Morgunblaðið - 23.10.2001, Page 52

Morgunblaðið - 23.10.2001, Page 52
DAGBÓK 52 ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Víkverji skrifar... RÁÐSTEFNAN Groundfish For-um var haldin hér á landi í síð- ustu viku. Það var í fyrsta sinn sem það var gert, en ráðstefnan hafði ver- ið skipulögð í Madrid á sama tíma. Vegna hryðjuverkanna margumtöl- uðu ákváðu margir skráðra þátttak- enda að hætta við og virtist sem ráð- stefnunni yrði aflýst. Þá kom upp sú hugmynd að halda hana hér á landi og kannað var hvort menn væru til- búnir til að koma hingað. Svo reynd- ist vera og á ótrúlega skömmum tíma náðist að endurskipuleggja ráðstefn- una með glæsibrag. Margir hinna er- lendu þátttakenda áttu vart orð til að lýsa aðdáun sinni á skipulagningunni sem var í höndun fyrirtækisins Kynningar og markaðar. Íslending- um eru greinilega allir vegir færir í þessum málum og hér er mikil þekk- ing á ráðstefnuhaldi en Kynning og markaður hefur skipulagt þessa ráð- stefnu frá upphafi og hefur það verið okkur Íslendingum til sóma. x x x VÍKVERJI og kona hans ákváðunýlega að fá sér myndbands- spólu til að horfa á sér til ánægju og yndisauka. Fyrir valinu varð spennumyndin Á röngum stað á röngum tíma eða Proof of Life eins og hún heitir á enskunni. Þetta reyndist ágætis afþreying með góð- um leikurum og ekki spillti afar fag- urt landslag. Því ákvað Víkverji að horfa á alla nafnarununa, sem fylgdi í lok myndarinnar og komst meðal annars að því hvar hún var tekin. En það var annað sem vakti meiri at- hygli Víkverja. Það kom nefnilega í ljós að hárgreiðslukona Meg Ryan, aðalleikkonunnar, bar íslenzkt nafn. Fríða Aradóttir. Þótt hlutverk henn- ar í gerð myndarinnar væri ekki mikið fannst Víkverja nokkuð til þess koma að Íslendingur kæmi þarna við sögu, en það er eins og Ís- lendingar séu alls staðar. Þeir dúkka upp við ólíklegustu tækifæri. Vík- verji ætlar reyndar ekki að hafa mörg orð um frammistöðu hár- greiðslukonunnar, oftast fannst hon- um hárið á Meg Ryan ærið tjásulegt en líklega hefur það átt að vera þann- ig. ÁHRIF hryðjuverkanna í Banda-ríkjunum og miltisbrandsher- ferðarinnar eru meiri en flestir vilja viðurkenna. Það er hart að þurfa að sætta sig við það að hryðjuverka- menn geti haft slík áhrif, en stað- reyndin er bláköld. Fólk er hrætt við að ferðast, það fer síður út að borða og býr sig undir það versta. Þetta hefur áhrif um allan heim og hefur meðal annars dregið úr sölu á fersk- um fiski héðan til Bandaríkjanna. Reyndar var það verst fyrst og er óð- um að færast í sama horf og áður hvað fiskinn varðar og er það vel. Þetta bitnar einnig á ferðamálum og rýrir afkomu Flugleiða, sem fyrir vikið þurfa að fækka ferðum. Kannski felur þetta einnig í sér eitt- hvað jákvætt fyrir okkur og lækkun vaxta og olíuverðs er vissulega já- kvætt fyrir þjóðarbúið. Kannski á þetta fár svo eftir að auka ferða- mennsku til Íslands vegna þess að ferðamenn sækjast eftir öryggi, sem þeir hugsanlega finna hérna í þeirri von að hinn langi armur hryðju- verkamanna seilist ekki til smáþjóð- ar eins og okkar. Hvur veit? Á biðlista í 3 ár FYRIR ári kom grein í Morgunblaðinu sem Páll Pétursson félagsmálaráð- herra skrifaði um að það ætti að eyða öllum biðlist- um á sambýli fyrir árið 2003. En nú er komið í ljós að úr því verður ekki því það vantar svo mikið af hús- næði. Er stefnt að því að eyða öllum þessum biðlista fyrir árið 2006. Ég er ein af þeim sem eru á þessum biðlista og er búin að vera þar í rúm 3 ár. Ég er mjög óánægð með hversu lengi ég verð að bíða eftir plássi og hvað hægt þetta gengur. Ása Björk Gísladóttir, Breiðagerði 6, 108 Rvk. Ábending ÁBENDING til dreifingar- aðila auglýsingabæklinga annarra en Íslandspósts. Vinsamlega virðið beiðni um að slíkur póstur, þar með talin dagskrárblöð, sé ekki settur í póstkassa þar sem þess er óskað. Við munum að öðrum kosti endursenda þann póst á kostnað auglýsenda. 230626-4059. Skipulögð samtök Utanríkisráðherra okkar Íslendinga, Halldór Ás- grímsson, segir að það taki 10–20 ár að uppræta hryðjuverkastarfsemi í heiminum. Þau voðaverk sem framin hafa verið í Bandaríkjunum eru líklega aðeins byrjunin og senni- lega verður kreppa í heim- inum. Í fréttum kemur fram að stórfyrirtæki í heiminum greiði milljarða dollar til hryðjuverkasamtaka til að þau megi starfa óáreitt og verði ekki þurrkuð út. Þetta eru þrælskipulögð samtök um allan heim. Glæpamafíurnar í Banda- ríkjunum og Rússlandi eru hreinusta peð miðað við þessar hreyfingar. Páll Hannesson, Ægisíðu 86, Rvík. Tapað/fundið Týndur álfur ÁLFURINN okkar hvarf 17.–18. okt. sl. Hann er smávegis skaddaður á nefi. Ef einhver hefur séð hann vinsamlega látið vita í síma 564-2630, v. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 hvergi smeykur, 8 hendi, 9 efla, 10 tek, 11 hluta, 13 handleggur, 15 ísbrú, 18 jurt, 21 kusk, 22 hagnaður, 23 dýrin, 24 verðmætamat. LÓÐRÉTT: 2 svarar, 3 óps, 4 samtala, 5 afkvæmum, 6 far, 7 langur sláni, 12 málmur, 14 borg, 15 fokka, 16 ölv- aður, 17 burðarviðir, 18 svarkur, 19 ákæra, 20 svelgurinn. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 Skuld, 4 sukks, 7 negul, 8 Lappi, 9 dót, 11 aurs, 13 vika, 14 klæki, 15 hrjá, 17 krús, 20 átt, 22 kútur, 23 álfur, 24 aðals, 25 nenni. Lóðrétt: 1 senna, 2 uggur, 3 duld, 4 sult, 5 kappi, 6 seiga, 10 óbært, 12 ská, 13 vik, 15 Hekla, 16 jötna, 18 rofin, 19 syrgi, 20 árás, 21 tákn. K r o s s g á t a Á TÍMUM örra tækninýj- unga vill hið mannlega oft gleymast. Viðskipti manna á meðal fara gjarn- an í gegnum tölvu og svo er einnig um samskiptin. Unglingarnir eru upp- teknir við SMS-skilaboðin og hafa náð ótrúlegum hraða við að senda þau. Það má ekki skilja orð mín svo að ég sé á móti tækni- nýjungum því það er ég alls ekki. Tæknin sparar okkur tíma. Get ég tekið sem dæmi að nú eyði ég ekki drjúgum tíma að bíða í röð í bankastofnunum til að greiða reikninga. Held- ur sest ég niður við tölv- una heima og borga í gegnum heimabanka. Þrátt fyrir tæknina er þörf fyrir lipra og góða þjónustu starfsfólks hinna ýmsu stofnana í þjóðfélag- inu. Ekki alls fyrir löngu ákvað ég að fá tilboð í tryggingar fyrir heimili mitt og fjölskyldu. Ég vildi afla mér upplýsinga hjá nokkrum trygginga- félögum hér á landi til að fá nánari upplýsingar um kjör og innihald trygging- anna. Fljótt varð ég þess vísari að mikil samkeppni er á milli tryggingafélag- anna og reynir hver hann best getur að lokka að við- skiptavininn. Eftir að hafa talað við þjónustufulltrúa nokkurra tryggingafélaga var ég ekki í nokkrum vafa um hvert ég ákvað að beina mínum viðskiptum. Það var til VÍS. Skýringin á því er sú að ég var það lánsamur að tala við starfsmann sem var ein- staklega kurteis, lipur og vel að sér um allar trygg- ingar. Þessi starfsmaður gaf sér góðan tíma í að út- skýra hvaða skilmálar væru í boði og hvað trygg- ingarnar fælu í sér. Þann- ig að ég þurfti alls ekki að velkjast í vafa um hvað hver og ein trygging hefði upp á að bjóða. Þessi um- ræddi starfsmaður er Sig- fríður Þórisdóttir, þjón- ustufulltrúi hjá VÍS. Þessi góða þjónusta varð til þess að ég ákvað að færa allar mínar tryggingar til VÍS. Að lokum vil ég þakka fyrir frábæra þjónustu og minna á að auður hvers fyrirtækis felst í starfs- mönnum þess. Ánægður viðskiptavinur. Góð þjónusta hjá VÍS Skipin Reykjavíkurhöfn: Brú- arfoss kom í gær, Ocean Tiger og Tokja Maru 31 koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Helgafell kemur í dag. Fréttir Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, opinn þriðjud. og fimmtud. kl. 14–17. Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Hamraborg 20a. Fataúthlutun kl. 17– 18. Mannamót Aflagrandi 40. Kl 9 vinnustofa, kl. 9 leirkera- smíði, kl. 10 enska, kl. 10.15 Búnaðarbanki kl. 11 enska og dans, kl. 13 bað, vinnustofa, postu- línsmálning. Árskógar 4. Kl. 9 bók- band og öskjugerð, kl. 13 opin smíðastofa, kl. 10 púttvöllur opinn. Allar upplýsingar í síma 535- 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böð- un, kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9–12 tréskurður, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fóta- aðgerð, kl. 10 sund, kl. 13 leirlist, kl. 14 dans. Vetr- arfagnaður verður fimmtudaginn 8. nóvem- ber. Hlaðborð, salurinn opnaður kl. 16.30, dag- skráin hefst með borð- haldi kl. 17. Kvöldvöku- kórinn syngur undir stjórn Jónu Kristínar Bjarnadóttur, happdrætti, Húnar (Ragnar Leví) leika fyrir dansi. Skráning og greiðsla fyrir miðvikud. 7. nóv. s. 568-5052. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlað- hömrum er á þriðjudög- um og fimmtudögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Jóga á föstudögum kl. 13.30. Kóræfingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mosfellsbæ á Hlaðhömrum á fimmtu- dögum kl. 17–19. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586-8014 kl. 13–16. Tímapöntun í fót-, hand- og andlits- snyrtingu, hárgreiðslu og fótanudd, s. 566-8060 kl. 8–16. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9– 16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10 samveru- stund, kl. 14 félagsvist. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 13 föndur og handavinna, kl 14.45 söngstund í borðsal með Jónu Bjarnadóttur. Félag eldri borgara Kópavogi. Akranesferðin verður föstudaginn 26. október. Þátttökulistar í Gjábakka og Gullsmára. Skráið ykkur sem fyrst. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Spilað í Holts- búð 25. október kl. 19.30. Þriðjudagur: kl. 9 vinnu- hópur í glerskurði, kl. 13 málun, kl. 13.30 tré- skurður og spilað í Kirkjuhvoli, bridge-vist- lomber. Miðvikudagur: kl. 11.15 og kl. 13 leik- fimi, kl. 15 leshringur í Bókasafni Álftanes (24. okt, 7. nóv. 21. nóv. 5. des.), kl. 15.30, tölvu- námskeið í Garðaskóla og trésmíði nýtt og gam- alt kl. 16, bútasaumur í Garðaskóla. Fimmtu- dagur: kl. 9 vinnuhópur í leir, kl. 9.45 boccia, kl. 10 keramik, kl. 12.15 spænska, kl. 13 vinnu- hópur gler, kl. 9–14 fót- aðgerðarstofan, kl. 13.30. Spilað í Holtsbúð 15. nóv. 29. nóv. Spilakvöld í Holtsbúð 25. okt. kl. 19.30 í umsjón þjóðmála- nefndar RótaryKlúbbs- ins Görðum í Garðabæ. Rútuferðir samkvæmt venju. Föstudagur kl. 9 japanskur pennasaum- ur. Upplýsingar www.- fag.is Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Leikfimi í Íþróttahúsinu við Strandgötu kl. 11.30, saumar og bridge kl. 13.30, tréútskurður í Lækjarskóla kl. 13. Á morgun verður píla og myndlist. Á fimmtudag verður opið hús kl. 14 eldri skátar sjá um skemmtiatriði. Á föstu- dag verður dansleikur kl. 20:30 Caprí tríó leikur fyrir dansi. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin alla virka daga frá kl. 11–13. Kaffi – blöðin og matur í hádegi. Þriðjudagur: Skák kl. 13 og alkort kl. 13.30. Miðvikud: Göngu- Hrólfar fara í göngu frá Hlemmi kl. 9.45. Söngfélag FEB kóræf- ing kl. 17. Línudans- kennsla kl. 19.15. Nám- skeið í brids kl. 19.30. Söngvaka kl. kl. 20.45 í umsjón Sigurbjargar Hólmgrímsd. Lands- samband eldri borgara og Skálholtsskóli bjóða til fræðsludaga í Skál- holti 29.–31. október. Með fyrirlestrum og al- mennum umræðum, kvöldvökum, gönguferð- um, staðarskoðun og boðið til tíðasöngs að hætti fyrri tíðar í Skál- holtskirkju. Umsjón sr. Bernharður Guðmunds- son rektor. Upplýsingar og skráning hjá FEB. Silfurlínan er opin á mánudögum og miðviku- dögum frá kl. 10–12 f.h. Skrifstofa félagsins er flutt að Faxafeni 12, sama símanúmer og áð- ur. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Upplýsingar á skrifstofu FEB kl. 10–16 í síma 588-2111. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Kl. 9–16.30 vinnustofa, tréskurður, kl. 9–13 hárgreiðsla, kl. 10 leikfimi, kl. 12.40 Bón- usferð, kl. 13.15 bókabíll. Opið alla sunnudaga frá kl. 14–16 blöðin og kaffi. Garðabær. Opið hús í Kirkjuhvoli í dag kl 13– 16. Spilað og spjallað. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 9–12 opið hús í Miðbergi leiktækjasal, m.a. innipúttvöllur, tenn- is, snóker og fleira, um- sjón Sólveig Ólafsdóttir. Frá hádegi spilasalur op- inn, kl. 13. boccia. Mynd- listarsýning Valgarðs Jörgensen stendur yfir, veitingar í veitingabúð Gerðubergs. Allar upp- lýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575- 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofa opin, leiðbeinandi á staðnum frá kl. 10–17, kl. 9.05 og 9.50 leikfimi, kl. 9.30 gler- list, kl. 14 þriðjudags- ganga, farið frá Gjábakka kl. kl. 14 boccia, kl. 16.20 og kl. 17.15 kínversk leik- fimi. Gullsmári, Gullsmára 13. Postulínsmálun kl. 9.15, jóga kl. 9.05, handavinnu- stofan opin kl. 13–16, leið- beinandi á staðnum, spænska kl. 17.20, gömlu dansarnir kl. 17, línudans kl. 18, Sigvaldi kennir. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun og leikfimi, kl. 9.45 bankaþjónusta, kl. 13 handavinna, kl. 13.30 bænastund. Fótsnyrting, handsnyrting. Hraunbær 105. Kl. 9 postulínsmálun, kl. 9 glerskuður og trémálun, kl. 10 boccia, kl. 11 leik- fimi, kl. 12.15 verslunar- ferð í Bónus, kl. 13–17 hárgreiðsla, kl. 13 mynd- list. Háteigskirkja eldri borgara á morgun, mið- vikudag, fyrirbænastund kl. 11, súpa í Setrinu kl. 12, spil kl. 13. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 tréskurður og opin vinnustofa, kl. 10 boccia, kl. 9–17 hárgreiðsla. Vesturgata 7. Kl. 9 fóta- aðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15–16 bútasaumur, kl. 9.15–15.30 handa- vinna, kl. 11 leikfimi. kl. 13 spilamennska. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 9.30 gler- skurður og morgun- stund, kl. 10 fótaaðgerðir og leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13 handmennt og körfugerð, kl. 14 fé- lagsvist. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leikfimi kl. 11.15 í Digranes- kirkju. Bridsdeild FEBK, Gjá- bakka. Brids í kvöld kl. 19. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, á miðviku- dögum kl. 20, svarað í síma 552 6644 á fundar- tíma. Eineltissamtökin. Fund- ir á Túngötu 7 á þriðju- dögum kl. 20. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra, leikfimi kl. 11 í Bláa salnum. Í dag er þriðjudagur 23. október, 296. dagur ársins 2001. Orð dagsins: En mikillega bið ég yður, bræður, fyrir sakir Drottins vors Jesú Krists og fyrir sakir kærleika andans, að þér stríðið með mér með því að biðja til Guðs fyrir mér. (Rómv. 15, 30.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.