Morgunblaðið - 23.10.2001, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 23.10.2001, Qupperneq 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 41 heima var amma tilbúin með fulla potta af mat handa fólkinu. Og þarna voru þær svo komnar syst- urnar hennar ömmu og þeirra mak- ar og þetta voru: Efemía og Einar Jónsson, Pálína og Þorsteinn Lofts- son, Þorbjörg og Júlíus Evert og Elín, ekkja Sveinbjarnar Egilsson- ar. Eftir að gist var nokkrar nætur hjá ömmu og afa, var haldið af stað til Ólafsvíkur til að heimsækja Guð- björgu systur og Sigtrygg og Guð- brand bróður og Elínu. Þegar hald- ið var til baka, fylgdu systkinin úr Ólafsvík stundum hópnum suður í Böðvarsholt og þá var mikið hlegið og skrafað yfir matar- og kaffihlað- borðum ömmu Bjarnveigar. Sigurð- ur bróðir þeirra kom líka oft sunnan úr Reykjavík og stundum Vigfús úr Hafnarfirði. Guð blessi minningu þessa góða fólks. En það var ekki eilíft sumar og sól. Ég á einmitt minningar um að þegar leið á haust og rökkrið færð- ist yfir, þá gerðist heimasætan unga í Böðvarsholti ætíð kvöldsvæf. Var látin hátta snemma og datt fljótlega útaf frá uppáhalds iðju sinni lestr- inum. Það var einmitt einn haust- dag að þau komu feðginin Guð- brandur og Guðrún. Hann þurfti að fara lengra í einhverjum erinda- gjörðum, en frænka var eftir á með- an. Þegar kominn var háttatími hjá mér settist Guðrún við rúmstokkinn og hóf að endursegja mér sögu úr bók sem ég átti ekki en hún hafði nýlega fengið. Sagan var um tat- aratelpu sem lenti í miklum raun- um, en þó hún væri spennandi fór samt svo að svefninn sigraði mig og þegar ég vaknaði næsta morgunn voru gestirnir auðvitað löngu farn- ir. Eftir nokkra daga var ferð frá Ólafsvík og þá barst mér bókin að láni frá Guðrúnu, svo ég missti nú ekki af endinum. Svona var hugul- semin alltaf við mig. Það var heilt ævintýri fyrir unga telpu að fá að fara til Ólafsvíkur í heimsókn. Þar voru svo margir nán- ir ættingjar, sem alltaf voru mér svo innilega góðir. Ef ég fór með ömmu fórum við auðvitað alltaf í heimsókn til Guðbrands, Elínar og Guðrúnar. það var svo skemmtilegt. Guðbrandur var á sinn hæga hátt svo elskulegur og sagði mörg gull- kornin sem hann laumaði út úr sér, með sínum sérstaka blæ. Hjá Elínu var allt svo fínt, fágað og glansandi út úr dyrum og mér fannst herberg- in svo stór og húsgögnin falleg. Hún sjálf var svo einstök. Alltaf svo glöð og glettin og hún lék allt fyrir mann um leið og hún sagði frá – stundum mörg hlutverk í heilu „kómedíun- um“. Hún sá alltaf spaugilegu hlið- arnar á flestu. Þau voru yndisleg hjón Guðbrandur og Elín. Þegar ég fermdist og mamma bauð þeim hjónum í veisluna, mundi mamma alltar svar Guðbrands, sem henni fannst svo einkennandi fyrir hug hans til okkar. Það hljóðaði svo, sagt hægt og með festu: – Ég hefði komið þó mér hefði ekki verið boðið. Alltaf sendu þau mér jólagjafir og frá þeim fékk ég gullfallegt og sérstakt silfurarmband í ferm- ingargjöf. Armbandið á ég enn. Sú lífsferð er löng sem staðið hef- ur í nær heila öld. Það er því vitað mál hvílíkar gífurlegar breytingar frændi minn hefur upplifað á sínum rúmlega 94ra ára ferli. Hann var góðum gáfum gæddur. Hafði alltaf mikinn áhuga á því sem var að ger- ast í þjóðfélaginu og sinnti störfum sínum, m.a. sem oddviti Ólafsvíkur á sínum tíma, af stakri samvisku- semi og heilindum. Ég leyfi mér fyrir hönd Böðvars- holtsbarnanna, sem ég kalla svo, þ.e. eftirlifandi móðursystkina minna Ólafar, Guðjóns og Gunnars, ásamt Friðriki Lindberg, Bjarn- veigu Karlsdóttur og mér, sem þessar línur rita, er áttum skjól hjá ömmu og afa í Böðvarsholti, að þakka samfylgdina og tryggðina sem frændi okkar bar til fólksins síns og æskustöðva sinna og kom líka fram í hagleik handa hans en hann var listamaður í eðli sínu og gerði fagra og ómetanlega gripi. Við Sævar sendum innilegar samúðarkveðjur til Guðrúnar og Guttorms og biðjum Guð að geyma þau góðu hjón Elínu og Guðbrand í Landi eilífðarinnar. Blessuð sé minning þeirra. Álfheiður Bjarnadóttir. Elsku Guðbrandur, guð blessi þig að eilífu. Þó missi ég heyrn og mál og róm og máttinn ég þverra finni, þá sofna ég hinzt við dauðadóm, ó, Drottinn, gef sálu minni að vakna við söngsins helga hljóm í himneskri kirkju þinni. (Ólína Andrésdóttir.) Kveðja. Halla Eyjólfsdóttir yngri. Hafi nokkur átt skilið sæmdar- heitið heiðursmaður, þá var það Guðbrandur Vigfússon. Orð hans voru betri en þinglýstir pappírar annarra. Hann var sjálfstæðismað- ur af gamla skólanum, lagði áherslu á frelsi og sjálfstæði einstaklingsins en jafnframt og ekki síður ábyrgð hans á eigin lífi og athöfnum. Guð- brandur var ekki maður margra orða en þegar hann talaði hlustuðu nærstaddir. Hann var afskaplega sanngjarn maður og tillitssamur, hjálpsamur grönnum sínum og vin- um, dómharka og hleypidómar voru víðsfjarri hans skapgerð og hann lét hvern mann njóta sannmælis. Snyrtimennsku hans var við brugð- ið og þótt hann starfaði lengst af að iðn sinni, vélsmíðinni, sem þykir ekki með hreinlegri störfum, var hann jafnan eins og hreinn og strokinn, hvað sem á dundi. Guð- brandur var afskaplega hagur mað- ur, verkhygginn og verklaginn og er hann settist í helgan stein átti hann margar stundir við rennibekk- inn sinn og smíðaði ýmsa búshluti sem prýða margt heimilið og jafnvel fegurstu skartgripi. Mannkostir Guðbrands og traust samborgara hans leiddi af sér að hann varð að láta undan þrýstingi um að taka virkan þátt í sveitar- stjórnarmálum í heimabyggð sinni. Var hann valinn oddviti í vöskum hópi manna úr öllum stjórnmála- flokkum, sem tóku höndum saman um að rífa sveitarfélagið upp úr fjárhagslegri öskustó á öndverðum sjöunda áratugnum og gott betur en það, því meðan þessa hóps naut við í sveitarstjórnarmálum kaup- staðarins urðu miklar framfarir í Ólafsvík sem enn sér stað og íbúar njóta góðs af. Er ekki að efa að þeir íbúar Ólafsvíkur, sem lifðu og muna þessi ár, þakka Guðbrandi og fé- lögum hans í sveitarstjórn á þessum árum þau afrek, sem þar voru unn- in. Guðbrandur var kvæntur Elínu Snæbjörnsdóttur frá Ólafsvík, en hún lést fyrir nokkrum árum. Þau hjónin áttu eina dóttur barna, Guð- rúnu, en hún er tvígift. Hún missti fyrri mann sinn, Jóhann Ólason raf- magnstæknifræðing, eftir tiltölu- lega skamma sambúð, en giftist síð- ar Guttormi Þormar verkfræðingi og átti Guðbrandur skjól hjá þeim hin síðari ár. Var afskaplega kært með þeim öllum þremur og einlæg samstaða um smátt og stórt í dag- legu lífi. Sá sem þetta ritar átti því láni að fagna að búa nánast við hlið þeirra Guðbrands og Elínar frá fyrstu bernsku til fullorðinsára. Við systk- inin áttum ævinlega víst skjól hjá þeim ef á þurfti að halda og náin vinátta var með þeim hjónum og foreldrum okkar sem aldrei bar skugga á. Ekki hefur heldur dregið úr sambandi fjölskyldnanna einlæg og óslítandi vinátta þeirra stall- systra Guðrúnar og Kristbjargar, systurinnar í okkar hópi. Fyrir allt það, sem þau voru okkur systkinun- um, verður líklega aldrei hægt að þakka sem vert væri. Við kveðjum nú Guðbrand Vig- fússon og þökkum honum sam- fylgdina. Við vitum að það hefur verið tekið vel á móti honum þar sem andi hans dvelur nú. Guðrúnu og Guttormi er vottuð einlæg sam- úð. Megi minning hans lifa. Guðbr. Þorkell Guðbrandsson.  Fleiri minningargreinar um Guð- brand Vigfússon bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Davíð Osvaldsson útfararstjóri Sími 551 3485 • Fax 568 1129 Áratuga reynsla í umsjón útfara Önnumst alla þætti Vaktsími allan sólarhringinn 896 8284                              ! "#$%#              !  !    "  #  $  &&  % '()* & +% ,& & &    &   &  -. /0& & &  0%  & 1 1.  21. (                3 45 ''3 6 .#7  2  % &$ $  &        '(  /(    & &  , ( 2 & 8& /$.     2  0 2& 1 1. 1 1 1. ( )                99 553/  ''3 2:0  :    "$   %+ 16;< "#$%#  %  *    !  %+ !       ', -   *(( .    !           !      %      /   + 0& =% 2&  / && 5 1& -"$&& 8& & =&%  &        1 1. 1 1 1. ( )      /           "   9> 4 9  ''3 ?#%7@ "#$%#    0  /$  (/$    8& 1$.=()&   8& 1$./(& &  , 8&& 1 :(=$  1 1. "# (       /          "  :3/ 3 3/A  >'-3 ''3 .  ,< 16  % 1  2/  !  3     '(  4   !  %5  !    ' -  ,,( 1 B-  3 -   % -  - ? =$  /3(:20&   :(&  0 =(  &  2  C   1. ( )                 - 3 9 / 3+ 4 2/6  % 1  2/  ! 3     '(  & - & )   (-  .#   (-  1$.-(- & + &)  - ?(- &      +%-(- & =    1$.8&& 1 1.  21 ( )    / -D/ E5 ''3 :-'-   5  #  $! =  C;FFF #  .#    / 6" !/ * 2 0'7   %      / 8    '( /   +    !  3 / 4    ." .   "!  %    %9 2 /3    '   :(( +"               2 :  (

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.