Morgunblaðið - 23.10.2001, Page 38

Morgunblaðið - 23.10.2001, Page 38
UMRÆÐAN 38 ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ENSKA ER OKKAR MÁL Innritun í fullum gangi Ensku talnámskeið Einnig önnur fjölbreytt enskunámskeið Susan Taverner Hringdu í síma 588 0303 FAXAFENI 8 www.enskuskolinn.is enskuskolinn@isholf.is Julie Ingham Sandra Eaton Edward Rickson Susannah Hand Joon Fong Enskuskólinn nú einnig á Selfossi ÁHRIF inngöngu Íslands í ESB á ís- lenska tungu eru sjald- an rædd hér á landi. Þetta er dálítið ein- kennilegt þegar litið er til þess að slík inn- ganga hefði gríðarleg áhrif á íslenska mál- pólitík, ekkert síður en útgerð, og að íslensk tunga hefur verið þungamiðja í íslenskri þjóðmenningu og þjóð- ernishyggju frá því á 19. öld. Þetta sýnir kannski að sú tilfinning sem við höfðum fyrir mikilvægi menningar- innar hefur ævinlega verið ýkt, eða a.m.k. undirmálsfiskur miðað við golþorska útgerðarinnar, sem auð- vitað hirðir lítt um kóðin nú á dög- um. Landhelgin er kannski líka fremur guðfræðilegt hugtak en landfræðilegt þegar öllu er á botn- inn hvolft, enda er hún eða öllu held- ur hagsmunir innlendrar útgerðar helsta skerið á leiðinni inni í Evr- ópusambandið. En er það raunsætt sé litið til hagsmuna Íslendinga allra? Lítum fyrst á fiskinn og útgerðina sem vernda á fyrir útlendum togurum. Mér sýnist alveg unnt að sjá 3 atriði sem mæla alveg eins með því að ganga inn í ESB jafnvel þegar litið er til útgerðar og sjávarafla. Í fyrsta lagi hafa margir bent á að ekki sé sjálfgefið að Portúgalar (sem standa hér fyrir útlendinga í heild) streymi inn í landhelgina daginn eftir inn- göngu Íslendinga í ESB, hvað sem sameiginlegri landbúnaðar- og fisk- veiðistefnu líður. Það færi eftir samningum og hefðum hvernig kvótaskipting yrði. Auk þess mætti ætla að stöndug íslensk útgerðarfyr- irtæki ættu að geta staðist sam- keppnina við útlend fyrirtæki og er það ekki óskastaðan að fá fram aukna samkeppni á öllum sviðum? Í öðru lagi gæti inngangan þá al- veg eins verkað á hinn veginn þann- ig að hinir íslensku útvegsmenn ættu sóknarfæri inn á önnur mið. Í þriðja lagi hefur kvótakerfið með tilfærslum sínum í raun grafið undan einhverjum „þjóðlegum“ rétti íslenskra útvegsmanna til landhelg- innar, því þeir haga sínum viðskipt- um algjörlega eftir alþjóðlegum kapítalískum aðferðum; þeir kaupa allan kvóta úr byggðarlögum ef það hentar þeim og selja fiskinn óunninn á erlenda markaði ef þeim sýnist það hagkvæmast. Arðinn af kvótanum geta þeir síðan fjárfest í erlend- um sjóðum. Þeir gætu eins verið Portúgalar. Þetta er auðvitað ein- földuð lýsing stað- reynda en af þeim má leiða að sérstök land- helgisvernd fyrir slík fyrirtæki sé ekki að- eins óþörf heldur hreint skaðleg hags- munum þjóðarinnar. Hagsmunir útvegs- manna eru nú samt ævinlega tíndir til þeg- ar rætt er um ESB og það er eins og fátt ann- að skipti máli. Ýmsir þjóðmenning- arsinnar af ýmsum pólitískum litum hafa hins vegar einnig oft sameinast gegn inngöngu í ESB af eins konar ótta um missi á pólitísku sjálfstæði þjóðarinnar. Þeir þurfa ekki að hafa áhyggjur lengur því að sá missir fór auðvitað í síðasta lagi fram við EES- samninginn og raunar má færa rök fyrir því að hið svokallaða sjálfstæði Íslendinga hafi ævinlega verið þægi- leg sjálfsblekking lítillar þjóðar sem var hernumin án andstöðu og fékk að fara sínar eigin leiðir í landhelg- isstríðum þar sem hinir stóru höfðu ákveðið að fara hina sömu leið. (George Bush eldri setti þetta í sam- hengi á sínum tíma þegar Íslend- ingar voru aðeins fljótari en Banda- ríkjamenn að viðurkenna sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna). Spurningin um sjálfstæði er hins vegar tvíbentari en svo að hana megi einungis ræða sem spurningu um sjálfsákvörðunarrétt eða þjóðréttar- legt ríkishugtak. Öllum Íslendingum er kennt í skóla að undirstaða ís- lenskrar þjóðar séu tungan og sag- an, hin sérstaka íslenska menning. Hún var í raun réttlæting þess að við gætum talist vera eitthvað annað en Danir, önnur rök áttu ekki við því þjóðin hafði, líkt og Færeyingar, lengi engin efni á sjálfstæðinu sem loksins mátti njóta þegar stríðsgróð- inn fleytti Íslendingum endanlega inn í tækniframfarir 20. aldar. Spurningin núna, þegar menn velta fyrir sér framhaldinu á tíð al- þjóðavæðingar, hlýtur því að vera sú hvað verður um tunguna og menn- inguna. Verði einfaldlega haldið í horfinu má gera ráð fyrir að íslenska fái mállýskustatus við hliðina á ensku sem mál viðskipta, vísinda og fjölmiðla. Einnig má hugsa sér að mikið átak verði gert til að styrkja málið á þessum sviðum eins og merki eru um í tölvugeiranum með námi í tungutækni við H.Í. Slíkt átak þyrfti hins vegar að ná yfir miklu fleiri svið samfélagsins, einkum í viðskiptum og fræðum, því tungu- mál lifa á notkuninni einni. Loks mætti hugsa sér inngöngu í ESB. Slíkt myndi samstundis hefja stöðu íslenskunnar upp á svið „meistaradeildar Evrópu“ sem kall- aði á að fjöldi fólks þyrfti að starfa við að halda henni við á sviðum við- skipta og fræða, fjöldi Íslendinga og útlendinga myndi mennta sig til þess beita henni á þessum sviðum og kostnaðurinn væri ekki Íslendinga einna að bera. Þetta myndi líka greiða aðgang íslenskra fyrirtækja að Evrópumörkuðum enn frekar, fyrir nú utan að unnt væri að losa sig við gjaldmiðil sem er nær því að vera haustlauf í vindi alþjóðavæðingar en nokkur trygging sjálfstæðis þjóðar. Að dómi málvísindamannsins Ferdinand de Saussure mátti ein- mitt líkja tungumálum við peninga að því leyti að þeir standa fyrir eitt- hvert gildi hluta sem þeim er gefið. Það er hins vegar ekki gefið að gengi einstakra gjaldmiðla haldi sér og má þess vegna vel gera sér hugarlund að gjaldfall íslenskunnar verði sam- síða gjaldfalli krónunnar þegar frá líða stundir. Hins vegar er kannski lítil fórn í því falin að farga krónunni og hagsmunum samviskulausra sæ- greifa ef hækka á gengi íslenskrar tungu verulega. Það er tæknileg staðreynd sem hæglega má koma í framkvæmd með inngöngu í ESB. Nú eða halda í verðlitlar krónur sem standa fyrir nákvæmlega það sem þeim ber í ríki sem prentar frekar peninga en bækur þegar harðnar á dalnum. Tunga sægreif- anna og ESB Gauti Kristmannsson Íslenskan Þegar menn velta fyrir sér framhaldinu á tíð al- þjóðavæðingar hlýtur spurningin að vera sú, segir Gauti Krist- mannsson, hvað verður um tunguna og menn- inguna. Höfundur er háskólakennari. SÚ STOFNUN sem ég á sterkastar taugar til er Landssími Ís- lands. Þar hef ég starf- að mestalla mína starfsævi eða vel á fjórða tug ára. Ég hef fylgst með uppbygg- ingu þessarar stofnun- ar og sem formaður Félags íslenskra síma- manna um langt árabil gafst mér kostur á að kynnast ýmsum innvið- um starfseminnar. Enda þótt við værum ekki alltaf sátt við launakjörin og vildum fá meira í okkar hlut þá var það engu að síður með nokkru stolti að við horfðum árlega á eftir drjúgri fjárfúlgu út úr stofnuninni og inn í samneysluna þar sem peningar komu að góðu gagni í margvíslegu uppbyggingarstarfi. Á síðustu ára- tugum hefur Landssíminn þannig skilað ríkissjóði tugum milljarða króna. Þjóðin kaupi af sjálfri sér Nú er hins vegar komið að því að selja Landssímann. Að hluta til á að selja símann til útlanda og mun svo- kallaður kjölfestufjárfestir fá meiri- hlutavald yfir stofnuninni jafnvel þótt minnihlutaeign verði þar að baki. Íslenskur almenningur er vissulega einnig hvattur til að kaupa hlutabréf enda gengur spilið út á að selja þjóðinni, sjálfri sér, sína eigin eign. Það var óneitanlega svolítið kostulegt að hlusta á forstjóra Landssímans lýsa því yfir í hádeg- isfréttum útvarps fyrir skömmu að innan fáeinna mánaða verði búið að koma Landssímanum í almannaeign. Það er nú einmitt mergurinn máls- ins, að flestum finnst okkur við eiga Símann og viljum helst ekki láta taka hann af okkur. Sölumenn Landssímans hamast nú við að sannfæra þjóðina og fjár- festa, erlenda jafnt sem innlenda, að Síminn sé traust fyrirtæki sem komi til með að skila eigendum sínum stór- kostlegum arði. Ríkis- stjórnin ætlar þjóðinni ekki þennan arð heldur fjárfestum og gildir hana einu hvort þeir eru innlendir eða er- lendir. Ég skal alveg játa það að mér er heitt í hamsi vegna þessa. Mér finnst þetta vera eins mikið siðleysi og hugsast getur. Og er- um við þá komin að sið- væðingunni. Hvað er siðlegt? Í seinni tíð eru menn farnir að skil- greina siðleysi á nýjan hátt. Nú þyk- ir bara fínt að afhenda þjóðareignir á silfurfati, gefa þær út og suður. Hins vegar snýst siðfræðin um hin smærri tæknilegu efni, hvernig menn bera sig að við að markaðsvæða þjóðar- eignir og hver situr hvar; til dæmis hvort forstjóri Símans sé í þessari stjórninni eða hinni. Vissulega getur það skipt máli hver tengsl manna eru að þessu leyti en það breytir ekki hinu að gerendurnir hvað snertir einkavæðingu Landssímans, ríkis- stjórnin, sá meirihluti sem hún styðst við á Alþingi, einkavæðingar- nefndin og þeir menn sem ganga er- inda þessara aðila í stjórnunarstöð- um Landssímans eru ábyrgir fyrir því að rífa úr almenningseign mik- ilvæga þjónustustarfsemi sem í of- análag hefur reynst þjóðinni gull- moli. Þetta eru þau tengsl sem máli skipta og siðleysið felst í því að svipta þjóðina arðvænlegum eignum sínum. Í þessu ljósi fannst mér það jaðra við farsa að hlusta á forstjóra Lands- símans hæla sér af því í Kastljós- þætti sjónvarpsins 10. október sl. að hann hefði vikið úr starfi tímabundið vegna tengsla sinna í fjármálaheim- inum. Hann sagði að þessi tengsl gætu truflað sölu Símans. Hann kvaðst gera þetta að ráði einkavæð- ingarnefndar ríkisstjórnarinnar en það gleddi sig jafnframt óumræði- lega að gerast nú forgöngumaður um að siðvæða íslenskt viðskiptalíf með þessu athæfi sínu. Ég er sannfærð um að margir hafi gerst nokkuð sljó- ir til augnanna við þessi ummæli. Forstjóri Lands- símans siðvæðir Ragnhildur Guðmundsdóttir Höfundur er fyrrverandi formaður Félags íslenskra símamanna. Viðskipti Flestum finnst okkur við eiga Símann, segir Ragnhildur Guðmunds- dóttir, og við viljum helst ekki láta taka hann af okkur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.