan á tækni-
nýjungum og tækni sem ekki hefur
verið fyrir hendi í UNIX-netþjónum
áður,“ segir Rod Adkins, forstjóri
pseries-sviðs IBM. „Það er ekkert á
UNIX-markaðnum, né væntanlegt í
bráð, sem hefur sömu afköst, áreið-
anleika eða sveigjanleika til að sam-
eina mismunandi verkefni og/eða
vinnslu í eina og sama netþjóninum.
Með færri öflugri örgjörvum er
IBM í forystuhlutverki hvað afköst
varðar í viðskipta-, vísinda- og
Java-vinnslu og er jafnframt örugg-
ari í rekstri og hagkvæmari með til-
liti til rafmagnsnotkunar, kerf-
isumsjónar og viðhalds. Færri
örgjörvar lækka líka eignarhalds-
kostnað þar sem mörg hugbún-
aðarleyfi eru gjaldfærð eftir fjölda
örgjörva, en með færri örgjörvum
má spara umtalsvert í hugbún-
aðarkostnaði.“
Helstu nýjungar eru samkvæmt
fréttinni netþjónn á flögu, kerf-
issamþjöppun, sýndarvélar og sjálf-
virkur leiðréttingarbúnaður.
♦ ♦ ♦