Morgunblaðið - 23.10.2001, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 23.10.2001, Qupperneq 51
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 51 Ingólfsstræti 3 sími 552 5450 www.afs.is Viltu alþjóðlega menntun? Nýtt tungumál? Meira sjálfstraust? Ertu á aldrinum 15-18 ára? Eigum enn laus pláss til landa í Suður-Ameríku. Brottför í febrúar 2002. Umsóknarfrestur er að renna út. Erum að taka á móti umsóknum til fjölmargra landa. Brottför júní-september 2002. Ársdvöl, hálfsársdvöl og sumardvöl. Alþjóðleg fræðsla og samskipti Viltu öðlast meiri víðsýni? Langar þig að kynnast annarri menningu? Viltu kanna ókunn lönd? Mörkinni 6, 108 Reykjavík, sími 588 5518 Ný sending Ullar- og kasmírkápur Flottir aðskornir heilsársfrakkar Skipholti 35  sími 588 1955 King Koil Ein mesta selda heilsudýnan í heiminum Alþjóðasamtök Chiropractora mæla með King Koil heilsudýnunum. Amerískar lúxus heilsudýnur Tilboð! Verðdæmi: King áður kr. 184.350 nú kr. 136.420 Queen áður kr. 134.900 nú kr. 99.840 FATLAÐUR vinur minn kom að máli við mig á dögunum. Hann hafði miklar áhyggjur af slælegum árangri þjóðarinnar í júróvisíon nú snemmsumars. Þrjú stig á Park- en voru að hans mati langt fyrir neðan þann ár- angur sem lag hins nýja þjóð- skálds, Einars Bárðarsonar, átti að ná. Að mati vinar míns hlakkaði hann mikið til þess að sjá Birtu í toppbaráttunni, vonbrigðin urðu því mikil. Íslendingar hafa nú verið þátttak- endur í júróvisíon frá árinu 1986. Það var Gleðibankinn sem reið á vaðið og síðan hafa margar perlur verið send- ar fyrir Íslands hönd. Skemmst er að minnast laga eins og Hægt og hljótt, Sókratesar og Eitt lag enn. Með „Einu lagi enn“ sýndum við ís- lendingar að þjóðlagatónlist okkar, Skagfirska sveiflan, á fullt erindi á borð stærri þjóða. Flytjendurnir Sigga og Grétar heilluðu Evrópubúa með líflegri framkomu og Íslending- ar tóku andköf af spenningi þegar Eitt lag enn barðist um toppsæti í júróvision og endaði í þriðja sæti. Löng vegferð að sigri var hafin. Næst sá þjóðin grilla í fyrsta sætið árið 1999, þegar Selma söng á íðilfag- urri engilsaxnesku „I’m all out of luck“. Ekki eru allir sammála Það eru ekki allir sammála því að Íslendingar eigi að taka þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva. Ég og vinur minn erum þó sammála um það að heimsþorpið sé alltaf að minnka og því sé þátttaka þjóðarinnar í keppni sem þessari nauðsynleg. Betri vettvangur til að koma tónlistarsköpun þjóðarinnar á framfæri er varla til. Margir tónlist- armenn sem hafa farið fyrir okkar hönd hafa jafnvel fengið símtöl frá umboðsmönnum erlendis frá. Eins og flestum er kunnugt lenti Ísland í næstsíðasta sæti nú í ár. Samkvæmt reglunum fáum við því ekki keppnisrétt aftur fyrr en árið 2003. En þá er að nota tímann vel. Það er skoðun mín að nú eigi þjóðin marga efnilega fulltrúa í hina virtu júróvisíonkeppni. Íslendingar eiga því að leggja allan efa um réttmæti þess að taka þátt til hliðar. Að vísu er þetta dýrt og peningunum kannski betur komið hjá heimilislausum í Reykjavík. En þetta er hluti af Evr- ópumenningunni og undan því getum við ekki skorast. Ekki ráð nema í tíma sé tekið. Vegna mikils áhuga á Söngva- keppninni stendur mér ekki á sama um framkvæmd keppninnar árið 2003. Nú þurfum við að ákveða hver fer í víking fyrir Íslands hönd og kemur okkur á verðlaunapall. Það er einn tónlistarmaður sem ég hef fylgst vel með undanfarin ár. Þið þekkið hann flest. Eftir hann liggja ódauðleg lög eins og Hollywood, Can’t Walk away og Svaraðu. Þegar ég hugsa um hinn merka tónlistarmann Herbert Guðmundsson kemur mér í huga hin svala poppstjarna sem kom Can’t Walk away inn á topp breskra vin- sældarlista um árið. Veraldarvanan mann sem lagði leið sína um sléttur Ameríku í rauðum blæjubíl. Herbert er í rauninni einstakur. Hann átti flottustu endurkomu í íslenskri tón- listarsögu og hefur síðan ekkert sleg- ið af. Árið 2000 voru það hinir dönsku Olsenbræður sem sigruðu í keppn- inni. Tveir reyndir popparar sem áttu að baki fjölda vinsælla laga. Herbert Guðmundsson er að mínu mati Olsen- bróðir okkar Íslendinga. Hann hefur reynsluna, útlitið, hæfileikana og þá stóísku ró sem einkenndi angurvær- an flutning þeirra Olsenbræðra á lag- inu „Fly on the wings of love“. Fyrir hönd okkar vinanna skora ég á Herbert Guðmundsson að fara að huga að því að semja nýtt lag í anda Hollywood fyrir Söngvakeppni evr- ópskra sjónarpsstöðva 2003. Ég veit að þjóðin er mér sammála. Svaraðu kallinu, Herbert! MAGNÚS EINARSSON, nemi við Viðskiptaháskólann á Bifröst. Svaraðu kallinu! Frá Magnúsi Einarssyni: Magnús Einarsson KÆRA Ingibjörg Sólrún. Ekki hafði mig grunað að ég ætti eftir að skrifa þér aðdáandabréf. Að vísu átt þú það margfaldlega skilið, svo oft sem ég hefi dáðst að þér við ýmis tækifæri. Einkum hefur mér þótt vænt um að sjá í blöðum og sjónvarpi hvað þú ert broshýr og elskuleg, þegar þú ert að hlúa að lista- og menningarmálum. Oft hef- ur legið við að ég táraðist af hrifn- ingu. En nú tárast ég af öðrum ástæðum. Þær eru þessar: Tónlist- arkennarar hafa dregist aftur úr öðrum í launasamningum á allmörg- um síðustu árum. Mér má standa á sama, því við hjónin erum bæði með viðunandi eftirlaun. En mér rennur til rifja að sjá vini mína og sam- starfsmenn við Söngskólann í Reykjavík dapra og niðurdregna vegna þeirrar vanvirðingar sem þeim þykir yfirvöldin sýna þeim. Laun þeirra eru í engum saman- burði við laun annarra kennara. Þeir hafa sannarlega unnið vel að upp- byggingu skólans. Þegar húsið við Hverfisgötuna var keypt lögðu kennararnir á sig mikla vinnu við að safna fé. Við héldum skemmtanir í Háskólabíói, skólakórinn söng á allskonar samkomum, kennarar og nemendur bökuðu kökur og seldu og allir kennarar skólans gáfu mánað- arlaun í söfnunina. Fyrr en varði var skólinn í okkar eign. Þetta var nú fyrir aldarfjórðungi. Í dag er þetta ekki hægt, bæði er það að í dag eru skemmtanir af ýmsum gerðum út um alla borgina og svo hitt að marg- ir af frumkvöðlunum eru orðnir fjör- gamlir og geta ekki lengur staðið í stórræðum. Nú er nóg komið af harmkvælum og ég sný mér aftur að þér. Kæra Ingibjörg Sólrún, hvers vegna stendur þú fyrir því að setja í samn- inganefnd dragbíta, sem ekki hafa umboð til að semja um launin? Ég hef heyrt að þú sért áhugasöm um tónmenntakennslu í grunnskólum. Tónmenntakennsla og tónlistar- kennsla er sitt hvað. Hvert á unga fólkið að snúa sér til framhaldsnáms ef kennarar treysta sér ekki til að halda áfram störfum? Hefur þú hugsað til þess, hve margir íslenskir söngvarar eru við störf erlendis? Hefur þú hugsað til allra þeirra tón- listarmanna, bæði söngvara og hljóðfæraleikara, sem nú prýða menningarflóruna hér á landi, og ekki síst í Reykjavík? Ef sú flóra fölnar, er hætt við að fallega brosið þitt fölni líka, og þess myndi sárt saknað. Með kærri kveðju. GUÐMUNDUR JÓNSSON, söngvari. Opið bréf til borgarstjóra Frá Guðmundi Jónssyni: 4 stk. í pakka verð kr. 2.300. Kanna í stíl kr. 2.995. 5 mismunandi gerðir. PIPAR OG SALT Klapparstíg 44  Sími 562 3614 DARTINGTON GLÖS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.