Morgunblaðið - 23.10.2001, Síða 26

Morgunblaðið - 23.10.2001, Síða 26
ERLENT 26 ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ STAÐFEST var í gær að tveir starfsmenn póstþjónustunnar í Washington, höfuðborg Bandaríkj- anna, hefðu greinst með miltis- brandssmit í lungum. Þá var verið að rannsaka lát tveggja manna sem störfuðu í sömu byggingu og hinir sýktu. Í gær höfðu verið tekin sýni úr rúmlega 2.200 starfsmönnum póstþjónustunnar í Washington með tilliti til hugsanlegrar miltisbrands- sýkingar. Tveimur byggingum póstþjónust- unnar hefur verið lokað. Rannsóknin beinist að því hvort miltisbrandi hafi verið komið fyrir í loftræstikerfum eða hvort mennirnir tveir hafi andað að sér militsbrandsgróum úr póst- sendingu. Ekki var greint frá nafni eða aldri mannanna sem sýktust en sagt að þeir væru á sjúkrahúsi í Virginíu. Ástand annars mannsins, sem veikt- ist hastarlega um helgina, væri „al- varlegt en stöðugt“. Yfirmaður póst- þjónustunnar sagði að horfur væru taldar nokkuð góðar en það myndi skýrast á næstu sólarhringum hvort maðurinn næði aftur heilsu. Andlát vekja ugg Síðdegis í gær var síðan frá því skýrt að annar starfsmaður póst- þjónustunnar hefði greinst með milt- isbrand í lungum. Tveir menn til við- bótar sem þar störfuðu væru látnir og væri verið að rannsaka hvort mildisbrandssýking hefði hugsan- lega orðið þeim að aldurtila. Sagði Ivan Walks, sóttvarnarlæknir Wash- ington, að bráðabirgðaniðurstöður bentu til þess að annar þeirra hefði tekið miltisbrand. Walks sagði þessi tíðindi alvarleg mjög og sagði ljóst að allir þeir sem starfað hefðu í umræddum bygging- um síðustu 11 daga þyrftu að koma hið fyrsta í rannsókn og fá lyf. Flensueinkenni Miltisbrandur í lungum er alvar- legasta form slíkrar sýkingar og mönnum oftast bani búinn ef ekki er brugðist við þegar á upphafsstigum hennar. Fyrri maðurinn sem greind- ist sýktur hafði sýnt einkenni flensu- smits í liðinni viku en taldi ekki ástæðu til leita til læknis fyrr en á föstudag þegar hann var orðinn al- varlega veikur. Walks hafði fyrr í gærdag sagt að alls hefðu fimm menn verið fluttir í sjúkrahús eftir að hafa sýnt merki miltisbrandssýkingar. Einn þeirra, hið minnsta, sýndi einkenni sem minntu á flensu og væri því hugs- anlegt að hann hefði einnig andað að sér miltisbrandi. Virtist hann þar vísa til tilfellisins, sem staðfest var síðdegis. Fjórir væru á sjúkrahúsi í Washington en sá fimmti í Virginíu. Á síðustu vikum hafa því fjórir menn í Bandaríkjunum greinst með miltisbrand í lungum en fram að þessu hafði sá sjúkdómur verið óþekktur í Bandaríkjunum frá 1978. Einn þessara manna er látinn. Auk þeirra hafa sex til viðbótar, þar af tveir starfsmenn póstþjónust- unnar í New Jersey, greinst með miltisbrand í húð en það form sjúk- dómsins er auðlæknanlegt. Rannsakað hvort sýklum var komið fyrir í loftræstikerfum pósthúsa í Washington Rúmlega 2.200 manns í miltis- brandsrannsókn Tveir starfsmenn sýktir og andlát tveggja manna til rannsóknar Washington. Los Angeles Times. AP. BRESK stjórnvöld gáfu til kynna í gær að þau myndu senda herlið til Afganistans til að taka þátt í landhernaði við hlið Bandaríkjamanna. Geoff Hoon, varnarmálaráð- herra Bretlands, sagði í út- varpsviðtali hjá BBC í gær að unnt væri að senda breskar hersveitir „með stuttum fyrir- vara“ til Afganistans. Hann tók fram að engin ákvörðun hefði verið tekin þar að lútandi, en sagði að verið væri að kanna alla möguleika í stöðunni. Bret- ar standa ásamt Bandaríkja- mönnum að aðgerðunum í Afg- anistan, en til þessa hefur framlag breska hersins ein- skorðast við að skjóta stýri- flaugum úr kafbátum. 800 menn í viðbragðsstöðu Undanfarna daga hafa breskir fjölmiðlar verið undirlagðir af vangaveltum um yfirvofandi þátttöku breskra hermanna í landhernaði í Afganistan. Nokk- ur blöð hafa reyndar birt fréttir þess efnis að breskar sérsveitir væru þegar komnar inn í landið, en stjórnvöld hafa neitað að tjá sig um slíkar fregnir. Um 800 breskir sérsveitarmenn eru nú í viðbragðsstöðu í Persaflóa, þar sem þeir hafa tekið þátt í her- æfingum sem skipulagðar voru fyrir löngu. Alþjóðasamfélagið komi að stjórnarmyndun Utanríkisráðherrann Jack Straw minntist einnig á hugs- anlega þátttöku breskra her- manna í landhernaði í Afganist- an í ávarpi sem hann hélt á vegum alþjóðlegrar stofnunar í herfræðum, IISS, í London í gær. Straw kvaðst þó ekki geta greint frá því hvenær bresku hersveitirnar kynnu að vera sendar á vettvang, enda væri það ekki venjan að tilkynna fyr- irfram hernaðaraðgerðir af þessu tagi. Í ávarpi sínu sagði Straw enn- fremur að alþjóðasamfélagið þyrfti að vera reiðubúið að koma að myndun nýrrar ríkisstjórnar í Afganistan eftir að stjórn talib- ana væri fallin. Jafnframt væri þörf á umfangsmikilli aðstoð við enduruppbyggingu í landinu. Straw heldur í dag til Wash- ington, þar sem hann mun ræða við bandarískan starfsbróður sinn, Colin Powell, um framhald hernaðaraðgerðanna. Bretar reiðubún- ir að taka þátt í landhernaði London. AzFP, AP. BRESKIR landgönguliðar huga að búnaði sínum, en þyrlan sem flutti þá á staðinn, af gerðinni Sea King, hefur sig á loft. Hermennirnir taka þátt í æfingum með þúsundum þýskra hermanna og hers Persaflóaríkisins Omans sem fara fram um þessar mundir við Persaflóa. Er talið víst að til greina komi að sumum landgöngulið- anna verði beitt í Afganistan ef Bretar senda þangað sveitir til aðstoðar Bandaríkjamönnum. Geoff Hoon, varnarmálaráðherra Bretalands, sagði í gær að netið um Sádi-Arabann Osama bin Laden og liðsmenn hans í Afganistan væri að þrengjast og búast mætti við að bin Laden yrði senn handsamaður eða framseldur. Reuters Þyrluæfingar í Oman

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.